DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
DROPS Big Delight
DROPS Big Delight
100% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Super Sale

Dancing Aurora

Prjónuð peysa úr DROPS Air og DROPS Big Delight. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í tveggja lita klukkuprjóni með laskalínu. Stærð S – XXXL.

DROPS 218-26
DROPS Design: Mynstur db-120
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL – XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
200-200-200-250-250-300 g litur 02, hveiti
Og notið:
DROPS BIG DELIGHT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
300-300-400-400-400-500 g litur 06, haustskógur

PRJÓNFESTA:
14 lykkjur á breidd og 36 umferðir á hæð með klukkuprjóni = 10 x 10 cm.
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir klukkuprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
DROPS Big Delight
DROPS Big Delight
100% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Allar umferðir í oddatölu eru prjónaðar með Big Delight. Allar umferðir í sléttri tölu eru prjónaðar með Air (sjá mynsturteikningu).

ÚTAUKNING FYRIR LASKALÍNU:
Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við brugðnu lykkjurnar með prjónamerki í (= laskalínu lykkjur), þ.e.a.s. aukið út í sléttri lykkju og uppslátt sem liggur næst laskalínu lykkju. Aukið út um 2 lykkjur hvoru megin við laskalínu lykkjurnar (= 16 lykkjur fleiri í útaukningsumferð.
Allar útaukningar eru gerðar í umferð þar sem uppslátturinn og slétta lykkjan eiga að prjónast slétt saman (= umferð sem prjónuð er með Air).
Aukið út um 2 lykkjur í slétta lykkju og uppslátt með því að prjóna 3 lykkjur í lykkjuna og uppsláttinn þannig: Prjónið lykkjuna og uppsláttinn slétt saman, en bíðið með að lyfta lykkjunni og uppslættinum af vinstra prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið sömu lykkju og uppsláttinn slétt saman einu sinni til viðbótar, sleppið síðan sléttu lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af vinstra prjóni (= 2 lykkjur fleiri). Prjónið síðan nýjar lykkjur í klukkuprjóni (A.1), en takið vel eftir að í fyrstu umferð á eftir umferð með útaukningum, eru brugðnu lykkjurnar í útaukningunni prjónaðar brugðið án þess að prjóna þær saman með uppslætti þar sem ekki hefur verið gerður neinn uppsláttur.

ÚRTAKA (á við um mitt undir ermar):
Fækkið lykkjum undir ermi hvoru megin við 3 lykkjur mitt undir ermi (1 lykkja brugðið + 1 klukkuprjónslykkja (lykkja með prjónamerki) + 1 lykkjaa brugðið.
Öll úrtaka er gerð í umferð þar sem uppslátturinn og slétta lykkjan er prjónað slétt saman (= í umferð sem prjónuð er með Air).
FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR TIL VINSTRI ÞANNIG (þ.e.a.s. byrjið strax á eftir fyrstu lykkju brugðið á eftir lykkju með prjónamerki í): Lyftið yfir fyrstu sléttu lykkjunni og uppslættinum á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman (þ.e.a.s. 1 lykkja brugðið + slétt lykkja og uppslátt), steypið síðan lyftu lykkjunni og uppslættinum yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman (= 2 lykkjur færri).
FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR TIL HÆGRI ÞANNIG (þ.e.a.s. byrjið 4 lykkjum + 2 uppsláttum á undan lykkju með prjónamerki í): Lyftið yfir fyrstu sléttu lykkjunni og uppslættinum á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni og uppslættinum yfir brugðnu lykkjuna, lyftið lykkjunni til baka á vinstri prjón, lyftið lykkjunni og uppslættinum næst brugðnu lykkjunni með prjónamerki yfir lykkjuna sem var sett til baka á vinstri prjón, lyftið að lokum yfir lykkjuna sem eftir er á hægri prjóni (= 2 lykkjur færri).

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður.
Berustykki, fram- og bakstykki og ermar er prjónað í tveggja lita klukkuprjóni með Air sýnilegt frá réttu og Big Delight sýnilegt frá röngu. Kantur í hálsi og stroff neðst á ermum og fram- og bakstykki er prjónað með Air.
ATH: Allur lykkjufjöldinn sem gefinn er upp þegar klukkuprjón er prjónað er án uppsláttar þar sem uppslátturinn er talin sem 1 lykkja saman með lykkju sem hefur verið lyft af prjóni.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 78-82-86-88-96-100 lykkjur á stuttan hringprjón 4 með 1 þræði Air. Byrjun á umferð = mitt að aftan. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 8 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 2-2-6-4-0-0 lykkjur jafnt yfir = 76-80-80-84-96-100 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. Berustykkið er mælt frá prjónamerkinu.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið 1 umferð slétt. Næsta umferð er prjónuð þannig: * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið eins og prjónað er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar). Prjónamerkin eru notuð síðar þegar auka á út fyrir laskalínu.
Teljið 13-15-15-15-17-17 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju (laskalínu lykkja), teljið 9-9-9-9-13-13 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju (= laskalínu lykkja), teljið 27-29-29-31-33-35 lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju (= laskalínu lykkja), teljið 9-9-9-9-13-13 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju (= laskalínu lykkja). Það eru 14-14-14-16-16-18 lykkjur eftir á bakstykki á eftir síðasta prjónamerki. Prjónið síðan A.1 hringinn, önnur hver umferð er prjónuð með Air/Big Delight. JAFNFRAMT er aukið út fyrir LASKALÍNA eins og útskýrt er að neðan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

