DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8008.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Ólafur

Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Karisma eða DROPS Merino Extra Fine með laskalínu og norrænu mynstri. Prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS Extra 0-1146
DROPS Design: Mynstur nr u-756
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
350-400-450-500-550-600 gr litur nr 37, dökk blágrænn
150-150-200-200-200-250 gr litur nr 01, natur
100-100-100-100-100-150 gr litur nr 70, ljós blágrár
50-50-50-50-50-50 gr litur nr 48, vínrauður

Eða notið:
DROPS Merino Extra Fine frá Garnstudio
350-400-450-500-550-600 gr litur nr 20, dökk blár
150-150-200-200-200-250 gr litur nr 01, natur
100-100-100-100-100-150 gr litur nr 15, ljós grágrænn
50-50-50-50-50-50 gr litur nr 11, rauður

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 3 – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8008.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.3. Mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

ÚTAUKNING:
Aukið er út með því að slá uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð til að koma í veg fyrir göt.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 l á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið um 1 l á eftir prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður.

PEYSA:
Fitjið upp 86-90-94-100-104-108 l á hringprjóna nr 8 með litnum natur Karisma/ natur Merino Extra Fine. Prjónið 1 umf slétt. Skiptið yfir í litinn dökk blágrænn Karisma/ dökk blár Merino Extra Fine Prjónið síðan sléttprjón. Skiptið yfir í litinn natur Karisma/natur Merino Extra Fine og hringprjónar nr 4 þegar stykkið mælist 6 cm. Prjónið 1 umf sléttprjón.

Í næstu umf er aukið út um 26-30-34-34-44-52 l jafnt yfir = 112-120-128-134-148-160 l. Í næstu umf er prjónað frá miðju að aftan þannig: 16-18-18-19-24-27 l sl, setjið 1. prjónamerki, 2 l sl, setjið 2. prjónamerki, 16-16-20-21-19-19 l sl, setjið 3. prjónamerki, 2 l sl (= ermi), setjið 4. prjónamerki, 39-43-43-45-53-59 l sl, setjið 5. prjónamerki (= framstykki), 2 l sl, setjið 6. prjónamerki, 16-16-20-21-19-19 l sl, setjið 7. prjónamerki, 2 l sl (= ermi), setjið 8. prjónamerki, 17-19-19-20-25-28 l sl.

LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Nú er prjónuð upphækkun við hnakka frá miðju að aftan JAFNFRAMT er aukið út fyrir laskalínu.
UPPHÆKKUN:
Prjónið 8 l sl framhjá prjónamerki, snúið við, herðið á þræði og prjónið 16 l br til baka, snúið við, herðið á þræði og prjónið 24 l sl, haldið áfram að prjóna 8 l sléttprjón fleiri í hvert skipti sem snúið er við þar til prjónað hefur verið yfir alls 80 l frá síðasta snúning.

LASKALÍNA:
Aukið er út fyrir laskalínu í hverri umf frá réttu þannig: Aukið út um 1 l á undan 1. og 7. prjónamerki og 1 l á eftir 2. og 8. prjónamerki. Það verður aukið út um alls 6-6-6-6-4-4 l á bakstykki og 3-3-3-2-2-2 l á hvorri ermi.
Þegar upphækkunin hefur verið prjónuð til loka eru 124-132-140-144-156-168 l á prjóni. Klippið frá og festið enda. Prjónið nú áfram í hring frá 1. prjónamerki.

Næsta umf er prjónuð þannig: (1. prjónamerki), 2 l sl (2. prjónamerki),19-19-23-23-21-21 l sl, (3. prjónamerki) 2 l sl, (= ermi), (4. prjónamerki), 39-43-43-45-53-59 l sl (= framstykki), (5. prjónamerki), 2 l sl, (6. prjónamerki), 19-19-23-23-21-21 l sl, (7. prjónamerki), 2 l sl, (8. prjónamerki) (= ermi), 39-43-43-45-53-59 l sl (= bakstykki).

Í næstu umf byrjar útaukning fyrir laskalínu. ATH! Aukið er út mismunandi á fram- og bakstykki og ermum!
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

LASKALÍNA Á FRAM- OG BAKSTYKKI:
Aukið út á undan 1. og 5. prjónamerki og á eftir 4. og 8. prjónamerki þannig – LESIÐ ÚTAUKNING: Aukið út í hverri umf 4-8-12-10-8-10 sinnum, síðan í annarri hverri umf 13-11-11-12-14-13 sinnum. Nú eru 73-81-89-89-97-105 l á fram- og bakstykki.

