DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10472.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Telegram For Her

Prjónuð peysa með marglitu mynstri og laskalínu úr DROPS Karisma. Stærð S - XXXL.

DROPS 184-21
DROPS Design: Mynstur u-819
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
600-700-750-800-900-1000 g litur 01, natur
250-300-350-350-400-450 g litur 05, svartur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 eða 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkja og 28 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 23 lykkjur og 32 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10472.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð.

LEIÐBEININGAR-1:
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist saman.

LEIÐBEININGAR-2 (á við um berustykki):
Ef prjónfestan passar ekki á hæðina og það verða fleiri umferðir á hæðina á 10 cm en sem gefið er upp í uppskrift, þá verður berustykkið allt of stutt og handvegur of lítill. Þetta er hægt að laga með því að prjóna 1 auka umferð í sléttprjóni með jöfnu millibili á berustykki.

ÚRTAKA:
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 272 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 44) = 6,1. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar ca 5. og 6. hver lykkja saman.

ÚTAUKNING:
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri).

LASKALÍNA:
Lykkjum er fækkað fyrir laskalínu hvoru megin við hvert A.4 þannig:
Fækkið um 1 lykkju eftir A.4 þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða í A.4, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri).
Fækkið um 1 lykkju á undan A.4 þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan A.4, prjónið næstu 2 lykkjurnar slétt saman (= 1 lykkja færri). Þ.e.a.s. fækkað er um 2 lykkjur við hvert A.4 og allt 8 lykkjur í umferð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar á sokkaprjóna, skiptið yfir á stuttan hringprjón eftir þörf. Stykkin eru sett saman og berustykki er prjónað í hring.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 272-284-316-328-368-384 lykkjur á hringprjón 3 með litnum svartur Karisma.
Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið).
Þegar stykkið mælist 5 cm, skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem fækkað er um 44-44-52-52-56-60 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR = 228-240-264-276-312-324 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt þannig: Setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkju, prjónið 113-119-131-137-155-161 lykkjur slétt, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, prjónið sléttar lykkjur út umferðina. Prjónamerki merkir hliðar á flíkinni. Prjónið síðan A.1 (= 6 lykkjur) yfir allar lykkjur (= 38-40-44-46-52-54 mynstureiningar á breiddina) – lesið LEIÐBEININGAR-1. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, endurtakið A.1a á hæðina. Þegar stykkið mælist 39-41-40-42-41-43 cm, prjónið A.2 yfir A.1. Þegar prjónað hefur verið að ör í A.2 er næsta umferð í A.2 prjónuð þannig: Fellið af 4 lykkjur, prjónið næstu 107-113-125-131-149-155 lykkjur eins og áður, fellið af næstu 7 lykkjur, prjónið næstu 107-113-125-131-149-155 lykkjur eins og áður, fellið af síðustu 3 lykkjur. Stykkið mælist ca 44-44-44-45-45-45 cm. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjón, skiptið yfir á stuttan hringprjón eftir þörf.
Fitjið upp 48-52-56-60-64-64 lykkjur á sokkaprjón 3. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stykkið mælist 5 cm, skiptið yfir á sokkaprjón 4 og prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem fækkað er um 6-8-8-10-12-10 lykkjur jafnt yfir = 42-44-48-50-52-54 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar (= mitt undir ermi). Prjónið 1 umferð með litnum svartur, prjónið síðan næstu umferð þannig: Prjónið 0-1-0-1-2-0 lykkjur A.3, prjónið A.1 yfir næstu 42-42-48-48-48-54 lykkjur (= 7-7-8-8-8-9 mynstureiningar), endið með 0-1-0-1-2-0 lykkjur A.3. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er A.1a endurtekið. Þegar stykkið mælist 6 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki (= 2 lykkjur fleiri) – lesið ÚTAUKNING! Aukið svona út með 3-2½-2-1½-1½-1½ cm millibili alls 12-14-15-17-19-21 sinnum = 66-72-78-84-90-96 lykkjur. Lykkjur í A.3 og útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. Þegar stykkið mælist 38-39-37-37-34-35 cm prjónið A.2 yfir A.1. Þegar aukið hefur verið út um allar lykkjur undir ermi er A.2 prjónað alls 11-12-13-14-15-16 sinnum á breidd. Þegar prjónað hefur verið að ör í A.3 er næsta umferð prjónuð þannig: Fellið af 4 lykkjur, prjónið næstu 59-65-71-77-83-89 lykkjur eins og áður, fellið af síðustu 3 lykkjur. Ermin mælist ca 43-42-41-40-38-37 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 332-356-392-416-464-488 lykkjur. Byrjið umferð í skiptingunni á milli vinstri ermi og bakstykkis áður en prjónað er áfram. Prjónið þannig: Prjónið A.4 (= 2 lykkjur, byrjið við ör sem merkir þína stærð), haldi áfram með mynstur eins og áður, yfir næstu 103-109-121-127-145-151 lykkjur, A.4 (= bakstykki), prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 59-65-71-77-83-89 lykkjur (= ermi), A.4, haldið áfram með mynstur eins og áður yfir næstu 103-109-121-127-145-151 lykkjur, A.4 (= framstykki), prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 59-65-71-77-83-89 lykkjur (= ermi) – lesið LEIÐBEININGAR-2. Haldið svona áfram með mynstur og fellið af fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, í annarri hverri umferð alls 26-29-31-33-36-39 sinnum = 124-124-144-152-176-176 lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, skiptið yfir í svartur. Prjónið 1 umferð með svartur. Berustykkið mælist ca 19-21-23-24-26-28 cm.
Nú er hægt að prjóna upphækkun aftan í hnakka til þess að flíkin passi betur þannig að berustykkið verði aðeins hærri í hnakka. Hægt er að sleppa upphækkuninni, þá verður hálsmáli alveg eins að framan og að aftan. Prjónið upphækkun í hnakka eða farið áfram í að prjóna kant í hálsmáli ef ekki er óskað eftir upphækkun.

