Lillehammer |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónuð húfa með norrænu marglitu mynstri og dúsk úr DROPS Nepal. Prjónuð peysa með hringlaga berustykki og marglitu mynstri, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Nepal. Stærð S - XXXL.
DROPS 180-18 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚRTAKA/ÚTAUKNING (á við um peysu): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 88 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 10) = 8,8. Þ.e.a.s. í þessu dæmi þá eru prjónaðar ca 8. og 9 hver lykkja slétt saman. Ef auka á út er það gert á eftir ca 9. hverja lykkju. MYNSTUR: Peysa: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. Veljið mynstur fyrir rétta stærð. Húfa: Sjá mynsturteikningu A.4. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA-1 (á við um peysu – mitt undir ermi): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt undir þessum lykkjum), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir (= 2 lykkjur færri). ÚRTAKA-2 (á við um húfu): Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. ÚRTAKA (á við um peysu – stroff): Aukið er út um 1 lykkju í hverri brugðinni mynstureiningu þannig: Prjónið 2 lykkjur brugðið, takið upp þráðinn á milli næstu lykkju og prjónið þráðinn snúinn brugðið svo að ekki myndist gat. UPPHÆKKUN (á við um peysu): Setjið 1 prjónamerki í miðju að aftan. Byrjið frá réttu og prjónið sléttar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 7-8-8-9-9-10 lykkjur fram hjá prjónamerki. Snúið, herðið á þræði og prjónið 14-16-16-18-18-20 lykkjur brugðið til baka. Snúið, herðið á þræði og prjónið 21-24-24-27-27-30 lykkjur slétt. Snúið, herðið á þræði og prjónið 28-32-32-36-36-40 lykkjur brugðið til baka. Snúið, herðið á þræði og prjónið 35-40-40-45-45-50 lykkjur slétt. Snúið, herðið á þræði og prjónið 42-48-48-54-54-60 lykkjur brugðið til baka. Snúið og prjónið sléttar lykkjur til baka að miðju að aftan. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. BERUSTYKKI: Fitjið upp 88-88-96-96-104-112 lykkjur á stutta hringprjóna 4 með litnum beige. Umferðin byrjar við miðju að aftan. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) umferðina hringinn. Þegar stroffið mælist 3 cm er prjónuð 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 10-4-6-0-2-4 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir) = 78-84-90-96-102-108 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5. Til að flíkin passi betur er prjónuð UPPHÆKKUN – sjá útskýringu að ofan, aftan í hnakka með litnum beige. Prjónið síðan MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan, hringinn eftir mynsturteikningu A.1 (veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð = 13-14-15-16-17-18 mynstureiningar 6 lykkjur). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 234-252-270-304-323-342 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 21-23-25-27-29-31 cm frá miðju að framan þar sem A.1 byrjaði. Ef stykkið er styttra en þetta mál, verður að prjóna áfram með litnum beige (án útaukninga) að réttu máli. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 2-8-6-0-9-14 lykkjur jafnt yfir = 236-260-276-304-332-356 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá miðju að aftan: 35-38-40-44-49-53 lykkjur sléttprjón (= hálft bakstykki), setjið næstu 48-54-58-64-68-72 lykkjur á þráð (= hægri ermi), fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur (= í hlið undir ermi), prjónið sléttprjón yfir næstu 70-76-80-88-98-106 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 48-54-58-64-68-72 lykkjur á þráð (= vinstri ermi), fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur (= í hlið undir ermi) og prjónið sléttprjón yfir þær 35-38-40-44-49-53 lykkjur sem eftir eru (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar eru nú prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 152-164-176-192-216-236 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið síðan mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.2. Í umferð merktri með ör 1 í mynsturteikningu er fækkað um 4 lykkjur jafnt yfir = 148-160-172-188-212-232 lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er haldið áfram með mynsturteikningu A.3 alveg eins (A.3 er endurtekið til loka). JAFNFRAMT í umferð merktri með ör 2 í mynsturteikningu er fækkað um 8 lykkjur jafnt yfir = 140-152-164-180-204-224 lykkjur. Aukið síðan út um 6 lykkjur jafnt yfir í umferð merktri með ör 3, ör 4, ör 5 og ör 6 = 164-176-188-204-228-248 lykkjur. Þegar stykkið mælist 35 cm frá prjónamerki er prjónuð 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 52-56-60-68-76-80 lykkjur jafnt yfir = 216-232-248-272-304-328 lykkjur í umferð. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 4 cm eru allar 2 lykkjur brugðið auknar út til 3 lykkjur brugðið – lesið ÚTAUKNING = 270-290-310-340-380-410 lykkjur. Þegar stroffið mælist 8 cm (öll peysan mælist nú ca 66-68-70-72-74-76 cm frá öxl) fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur notið e.t.v. grófari prjóna eða sláið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju, uppslátturinn er síðan felldur af eins og venjuleg lykkja. ERMI: Ermin er prjónuð í hring á stutta hringprjóna. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. Setjið 1 prjónamerki – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Setjið til baka lykkjur af þræði á stutta hringprjóna 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-8-8-10-12 lykkjum mitt undir ermi = 54-60-66-72-78-84 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Látið prjónamerki fylgja með í stykkinu. Prjónið mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.2. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er prjónað mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.3 (þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað með beige til loka). JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3 cm er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA – 1. Fækkið lykkjum svona alls 8-11-13-16-18-20 sinnum í mismunandi stærðum eins og útskýrt er að neðan: Stærð S: Í 10. hverri umferð, Stærð M: Í 6. hverri umferð, Stærð L: Í 5. hverri umferð, Stærð XL: Til skiptis í 3. og 4. hverri umferð, Stærð XXL: Í 3. hverri umferð, Stærð XXXL: Til skiptis í annarri hverri og 3. hverri umferð. Þegar allar úrtökur hafa verið gerðar eru 38-38-40-40-42-44 lykkjur eftir – ATH: Þegar lykkjum er fækkað kemur mynstrið ekki til að ganga jafnt upp mitt undir ermi, en passið uppá að “punktarnir” í A.3 komi beint yfir hvern annan í afgang af ermi). Þegar stykkið mælist 36-34-32-30-29-27 cm frá prjónamerki (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis) prjónið 1 umferð slétt þar sem auknar eru út 10-10-12-12-14-16 lykkjur jafnt yfir = 48-48-52-52-56-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4 og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8 cm. Í næstu 8 cm. Í næstu umferð eru allar 2 lykkjur brugðið auknar út til 3 lykkjur brugðið = 60-60-65-65-70-75 lykkjur (þetta er gert til að ermin verði ekki of stíf neðst). Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist nú ca 44-42-40-38-37-35 cm frá prjónamerki. Prjónið aðra ermi á sama hátt. ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á stutta hringprjóna. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. HÚFA: Fitjið upp 96 lykkjur á hringprjón 4 með litnum beige. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 12 lykkjur jafnt yfir (prjónið 7. og 8. hverja lykkju slétt saman) = 84 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan, í hring eftir mynsturteikningu A.4 (= 7 mynstureiningar 12 lykkjur). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.4 er lokið (stykkið mælist nú ca 18 cm), prjónið síðan sléttprjón með litnum beige. Þegar stykkið mælist 19 cm eru sett 6 prjónamerki í stykkið með 14 lykkjum á milli allra lykkja. Haldið áfram í sléttprjóni og fækkið um 1 lykkju á eftir hverju prjónamerki – lesið ÚRTAKA-2 (= 6 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 3 sinnum, síðan í hverri umferð alls 3 sinnum = 48 lykkjur eftir í umferð. * Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar snúnar slétt saman 2 og 2, prjónið 1 umferð slétt án úrtöku *, prjónið frá *-* einu sinni til viðbótar = 12 lykkjur eftir í umferð. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Húfan mælist ca 24 cm ofan frá og niður. DÚSKUR: Gerið einn dúsk með litum djúpsævi ca 6 cm að þvermáli og saumið dúskinn efst á húfuna. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (10)
Therese wrote:
Beau modele Je vais le tricoter
11.03.2024 - 22:52Věra Džemaili wrote:
Dobrý den, chtěla bych se zeptat: při pletení průkrčníku mi vznikají ( i po utahování) dírky, které se mi nelíbí, lze to něčím vyřešit? Už jsem několikrát práci párala..🤔😔\r\nDěkuji a hezký večer. Věra
03.11.2022 - 19:23Sabine Koch wrote:
Wo steht wieviele Maschen in welcher Reihe der Passe ich in Größe M zunehmen muß ? Ais dem Diagramm ist das nicht zu sehen und in der Anleitung nicht beschrieben nur Beginn Passe 88 Maschen Ende 260.