LASKALÍNA Á ERMI:
Aukið út eftir 2. og 6. prjónamerki og á undan 3. og 7. prjónamerki þannig: Aukið út í annarri hverri umf alls 15-15-17-17-18-18 sinnum = 53-53-61-61-61-61 l á hvorri ermi.

Eftir útaukningu fyrir laskalínu eru 252-268-300-300-316-332 l alls. Prjónið síðan mynstur þannig: A.2 (= 2 l), A.1 (= 8 l) alls 6-6-7-7-7-7 sinnum, prjónið fyrstu l í A.1 (svo að það verði eins á báðum hliðum), A.2, A.1 alls 9-10-11-11-12-13 sinnum, prjónið fyrstu l í A.1, A.2, A.1 alls 6-6-7-7-7-7 sinnum, prjónið fyrstu l í A.1, A.2, A.1 alls 9-10-11-11-12-13 sinnum, prjónið fyrstu l í A.1. Haldið svona áfram með mynstur JAFNFRAMT er haldið áfram að auka út fyrir laskalínu þannig:

LASKALÍNA:
- ATH! Ekki er aukið út eins á fram- og bakstykki og ermum! Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1
LASKALÍNA Á FRAM- OG BAKSTYKKI:
Aukið út á undan 1. og 5. prjónamerki og á eftir 4. og 8. prjónamerki þannig:
Aukið út í annarri hverri umf 8-6-11-14-15-18 sinnum og síðan í 4. hverri umf 1-3-0-0-0-0 sinnum. Nú eru 91-99-111-117-127-141 l á fram- og bakstykki.
LASKALÍNA Á ERMI:
Aukið út á eftir 2. og 6. prjónamerki og á undan 3. og 7. prjónamerki þannig: Aukið út í annarri hverri umf 0-0-0-0-1-2 sinnum, í 4. hverri umf 5-6-1-1-7-8 sinnum, síðan í 6. hverri umf 0-0-3-4-0-0 sinnum. Nú eru 63-65-69-71-77-81 l á hvorri ermi.

Þegar öll útaukning hefur verið gerð eru 308-328-360-376-408-444 l á prjóni. Haldið áfram mynstur eins og áður. Næsta umf er prjónuð þannig: Setjið fyrstu 63-65-69-71-77-81 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-10 l undir ermi (setjið prjónamerki mitt á milli þessa nýju l), prjónið 91-99-111-117-127-141 l, setjið eftirfarandi 63-65-69-71-77-81 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-10 l undir ermi (setjið prjónamerki mitt á milli þessa nýju l), prjónið 91-99-111-117-127-141 l = 198-214-238-254-274-302 l. Þær 8-8-8-10-10-10 nýju l undir hvorri ermi eru prjónaðar inn í mynstur, þ.e.a.s. mynstrið speglast við prjónamerkin á hliðum.
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Haldið áfram með A.1 þar til það hefur verið prjónað einu sinni á hæðina, prjónið síðan stykkið áfram með litnum blágrænn Karisma/dökk blár Merino Extra Fine. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerkin á hlið – LESIÐ ÚRTAKA (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku með 14-30-10-14-10-14 cm millibili 2-1-3-2-3-2 sinnum til viðbótar = 186-206-222-242-258-290 l. Þegar stykkið mælist 39-40-41-41-41-41 cm (nú eru eftir ca 7 cm að loka máli á fram- og bakstykki), prjónið 1 umf sl JAFNFRAMT er fækkað um 0-2-0-2-0-2 l jafnt yfir = 186-204-222-240-258-288 l. Prjónið nú A.3 (= 6 l) alls 31-34-37-40-43-48 sinnum á breidd. Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað áfram með dökk blágrænn. Í næstu umf er aukið út um 9-6-3-6-9-6 l jafnt yfir = 177-198-219-234-249-282 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3. Prjónið stroff (= 1 l sl, 2 l br). Þegar stroffið mælist 4 cm er prjónuð 1 umf slétt. Fellið af.

