DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3366.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 147-3
DROPS Design: Mynstur nr cl-013
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS COTTON LIGHT frá Garnstudio
450-500-550-600-650-700 gr litur nr 01, natur

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verða 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 3 – fyrir kant.
DROPS PERLUTALA, NR 521: 9 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3366.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjóna):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á sokkaprjóna):
*1 umf slétt og 1 umf brugðið*, endurtakið frá *-*.

ÚRTAKA:
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1, A.2 og A.3. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið aðra og þriðju l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 3, 11, 19, 27, 35, 43, 51, 59 og 67 cm
STÆRÐ M: 5, 13, 21, 29, 37, 45, 53, 61 og 69 cm
STÆRÐ L: 5, 13, 21, 29, 37, 45, 54, 62 og 71 cm
STÆRÐ XL: 5, 13, 22, 30, 39, 47, 56, 64 og 73 cm
STÆRÐ XXL: 3, 12, 21, 30, 39, 48, 57, 66 og 75 cm
STÆRÐ XXXL: 5, 14, 23, 32, 41, 50, 59, 68 og 77 cm

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 226-246-270-294-318-346 l (meðtaldar eru 5 kantlykkjur við miðju að framan) á hringprjóna nr 3 með Cotton Light.
Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og haldið áfram í sléttprjóni, en 5 síðustu l í hvorri hlið eru prjónaðar áfram í garðaprjóni til loka (= kantur að framan). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og munið eftir HNAPPAGATI í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan! Þegar stykkið mælist 6-7-8-8-8-8 cm er sett 1 prjónamerki 59-64-70-76-82-89 l frá hvorri hlið (= 108-118-130-142-154-168 l á milli prjónamerkja á bakstykki).
Nú er fækkað um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku með 4½-4-3½-3½-3-3 cm millibili, 9-10-11-12-13-14 sinnum til viðbótar (= alls 10-11-12-13-14-15 úrtökur) = 186-202-222-242-262-286 l. Þegar stykkið mælist ca 49-50-51-52-53-54 cm – passið uppá að næsta umf er prjónuð frá röngu, prjónið 4 umf garðaprjón yfir miðju 14 l í hvorri hlið (þ.e.a.s. 7 l garðaprjón hvoru megin við bæði prjónamerki – aðrar l eru prjónaðar eins og áður). Í næstu umf frá röngu er prjónað br (kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni eins og áður) JAFNFRAMT eru felldar af 10 l í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. fellið af 5 l hvoru megin við bæði prjónamerki) = 78-86-96-106-116-128 l eftir á bakstykki og 44-48-53-63-69 l eftir á hvoru framstykki. Geymið stykkið og prjónið kant á ermum.

KANTUR Á ERMUM:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 56-58-60-66-70-74 l á sokkaprjóna nr 4 með Cotton Light. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Í næstu umf er prjónað sl JAFNFRAMT eru felldar af 10 l við miðju undir ermi (þ.e.a.s. 5 l í byrjun og 5 l í lok umf) = 46-48-50-56-60-64 l.
Geymið stykkið og prjónið hinn kant á ermi á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn kant á ermum á sama hringprjón nr 4 á sama hátt og á fram- og bakstykki (án þess að prjóna inn l) =
258-278-302-334-362-394 l. Setjið 1 prjónamerki – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT er fækkað um 10-2-12-2-2-6 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) = 248-276-290-332-360-388 l. Næsta umf er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan, prjónið mynstur eftir A.1 þar til 5 l eru eftir (= 17-19-20-23-25-27 mynstureiningar) og endið á 5 kantlykkjum að framan. Þegar A.1 hefur verið prjónað eru 146-162-170-194-210-226 l í umf. Næsta umf er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan, * 1 l br, 1 l sl *, endurtakið frá *-* þar til 7 l eru eftir, prjónið 2 l br saman og endið á 5 kantlykkjum að framan = 145-161-169-193-209-225 l.
Prjónið nú stroff með sl yfir sl og br yfir br. JAFNFRAMT þegar stroffið mælist 1-2-3-4-5-6 cm, passið uppá að næsta umf sé prjónuð frá réttu, prjónið nú upphækkun að aftan við hnakka með styttri umf (byrjið frá réttu og haldið áfram með stroff og kant að framan eins og áður) þannig: Prjónið þar til eftir eru 25-27-29-31-33-35 l, snúið við og prjónið frá röngu þar til eftir eru 25-27-29-31-33-35 l í hinni hliðinni. Snúið við og prjónið þar til eftir eru 31-33-35-37-39-41 l, snúið við og prjónið til baka þar til eftir eru 31-33-35-37-39-41 l í hinni hliðinni. Snúið við og prjónið þar til eftir eru 37-39-41-43-45-47 l, snúið við og prjónið til baka þar til eftir eru 37-39-41-43-45-47 l í hinni hliðinni. Snúið við og prjónið þar til eftir eru 43-45-47-49-51-53 l, snúið við og prjónið til baka þar til eftir eru 43-45-47-49-51-53 l í hinni hliðinni. Snúið við og prjónið út umf. Prjónið nú 3 umf stroff yfir allar l (kantur að framan prjónaður í garðaprjóni eins og áður). Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan, prjónið mynstur eftir A.2 þar til 5 l eru eftir (veldur rétta mynsturteikningu fyrir þína stærð). JANFRAMT er fækkað um 7 l jafnt yfir og endið á 5 kantlykkjum að framan = 138-154-162-186-202-218 l í umf eftir 1. umf í A.2. Þegar A.2 hefur verið prjónað á hæðina eru 122-136-143-142-154-166 l eftir á prjóni. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT er fækkað um 28-38-41-36-44-50 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) = 94-98-102-106-110-116 l. Prjónið 1 umf slétt frá röngu og 1 umf slétt frá réttu, áður en fellt er laust af með sl frá röngu.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir höndum. Saumið tölur í.

