DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7392.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Sticks and Stones

Prjónuð peysa með röndum og laskalínu, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Merino Extra Fine. Stærð börn 3-14 ára

DROPS Children 27-18
DROPS Design: Mynstur nr me-014-bn
Garnflokkur B
--------------------------------------------------------

Stærð: 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 - 11/12 - 13/14 ára
Stærð í cm: 98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140 - 146/152 - 158/164
Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio
150-200-200-250-250-300 g nr 07, ljós brúnn
100-100-100-150-150-150 g nr 18, eplagrænn
100-100-100-150-150-150 g nr 09, dökk brúnn
50-50-50-50-50-50 g nr 01, natur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR NR 4 (40 og 60 cm) – eða þá stærð sem þarf til að 21 l x 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR NR 3 (40 og 60 cm) – fyrir stroff.
--------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7392.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.3.

ÚTAUKNING (á við um laskalínu):
Byrjið 2 l á undan prjónamerki: Sláið uppá prjóninn, prjónið 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), sláið uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt til að koma í veg fyrir göt (þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogann í stað fremri).

RENDUR:
Prjónið 21-21-26-20-20-24 umf með dökk brúnn (meðtalið stroff og upphækkun í hnakka), 6-7-8-10-11-12 umf með ljós brúnn og 6-7-8-10-11-12 umf með dökk brúnn, mynsturteikning A.3, mynsturteikning A.2 (prjónið 6-7-8-10-11-12 umf af hverri rönd), mynsturteikning A.1. Áfram er prjónað með dökk brúnn til loka. ATH: Í mynstri A.1 og A.3 er hver röð í mynstir ) 1 umf. Í mynstri A.2 eru prjónaðar 6-7-8-10-11-12 umf (= ca 2-2,2-3-3,5-4-4 cm) hver rönd (þ.e.a.s. rendurnar í A.2 eru breiðari í stærri stærðum).

ÚRTAKA (á við um ermar):
Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 l slétt saman og 2 l snúnar slétt saman (þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogann í stað fremri).
--------------------------------------------------------


PEYSA:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður í RENDUR – sjá skýringu að ofan.

Stykkið er fyrst prjónað stroff í dökk brúnn og upphækkun aftan við hnakka, síðan eru prjónaðar rendur þannig: 21-21-26-20-20-24 umf með dökk brúnn, 6-7-8-10-11-12 umf með ljós brúnn og 6-7-8-10-11-12 umf með dökk brúnn, mynsturteikning A.3 – sjá RENDUR að ofan, mynsturteikning A.2 (prjónið 6-7-8-10-11-12 umf í hvorri rönd), mynsturteikning A.1. Prjónið síðan með dökk brúnn til loka.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 92-92-96-96-96-96 l á stutta hringprjóna nr 3 með dökk brúnn, setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= miðja að aftan). Prjónið 1 umf slétt. Prjónið stroff = 2 l sl, 2 l br í 3 cm.
Prjónið síðan upphækkun aftan við hnakka þannig (haldið áfram með stroff): Prjónið 8 l framhjá prjónamerki, snúið við, herðið á þræði og prjónið 16 l til baka, snúið við, herðið á þræði og prjónið 24 l, snúið við, haldið áfram að prjóna yfir 8 l fleiri í hvert skipti sem snúið er við þar til prjónað hefur verið yfir alls 48-48-64-64-64-64 l, snúið við og prjónið 1 umf aftur fram og til baka. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið 1 umf sléttprjón jafnframt er aukið út um 10 l jafnt yfir = 102-102-106-106-106-106 l.

Nú eru prjónaðar RENDUR – sjá útskýringu að ofan – setjið 4 ný prjónamerki (fyrir laskalínu) þannig:

Prjónið 17-17-18-18-18-18 l frá prjónamerki fyrir miðju að aftan, setjið 1. prjónamerki hér (takið jafnframt í burtu prjónamerki fyrir miðju að aftan), prjónið síðan 17 l (= ermi), setjið 2. prjónamerki, prjónið 34-34-36-36-36-37 l (= framstykki) og setjið 3. prjónamerki, prjónið 17 l (= ermi), setjið 4. prjónamerki og prjónið aftur fram að fyrsta prjónamerki (nú eru 34-34-36-36-36-37 l á milli prjónamerkja á bakstykki). MUNIÐ EFTIR RENDUR! Síðan í 1. umf er aukið út um 1 l hvoru megin við 4 prjónamerki fyrir laskalínu (= 8 útaukningar) – sjá ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu í hverri umf 1-3-3-5-5-7 sinnum (= alls 2-4-4-6-6-8 sinnum) og síðan í annarri hverri umf 13-13-15-15-17-17 sinnum = 222-238-258-274-290-306 l á prjóni.
Næsta umf er prjónuð þannig: Setjið 47-51-55-59-63-67 l á milli 1. og 2. prjónamerkis á þráð, fitjið upp 8 nýjar l yfir lykkjur á þræði, prjónið fram að 3. prjónamerki, setjið 47-51-55-59-63-67 l á milli 3. og 4. prjónamerkis á þráð, fitjið upp 8 nýjar l yfir lykkjur á þræði, prjónið aftur fram að 1. prjónamerki = 144-152-164-172-180-188 l á prjóni.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Haldið síðan áfram með RENDUR í sléttprjóni. Prjónið þar til stykkið mælist 41-45-50-55-59-64 cm frá öxl.
Prjónið fyrst 1 umf sléttprjón JAFNFRAMT er aukið út um 28-32-32-36-36-40 l jafnt yfir = 172-184-196-208-216-228 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið stroff = 2 l sl, 2 l br í 5 cm. Fellið LAUST af með sl yfir sl og br yfir br. Stykkið mælist alls ca 42-46-51-56-60-65 cm frá hálsi.(= 46-50-55-60-64-69 cm alls lengd frá öxl og niður).