ERMI:
Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna.
Setjið til baka þær 63-65-69-71-77-81 l af þræði á sokkaprjóna nr 4. Fitjið upp 8-8-8-10-10-10 nýjar l undir ermi (setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýju l) = 71-73-77-81-87-91 l. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram með A.1 yfir allar l. Þær 8-8-8-10-10-10 nýju l og l frá A.2 eru prjónaðar inn í mynstur A.1, þ.e.a.s. mynstrið speglast við prjónamerki. Þegar A.1 hefur verið prjónað að A.z, hoppar A.z yfir á ermi og síðan er prjónuð fyrsta umf eftir A.z. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki. Endurtakið úrtöku með 5½-5½-4½-4-3-2½ cm millibili 7-7-8-9-11-12 sinnum til viðbótar = 55-57-59-61-63-65 l. Þegar stykkið mælist 47-47-46-45-44-42 cm fækkið um 1-3-5-1-3-5 l jafnt yfir = 54-54-54-60-60-60 l. Nú eru eftir ca 7 cm af lengd á ermi. Prjónið A.3 alls 9-9-9-10-10-10 sinnum á breidd. Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er stykkið prjónað áfram með litnum dökk blágrænn Karisma/dökk blár Merino Extra Fine Prjónið 1 umf sl. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3 og prjónið stroff (= 1 l sl, 2 l br). Fellið af þegar stykkið mælist 54-54-53-52-51-49 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla).
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Brjótið kant í hálsmáli saman tvöfalt að röngu og saumið saman, laust.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 30.01.2020
Leiðrétting: LASKALÍNA...Aukið er út fyrir laskalínu í hverri umf frá réttu þannig: Aukið út um 1 l á undan 1. og 7. prjónamerki og 1 l á eftir 2. og 8. prjónamerki.

Mynstur

symbols = natur Karisma/ natur Merino Extra Fine
symbols = dökk blágrænn Karisma/ dökk blár Merino Extra Fine
symbols = vínrauður Karisma/ rauður Merino Extra Fine
symbols = ljós blágrár Karisma/ ljós grágrænn Merino Extra Fine
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Ólafur

Titta, Finland

Sweater for lillebror

Annika, Germany

Ólafur jumper

@fantantisch, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1146

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (120)

country flag Sabrina wrote:

10 neuen M unter jedem Arm ins Muster einpassen, d.h. das Muster wird jeweils beidseitig des Seitenmarkierers spiegelverkehrt gestr. Wie ist das gemeint. Können Sie die erste Runde erklären? Viele Grüsse

21.03.2024 - 22:32

DROPS Design answered:

Liebe Sabrina, das Muster wird nicht mehr in der Runde stimmen, stricken Sie das Muster so weit wie möglich bis die Seiten, dann wieder die neuen Maschen im Muster für das Vorder/Rückenteil stricken, so in der Mitte von den 10 Maschen passt das Muster nicht mehr, aber das Muster wird beim Vorder und Rückenteil bis die 5 M beidseitig passen. Viel Spaß beim Stricken!

22.03.2024 - 07:45

country flag Marjut wrote:

Alkaako mallikuvio keskeltä takaa vai hihasta 1.hiha merkin jälkeen?Onko mallikuivion järjestys oikein ohjeessa?

13.10.2023 - 21:01

DROPS Design answered:

Hei, mallineule alkaa 1.merkin kohdalta. Kuvioiden järjestys on oikea.

18.10.2023 - 16:42

country flag Edina wrote:

Na de ronding brei ik weer alle steken. De meerderingen die dan beginnen voor het lijf en de mouw geven aan, dat ik uiteindelijk voor het lijf ( voor- en achterpand) 135 steken per pand krijg. In de beschrijving staat 89 steken. Dit geldt ook voor de mouw. Als ik goed tel kom ik op 91 st. per mouw ipv 61. De 2 steken tussen de meerderingen tel ik dan nog niet eens mee. Uiteindelijk kom ik op 452 st. ipv de aangegeven 300 steken. Graag Uw uitleg hierover

12.10.2023 - 20:20

DROPS Design answered:

Dag Edina,

Bij elke meerdering komen er 2 steken bij op elke mouw en dit doe je 17 keer. Er komen dus 34 steken bij op elke mouw. Er zitten 23 steken op de mouw plus de 2 steken aan elke kant, is 27 steken. 27+34=61. Ik weet niet welke maat je precies aan het breien bent, maar dit kun je ook voor de panden uitrekenen.

