Old Mill Pullover |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Karisma eða DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með norrænu mynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 197-4 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 99 lykkjur) og deilið þessum fjölda með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 29) = 3,4. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 3. og 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. UPPHÆKKUN (aftan í hnakka): Hoppið yfir þennan kafla ef ekki er óskað eftir upphækkun. Setjið 1 merkiþráð í byrjun á umferð (= miðja að aftan). Byrjið frá réttu með litnum ljós eik og prjónið 16-17-18-19-20-21 lykkjur slétt framhjá merkiþræði, snúið, herðið á þræði og prjónið 32-34-36-38-40-42 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 48-51-54-57-60-63 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 64-68-72-76-80-84 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 80-85-90-95-100-105 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 96-102-108-114-120-126 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur til baka að miðju að aftan. Síðan er prjónað BERUSTYKKI eins og útskýrt er í uppskrift. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist saman. LASKALÍNA: Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 prjónamerki þannig: Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan útauknar lykkjur í sléttprjóni. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 6 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan útauknar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA-1 (á við um miðju undir ermum): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli, berustykki og fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 99-102-108-114-117-123 lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum ljós eik. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan A.1 hringinn þar kantur í hálsmáli mælist 3 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 29-34-36-38-35-37 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1= 128-136-144-152-152-160 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 1 umferð slétt. Hún er hægt að prjóna upphækkun aftan í hnakka þannig að berustykki verði aðeins hærra á bakstykki. Hægt er að sleppa þessari upphækkun, þá verður hálsmálið alveg eins að framan og að aftan – prjónið UPPHÆKKUN – sjá útskýringu að ofan, eða farið beint áfram í BERUSTYKKI. BERUSTYKKI: Lesið LEIÐBEININGAR! Prjónið A.2 hringinn (= 16-17-18-19-19-20 mynstureiningar með 8 lykkjum). JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.2 er aukið út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – sjá ÚTAUKNING-1 og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í umferð merktri með ör-1 er aukið út um 24-32-32-32-40-40 lykkjur jafnt yfir = 152-168-176-184-192-200 lykkjur (nú er pláss fyrir 19-21-22-23-24-25 mynstureiningar með 8 lykkjum). Í umferð merktri með ör-2 er aukið út um 24-24-24-32-40-40 lykkjur jafnt yfir = 176-192-200-216-232-240 lykkjur (nú er pláss fyrir 22-24-25-27-29-30 mynstureiningar með 8 lykkjum). Í umferð merktri með ör-3 er aukið út um 24-24-24-32-32-32 lykkjur jafnt yfir, passið uppá að auka út í einingu með grunnlit svo að mynsturborðinn færist ekki til = 200-216-224-248-264-272 lykkjur (nú er pláss fyrir 25-27-28-31-33-34 mynstureiningar með 8 lykkjum). Í umferð merktri með ör-4 er aukið út um 24-24-24-24-24-24 lykkjur jafnt yfir = 224-240-248-272-288-296 lykkjur (nú er pláss fyrir 28-30-31-34-33-34 mynstureiningar með 8 lykkjum). Í umferð merktri með ör-5 er aukið út um 22-18-18-22-18-10 lykkjur jafnt yfir =246-258-266-294-306-306 lykkjur. Prjónið A.2 til loka. Stykkið mælist nú ca 18-18-18-21-21-21 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan. Setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar): 1. prjónamerki er sett á eftir fyrstu 40-41-42-47-51-53 lykkjur (= ½ bakstykki), 2. prjónamerki er sett á eftir næstu 44-48-50-54-52-48 lykkjur (= ermi), 3. prjónamerki er sett á eftir næstu 79-81-83-93-101-105 lykkjur (= framstykki) og 4. prjónamerki er sett á eftir næstu 44-48-50-54-52-48 lykkjur (= ermi). Nú eru 39-40-41-46-50-52 lykkjur á eftir síðasta prjónamerki (= ½ bakstykki). Prjónamerkin eru notuð þegar aukið er út fyrir laskalínu. Haldið áfram í sléttprjóni og með litnum ljós eik. JAFNFRAMT í næstu umferð er aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við 4 prjónamerkin – sjá útskýringu að ofan = 8 lykkjur fleiri. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 5-8-10-10-12-15 sinnum = 286-322-346-374-402-426 lykkjur. Prjónið síðan án útaukningar þar til stykkið mælist 21-23-25-27-29-31 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 45-49-52-57-63-68 lykkjur sléttprjón (= ½ bakstykki), setjið næstu 54-64-70-74-76-78 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 89-97-103-113-125-135 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 54-64-70-74-76-78 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 44-48-51-56-62-67 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni (= ½ bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er prjónað til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 194-210-226-246-274-298 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, þ.e.a.s. mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum og látið prjónamerkin fylgja með áfram í stykkinu. Prjónamerkin eru notuð síðar þegar auka á út í hvorri hlið á fram- og bakstykki Haldið áfram hringinn með litnum ljós eik. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – lesið ÚTAUKNING-2 = 4 lykkjur fleiri. Aukið svona út með 8 cm millibili alls 4 sinnum í hvorri hlið = 210-226-242-292-290-314 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 33 cm frá skiptingu í öllum stærðum. Prjónið 1 umferð slétt og aukið um 33-35-37-41-46-49 lykkjur jafnt yfir = 243-261-279-303-336-363 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið A.1 hringinn í 3 cm. Fellið síðan laust af með sléttum lykkjum. Peysan mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 54-64-70-74-76-78 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjón 4 og prjónið að auki upp með litnum ljósri eik, 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 62-72-80-84-88-92 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur undir ermi og látið prjónamerkið fylgja áfram með í stykkinu. Prjónamerki á að nota síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona með 1 cm millibili alls 0-0-4-6-8-12 sinnum, með 2 cm millibili alls 3-7-6-12-11-8 sinnum og síðan með 4-3-2½-0-0-0 cm millibili alls 7-7-7-0-0-0 sinnum = 42-44-46-48-50-52 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 38-37-35-33-32-30 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-4-5-6-4-5 lykkjur jafnt yfir = 48-48-51-54-54-57 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið A.1 hringinn (= 16-16-17-18-18-19 mynstureiningar með 3 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur þar til kanturinn mælist 6 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 44-43-41-39-38-36 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (23)
Paule wrote:
Modelle 107/4 ,de nouveau, j ai besoin de votre aide, Avec 224 M, les motifs ne s alignent pas avec les motifs N:3 je trouve que cela n est pas très beau . Est.ce normal? merci beaucoup pour votre conseil. Vos modeles sont très beaux et variès fèlicitations!
