Telegram Jacket |
|||||||
|
|
||||||
Prjónuð peysa með marglitu mynstri og laskalínu úr DROPS Karisma. Stærð S - XXXL.
DROPS 184-22 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð. LEIÐBEININGAR-1: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist saman. LEIÐBEININGAR-2 (á við um berustykki á peysu): Ef prjónfestan passar ekki á hæðina og það verða fleiri umferðir á hæðina á 10 cm en sem gefið er upp í uppskrift, þá verður berustykkið allt of stutt og handvegur of lítill. Þetta er hægt að laga með því að prjóna 1 auka umferð í sléttprjóni með jöfnu millibili á berustykki. ÚRTAKA: Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 272 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 44) = 6,1. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar ca 5. og 6. hver lykkja saman. ÚTAUKNING: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn. Það á ekki að myndast gat. LASKALÍNA: Öll úrtaka er gerð frá réttu! Lykkjum er fækkað fyrir laskalínu hvoru megin við hvert A.6 þannig: Fækkið um 1 lykkju eftir A.6 þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða í A.6, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri). Fækkið um 1 lykkju á undan A.6 þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan A.6, prjónið næstu 2 lykkjurnar slétt saman (= 1 lykkja færri). Þ.e.a.s. fækkað er um 2 lykkjur við hvert A.6 og allt 8 lykkjur í umferð. HNAPPAGAT (á við um hægri kant að framan): Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kant að framan. Þegar kantur að framan mælist ca 1,5 cm er fellt af fyrir 8-8-8-9-9-9 hnappagötum jafnt yfir (fellt er af fyrir hnappagötum í brugðnu einingunum séð frá réttu). 1 hnappagat = prjónið 2 lykkjur brugðið saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn – efsta hnappagatið á að vera ca 2 cm frá toppi, hin hnappagötin eiga að vera með ca 7-8 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón, frá miðju að framan. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, skipt er yfir á stuttan hringprjón eftir þörf. Stykkin eru sett saman og berustykki er prjónað fram og til baka. Kantur að framan er prjónaður fram og til baka í lokin. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 276-288-320-332-372-388 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki) á hringprjón 3 með litnum svartur Karisma. Prjónið þannig: Prjónið 1 kantlykkju með GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið), þar til 3 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjur slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 5 cm, skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 39-45-53-47-57-55 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA = 237-243-267-285-315-333 lykkjur. Prjónið 1 umferð þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 60-60-66-72-78-84 lykkjur í sléttprjóni (= framstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, prjónið lykkjuna í sléttprjóni, prjónið 113-119-131-137-155-161 lykkjur í sléttprjóni (= bakstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, prjónið lykkjuna í sléttprjóni, prjónið 60-60-66-72-78-84 lykkjur í sléttprjóni þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni (= framstykki). Prjónamerki merkir hliðar á stykki. Prjónið nú næstu umferð þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni með grunnlit í mynstri, A.1 (= 6 lykkjur) þar til 2 lykkjur eru eftir (= 39-40-44-47-52-55 sinnum á breidd) og endið með A.2 yfir næstu lykkju og 1 kantlykkju í garðaprjóni – lesið LEIÐBEININGAR-1. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 og A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, endurtakið A.1a og A.2a á hæðina. Þegar stykkið mælist 39-41-40-42-41-43 cm, prjónið A.3 yfir A.1 og A.4 yfir A.2. Þegar prjónað hefur verið að ör í A.3 er næsta umferð í A.3 prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 58-58-64-70-76-82 lykkjur eins og áður, fellið af 3 lykkjur á undan prjónamerki og 4 lykkjur á eftir prjónamerki (= alls 7 lykkjur), prjónið næstu 107-113-125-131-149-155 lykkjur eins og áður, fellið af 3 lykkjur á undan prjónamerki og 4 lykkjur á eftir prjónamerki (= alls 7 lykkjur), prjónið síðustu 58-58-64-70-76-82 lykkjur eins og áður. Stykkið mælist ca 44-44-44-45-45-45 cm. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjón, skiptið yfir á stuttan hringprjón eftir þörf. Fitjið upp 48-52-56-60-64-64 lykkjur á sokkaprjón 3. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stykkið mælist 5 cm, skiptið yfir á sokkaprjón 4 og prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem fækkað er um 6-8-8-10-12-10 lykkjur jafnt yfir = 42-44-48-50-52-54 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar (= mitt undir ermi). Prjónið 1 umferð með svartur, prjónið síðan næstu umferð þannig: Prjónið 0-1-0-1-2-0 lykkjur A.5, prjónið A.1 yfir næstu 42-42-48-48-48-54 lykkjur (= 7-7-8-8-8-9 mynstureiningar), endið með 0-1-0-1-2-0 lykkjur A.5. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er A.1a endurtekið. Þegar stykkið mælist 6 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki (= 2 lykkjur fleiri) – lesið ÚTAUKNING! Aukið svona út með 3-2½-2-1½-1½-1½ cm millibili alls 12-14-15-17-19-21 sinnum = 66-72-78-84-90-96 lykkjur. Lykkjur í A.5 og útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. Þegar stykkið mælist 38-39-37-37-34-35 cm prjónið A.3 yfir A.1. Þegar aukið hefur verið út um allar lykkjur undir ermi er A.3 prjónað alls 11-12-13-14-15-16 sinnum á breidd. Þegar prjónað hefur verið að ör í A.3 er næsta umferð prjónuð þannig: Fellið af 4 lykkjur, prjónið næstu 59-65-71-77-83-89 lykkjur eins og áður, fellið af síðustu 3 lykkjur. Ermin mælist ca 43-42-41-40-38-37 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið ermar inn á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt er af fyrir handveg = 341-359-395-425-467-497 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki á milli hverra skiptinga á milli hvorra erma og fram- og bakstykki áður en þú prjónar áfram. Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið mynstur eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki á milli erma og fram- og bakstykki, A.6 yfir næstu 2 lykkjur (= framstykki), prjónið mynstur yfir 59-65-71-77-83-89 lykkjur (= ermi), A.6 yfir næstu 2 lykkjur, prjónið mynstur yfir næstu 103-109-121-127-145-151 lykkjur eins og áður, A.6 yfir næstu 2 lykkjur (= bakstykki), prjónið mynstur yfir næstu 59-65-71-77-83-89 lykkjur (= ermi), A.6 yfir næstu 2 lykkjur, mynstur eins og áður þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni – lesið LEIÐBEININGAR-2. Haldið svona áfram með mynstur og fækkið lykkjum fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, í annarri hverri umferð alls 26-29-31-33-36-39 sinnum = 133-127-147-161-179-185 lykkjur. Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, skiptið yfir í litinn svartur. Prjónið 1 umferð með litnum svartur. Berustykkið mælist ca 19-21-23-24-26-28 cm. Nú er hægt að prjóna upphækkun í hnakka til að flíkin passi betur, þá verður berustykkið aðeins hærra í hnakka. Hægt er að sleppa upphækkuninni, þá verður hálsmálið alveg eins að framan og að aftan. Prjónið upphækkun aftan í hnakka eða farið beint í að prjóna kant í hálsi ef ekki er óskað eftir upphækkun. UPPHÆKKUN Í HNAKKA: Hoppið yfir þennan kafla ef ekki er óskað eftir upphækkun. Setjið 1 prjónamerki í miðju lykkju í umferð (= miðja að aftan). Prjónið 30-30-34-34-40-40 lykkjur slétt fram hjá prjónamerki, herðið á þræði og prjónið 60-60-68-68-80-80 lykkjur brugðið til baka. Snúið, herðið á þræði og prjónið 54-54-61-61-72-72 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 48-48-54-54-64-64 lykkjur brugðið til baka. Snúið, herðið á þræði og prjónið 42-42-48-48-56-56 lykkjur slétt. Snúið, herðið á þræði og prjónið 36-36-42-42-48-48 lykkjur brugðið til baka. Snúið, herðið á þræði og prjónið 30-30-35-35-40-40 lykkjur slétt. Snúið, herðið á þræði og prjónið 24-24-28-28-32-32 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið út umferðina. KANTUR Í HÁLSI: Í næstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað þannig: Prjónið 27-24-29-34-37-40 lykkjur slétt og fækkið um 3-0-4-6-9-10 lykkjur jafnt yfir, prjónið næstu 18 lykkjur saman 2 og 2 (= 9 lykkjur færri), prjónið 