DROPS Big Merino
DROPS Big Merino
100% Ull
frá 647.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7117.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Belfast

Prjónuð peysa úr DROPS BIG MERINO. Stykkið er prjónað ofan frá og niður, með áferðamynstri og sléttprjóni

DROPS 195-33
DROPS Design: Mynstur mb-048
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BIG MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
550-600-650-750-800-900 g litur 02, grár

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5: fyrir stroff á ermum.
DROPS HRINGPRJÓNAR 4,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stykkið.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Big Merino
DROPS Big Merino
100% Ull
frá 647.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7117.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 82 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 10) = 8,2.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNINGA (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndast göt.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Þegar prjónað er fyrir handveg skiptist stykkið. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón og ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 82-84-88-92-96-102 lykkjur á hringprjón 4,5 með Big Merino. Prjónið 1 umferð slétt. Í næstu umferð er prjónað stroff þannig: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* út umferðina. Haldið áfram með stroff í 2-3-2-3-2-3 cm.
Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið síðan þannig:
Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í síðustu umferð í garðaprjóni er aukið út um 10-14-14-18-22-24 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 92-98-102-110-118-126 lykkjur.
Prjónið stroff þannig: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* út umferðina. Prjónið stroff í 4-4-5-5-6-6 cm.
Í næstu umferð er A.1 prjónað yfir allar lykkjur, JAFNFRAMT í fyrstu umferð í A.1 er aukið út um 40-44-50-58-62-64 lykkjur jafnt yfir = 132-142-152-168-180-190 lykkjur.
Prjónið stroff eins og áður í 4-4-5-5-6-6 cm, prjónið síðan A.1, JAFNFRAMT í fyrstu umferð í A.1 er aukið út um 40-45-50-58-62-65 lykkjur jafnt yfir = 172-187-202-226-242-255 lykkjur.
ATH! Endið umferð 4 í A.1 með því að prjóna 0-1-0-0-0-1 lykkju slétt. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið stroff eins og áður í 4-4-5-5-6-6 cm, prjónið síðan A.1, í fyrstu umferð í A.1 er aukið út um 40-45-50-58-62-65 lykkjur jafnt yfir = 212-232-252-284-304-320 lykkjur. Stykkið mælist ca 21-22-24-25-27-28 cm frá uppfitjunarkanti.

Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið slétt yfir fyrstu 31-34-37-41-45-49 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 44-48-52-60-62-62 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 62-68-74-82-90-98 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 44-48-52-60-62-62 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 31-34-37-41-45-49 lykkjur sem eftir eru slétt (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er prjónað til loka hvert fyrir sig.

HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 136-148-164-180-200-220 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu er aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 8-6½-5-4½-4½-4½ cm millibili alls 5-6-7-8-8-8 sinnum = 156-172-192-212-232-252 lykkjur. Þegar ermin mælist 37-38-38-39-39-40 cm prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 24-20-20-18-22-24 lykkjur jafnt yfir = 180-192-212-230-254-276 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið stroff 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið í 5 cm, fellið síðan af með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Stykkið mælist ca 63-65-67-69-71-73 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið til baka 44-48-52-60-62-62 lykkjur af þræði á stuttan hringprjón 5 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 50-54-60-68-72-74 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi = byrjun á umferð. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4½-3½-3-2-2-2 cm millibili alls 8-9-11-14-15-15 sinnum = 34-36-38-40-42-44 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til ermin mælist 37-37½-36-35½-34-33½ cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8 lykkjur jafnt yfir = 42-44-46-48-50-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar stroffið mælist 5 cm (eða að óskaðri lengd) fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 43-42½-42-40½-39-37 cm frá skiptingu.

Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 30.01.2019
BERUSTYKKI: ATH! Endið umferð 4 í A.1 með því að prjóna 0-1-0-0-0-1 lykkju slétt. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Yfirfarið á vefsvæði: 16.09.2019
Leiðrétting - BERUSTYKKI:...Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í síðustu umferð með garðaprjóni er aukið út um 10-14-14-18-22-24 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 92-98-102-110-118-126 lykkjur.
Prjónið stroff þannig: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðin *, prjónið frá *-* út umferðina. Prjónið stroff í 4-4-5-5-6-6 cm.
Í næstu umferð er A.1 prjónað yfir allar lykkjur, JAFNFRAMT í fyrstu umferð í A.1 er aukið út um 40-44-50-58-62-64 lykkjur jafnt yfir = 132-142-152-168-180-190 lykkjur.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu
symbols = brugðið frá réttu
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður slétt í næstu umferð, það eiga að myndast göt
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Belfast

Ania, Poland

Belfast

Karolina Tobor, Poland

Skrifaðu athugasemd um DROPS 195-33

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (23)

country flag Immy wrote:

Hi, I can’t find how to download the pattern thank you

26.01.2023 - 21:23

DROPS Design answered:

Dear Immy, our patterns can only be printed, but using a virtual printer you will be able to download it as a .pdf. Happy knitting!