LASKALÍNA:
Þegar prjónaðar hafa verið alls 7 umferðir með A.1 (og næsta umferð byrjar með «prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman» og prjóna á með Air), aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 16 lykkjur fleiri í útaukningsumferð).
Aukið svona út í 8. hverri umferð (þ.e.a.s. í 4. hverri umferð með sýnilegum klukkuprjóns lykkjum á hæðina) alls 7-8-9-10-11-12 sinnum á hæðina = 188-208-224-244-272-292 lykkjur í umferð.
Haldið áfram með A.1 án útaukningar þar til stykkið mælist 18-20-22-24-26-28 cm frá prjónamerki við háls (stykkið mælist ca 22-24-26-28-30-32 cm frá öxl).
Nú skiptist berustykki fyrir fram- og bakstykki og ermar. Þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá miðju að aftan.
Prjónið 27-31-33-35-39-43 lykkjur eins og áður (= hálft bakstykki), setjið næstu 39-43-45-51-57-59 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 9 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 55-61-67-71-79-87 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 39-43-45-51-57-59 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 9 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið 28-30-34-36-40-44 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig.
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 128-140-152-160-176-192 lykkjur. Haldið áfram með A.1 eins og áður. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 30 cm frá skiptingu í öllum stærðum (nú eru eftir ca 4 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd).
Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið með Air til loka. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) – í fyrstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt saman með sléttum lykkjum. Þegar stroffið mælist 4 cm, fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 39-43-45-51-57-59 lykkjur af þræði í annarri hliðinni á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5 og fitjið upp 9 nýjar lykkjur mitt undir ermi = 48-52-54-60-66-68 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki í miðju af 9 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Prjónið A.1 hringinn og passið uppá að byrja í réttir umferð í mynstri þannig að umferð með Air verði mest sýnileg frá réttu alveg eins og á berustykki.
JAFNFRAMT í 8. umferð (þ.e.a.s. í 4. sýnilegu umferð með klukkuprjóns lykkjum á hæðina), fækkið um 4 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA (fækkið um 2 lykkjur til vinstri á eftir lykkju með prjónamerki í og fækkið um 2 lykkjur til hægri á undan lykkju með prjónamerki í).
Fækkið lykkjum svona í 8.-8.-8.-8.-6.-6. hverri umferð (þ.e.a.s. í 4.-4.-4.-4.-3.-3. hverri umferð með sýnilegum klukkuprjóns lykkjum á hæðina) alls 3-3-3-4-4-4 sinnum á hæðina = 36-40-42-44-50-52 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 41-39-37-36-34-32 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 4 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd).
Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið með Air til loka.
Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) – í fyrstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt saman með sléttum lykkjum. Þegar stroffið mælist 4 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 45-43-41-40-38-36 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 07.10.2020
Leiðrétting: DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4. DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4.Lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff
Yfirfarið á vefsvæði: 22.12.2020
Leiðrétting: ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum) hefur verið uppfært.

Mynstur

symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið
symbols = prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna brugðið saman
symbols = prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman
symbols = prjónið með Big Delight
symbols = prjónið með Air
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 218-26

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (38)

country flag Mireille wrote:

Ik heb na 76 steken op de naald en begin nu , na de hals aan de patentsteek. Mijn probleem is het even aantal steken waardoor mijnpatent patroon niet klopt. Ik weet niet wat ik verkeerd doe. Ik begin de eerste rij patent aan midden achter

24.04.2024 - 22:51

DROPS Design answered:

Dag Mireille,

Je hoeft niet perse A.1 helemaal af te breien, dus het is niet erg als je met 1 omslag en 1 steek averecht afhalen eindigt. De omslag en het afhalen moet je als 1 steek zien.

09.05.2024 - 10:58

country flag Carola Bäckstrand wrote:

Hej, när man ökar för raglan stickar man två räta maskor med ett omskag i mellan, i samma räta maska. Nästkommande varv står det att man ska sticka ” avigmaskorna i ökningen aviga”?? Dem är ju stickade räta! Ska de alltså stickas räta då?