44-44-54-58-70-70 lykkjur slétt og fækkið um 5-0-8-10-18-18 lykkjur jafnt yfir, prjónið næstu 18 lykkjur saman 2 og 2 (= 9 lykkjur færri), prjónið síðustu 26-23-28-33-36-39 lykkjur slétt og fækkið um 3-1-5-7-10-11 lykkjur jafnt yfir = 104-108-112-120-124-128 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið næstu umferð þannig: Prjónið 1 kantlykkju slétt * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), 1 lykkja brugðin *, prjónið frá *-* þar til 3-7-11-19-3-7 lykkjur eru eftir, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 3 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjur slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni = 124-128-132-140-148-152 lykkjur. Uppslátturinn er prjónaður snúinn í stroffi (þ.e.a.s. 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þegar stroffið mælist 3 cm. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Kantur að framan er prjónaðu fram og til baka á hringprjón 3 með litnum svartur. Prjónið upp 174-210 lykkjur (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4+2) á hringprjón 3 með svartur, innan við 1 kantlykkju frá réttu. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið stroff (= 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, endið með 2 lykkjur slétt. Haldið áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stroffið mælist 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið eins og vinstri kantur að framan – en fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir hvorri ermi í ystu lykkjubogana. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (22)
Gaetane wrote:
Bonjour, dernière étape! Je ne saisi pas la méthode des boutonnières ? Comment procede t on ? Merci 🙏
28.02.2024 - 21:00DROPS Design answered:
Bonjour Gaetane, pour former 1 boutonnière dans les sections 2 mailles envers des côtes, on va tricoter 2 mailles ensemble à l'envers, et faire 1 jeté, au rang suivant, on tricote le jeté à l'endroit. Bon tricot!
29.02.2024 - 08:05Gaetane wrote:
Bonjour ! Suis rendu au col , après mon premier rang , l envers je tricote normal pour revenir à l endroit pour continuer avec l aiguille circulaire 3 ? Autrement dit je tricote le rang comme indiqué et à l envers je tricote comme elle se présente c est ça ? Les rangs entre les *** et répétez? Ai-je bien saisi ? Merci 🙏
26.02.2024 - 12:55DROPS Design answered:
Bonjour Gaetane, effectivement vous pouvez tricoter 1 rang envers sur l'envers avant de tricoter les côtes en les commençant sur l'endroit. Après le 1er rang des côtes, tricotez simplement en côtes 2 mailles endroit/2 mailles envers (= tricotez les mailles comme elles se présentent, on n'augmente qu'au 1er rang). Bon tricot!
26.02.2024 - 14:11Gaetane wrote:
Bonjour, suis rendu à l empiècement, si je comprends bien je tricote les mailles du début du devant jusqu’à l emmanchure, là je mets un fil marqueur et je tricote les mailles de la manche et au bout je tricote les mailles du dos etc alors la manche est en rond je saisi pas comment procéder pour empiécer manche avec le devant etc,, ? Merci 🙏
18.02.2024 - 16:35DROPS Design answered:
Bonjour Gaetane, c'est bien ainsi que l'on doit faire, dans cette vidéo, nous montrons comment mettre les manches entre le devant et le dos; les premiers rangs sont parfois un peu plus difficile, vous pouvez vous aider d'une autre aiguille circulaire ou bien utiliser la technique du magic loop, après quelques rangs ce sera plus simple de nouveau. Bon tricot!
19.02.2024 - 09:30Gaetane wrote:
Bonjour ! Encore moi ! Je comprends votre diagramme mais au moment qu on augmente on tricote ces mailles en noir ou blanc car ça suit pas du diagramme 😢comment je procède pour le suivi des motifs ? Merci 🙏
13.02.2024 - 00:56Gaetane wrote:
Bonjour ! Lorsqu on fait les augmentations des manches , on procède comment pour suivre le diagramme, la maille augmenter devient elle le diagramme A5 ou quoi ? Merci 🙏
12.02.2024 - 18:41DROPS Design answered:
Bonjour Gaetane, tricotez les augmentations en suivant A.5, vous pouvez progressivement les incorporer dans A.1 si vous le souhaitez ou comme dans A.5 tout simplement. Bon tricot!
