DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7700.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Julerose

Peysa með hringlaga berustykki, háum kraga og marglitu norrænu mynstri, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Snow. Stærð S-XXXL.

DROPS 183-6
DROPS Design: Mynstur ee-605
Garnflokkur E eða C + C
-----------------------------------------------------------

Stærð: S/M - M/L - L/XL - XXL/XXXL

Efni:
DROPS SNOW frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
600-650-750-900 g litur 08, rauður
100-100-100-100 g litur 01, natur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 og 80 cm) NR 9 – eða þá stærð sem þarf til að 10 lykkjur og 14 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 8 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 11 lykkjur og 15 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7700.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 60 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 20) = 3. Í þessu dæmi er fækkað með því að prjóna aðra hverja og þriðju hverja lykkju slétt saman. Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 3. hverja lykkju, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Veljið mynstur fyrir rétta stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

ÚTAUKNING (á við um stroff):
Aukið út í brugðnu mynstureiningunum (frá réttu) með því að slá 1 sinni uppá prjóninn í skiptingunni á milli brugðið og slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður.
Það er hægt að prjóna upphækkun aftan í hnakka til þess að flíkin passi betur þannig að berustykkið verði aðeins hærra í hnakka. Hægt er að sleppa þessari upphækkun, þá verður hálsmál alveg eins að framan og að aftan – sjá útskýringu að neðan í uppskrift. Eftir berustykki er fram- og bakstykki prjónað í hring á hringprjón niður að klauf, síðan er fram- og bakstykki prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna ofan frá og niður.

KRAGI:
Fitjið upp 60-64-68-72 lykkjur á stuttan hringprjón 8 með litnum rauður. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stykkið mælist 12 cm er prjónuð 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 20-16-20-16 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 40-48-48-56 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar (= miðja að aftan). Skiptið yfir á hringprjón 9 og prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan 1 umferð þar sem aukið er út um 8-0-16-8 lykkjur jafnt yfir = 48-48-64-64 lykkjur. Nú er hægt að prjóna upphækkun í hnakka eða að fara áfram í að prjóna berustykki ef ekki er óskað eftir upphækkun.

UPPHÆKKUN Í HNAKKA:
Hoppið yfir þennan kafla ef ekki er óskað eftir upphækkun.
Byrjið við miðju að aftan við prjónamerki, prjónið 7-7-8-8 lykkjur slétt, * haldið þræðinum á bakhlið á stykki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, færið þráðinn að framan á stykki á milli lykkja á hægri og vinstri prjón, steypið óprjónuðu lykkjunni til baka yfir á vinstri prjón, færið þráðinn til baka á bakhlið á stykki, snúið stykkinu (nú myndast “lykkja” í kringum snúningslykkju), prjónið 14-14-16-16 lykkjur brugðið frá röngu, ** haldið þræðinum á framhlið á stykki (að þér), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, færið þráðinn að bakhlið á stykki á milli lykkja á hægri og vinstri prjóni, steypið óprjónuðu lykkjunni til baka yfir á vinstri prjón, færið þráðinn til baka að framhlið á stykki, snúið stykkinu (nú myndast “lykkja” í kringum snúningslykkju). Prjónið 21-21-24-24 lykkjur slétt, en yfir snúningslykkjuna er prjónað þannig: Stingið hægri prjón neðan frá og upp inn í lykkjuna í kringum snúningslykkjuna og inn í snúningslykkjuna eins og prjóna eigi hana slétt, steypið bæði lykkjunni og snúningslykkjunni yfir á hægri prjón. Stingið inn vinstri prjón í gegnum báðar lykkjurnar frá framhlið (að þér) og prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið síðan áfram eins og áður.
Endurtakið frá *, en prjónið 28-28-32-32 lykkjur brugðið til baka (í stað 14-14-16-16 lykkjur) og prjónið yfir snúningslykkjuna þannig (passið uppá að þráðurinn haldist á röngu á stykki, að þér):
Stingið inn hægri prjón í lykkju í kringum snúningslykkju neðan frá og upp frá bakhlið (eins og prjóna eigi brugðið), steypið lykkjunni yfir á vinstri prjón. Prjónið þessar 2 lykkjur brugðið saman, prjónið síðan áfram eins og áður.
Prjónið nú frá ** áður en prjónaðar eru 14-14-16-16 lykkjur slétt til baka að miðju að aftan. Þessi aðferð kallast Wrap and Turn og er prjónuð til þess að sleppa við göt í snúningunum. ATH: Í næstu umferð er prjónað yfir snúningslykkjurnar alveg eins og útskýrt er í upphækkun að ofan.