06.03.2021 - 19:12DROPS Design answered:
Liebe Frau Koch, es wird zuerst 4 Maschen abgenommen (= 84 M), dann stricken Sie A.1 (= 14 x 6 Maschen) - es wird zugenommen wie im Diagram gezeigt, dh nach A.1 fertig ist haben Sie 18 Maschen x 14 = 252 Maschen dann nehmen Sie 8 Maschen regelmäßig verteilt zu = 260 Maschen. Viel Spaß beim Stricken!
08.03.2021 - 08:11Alicia Esquinas Muñoz wrote:
Hola! No entiendo cómo hacer los aumentos q se requieren para realizar el gráfico A.1... Estoy realizando una talla L y tengo en el canesú 90 puntos y tengo q terminar teniendo 270..cuando se realizan esos aumentos y en q vueltas del gráfico? Solo veo especificados los aumentos/ disminuciones en los graficos A2 y A3...gracias anticipadas
29.02.2020 - 23:17DROPS Design answered:
Hola Alicia. Los aumentos están incluidos en el diagrama. Es el símbolo del óvalo blanco ( 1 hebra con el color base en el patrón de rayas, en la siguiente vuelta trabajar las hebras de derecho retorcido para evitar los agujeros.)
10.03.2020 - 23:42Synnøve Jacobsen wrote:
Jeg kan ikke få stilt mitt spørsmål, da jeg bare får beskjed om at mitt innlegg inneholder link eller forbudte ord! Og det gjør det ikke!!!
06.02.2020 - 21:23María Luisa wrote:
Las agujas que se necesitan son AGUJAS DE DOBLE PUNTA Y AGUJA CIRCULAR DROPS (40 y 80 cm) . Mi pregunta es: ¿40 y 80 cm son para dos agujas circulares diferentes? En el patrón solo dice que se utilice aguja circular corta, es decir, de 40 cm, pero no sé cuándo se utiliza la circular de 80cm.
10.11.2019 - 20:05DROPS Design answered:
Hola Maria Luisa. En este modelo utilizan agujas circulares cortas de 4 mm (40 cm de largo) para la cenefa del escote y cenefas de las mangas y agujas circulares (80 cm de largo ) para cenefa inferior del cuerpo. En el resto de la labor utilizan las agujas circulares de 5 mm.
10.11.2019 - 23:53Oda Mathilde wrote:
Det er feil i oppskriften. Noe jeg regner med de tidligere kommentarene også nevner.
05.05.2019 - 16:01DROPS Design answered:
Hei Oda. Kan du være litt mer presis med hva du mener er feil? Vi vil gjerne korrigere dersom det er en feil. Hilsen DROPS
07.05.2019 - 14:01Věra wrote:
Dobrý den,ráda bych si upletla tuto čepici....ještě jsem toho moc nenapletla,ale v návodu je určitě chyba....asi bych ji dala dohromady i s tiskovou chybou,-zdá se,že je tam jen vložen kus textu který tam nepatří,ale přeci jen......děkuji Věra
07.02.2019 - 23:45DROPS Design answered:
Dobrý den, Věro, děkuji za upozornění - opravdu tam byla jedna věta navíc :-) Teď už je návod v pořádku a nic by vás nemělo mást. Hodně zdaru! Hana
11.02.2019 - 17:55DROPS Design wrote:
Colour combinations shown are: A) DROPS Nepal 0206, 8910, 3720, 1477. B) DROPS Nepal 0500, 0300, 0100, 0517.
18.10.2017 - 14:12Conny wrote:
Ich vermisse leider die passende Anleitung als Strickjacke
08.06.2017 - 07:48