Madrid Cardigan |
||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með laskalínu, köðlum, gatamynstri og klauf í hliðum, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Cotton Light.
DROPS 188-20 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið er út um 1 lykkju hvoru megin við hverja mynstureiningu A.1/A.2 (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 128 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið fjölda lykkja sem eftir er með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 29,5. Í þessu dæmi þá er aukið út til skiptis á eftir 29. og 30. hverja lykkju og ekki er aukið út yfir kanta að framan. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar): Öll útaukning er gerð frá réttu! Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki. Prjónið 2 lykkjur slétt saman, (prjónamerki er staðsett hér), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagati í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í kraga mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 5 næstu með ca 8-8-8-9-9-9 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 123-128-133-138-148-158 lykkjur á hringprjón 3,5 með Cotton Light. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, (3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 8 lykkjur eru eftir á prjóni, 3 lykkjur slétt, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff þar til stykkið mælist 4 cm (síðasta umferðin er prjónuð frá röngu). Munið eftir HNAPPAGAT! Prjónið 2 umferðir garðaprjón þar sem í fyrstu umferð er aukið út um 1-4-7-6-8-14 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir) = 124-132-140-144-156-172 lykkjur. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Setjið eitt prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið mynstur þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 8-10-12-13-16-20 lykkjur slétt (= vinstra framstykki), sláið 1 sinn uppá prjóninn, A.1 (= 20 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.2 (= 20 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 16-20-24-26-32-40 lykkjur slétt (= bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.1, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.2, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 8-10-12-13-16-20 lykkjur slétt, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (= hægra framstykki). Fyrsta útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, er nú lokið. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út í annarri hverri umferð alls 24-27-30-33-36-39 sinnum = 316-348-380-408-444-484 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar öll útaukning fyrir laskalínu hefur verið gerð til loka mælist stykkið 17-19-21-24-26-28 cm. Haldið síðan áfram án útaukninga þar til stykkið mælist 19-21-23-24-26-29 cm. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 32-37-42-46-52-59 lykkjur slétt, prjónið næstu 6 lykkjur í mynstri eins og áður, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt (= vinstra framstykki), setjið næstu 69-75-81-87-93-99 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, prjónið næstu 6 lykkjur í mynstri eins og áður, prjónið 64-74-84-92-104-118 lykkjur slétt, prjónið næstu 6 lykkjur í mynstri eins og áður, prjónið 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt (= bakstykki), setjið næstu 69-75-81-87-93-99 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, prjónið næstu 6 lykkjur eins og áður, prjónið 32-37-42-46-52-59 lykkjur slétt (= hægra framstykki) endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 194-214-234-250-274-302 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp. Haldið áfram fram og til baka með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan, sléttprjón og prjónið A.3 (= 28 lykkjur) yfir 8 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum og 10 lykkjur hvoru megin við þær (þ.e.a.s. 14 lykkjur hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið). Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina mælist stykkið 9 cm. Haldið síðan áfram fram og til baka með 5 kantlykkjum í garðaprjóni við miðju að framan og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru. JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar)! Aukið svona út með 3 cm millibili alls 3 sinnum = 209-226-246-262-286-314 lykkjur. Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist 16-16-16-17-17-16 cm – stillið af þannig að síðasta umferð sem er prjónuð sé frá röngu. Nú skiptist stykkið í framstykki og bakstykki og stykkin eru prjónuð til loka fram og til baka hvort fyrir sig. Setjið fyrstu og síðustu 54-59-64-68-74-81 lykkjur á sitt hvorn þráðinn fyrir hægra – og vinstra framstykki og prjónið bakstykki. BAKSTYKKI: = 98-108-118-126-138-152 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 5 lykkjur í garðaprjóni í hvorir hlið. Þegar stykkið mælist 23-23-23-24-24-23 cm er aukið út um 30-30-30-37-40-41 lykkjur jafnt yfir (en ekki yfir lykkjur í garðaprjóni) = 128-138-148-163-178-193 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið 2 umferðir garðaprjón. Prjónið stroff frá réttu þannig: 5 lykkjur í garðaprjóni, (3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 8 lykkjur eru eftir á prjóni, 3 lykkjur slétt, 5 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju. Uppslátturinn er felldur af eins og eigin lykkja. Stykkið mælist alls 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 54-59-64-68-74-81 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 5 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 23-23-23-24-24-23 cm aukið út um 14-14-14-15-19-22 lykkjur jafnt yfir (en ekki yfir lykkjur í garðaprjóni) = 68-73-78-83-93-103 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið 2 umferðir garðaprjón. Prjónið stroff frá réttu þannig: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, (3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til eftir eru 8 lykkjur á prjóni, 3 lykkjur slétt, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju. Uppslátturinn er felldur af eins og eigin lykkja. Stykkið mælist alls 52-54- 56-58- 60-62 cm frá öxl og niður. VINSTRA FRAMSTYKKI: = 54-59-64-68-74-81 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 5 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 23-23-23-24-24-23 cm aukið út um 14-14-14-15-19-22 lykkjur jafnt yfir (en ekki yfir lykkjur í garðaprjóni) = 68-73-78-83-93-103 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið 2 umferðir garðaprjón. Prjónið stroff frá réttu þannig: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, (3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til eftir eru 8 lykkjur á prjóni, 3 lykkjur slétt, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju. Uppslátturinn er felldur af eins og eigin lykkja. Stykkið mælist alls 52-54- 56-58- 60-62 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 69-75-81-87-93-99 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna/stuttan hringprjón 4 og prjónið að auki 1 nýja lykkju í hverja og eina af 8 nýju lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 77-83-89-95-101-107 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur (= 4 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið A.4 (= 28 lykkjur) mitt undir ermi þannig að það verða 14 lykkjur af A.4 hvoru megin við prjónamerki mitt undir ermi. Aðrar lykkjur í umferð eru prjónaðar slétt. Þegar allt A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina hefur fækkað um 18 lykkjur = 59-65-71-77-83-89 lykkjur. Fækkið síðan um 2 lykkjur undir ermi – lesið ÚRTAKA! Fækkið lykkjum svona í 10.-7.-6.-5.-4.-3. hverri umferð alls 7-9-11-13-15-17 sinnum = 45-47-49-51-53-55 lykkjur. Haldið síðan áfram með sléttar lykkjur þar til ermin mælist 37-35-34-33-32-29 cm. Nú er aukið út um 5-8-6-9-7-10 lykkjur jafnt yfir = 50-55-55-60-60-65 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið 2 umferðir garðaprjón. Prjónið síðan stroff (= 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til ermin mælist 42-40-39-38-37-34 cm frá skiptingu. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju. Uppslátturinn er felldur af eins og eigin lykkja. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. Festið enda. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (9)
Gabriele wrote:
Hallo, ich versuche sie Strickschrift seit 3 Tagen zu drucken,funktioniert nicht auch nicht bei meiner Freundin. Bitte senden sie mir doch die Strickschrift im pdfFormat. Dankeschön im Vorraus, Gabriele
21.12.2022 - 14:15DROPS Design answered:
Liebe Gabriele, wir könnten diese Anleitung ganz normal drucken - auf dem Knopf "drucken" drücken, um ein neues Fenster zu öffnen, dann können Sie entweder Ihren Drucker oder einen virtuellen Drucker (und als .PDF zu speichern) wählen - sonnst kann Ihnen gerne Ihr DROPS Händler damit helfen, die Anleitung Ihnen zu senden - fragen Sie ihm entweder per Telefon oder per E-Mail. Viel Spaß beim stricken!
21.12.2022 - 14:21Nelly wrote:
Bonjour Pensez vous qu’il est possible de remplacer les mailles de bordure au point mousse par le point de côtés 1/1 afin que la bordure soit plus rigide ? ou alors de la faire après en reprenant les mailles et en supprimant 10 mailles au modèle ?
29.10.2022 - 04:08DROPS Design answered:
Bonjour Nelly, les deux sont probablement faisables, tout dépend du résultat que vous préférez. Bon tricot!
31.10.2022 - 08:26P Laurence wrote:
Bonjour, jai des difficultés avec le diagramme A3\r\n Lorsqu on effectue les 2 mailles ensemble puis les mailles glissées au centre, on diminue donc de 2 mailles. Au rang suivant, on décale les mailles envers vers le centre, je me retrouve avec 8 mailles centrales et non pas 10 .... quelque chose m\'échappe. Merc.i
27.08.2021 - 00:22DROPS Design answered:
Bonjour Laurence, A.3 se tricote sur les 8 mailles du milieu sous la manche + 10 mailles avant et 10 mailles après, le jeté au début et à la fin de A.3 va décaler le motif vers le centre et les diminutions au milieu de A.3 vont le diminuer - autrement dit, ces 28 mailles vont faire disparaître le motif en forme de pointe sur les côtés. Est-ce que ceci peut vous aider?
