DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2970.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Sweet Primrose Dress

Prjónaður kjóll fyrir börn úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, gatamynstri og pífu á berustykki. Stærð 0 – 6 ára.

DROPS Baby 43-15
DROPS Design: Mynstur z-108-by
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

STÆRÐ:
0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mánaða (2 - 3/4 - 5/6) ára
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
48/52 - 56/62 - 68/74 - 80/86 (92 - 98/104 - 110/116)

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150-150-150-200 (200-250-300) g litur 9026, blush

DROPS TALA NR 600: 3 stykki í allar stærðir fyrir op mitt að aftan.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 2,5: lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2970.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

HNAPPAGAT (mitt að aftan):
Fellið af fyrir hnappagötum frá réttu þegar 2 lykkjur eru eftir í umferð þannig:
Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 síðustu lykkjur slétt saman. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, svo að það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar berustykkið mælist 1½ cm frá prjónamerki í hálsmáli. Fellið síðan af fyrir 2 næstu hnappagötum með ca 3-3-3-4 (4-4½-5) cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, setjið stykkið saman og afgangur af stykki er prjónaður í hring. Berustykkið skiptist fyrir pils og kant á ermum. Pilsið er prjónað í hring á hringprjóna. Kantar á ermum eru prjónaðir í hring á sokkaprjóna. Að lokum eru prjónaðar upp lykkjur meðfram berustykki fyrir pífu.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 66-72-76-82 (86-90-96) lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Alpaca. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið 4 umferðir sléttprjón fyrir fald fyrir saum með 2 lykkjur í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 2 lykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, endið með 2 lykkjur í garðaprjóni (uppábrot).
Prjónið 5 umferðir sléttprjón með 2 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið – JAFNFRAMT í síðustu umferð er aukið út um 5-11-13-13 (15-17-23) lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir ystu 2 lykkjur í hvorri hlið) = 71-83-89-95 (101-107-119) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki eftir 2 fyrstu lykkjurnar í umferð. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan. Berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 3. Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 2 lykkjur í garðaprjóni, prjónið A.1 alls 11-13-14-15 (16-17-19) sinnum, prjónið fyrstu lykkjuna í A.1 þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins, endið með 2 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og munið eftir HNAPPAGAT mitt að aftan – sjá útskýringu að ofan!
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, eru 137-161-173-185 (197-209-233) lykkjur í umferð og berustykkið mælist ca 9-9-9-9 (13-13-13) cm frá prjónamerki við hálsmál.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 142-162-178-194 (196-218-234) lykkjur (ekki er aukið út/lykkjum fækkað yfir ystu 2 lykkjur í hvorri hlið).
Prjónið síðan sléttprjón með 2 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist ca 10-10-11-12 (14-14-15) cm, en stillið af að síðasta umferðin sé prjónuð frá réttu og setjið 2 síðust lykkjurnar í garðaprjóni á prjóni frá réttu á hjálparprjón framan við stykkið.
Nú er stykkið sett saman mitt að aftan, þ.e.a.s. prjónið þannig:
Leggið 2 lykkjur garðaprjón af hjálparprjóni við 2 lykkjur garðaprjón í byrjun á umferð og prjónið garðaprjóns lykkjurnar slétt saman 2 og 2, þannig að kanturinn að framan verði á sínum stað (nú hefur fækkað um 2 lykkjur og kanturinn með hnappagötum liggur efst), prjónið 18-20-22-25 (26-29-31) lykkjur slétt (ca ½ bakstykki), setjið næstu 32-38-42-44 (44-48-52) lykkjur á þráð fyrir kant á ermi, fitjið upp 6-6-6-6 (8-8-8) nýjar lykkjur á prjóni (í hlið undir ermi), prjónið 38-42-46-52 (54-60-64) lykkjur slétt (framstykki), setjið næstu 32-38-42-44 (44-48-52) lykkjur á þráð fyrir kant fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-6 (8-8-8) nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið þær 18-20-22-25 (26-29-31) lykkjur sem eftir eru slétt (ca ½ bakstykki).
Prjónið síðan pilsið eins og útskýrt er að neðan.