ERMI:
Setjið l af öðru bandinu á sokkaprjóna nr 4 og fitjið að auki upp 8 nýjar l undir ermi = 55-59-63-67-71-75 l.

Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi (þ.e.a.s. mitt í 8 nýja l). HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Haldið áfram með RENDUR – JAFNFRAMT þegar prjónaðir hafa verið 2,5 cm, er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku með 2,5 cm millibili 8-10-11-13-14-15 sinnum til viðbótar (= alls 9-11-12-14-15-16 sinnum) = 37-37-39-39-41-43 l. Prjónið síðan áfram þar til ermin mælist 27-30-34-38-41-45 cm. Prjónið 1 umf sléttprjón JAFNFRAMT er aukið út um 7-7-9-9-7-9 l jafnt yfir = 44-44-48-48-48-52 l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3 og prjónið stroff = 2 l sl, 2 l br í 5 cm. Fellið síðan LAUST af með sl yfir sl og br yfir br.
Prjónið hina ermina alveg eins.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 14.06.2021
Leiðrétting í mynsturteikningu A.3.

Mynstur

symbols = ljós brúnn
symbols = dökk brúnn
symbols = eplagrænn
symbols = natur
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Sticks and Stones

Anagocha, Spain

Sticks and Stones

Annette, Germany

Sticks and Stones pullover

natafor, Finland

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 27-18

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (35)

country flag Brigitte wrote:

Eine Frage zu den Raglanschrägen und den Umschlägen. Spielt es hier keine Rolle, wie die Umschläge abgestrickt werden ? Sollte sich nicht bei jeder Raglanschräge einmal die Masche nach rechts und dahinter die Masche nach links neigen ? Und das bei jeder Raglanschräge ? Oder spielt das hier keine Rolle, wie man den Umschlag abstrickt ? Danke und liebe Grüße Brigitte

10.05.2023 - 10:32

DROPS Design answered:

Liebe Brigitte, hier werden die Umschläge einfach verschränkt gestrickt (wie z.B. in dieser Lektion, aber gerne können Sie die Umschläge so stricken, daß sie in die gewünschte Richtung neigen werden (siehe dieses Video z.B.). Viel Spaß beim stricken!

10.05.2023 - 16:36

country flag Brigitte Beier wrote:

Für den höheren Nacken immer 8 M. mehr im Bündchenmuster stricken. Da heisst es nur " Faden fest anziehen “ Wenn ich zurückstricke, hebe oder stricke ich die 1. Masche ab ? Danke für eine kurze Erklärung Brigitte Beier

08.05.2023 - 15:31

DROPS Design answered:

Liebe Frau Beier, bei der nächsten Reihen wird der Faden fest gezogen und dann strickt man weiter - dieses Video zeigt, wie man so eine Erhöhung strickt. Viel Spaß beim stricken!

08.05.2023 - 16:14

country flag Brigitte wrote:

Die Raglanschräge finde ich nicht schön, 7 x in jeder Reihe, dann 15 x in jeder 2. Reihe. Übergang sieht nicht gut aus. Warum ist das so gelöst ?

07.05.2023 - 15:55

country flag Brigitte wrote:

Sehr geehrte Damen vom Strickteam,l warum wird bei den Raglanzunahmen z. B. 11 x in jeder Reihe und dann 15 x in jeder 2. Reihe zugenommen ? Dieser Übergang sieht nicht schön aus. Könnte man das nichtt anders - also in jeder 2. Reihe machen ? Kenne ich z, B, bei Erwachsenenpullover so. Würde dann die Raglanschreäge zu lang werden ? Das kenn ich so nicht von anderen Raglanpullovern von oben nach unten, Hätten Sie noch einen anderen Vorschlag hiefür ?