05.04.2024 - 09:15DROPS Design answered:
Bonjour Paule, au fur et à mesure des augmentations, les motifs ne seront pas alignés comme dans le diagramme, mais plutôt comme sur la photo, car le nombre d'augmentations est effectué à intervalles réguliers tout le tour, toutefois, vous devez toujours avoir suffisamment de mailles pour y répéter les 8 mailles du diagramme. Bon tricot!
05.04.2024 - 14:55Paule wrote:
Je Je vous remercie par avance jene sais comment commencer mon 2 eme dessin ? tout de suite je passe à la fleche 2 mais alors que sont ces rangs entre fleche 1 et fleche2? Je suis completement perdue!!! Encore merci pour votre reponse
06.02.2024 - 17:09DROPS Design answered:
Bonjour Paule, les diagrammes se lisent de bas en haut, tous les tours de droite à gauche. Les flèches dans le diagramme indiquent les tours où il faut augmenter à intervalles réguliers. Les motifs ne seront pas directement alignés comme dans le diagramme en raison des augmentations mais répétez les 8 mailles de A.2 tout le tour comme dans le diagramme. Bon tricot!
07.02.2024 - 08:10Rene Bracken wrote:
There are no measurements for the sizes.
27.11.2023 - 00:53DROPS Design answered:
Dear Mrs Bracken, you will find all finished measurements for each size in the chart - they are in cm, convert into inches here>/a>, and read more about sizing here. Happy knitting!
27.11.2023 - 10:13Chritine wrote:
Comment faire un rajout de cotes ( 2 cm + haut) sur le début de mon modele 197/4 déjà terminé Merci
02.10.2023 - 21:20DROPS Design answered:
Bonjour Christine, vous pouvez utiliser cette technique au niveau du col pour reprendre les côtes et les rallonger à votre convenance. Bon tricot!
03.10.2023 - 07:57Annick wrote:
Pour le pull 197-4 le jacquard se commence après les augmentations A2 ? Taille M Merci d'avance pour l'info
22.06.2023 - 16:20DROPS Design answered:
Bonjour Annick, le diagramme A.2 correspond au jacquard, à chacun des rangs avec une flèche dans A.2, vous allez augmenter à intervalles réguliers comme indiqué dans les explications pour votre taille, soit 32 mailles à la flèche-1 en taille M, puis 24 m à la flèche-2 et ainsi de suite ; dès que les augmentations sont faites, tricotez le tour suivant comme avant en répétant les 8 mailles du diagramme, les motifs ne vont pas se répéter les uns au-dessus des autres comme dans le diagramme, mais vont se répéter tout le tour comme sur la photo. Bon tricot!
22.06.2023 - 17:23Willeke Van Dolderen wrote:
Old Mill Pullover: als ik de verhoging voor de hals wil breien moet ik dan ook direct A1 breien met de averechte steken?
14.07.2022 - 16:29DROPS Design answered:
Dag Willeke,
Nee, je breit eerst A.1 dan brei je de verhoging voor de hals in licht eiken in tricotsteek. Als je daarmee klaar bent begin je met de pas. Dus geen A.1 breien in de verkorte naalden voor de verhoging.
17.07.2022 - 11:36Doris wrote:
Warum sind hier Zunahmen für Raglan beschrieben? Ich dachte, es sei eine Rundpasse.
09.07.2021 - 19:43Doris wrote:
Warum sind hier Zunahmen für Raglan beschrieben? Ich dachte, es sei eine Rundpasse.
09.07.2021 - 19:37DROPS Design answered:
Liebe Doris, wenn das Diagram A.2 gestrickt wird, braucht man einige Zunahmen noch, dann wird es 5 bis 15 Mal in jede 2. Runde für die Passe (= Raglan) zugenommen. Viel Spaß beim stricken!
12.07.2021 - 07:08Rini V Hak wrote:
Mijn boord krult helemaal naar boven.net boven het a1 patroon. Hoe komt dit en wat kan ik er aan doen?
05.12.2020 - 11:46DROPS Design answered:
Dag Rini,
Als de boord te wijd is waardoor hij omkrult, zou je de boord met een dunnere naald kunnen breien. Je kunt de boord ook voorzichtig oppersen met een natte theedoek tussen het werk en het strijkijzer; heel voorzichtig deppen met het strijkijzer. Let er op dat je dit heel voorzichtig doet, anders kun je de textuur vernielen.
06.12.2020 - 13:47Pamela wrote:
De acuerdo al comentario sobre la coincidencia del patrón, se solucionó?
02.06.2020 - 00:06