PILS:
= 88-96-104-116 (124-136-144) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í aðra hlið á stykki – mitt í 6-6-6-6 (8-8-8) lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Prjónið sléttprjón yfir lykkjur á bakstykki fram að prjónamerki í hlið - umferðin byrjar núna hér.
Prjónið 1 umferð slétt. Næsta umferð er prjónuð þannig: * 2 lykkjur slétt, takið upp þráðinn á undan næstu lykkju og prjónið þráðinn snúið slétt (1 lykkja fleiri) *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 132-144-156-174 (186-204-216) lykkjur.
Prjónið 1 umferð slétt án útaukningar.
Næsta umferð er prjónuð þannig: * 6 lykkjur slétt, takið upp þráðinn á undan næstu lykkju og prjónið þráðinn snúið slétt (1 lykkja fleiri) *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 154-168-182-203 (217-238-252) lykkjur.
Haldið áfram hringinn í sléttprjóni.
Þegar pilsið mælist 2 cm frá skiptingu er næsta umferð prjónuð þannig: * 14 lykkjur slétt, takið upp þráðinn á undan næstu lykkju og prjónið þráðinn snúið slétt (1 lykkja fleiri) *, prjónið frá *-* þar til eftir eru 0-0-0-7 (7-0-0) lykkjur, prjónið 0-0-0-7 (7-0-0) lykkjur slétt = 165-180-195-217 (232-255-270) lykkjur.
Prjónið síðan sléttprjón þar til pilsið mælist 17-21-24-27 (29-33-38) cm frá skiptingu – JAFNFRAMT í síðustu umferð er aukið út um 1-0-1-1 (0-1-0) lykkju = 166-180-196-218 (232-256-270) lykkjur.
Næsta umferð er prjónuð þannig: * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* umferðina hringinn (uppábrot). Prjónið sléttprjón í 2 cm fyrir fald fyrir saum. Fellið aðeins laust af.

KANTUR Á ERMUM:
Setjið lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 2,5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-6 (8-8-8) lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 38-44-48-50 (52-56-60) lykkjur. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan. Fellið aðeins laust upp.

FRÁGANGUR:
Brjótið niður faldinn fyrir saum efst í hálsmáli að innanverðu á stykkinu. Saumið faldinn niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn í hálsmáli dragist saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Saumið saman op við miðju að aftan á köntum með smáu spori.
Brjótið inn faldinn neðst á pilsinu að röngu og saumið niður alveg eins.
Saumið tölur að aftan.

PÍFA:
Takið upp lykkjur eins og útskýrt er að neðan, í síðustu brugðnu umferðina (séð frá réttu) sem prjónaðar voru í A.1. Haldið á stykkinu upp og niður, þ.e.a.s. með hálsmálið að þér. Notið hringprjón 2,5 og DROPS Alpaca. Byrjið mitt að aftan, nákvæmlega eftir 2 lykkjur í garðaprjóni, takið upp 1 lykkju í efri lykkjubogann í hverja brugðna lykkju, fram þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð = ca 111-131-141-151 (193-205-229) lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, takið upp þráðinn á undan næstu lykkju og prjónið þráðinn snúið slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og 1 lykkju í garðaprjóni = 219-259-279-299 (383-407-455) lykkjur.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig:
1 lykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, takið upp þráðinn á undan næstu lykkju og prjónið þráðinn snúið slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og 1 lykkju í garðaprjóni = 327-387-417-447 (573-609-681) lykkjur.
Prjónið sléttprjón fram og til baka án útaukningar, með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til pífan mælist ca 3-3-3½-4 (4-5-5) cm. Skiptið yfir á hringprjón 3. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum frá réttu.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = slétt lykkja frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er í mynsturteikningu (það á að myndast gat)
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð (ranga), er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið (það á ekki að myndast gat)
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 43-15

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (31)

country flag Kim Sanderson wrote:

Please ignore my question!! Some days my brain doesn’t works as well as it should. Sorry to be a bother!

28.04.2024 - 23:25

country flag Kim Sanderson wrote:

Hi, the stitch count in the pattern for the yoke is confusing me. Using row 5, I am increasing by 28 stitches as the repeat is a little over 14 times (89 less 4 garter/6 = 14.1666. Each time you’re increasing by 2 yo’s closed. If I repeat A.1 13 times (13x32 rows for a total of 416 rows!?) and do the 3 lines of increases I’m going to have way more stitches than the 173 my size states. I’m not reading something right! Thanks for your help.

27.04.2024 - 01:36

DROPS Design answered:

Dear Kim, the pattern states that you work A.1 14 times in the same round (not vertically) and only once vertically (when A.1 is finished); the last stitch is worked as the first stitch of A.1 and is extra to the rest of the pattern. Since you increase 2 stitches per repeat = 14 x 2 = 28 stitches. You have 3 rows with these increases in total: 28 x 3 = 84. 89 initial stitches + 84 stitches = 173 stitches. Happy knitting!

28.04.2024 - 23:18

country flag Kim Sanderson wrote:

Hi, I’m knitting #43.15 and there is a line at the start of the charted yoke - work the first stitch in A.1 so the pattern is symmetrical and 2 stitches in garter stitch. Can you advise what “so the pattern is symmetrical” means, please and thanks.