27.01.2023 - 08:46

country flag Kim wrote:

Thank you for your answer, but I thought on the yoke you are using the short circular needle. I am unclear if you need dpns plus short and long circular needles in both sizes

20.03.2021 - 18:26

DROPS Design answered:

Dear Kim, we used DPN-s for the sleeves, because many knitters prefer, but if you are comfortable to knit the sleeves on circulars, you will not need DPNs at all. If you perefer to use DPNs for knitting the sleeves, you will need the 5 mm and the 4,5 mm ones to knit the sleeves. You can also start to knit the sleeves with 5 mm circulars and change to 4.5 mm DPNs for the ribbing, it is really up to you. Happy Knitting!

21.03.2021 - 23:29

country flag Kim wrote:

Hi, When are the double pointed needles size 5mm used? They don’t seem to be mentioned in the pattern

19.03.2021 - 16:46

DROPS Design answered:

Dear Kim! You change to 5 mm needles, right sfter you start the yoke, after you finished the ribbing, and knit 2 ridges with garter stitch, Happy Knitting!

20.03.2021 - 07:14

country flag Magda wrote:

Hi, how does the garment stretch after washing? I have used the big merino for a cardigan once and it got 4 sizes bigger - now I am very afraid of making the mistake again.

18.02.2021 - 00:26

DROPS Design answered:

Dear Magda, stretching always depends on a lot of different factors, among them , for example, the gauge you knit with. Therefore the sure way is to knit a swatch, wash it dry it and then you can check exactly how it behaves. Happy Knitting!

18.02.2021 - 08:44

country flag Kathryn Hatton wrote:

The diagram shows the back neck higher than the front. How is this achieved when there doesn't seem to be any short rows worked in the pattern? Thank you.

11.01.2021 - 00:20

DROPS Design answered:

Dear Mrs Hatton, chart with measurements is standard, in this pattern there are no elevation on back piece, this means neck will be same on front and on back piece. Happy knitting!

11.01.2021 - 10:38

country flag Dagmar wrote:

Liebes Dropsteam, nehme ich wenn ich bei A1 angelangt bin, die Zunahme in der 1ten linke Reihe machen.? Vielen Dank im voraus

30.12.2020 - 17:26

DROPS Design answered:

Liebe Dagmar, die Zunahmen in A.1, die gleichmäßig verteilt gestrickt werden, werden bei der 1. Reihe in A.1 gestrickt (= 1 Umschlaga) - bei der 2. Reihe in A.1 werden diese Umschläge links verschränkt gestrickt um Löcher zu vermeiden. Viel Spaß beim stricken!

04.01.2021 - 13:09

country flag Inge Andersen wrote:

Der er fejl i strikkeopskrifter det er ryg og forstykke der skal man tage 20 masker ud til sidst . Så står der når arbejdet måler 37 cm strikkes 1 retsind hvor der tages 24 m ud og så 5 cm rib bort man kan jo godt regne at blusen skal være længere.

11.10.2020 - 16:57

country flag Ninni wrote:

Jag har kommit till att börja på en ärm. Jag har satt 48 m på en tråd.Sedan ska 6 m läggas upp. Var läggs de upp? På samma sticka där garntråden finns eller på stickan efter de maskor som finns på en tråd?

07.05.2020 - 21:46

DROPS Design answered:

Hej Ninni. Du lägger upp de på stickan där garntråden finns (de kommer då i sidan under ärmen). Mvh DROPS Design

08.05.2020 - 07:33

country flag Ninni wrote:

Dropsc tröja Belfast.\r\nPå oket står att man efter resårstickning i 3 omgångar ska ha 22 cm. På stl m blir 3+4+4 cm och 4 v rätstickning samt mönster A1 2 ggr kan det inte bli mer än 15 cm. Hur är det tänkt?\r\nTack för svar!\r\nNinni Hjalmers

26.03.2020 - 21:55

DROPS Design answered:

Hei Ninni. Du har oppleggskanten, 1 omgang fra retten, 3 cm vrangbord, 2 riller (4 omganger), 4 cm vrangbord, A.1 (6 pinner), 4 cm vrangbord, A.1 (6 pinner), 4 cm vrangbord og A.1 igjen. Da får du ca 22 cm. God Fornøyelse!

30.03.2020 - 15:08

country flag Fonsegrive wrote:

Bonjour, Terminer le tour ajouré de A1 par 0-1-0-0-0-1 je ne comprend pas. Pourriez-vous me donner une explication. Merci.

25.09.2019 - 16:41

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Fonsegrive, en taille M et XXXL vous avez un nombre impair de mailles, vous terminerez ce tour ajouré de A.1 par 1 maille endroit, dans les autres tailles, votre nombre de mailles est pair, vous pouvez donc répéter le motif ajouré tout le tour. Bon tricot!

25.09.2019 - 16:59