UPPHÆKKUN Í HNAKKA:
Hoppið yfir þennan kafla ef ekki er óskað eftir upphækkun. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar (þetta merkir byrjun á umferð eftir að upphækkun hefur verið prjónuð).
Prjónið að miðju að aftan, setjið 1 prjónamerki.
Byrjið frá réttu með litnum svartur og prjónið sléttar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 30-30-34-34-40-40 lykkjur slétt fram hjá prjónamerki.
Snúið, herðið á þræði og prjónið 60-60-68-68-80-80 lykkjur brugðið til baka.
Snúið, herðið á þræði og prjónið 54-54-61-61-72-72 lykkjur slétt.
Snúið, herðið á þræði og prjónið 48-48-54-54-64-64 lykkjur brugðið til baka.
Snúið, herðið á þræði og prjónið 42-42-48-48-56-56 lykkjur slétt.
Snúið, herðið á þræði og prjónið 36-36-42-42-48-48 lykkjur brugðið til baka.
Snúið, herðið á þræði og prjónið 30-30-35-35-40-40 lykkjur slétt.
Snúið, herðið á þræði og prjónið 24-24-28-28-32-32 lykkjur brugðið.
Snúið, herðið á þræði og prjónið að miðju að aftan.
Klippið frá. Umferðin byrjar nú við prjónamerki, þ.e.a.s. í skiptingu á milli vinstri ermi og bakstykkis.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Í næstu umferð er lykkjum fækkað þannig: Prjónið * 42-42-52-56-68-68 lykkjur slétt og fækkið um 2-0-8-8-18-16 lykkjur jafnt yfir, prjónið næstu 20 lykkjur saman 2 og 2 (= 10 lykkjur færri) *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum = 100-104-108-116-120-124 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið næstu umferð þannig: Prjónið * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 0-4-8-16-0-4 lykkjur eru eftir, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir þær lykkjur sem eftir eru = 120-124-128-136-144-148 lykkjur. Uppslátturinn er prjónaður snúinn í stroffi (þ.e.a.s. 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í næstu umferð, það á ekki að myndast gat. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þegar stroffið mælist 3 cm.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir hvorri ermi yst í lykkjubogana.

Mynstur

symbols = svartur
symbols = natur
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Telegram

Andreas Spiliotopoulos, Greece

Telegram For Her

Dana Hlavová, Czech Republic

Skrifaðu athugasemd um DROPS 184-21

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (17)

country flag Audra wrote:

For the sleeve: do the increases start 2-3/8" after working an entire A.1 chart vertically, or, once the entire sleeve (from cast on edge) measures 2-3/8"?

14.08.2023 - 22:41

DROPS Design answered:

Hi Audra, The increases start when the sleeve measures the correct length from the cast-on edge. Happy knitting!

15.08.2023 - 06:44

country flag Robyn Dunstan wrote:

What sizes are the models wearing?

02.06.2022 - 04:09

DROPS Design answered:

Hi Robyn, You will find a measurement chart at the bottom of the pattern for all the sizes. Happy crafting!

02.06.2022 - 06:49

country flag Dumet wrote:

Bonjour j'ai commandé la laine DROPS KARISMA de Garnstudio et je suis très déçue de la qualité car sous la laine blanche on voit le passage de la laine noire. En plus il y a des nœuds dans certaines pelotes. Le pull ne donne pas les résultats que j'espérais.

06.12.2020 - 20:50

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Dumet, nous sommes désolés que cette laine ne soit pas à la hauteur de vos attentes, si vous avez décelé un défaut, merci de bien vouloir contacter votre magasin en lui indiquant toutes les informations (bains, couleurs, photos, etc..) - pour qu'il nous les transmette. Merci, bon tricot!