23.04.2024 - 23:22

DROPS Design answered:

Hi Kim, Working the first stitch in A.1 before the 2 garter stitches at the end of the row, means the pattern begins and ends in the same way on the row. Happy knitting!

24.04.2024 - 06:38

country flag Ina wrote:

Moin aus Hamburg. Leider verstehe ich den Übergang von der Halsblende zur Passe nicht. Wenn ich die Passe ab der Markierung messen, was mache ich mit den zwei ersten Maschen weiter? Liebe Grüße Ina

19.03.2024 - 10:56

DROPS Design answered:

Liebe Ina, die Markierung wird hier eingesetzt, damit man von hier die Arbeit misst. Diese Maschen stricken Sie krausrechts wie später beschrieben. Viel Spaß beim Stricken!

19.03.2024 - 11:32

country flag Basilic wrote:

Les explications sont assez claires pour les tricoteuses confirmées. Par contre ERREUR dans la légende du diagramme!!! Les jetés NOIRS sont à tricoter en envers torse. Les jetés CREUX doivent former le motif ajouré.

05.03.2024 - 20:10

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Basilic et merci pour votre retour, la légende avait effectivement été inversée, tout est juste désormais. Bon tricot!

06.03.2024 - 08:33

country flag MYRIAM DEVAUCHELLE wrote:

Merci beaucoup de votre réponse, en fait c'était plus simple que ce que je pensais cordialement

12.02.2024 - 10:00

country flag MYRIAM DEVAUCHELLE wrote:

Bonjour, je fais la 2° taille, à la fin de l'empiècement j'ai 162 mailles, je joins les deux mailles de bordure, j'ai donc 160 mailles, où se trouve les deux diminutions pour avoir 158 mailles comme sur le modèle et comment les faire? merci de m'aider

11.02.2024 - 10:32

country flag MYRIAM DEVAUCHELLE wrote:

Bonjour, je suis arrivée à l'empiècement (2° taille), j'ai 162 mailles, je joins les mailles de bordure pour tricoter en rond, j'ai 160 mailles, où se trouve les deux diminutions et comment les faire, car je dois avoir en principe 158 mailles avant de laisser de côté les mailles qui serviront pour les manches. pouvez vous m'aider, merci d'avance

11.02.2024 - 10:28

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Devauchelle, vous devez bien avoir 160 mailles: les 2 m de bordure tricotées au début du tour + 20 m pour le 1/2 dos + 38 m de la manche + 42 m pour le devant + 38 m pour la manche + 20 m pour le demi-dos = 160 mailles. Bon tricot!

12.02.2024 - 07:39

country flag MYRIAM DEVAUCHELLE wrote:

Bonjour, je ne comprends pas ce qu'est le rang de cassure, ni où il se trouve. Je ne comprends pas non plus pourquoi coudre le haut du col.je suis également complétement perdue pour le volant, comment relever les mailles, faut il le faire sur l'envers de la robe et comment repérer le rang à partir duquel il faut relever les mailles. J'ai commencé un essai en réduction, mais je bloque . merci de votre aide

26.01.2024 - 17:18

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Devauchelle, le rang de cassure est celui indiqué au milieu do col (quand on tricote (2 m ens à l'end, 1 jeté), autrement dit, on plie pour former un ourlet picot (cf vidéo. Pour le volant, prenez la robe sur l'endroit, encolure face à vous et relevez les mailles dans le dernier rang envers de A.1: 1 maille dans chacune de ces mailles envers tout du long, après les 2 m de la bordure dos. Bon tricot!

29.01.2024 - 11:24

country flag Mizuki wrote:

Hi, I have a question about the length. When we knit skirt 17-21-24-27 (29-33-38) cm and 2 cm after the "k2tog, yo", skirt measures like diagram say; 20-24-27-30 (32-36-41). But after sewing the bottom of skirt, it means almost −2cm at all sizes and it's different from the diagram. Which is right, "diagram−2cm is the final results" or "knit more 2cm so that final results will became the same as the diagram"?

07.10.2023 - 14:27

DROPS Design answered:

Dear Mizuki, take into account in the measurements schematic 30 cm is the total length, which includes the 10cm of the upper part of the dress, and the 3+1 of the neck. So you would have 30-10-3-1 = 16 cm left for the skirt. Since you have 19cm for the skirt and you turn approx. 2 or 3 cm for the folding edge at the end, you will have a true skirt length of approx. 16 or 17 cm, as stated in the measurements schematic. Happy knitting!

09.10.2023 - 01:07