15.10.2023 - 17:10

country flag Dorte Lundbak wrote:

Hvordan skal man forstå afsnittet (5linjer) der begynder således: Efter udtagningen til raglan er der 300 m totalt.....Jeg forstår ikke, hvordan og hvor A2 skal sættes ind. Er det i begge sider???

20.09.2023 - 09:57

DROPS Design answered:

Hej Dorte, Når du har taget ud til raglan og har 300 masker og skal nu strikke mønster; A.2=2m, A.1 8mx7=56m+1,A.2=2m, A.1 8x11=88m+1, A.2=2, A.1 8x7=56+1, A.2=2, A.1 8x11=88+1 = 300 masker. :)

26.09.2023 - 14:58

country flag Katrien wrote:

Er staat een fout in het Nederlands, onder "lijf". Er staat op het einde: "meerder" in de volgende nld (...)= 177-198-219(...). Logischerwijze moet dit "minder" zijn.

23.05.2023 - 19:26

country flag Jakub wrote:

Nebylo mi jasné, za kterou značkou se uplete prvních 8 ok a zjistil jsem, že v překladu je oproti (pravděpodobně originální) Dánské verzi chybějící informace v sekci "ZVÝŠENÍ: Upleteme hladce 8 ok za značkou,...". V Dánské verzi je předtím ještě "Vložte 1 značku do středu zadní části", pak je jasné, od které je myšleno, že se má uplést prvních 8 ok. Bylo by dobré tuto informaci do návodu doplnit :)

02.03.2023 - 14:44

DROPS Design answered:

Dobrý den, Jakube, děkujeme za upozornění - opraveno. Hodně zdaru! Hana

26.04.2023 - 13:02

country flag Colombe Lemay wrote:

Bonjour,pour celles qui ont de la difficulté à comprendre LA RE HAUSSE j'ai un très bon truc. Calculez 80 mailles ( pour M ) donc 40 en partant du milieu du dos vers la droite....on met un marqueur et 40 en partant du milieu du dos vers la gauche et on met un autre marqueur. Comme ça vos augmentations sont délimitées et vous êtes certaine d'obtenir le bon nombre de retour

08.02.2023 - 22:12

country flag FRANCESCA MICARELLI wrote:

Buongiorno Quando si inizia lo schema io sono a 300 maglie bisogna lavorare solo A1? Quindi 4 panna 1 blu e 3 panna e poi ripetere per tutto il giro?perché non mi tornano i conti

16.01.2023 - 23:22

DROPS Design answered:

Buonasera Francesca, a quale parte del modello si sta riferendo? Deve lavorare i diagrammi come indicato, quindi A.1 e A2 nelle sequenze indicate. Buon lavoro!

17.01.2023 - 22:08

country flag FRANCESCA wrote:

Buongiorno Sto iniziando il diagramma. Quando dite di fare la 1 maglia in A2 bisogna farlo per tutto il giro o solo la prima?

16.01.2023 - 14:18

DROPS Design answered:

Buonasera Francesca, quando richiesto deve lavorare la 1° maglia di A.1 poi proseguire come indicato. Buon lavoro!

16.01.2023 - 22:39

country flag Hedvig Poulsen wrote:

Når raglan er færdigstrikket og masker deles i ærmer og for- og bagstykke: Citat: "...strik 91-99-111-117-127-141 m, sæt de næste 63-65-69-71-77-81 m på en tråd til ærme, slå 8-8-8-10-10-10 nye m op under ærmet (sæt et mærke midt mellem disse nye m), strik 91-99-111-117-127-141 m = 198-214-238-254-274-302 m." Der er noget galt i dette regnestykke. Skal der ikke tages 8 masker (L) ud i siderne af for-bagstykke? Ligesom i ærmerne? Hvordan får I det ellers til 238 m? Mvh Hedvig 0

27.12.2022 - 20:07

DROPS Design answered:

Hej Hedvig, ærmemaskerne i hver side sættes på en tråd, så du strikker 111 masker slår 8 nye masker op til ærmegab, strikket 111 masker og slår 8 nye masker op til ærmegab i den anden side = 238 masker

03.01.2023 - 12:15