BERUSTYKKI:
= 48-48-64-64 lykkjur.
UMFERÐ 1: Prjónið slétt og aukið út um 16-16-16-16 lykkjur jafnt yfir (aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 3.-3.-4.-4. hverja lykkju) = 64-64-80-80 lykkjur.
UMFERÐ 2: Prjónið slétt og aukið út um 0-16-0-16 lykkjur jafnt yfir (aukið út um 1 lykkju á eftir 0.-4.-0.-5. hverja lykkju)= 64-80-80-96 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
UMFERÐ 3: Prjónið slétt og aukið út um 16-0-16-16 lykkjur jafnt yfir (aukið út um 1 lykkju á eftir 4.-0.-5.-6. hverja lykkju) = 80-80-96-112 lykkjur.
UMFERÐ 4: Prjónið slétt og aukið út um 0-16-0-0 lykkjur jafnt yfir (aukið út um 1 lykkju á eftir 0.-5.-0.-0. hverja lykkju) = 80-96-96-112 lykkjur.
UMFERÐ 5: Prjónið slétt og aukið út um 16-0-16-16 lykkjur jafnt yfir (aukið út um 1 lykkju á eftir 5.-0.-6.-7. hverja lykkju) = 96-96-112-128 lykkjur.
Prjónið síðan í hring á eftir mynsturteikningu A.1 (= 6-6-7-8 mynstureiningar með 16 lykkjum) – lesið MYNSTUR að ofan. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 150-162-182-210 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 25-26-28-32 cm frá miðju að framan án stroffs í hálsi.
Næsta umferð er prjónuð með litnum rauður þannig: Prjónið 22-23-27-33 lykkjur í sléttprjóni (= hálft bakstykki), setjið næstu 31-35-37-39 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 44-46-54-62 lykkjur í sléttprjóni (= framstykki), setjið næstu 31-35-37-39 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið 22-23-27-33 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 100-104-120-148 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, þ.e.a.s. mitt í 6-6-6-8 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi í hvorri hlið – látið prjónamerkin fylgja með áfram í stykkinu. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 21-22-22-22 cm prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, yfir 6-6-6-8 lykkjur í hvorri hlið (þ.e.a.s. yfir 3-3-3-4 lykkjur hvoru megin við prjónamerkin – aðrar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni). Þegar 4 umferðir í garðaprjóni hafa verið prjónaðar til loka skiptist stykkið við prjónamerki og fram- og bakstykki eru prjónað til loka hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 50-52-60-74 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 3 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið (fyrsta umferðin er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 28-29-29-29 cm prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem aukið er út um 18-20-20-26 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kantlykkjur) = 68-72-80-100 lykkjur á prjóni. Skiptið yfir á hringprjón 8 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 3 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff. Þegar stroffið mælist 5 cm eru allar 2 lykkjur brugðið (séð frá réttu) auknar út til 3 lykkjur brugðið – lesið ÚTAUKNING = 83-88-98-123 lykkjur. Þegar stroffið mælist 8 cm (stykkið mælist 37-38-38-38 cm frá skiptingu og ca 62-64-66-70 cm frá öxl og niður) fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og bakstykki.

ERMI:
Setjið 31-35-37-39 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 9 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 37-41-43-47 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-6-8 lykkjur sem prjónaðar voru upp (= mitt undir ermi) og látið prjónamerkin fylgja með áfram í stykkinu. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 5½-4½-4-2½ cm millibili alls 6-7-7-9 sinnum = 25-27-29-29 lykkjur. Þegar stykkið mælist 32-32-30-27 cm frá skiptingu er prjónuð 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 3-1-3-3 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 28-28-32-32 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 8 og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 6 cm er 2 lykkjur brugðið auknar út til 3 lykkjur brugðið – munið eftir ÚTAUKNING = 32-32-36-36 lykkjur. Þegar stroffið mælist 8 cm (ermin mælist 41-41-39-36 cm frá skiptingu) fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 24.04.2018
Leiðrétting: Lykkjufjöldi á eftir útaukningu á bakstykki hefur verið leiðréttur.

Mynstur

symbols = rauður
symbols = natur
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat
symbols = á einungis við um stærð XXXL: Aukið út um 2 lykkjur jafnt yfir í þessari umferð
symbols = prjónstefna
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 183-6

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (8)

country flag Jette Kock wrote:

I opskrift 183-6 i afsnit Ryg - forstykke er der denne uforståelig sætning : Når arbejdet måler 21-22-22-22 cm strikkes der 4 pinde retstrik - se forklaring over, over 6-6-6-8 masker i hver side Mon I kan genfinde de manglende ord i sætningen ?

20.12.2021 - 21:35

DROPS Design answered:

Hej Jette, du strikker 4 pinde retstrik over de 6-6-6-8 masker i hver side (lige før du deler arbejdet til slids). Når du strikker retstrik på rundpind, så er første omgang vrang, næste ret, næste vrang og sidste ret...