27.08.2021 - 08:06Mrs Harknett wrote:
Why must patterns be top to bottom. In England we knit from bottom to top. Very confusing also why round needles when we use two needles
29.11.2020 - 13:43DROPS Design answered:
Dear Mrs Harknett, Working a garment top-down provides more flexibility and room for personal adjustment. For example it is easier to try the garment on while working, as well as making adjustments to length of yoke and shoulder caps. The instructions are carefully explaining every step, in the correct order. Diagrams are adjusted to the knitting direction and are worked as usual. About the needles, we usually use round needles since they're more comfortable to work with when there is a large amount of stitches and because it allows us to work without seams, all in one piece. Happy knitting!
29.11.2020 - 18:23MAMA ULI wrote:
Nach Muster A. 3 habe ich 24 Maschen zu wenig. Wo ist der Fehler? Im Muster werden 36 Maschen abgenommen und seitlich anschließend 12 zugenommen. Ich komme nie und nimmer auf 226 Maschen in Größe M.
16.05.2020 - 16:15DROPS Design answered:
Liebe Mama Uli, in A.3 werden keine Maschen zugenommen, aber es wird nach A.3 1 Masche beidseitig jeder Markierung auf beiden Seiten zugenommen = 4 Maschen x 3 = 12 Maschen + 214= 226 Maschen. Viel Spaß beim stricken!
18.05.2020 - 08:11Mhvaurs wrote:
Pour la taille xl le patron n est pas juste après les cotes il manque pas de maille pour continuer . C est une déception !
21.05.2019 - 16:41DROPS Design answered:
Bonjour Mhvaurs, après le col, vous avez 144 m (on a augmenté 6 m à la fin des côtes) et vous tricotez ainsi: 5 mailles point mousse, 13 m jersey (= devant gauche), 1 jeté, A.1 (= 20 m), 1 jeté, 1 m jersey (= manche), 1 jeté, A.2 (= 20 m), 1 jeté, 26 m jersey (= dos), 1 jeté, A.1 (= 20 m), 1 jeté, 1 m jersey (= manche), 1 jeté, A.2 (= 20 m), 1 jeté, 13 m jersey, 5 mailles point mousse (= devant droit) soit: 5+12+(1) +20 +(1)+1+(1)+ 20 + (1)+26+(1) + 20 + (1)+1+(1) + 20 + (1)+13+5= 144 m + (8) jetés = 152 m après ce rang. Bon tricot!
22.05.2019 - 09:48Barbara wrote:
Hallo, bin beim Ärmel und verstehe nicht, wie es bei A4 zu Abnahmen kommen soll, wenn doch nach/vor dem 2 zusammenstricken gleich wieder ein U gemacht wird, der zu einer neuen Masche wird? Das würde auch den Madrid-Pullover betreffen. Ich versuche es mal ohne Umschläge ...
04.08.2018 - 13:15DROPS Design answered:
Liebe Barbara, bei den 1., 3., 5. und 7. Reihe in A.4 haben Sie 2 Umschläge aber 4 Abnahmen = es wird in jeder diese Reihen 2 M im Diagram abgenommen. Viel Spaß beim stricken!
06.08.2018 - 08:51Naudan Suzanne wrote:
Je ne sais pas tricoter avec des aiguilles circulaires. Est il possible d'obtenir les explications de ce modèle en tricotant de bas en haut et si possible morceau par morceau. Merci
26.07.2018 - 08:32DROPS Design answered:
Bonjour Mme Naudan, le gilet se tricote en allers et retours sur aiguille circulaire pour avoir suffisamment de place pour y loger toutes les mailles, vous pouvez le tricoter sur aiguilles droites, mais pensez à bien vérifier votre tension car les mailles seront beaucoup plus serrées - lisez ici comment adapter un modèle sur aiguilles droites. Bon tricot!
26.07.2018 - 10:13Ked wrote:
Why wasn't this sweater included when I asked for "Raglan"?
19.07.2018 - 11:25DROPS Design answered:
Dear Ked, this pattern is listed under "Raglan" - see here. Happy knitting!
19.07.2018 - 11:57