05.02.2024 - 18:46

DROPS Design answered:

Hei Carola. Når du øker strikker du 1 rett - 1 kast-1 rett i en og samme maske. Videre står det i oppskriften at de nye maskene strikkes i helpatent, altså de økte maskene blir til 1 rett - 1 vrang (kastet) - 1 rett. Så på første omgang etter en omgang med økninger, strikkes vrangmaskene (kastene) i økningen vrang uten å strikkes sammen med kast fordi kastet ikke er lagd. mvh DROPS Design

15.02.2024 - 10:08

country flag Marita wrote:

Wo finde ich das Diagramm ?

09.12.2023 - 16:28

DROPS Design answered:

Hallo Marita, das Diagramm finden Sie rechts unter dem Ärmel. Viel Spaß beim Stricken!

09.12.2023 - 19:16

country flag Ruth wrote:

Are the gauge and dimensions given with the brioche stitch stretched out and blocked? Or does the final product retain the stretchy accordion texture?

26.11.2023 - 19:24

DROPS Design answered:

Dear Ruth, the gauges are for the stocking stitch and English rib while working the garment. The final product is stretchy, due to the English rib. The measurements in the pattern and schematic are for the non-blocked product. Happy knitting!

27.11.2023 - 00:05

country flag Mieke Baras wrote:

Ik heb opgemerkt dat dit model identiek is aan drops 213-33 en bij vergelijking vastgesteld dat de uitleg bij het opnemen van de extra steken onder de mouw en op de mouw anders is. Dat geldt ook voor de uitleg van de minderingen op de mouw. Zoals die in drops 213-33 beschreven wordt zou ik al de problemen daarmee in drops 218-26 niet hebben gehad. Waarom zijn er zulke verschillen in 2 volledig identieke truien qua aantal steken, naalddikte?

07.03.2023 - 16:28

DROPS Design answered:

Dag Mieke,

De truien lijken inderdaad heel erg op elkaar, maar toch zijn er kleine verschillen, zo neem je in de ene trui minder steken op onder de mouw (oksel) en moet er rekening gehouden worden met het breien in meer kleuren.

08.03.2023 - 12:19

country flag Mieke Baras wrote:

Ik probeer tevergeefs op facebook mijn vraag te stellen in de drops workshop. Ivm drops 218-26. Waarom wordt mijn bericht wel eerst gepubliceerd en daarna onmiddellijk verwijderd?

03.03.2023 - 10:06

DROPS Design answered:

Dag Mieke,

Om eerlijk te zijn weet ik niet precies wat er gebeurd is op facebook. Je kunt het beste je vraag bij het betreffende patroon plaatsen op onze site.

08.03.2023 - 13:02

country flag Mieke Baras wrote:

Ik heb echt problemen om de steken van de mouwen op te nemen en tegelijk 9 extra st op te nemen en dan nog in patroon te breien. Neem je die steken in 1 keer alle 9 op of doe je eerst de helft, daarna de st van de mouw, en dan de andere helft van de 9 st? Om die 9 st in patent te breien, moet je dan met drops air ook meteen omslagen voorzien bij het opnemen ervan? Zelf heb ik gewoon de 9 steken van het lijf gebruikt om de 9 st van de mouw te creëren. Ik vraag dus om wat meer details . Dank

03.03.2023 - 10:01

DROPS Design answered:

Dag Mieke,

Je kunt inderdaad de steken opnemen zoals je normaal ook zou doen. Je hoeft er niet perse gelijk omslagen bij te maken. Dat doe je wel in een van de volgende naalden.

08.03.2023 - 13:06

country flag Mieke Baras wrote:

Ik heb echt problemen om de steken van de mouwen op te nemen en tegelijk 9 extra st op te nemen en dan nog in patroon te breien. Neem je die steken in 1 keer alle 9 op of doe je eerst de helft, daarna de st van de mouw, en dan de andere helft van de 9 st? Om die 9 st in patent te breien, moet je dan met drops air ook meteen omslagen voorzien bij het opnemen ervan? Zelf heb ik gewoon de 9 steken van het lijf gebruikt om de 9 st van de mouw te creëren. Ik vraag dus om wat meer details . Dank

03.03.2023 - 09:20

country flag Esmeralda wrote:

Buongiorno. Nel mio maglione le coste sembrano diagonali, sbaglio qualcosa?

20.02.2023 - 13:24

DROPS Design answered:

Buonasera Esmeralda, se ha seguito le istruzioni riportate, la lavorazione delle coste è corretta. Buon lavoro!

20.02.2023 - 23:47

country flag Lombardo Esmeralda wrote:

Buongiorno. Nel mio maglione le coste sembrano diagonali, sbaglio qualcosa?

20.02.2023 - 11:31

DROPS Design answered:

Buonasera Esmeralda, se ha seguito le istruzioni riportate, la lavorazione delle coste è corretta. Buon lavoro!

20.02.2023 - 23:46