21.12.2021 - 08:08

country flag Hhhalexander wrote:

The elevation instructions are very confusing. I know very well how to work a Wrap&Turn. For those who don't, Wrap&Turn instructions should be in a separate section. What I want to know are the stitch positions of the wraps and how many there are, written as a list rather than an essay. Please kindly advise.

16.09.2021 - 12:30

DROPS Design answered:

Dear Hhhalexander, please understand that we cannot rewrite our patterns for each individual request. If there is a particular question, a point you are stuck, please let us know and we will be happy to answer. Also, HERE you can find a video about how to make teh elevation on the back of sweaters. Furtermore, if you are still need advice, you can always ask (either in person, or over the phone) in the store where you bought your DROPS yarn from. Happy Stitching!

17.09.2021 - 02:28

country flag Yvonne wrote:

Hallo, Ik ga deze trui breien en bij het doorlezen van het patroon viel me op dat er geminderd wordt bij de hals. Waarom is dat? Bij de kleinste maat zijn er nog maar 40 steken over. Dat past niet over mijn hoofd. Daarna wordt er weer gemeerderd naar 48 steken, maar ook dat is niet erg ruim. Klopt de beschrijving wel? Vriendelijke groet, Yvonne

09.04.2020 - 16:45

DROPS Design answered:

Dag Yvonne,

Het patroon klopt wel. Het minderen en meerderen wordt gedaan om de halslijn elastisch te maken. Bij 40 steken heb je een halsomtrek van 40 cm, volgens de stekenverhouding. Als dit te strak is zou je het aantal steken iets aan kunnen passen.

13.04.2020 - 10:44

country flag Alexandra Fischer wrote:

Guten Tag, nun für mich entsteht eine Frage bei der Zunahme Grösse XL musterreihe 1 A.1 ... NUN ICH STRICKE 4 Maschen rot 2 weiss 5 rot 2weiss und nun 2 Maschen 2 (1 zunahme) 5 rote Maschen richtig? So wird dann automatisch der Mustersatz nach dem STRICKE folgt aus sehen wen ich zunahme mit zähle 4 maschen rot 2 weiss 5 rot2 weiss 8 maschen rot. Ist das richtig? Wenn ja habichandere zjnahmen zahl... Grüsse Stricksdesignerin

18.01.2019 - 07:25

DROPS Design answered:

Liebe Frau Fischer, jedes Rapport wird so gestrickt: *4 M rot, 2 M weiss, 5 M rot, 2 M weiss, 2 M rot, 1 Umschlag, 1 M rot* - zwischen 2 Blumen haben Sie dann: 2 M, 1 Umschlag, 5 M im rot. aber am besten setzen Sie Markierer zwischen jedem Rapport, so können Sie am besten die Blumen nach Diagram prüfen. Viel Spaß beim stricken!

18.01.2019 - 11:24

country flag Anna Maria wrote:

Volevo Chiedere come mai finito il collo devo diminuire E dopo per lo sprone devo aumentare Sembra un contro senso O non capisco il lavoro Grazie

13.07.2018 - 08:12

DROPS Design answered:

Buongiorno Anna Maria. Viene suggerito di diminuire perchè al ferro sucessivo vengono cambiati i ferri. I ferri sono grossi e lavorando sullo stesso numero di maglie il lavoro risulterebbe troppo largo. Buon lavoro!

13.07.2018 - 08:35

country flag Racheal Watmore wrote:

Hi, I love this pattern but I want to use an alternative to wool i.e. yarn not derived from an animal. Do you have suggestions please? Thanks, Racheal

17.03.2018 - 10:49

DROPS Design answered:

Dear Racheal, we don't have plant based yarn or yarn made from man made fibers in this thickness. You might try to double up the DROPS Paris yarn (which is made from cotton), but please make sure you do a gauge swatch, wash and block it and make the necessary adjustments in needle-size and/or stitch count. Happy Knitting!

17.03.2018 - 12:50

country flag Maud Eijben wrote:

Mijn dochter wil heel graag deze trui maar ik denk dat de S/M te groot voor haar is. Is het mogelijk om deze trui ook in een kleiner maat te breien is? Ze is 13 jaar. Of is dat niet te doen? Hoor graag van u! groeten Maud

20.01.2018 - 21:07

DROPS Design answered:

Hallo Maud, Wat je zou kunnen doen is met een kleinere naald breien, zodat de stekenverhouding anders is. Maak even een proeflapje en bereken op basis hiervan hoe groot (breed) de trui dan wordt. Eventueel kun je ook kiezen voor een garen uit garengroep D. Maak altijd een proeflapje en bereken dan hoe het uitkomt met de maten.

23.01.2018 - 09:16

country flag Barbara wrote:

Vielen Dank für die tolle Anleitung und die vielen Tipps! Beim Rückenteil in Zeile 3 habe ich einen Tippfehler gefunden. Es sollte heißen: 68- 72 -80-100 (statt 71) Maschen Liebe Grüße, Barbara

16.11.2017 - 14:43