07.05.2023 - 15:54

DROPS Design answered:

Liebe Brigitte, je nach der Größe und dem Schnitt, braucht mann eine bestimmte Reihenanzahl für die gewünschte Höhe; damit die Passe (und Rumpfteil sowie Ärmel) die genaue Breite haben, soll man so zunehmen, dh einpaar Zunahmen in jeder Runde dann in jeder 2. Runde. Viel Spaß beim stricken!

08.05.2023 - 08:15

country flag Brigitte wrote:

Ich möchte die Raglanpasse - habe 96 M. für das Bündchen - in jeder 2. Reihe zunehmen.\r\n(nicht wie beschrieben am Anfang jede Reihe) Was muss ich dann verändern bzw. wie viele Maschen in der 1. Reihe zunehmen ?\r\nKönnten Sie mir das ausrechnen ? Größe soll ansonsten so bleiben.\r\nDanke und herzliche Grüße Brigitte Beier

09.03.2023 - 15:43

country flag Brigitte wrote:

Was ist nun richtig ? das Video.....da ist der Beginn der verkürzten Reihen nach dem Bündchen, was ich auch für richtig halte, in der Beschreibung aber bereits bei Beginn des Bündchens mit 2 re, 2 li. Maschen (schon im Bündchen verkürzte Reihen beginnen ???) Wenn ich aber nach dem Bund beginne, wird das dann hintene nicht zu hoch ? Ich mache eigentlich die verkürzten R. immer, damit es vorn etwas tiefer ist und nicht hinten höher. ???? Danke für die Antwort. Brigitte

24.02.2023 - 09:54

DROPS Design answered:

Liebe Brigitte, das Video zeigt die Technik, dann soll mann immer die Beschreibung der Anleitung folgen, was das Muster (Rippenmuster oder Glatt rechts), die Maschenanzahl, usw betrifft. Viel Spaß beim stricken!

24.02.2023 - 10:09

country flag Brigitte wrote:

Hallo, nochmal eine Frage - warum bereits im Bündchenmuster die verkürzten Reihen ? Wäre es nicht besser, die verkürzten Reihen erst nach dem Bündchen im Glatt rechts Gestrick zu stricken ? Gruß Brigitte

23.02.2023 - 14:31

DROPS Design answered:

Liebe Brigitte, das ist wahrscheinlich ein Designer-Wahl, gerne können Sie wahrscheinlich die Erhöhung auch glatt rechts stricken. Viel Spaßb eim stricken!

23.02.2023 - 14:55

country flag Brigitte Beier wrote:

Stimmt die Angabe der Ärmellänge ? ........ weiterstricken bis die Ärmellänge 45 cm erreicht hat, dann Bündchen mit 5 cm = 50 cm. Die Gesamtlänge ab Halsmitte ist mit 73 cm angegeben. Das habe ich ja als erwachsene Person bei einer Größe von 1.66 !! Das kann sicher nicht stimmen. Ich bitte um Rückmeldung bzw. Korrektur ? Brigitte Beier

12.02.2023 - 10:03

DROPS Design answered:

Liebe Frau Beier, ja so stimmt es aber die Maßnahmen finden Sie in der Skizze = 8 cm (1/2 Halsauschnitt) + 15 cm Passe + 50 cm Ärmel = 73 cm für 1/2 Spannweite (2x73=146 cm von der Ende vom 1. Ärmel bis der Ende vom 2. Ärmel. Viel Spaß beim stricken!

13.02.2023 - 09:44

country flag Brigitte wrote:

Wird der Ärmel rundgestrickt oder in Hin- und Rückreihen ? Geht aus der Anleitung nicht klar hervor. Danke für Ihre Antwort.

08.02.2023 - 22:03

DROPS Design answered:

Liebe Brigitte, die Ärmel werden in der Runde gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

09.02.2023 - 09:51

country flag Brigitte Beier wrote:

Danke für die Antwort. Aber ich habe leicht gedehnt für das Rippenmuster Halsbündchen 24 M. auf 10 cm, das sind 3 M mehr als im Glatt rechts Muster auf 10 cm, das wären bei 88 cm Umfang ca. 26 M. Zunahme, aber nicht 36 oder 32. Das halte ich für zu viel, dann schlabbert er unten zu weit. Was meinen Sie ? Oder soll das Bündchen unten weiter sein als der Rest ? Danke nochmal für Ihre Antwort

07.02.2023 - 12:58

DROPS Design answered:

Liebe Frau Beier, das Rippenmuster ist elastischer und zieht sich z.B. im Vergleich zum Glatt-rechts-Gestrick zusammen. Wenn vor dem Rippenmuster-Rand zugenommen wird, kann man damit vermeiden, dass der Rand deutlich enger wird als das restliche Rumpfteil. Wenn Sie aber einen eher festen Rand möchten, dann können Sie so anpassen. Viel Spaß beim stricken!

07.02.2023 - 13:27