07.12.2020 - 08:39

country flag Dumet Corinne wrote:

Bonjour a quoi sert le RÉ-HAUSSE ENCOLURE DOS et ou est il placé. Merci beaucoup.

15.09.2020 - 20:10

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Dumet, la ré-hausse pour l'encolure dos permet de tricoter quelques rangs supplémentaires sur les mailles du dos pour que l'encolure dos soit plus haute que l'encolure devant. Si on ne la fait pas, l'encolure devant et dos seront toutes deux identiques. Elle consiste en des rangs raccourcis tricotés à partir du milieu dos. Cette vidéo montre un exemple de ré-hausse. Bon tricot!

16.09.2020 - 08:34

country flag Pamela Lang wrote:

I have almost finished this jumper & have reached the decrease row before the neck ribbing. If I start the row between the back piece & the left sleeve ( as it says on the pattern) the 2X2decreases will be on the right front & the left back making the neckline uneven. Where on the neckline should these 2 areas of extra decrease be? Centrally over the shoulders or centre front & back? Where should I start this row? Thanks Pam

25.04.2020 - 10:23

DROPS Design answered:

Dear Pamela, the rounds on neckedge starts on the same place you started rounds on yoke, ie after left sleeve and before back piece. Happy knitting!

27.04.2020 - 08:05

country flag Janny Van Den Berg wrote:

Bij het lijf staat, brei een hoogte van 40cm A2 over A1. Betekent dit dat het 40cm vanaf de boord is of van het begin van de boord. Bvd

28.07.2019 - 15:45

DROPS Design answered:

Dag Janny,

Er wordt altijd de totale hoogte bedoeld, tenzij aangegeven. Dus in dit geval dus inclusief de boord.

11.08.2019 - 16:25

country flag Birgitte Celine Juul wrote:

Hej Jeg er ved at strikke den flotte sweater, men har lige et par spørgsmål. På ryg/forstykke skal man lukke 4 masker af til ærmegab strikke x antal masker, lukke 7 masker af, strikke x antal masker og lukke de sidste 4 masker af. Gør jeg dette får jeg en maske midt mellem de 4 masker jeg startede med at lukke af og de sidste 3 masker jeg slutter med at lukke af. Det er vel ikke meningen? Hvordan sætter jeg et rundt ærme på rundpinden hvor ryg/forstykke er?

12.12.2018 - 08:09

DROPS Design answered:

Hei Birgitte. Du har satt et merke i maskene i hver side (ikke mellom maskene). Du feller altså av de 4 første maskene (masken med merket, + 3 masker til), så strikker du X-antall masker, og feller av 7 masker (merket sitter i den midterste) masken. Videre strikker du X-antall masker og feller de siste 3 maskene på omgangen. Du har nå felt av 7 masker i hver side. Når du setter ermmaskene inn på samme rundpinne som bolen flytter du dem bare over på samme pinne slik: . God fornøyesle

12.12.2018 - 09:39

country flag Elisabeth wrote:

Wie kann ich denn verhindern, dass das muster am rundenübergang nicht stimmt? da ist eine stufe drin.

21.11.2018 - 08:10

DROPS Design answered:

Liebe Elisabeth, mit diesem Technick können Sie bei den Streifen diese Stufe vermindern. Ihr DROPS Laden hat auch sicher persönnliche Tipps für Sie, nehmen Sie einfach Kontakt mit ihm - auch telefonisich oder per E-Mail. Viel Spaß beim stricken!

21.11.2018 - 09:59

country flag Janne wrote:

Is het mogelijk om een andere maat mouwen te breien (bijvoorbeeld lijfje maat S en mouwen maat M?) De bijbehorende mouwen zijn helaas net te strak.

07.05.2018 - 21:36

DROPS Design answered:

Als de mouw wel past bij het armsgat kun je inderdaad de mouw wat groter maken door bijvoorbeeld de minderingen aan te passen. Je zet dan meer steken op en je mindert minder vaak.

14.05.2018 - 19:42

country flag Gudrun wrote:

Jag lyckas inte sticka ihop ärmar med fram- o bakstycke. Det är för tajt, tror det beror på att det bara är 7 maskor avmaskade för ärmhålen så ärmens rundel är för sluten. När jag trär försöker trä över ärmens maskor på den stora rundstickan stramar det så mkt i ärmen så det inte går. Har ni något tips för hur man gör detta?

05.03.2018 - 22:08

DROPS Design answered:

Hej, ofta kan de första varven vara rejält svåra att sticka, fast det brukar gå. Du kan försöka ta en till rundsticka till hjälp i början och sätta en del av maskorna på denna.

07.03.2018 - 18:07