VASI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 36-36-36-40-40-40 l á hringprjóna nr 4 með Cotton Light og prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar vasinn mælist 13-13-13-15-15-15 cm – passið uppá að næsta umf sé prjónuð frá rétt, skiptið yfir á hringprjóna nr 3. Prjónið nú A.3 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Eftir A.3 er fellt laust af með sl frá réttu.
Prjónið annan vasa á sama hátt. Saumið vasann á hvort framstykki með lykkjuspori, vasinn er staðsettur beint fyrir ofan kant í garðaprjóni neðst niðri á peysunni og ca 8-8-9-9-10-10 cm frá kanti að framan (mátið flíkina til þess að fá rétta staðsetningu á vösum).

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = frá röngu: Prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = frá réttu: Prjóni 2 lykkjur slétt saman
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 147-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (35)

country flag Lena Bindocci wrote:

Buona sera, ho ripreso a lavorare il modello in questione e sono arrivata allo sprone, esattamente ad eseguire il diagramma A1. Non ho assolutamente capito come eseguirlo, come faccio a ripeterlo, nel mio caso 19 volte? E partendo dal basso quando ho eseguito le 14 maglie a diritto sul rovescio, come proseguo con le altre? Sono totalmente in confusione mi potreste dare maggiori chiarimenti? Grazie infinite

13.06.2021 - 19:50

DROPS Design answered:

Buonasera Lena, per quanto riguarda il diagramma A.1, deve ripeterlo più volte sullo stesso giro: se ha 276 maglie sul giro, con 10 maglie di vivagno avrà 276 - 10 = 266/14 (maglie con cui comincia A.1) = 19 ripetizioni sul giro. Buon lavoro!

14.06.2021 - 21:01

country flag Lena Bindocci wrote:

Cosa vuol dire \"lavorare 2 creste\" ?.. Poi non avendo i ferri circolari del n 3 ...e non li posso acquistare in questo periodo di covid-19 , potete aiutarmi a realizzare il modello con i ferri normali con semplici spiegazioni, perché sono alle prime armi. Grazie Lena

23.04.2020 - 23:59

DROPS Design answered:

Buongiorno Lena. 1 cresta sono 2 ferri a diritto (quindi 2 creste, 4 ferri a diritto). Per lavorare con i ferri dritti dovrebbe lavorare in parti separate; lo sprone sarebbe più comodo lavorarlo come indicato. Potrebbe individuare le maglie per il dietro (p.es taglia S: 108m) e per i davanti (taglia S: 59 per ogni davanti). Può provare a contattare via mail il suo rivenditore Drops di fiducia per ulteriori aiuti personalizzati. Buon lavoro!

24.04.2020 - 10:46

country flag Paola wrote:

Non capisco questo passaggio…...lavorare un’alzata sul dietro del collo a f. accorciati come segue (iniziare dal diritto del lavoro e continuare a coste e con le m. per il bordo come prima): me lo potreste spiegare meglio grazie

19.03.2019 - 21:34

DROPS Design answered:

Buongiorno Paola. Lavora un’alzata sul dietro per rendere lo scollo più alto sul dietro rispetto al davanti. Deve iniziare su un ferro lavorato sul diritto del lavoro, lavora le maglie del bordo davanti a legaccio, lavora le altre maglie a coste come prima. Buon lavoro!

19.03.2019 - 23:16

country flag Maartje wrote:

Wat betekenen de open vakjes bij telpatroon?

01.02.2019 - 13:35

country flag Helle Iversen wrote:

Har netop strikket denne model i Karisma-garn - er blevet utrolig lækker og flot

22.01.2014 - 12:27

country flag Christine Friedrich wrote:

Ich möchte die kommentare lesen

29.06.2013 - 10:50

DROPS Design answered:

Sie müssen nur nach unten scrollen und können dann alle Kommentare lesen.

01.07.2013 - 08:58

country flag E V Geest wrote:

Waarom wordt er zoveel patronen met een rond breinaald gebreid.??Vermeld ook de patronen heen en weer op 2 rechte naalden .Dat is wel wat gemakkelijker. rondbreinaal

26.01.2013 - 11:45

Mirta wrote:

El nombre ALEGRO

22.01.2013 - 18:31

Mirta wrote:

Es tan ponible para toda ocasión y tan juvenil, muy lindo

22.01.2013 - 18:08

country flag Beate wrote:

Das ist mein nächstes Projekt, sobald die Anleitung geschaltet ist.

13.01.2013 - 07:52