13.02.2024 - 08:24Gaetane wrote:
Bonjour ! Suite à votre réponse concernant les augmentations des manches , ça veut dire qu au bout de 6 cm, je commence à tricoter les augmentations et le diagramme en rond sur 4 aiguilles? Et qu en est-il pour suivre le diagramme des mailles qu on augmente ? Merci 🙏
12.02.2024 - 17:14DROPS Design answered:
Bonjour Gaetane, pour les manches, tricotez d'abord 5 cm de côtes puis 1 tour avec les aiguilles 4 en diminuant comme indiqué, tricotez ensuite 1 tour en noir et commencez les diagrammes. En même temps, quand la manche mesure 6 cm, commencez à augmenter et incorporez les augmentations au motif. Bon tricot!
13.02.2024 - 08:20Gaetane wrote:
Bonjour ! Pour les augmentations de la manche , vous dites après 6 cm, de l ouvrage , on commence les augmentations, alors à partir du début du poignet qu on mesure? On se trouve alors sur le diagramme A1.c est ça ? Et le fil marqueur se trouve au bout de l aiguille ? C est ça ? Merci 🙏
12.02.2024 - 16:56DROPS Design answered:
Bonjour Gaetane, mesurez les 6 cm à partir du rang de montage. Le marqueur du début du tour doit être au niveau de la jonction, autrement dit entre la fin du tour et le début du tour suivant. Tricotez les nouvelles mailles en suivant A.1/.A5. Bon tricot!
13.02.2024 - 08:18Gaetane Bouchard wrote:
Bonjour ! je saisi pas concernant vos augmentations de chaque cote de la manche ? en étant sur endroit au bout du rang je fait un jeté avant les 2 dernieres mailles et la j ai on fil marqueur ok je me trouve maintenant a etre sur l envers alrs je tricote 2 mailles et la est ce que je fais un jeté ? ainsi de suite est ca? merci
11.02.2024 - 16:46DROPS Design answered:
Bonjour Mme Bouchard, les manches se tricotent en rond sur les aiguilles doubles pointes, vous allez augmenter 1 maille à la fin du tour + 1 maille au début du tour ainsi: tricotez jusqu'à ce qu'il reste 2 mailles avant le fil marqueur, faites 1 jeté, tricotez les 2 mailles suivantes (la dernière maille du tour + la 1ère maille du tour suivant), faites 1 jeté; au tour suivant, tricotez les jetés torse à l'endroit pour éviter des trous. Bon tricot!
12.02.2024 - 09:02Gaetane wrote:
Bonjour, lorsqu’on est rendu à un autre diagramme l on commence tu a l endroit où selon qu on a fini l autre diagramme? Exemple: après avoir fini en hauteur celui de A1 je me trouve être à l envers , alors est-ce que je commence A3 à l envers ? Ou je fait un autre rang à l envers pour commencer le A3 à l endroit ? Merci 🙏
09.02.2024 - 13:31DROPS Design answered:
Bonjour Gaetane, dans ce cas vous allez effectivement tricoter le 1er rang de A.3 sur l'envers. Bon tricot!
12.02.2024 - 07:05Gaetane wrote:
Bonjour! Suite à votre réponse concernant le diagramme , la 1ère ligne en noir et rendu sur l envers je prends la 2 iemes ligne de gauche en blanc et je recommence ainsi ? Alors pour le fil qui suit pas je coupe ? Je saisi pas ça ! Surtout les 1ère ligne sans motif ? Merci !
01.02.2024 - 12:15DROPS Design answered:
Bonjour Gaetane, vous pouvez soit couper le fil soit tricoter le rang du côté où se trouve le fil, autrement dit, vous pouvez par ex tricoter (A.1) 1 rang sur l'endroit en noir, 1 rang sur l'endroit en naturel, 1 rang sur l'envers en noir, 1 rang sur l'envers en naturel, puis continuer sur l'endroit avec la suite du diagramme. Bon tricot!
01.02.2024 - 15:48