DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9856.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Sweet As Candy Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Karisma með hringlaga hálsmáli og marglitum mynsturbekk. Stærð S - XXXL

DROPS 165-2
DROPS Design: Mynstur nr u-762
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
400-450-500-550-600-650 gr litur nr 71, silfur bleikur
50-50-50-50-100-100 gr litur nr 69, ljós grágrænn
50-50-50-50-50-50 gr litur nr 39, dökk bleikvínrauður
50-50-50-50-50-50 gr litur nr 40, ljós bleikfjólublár
50-50-50-50-50-50 gr litur nr 52, sinnepsgulur
50-50-50-50-50-50 gr litur nr 65, gallabuxnablár
50-50-50-50-50-50 gr litur nr 68, ljós himinblár
50-50-50-50-50-50 gr litur nr 74, fjólublár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 3 – fyrir stroff.
DROPS PERLUTALA, bogalaga (hvít) NR 521: 7-7-8-8-9-9 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9856.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. Mynsturteikning A.1 er endurtekin upp að handveg bæði á fram- og bakstykki og ermum.

LEIÐBEININGAR-1 (á við um kant að framan):
Í þeim umf þar sem annað hvort eru rendur eða mynsturbekkur er prjónað með lit í röndum eða grunnlit í mynsturbekk einnig yfir 5 kantlykkjur í hvorri hlið.

ÚRTAKA (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Byrjið 4 l á undan prjónamerki og prjónið þannig: 2 l slétt saman, 4 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri).

ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Byrjið 2 l á undan prjónamerki og prjónið þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn (2 l fleiri). Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br svo ekki myndist gat.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 2, 11, 20, 29, 38, 46 og 54 cm
STÆRÐ M: 2, 11, 20, 29, 38, 47 og 56 cm
STÆRÐ L: 2, 10, 18, 26, 34, 42, 50 og 58 cm
STÆRÐ XL: 2, 11, 20, 28, 36, 44, 52 og 60 cm
STÆRÐ XXL: 2, 9, 17, 24, 32, 39, 47, 54 og 62 cm
STÆRÐ XXXL: 2, 10, 18, 26, 34, 42, 50, 57 og 64 cm

LEIÐBEININGAR-2:
Til þess að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þá er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki þegar mynstrið er prjónað. Notið e.t.v. grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 232-252-272-296-332-360 l (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna nr 3 með litnum silfur bleikur DROPS Karisma.
Prjónið 1 umf br frá röngu. Prjónið nú stroff (= 2 l sl, 2 l br) með 5 kantlykkjum að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan og 2 l sl á hvorri hlið við miðju að framan (séð frá réttu). Þegar stroffið mælist 4 cm er prjónuð 1 umf sl frá réttu þar sem fækkað er um 45-49-53-57-65-69 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) = 187-203-219-239-267-291 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið sléttprjón og mynstur eftir mynsturteikningu A.1 (1. umf = ranga), en 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan halda áfram í garðaprjóni til loka – LESIÐ LEIÐBEININGAR-1. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 8 cm í allar stærðir eru sett 2 prjónamerki 49-53-57-62-69-75 l inn frá hvorri hlið (= 89-97-105-115-129-141 l á milli prjónamerkja á bakstykki). Í næstu umf frá réttu er fækkað um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku með 3-3-3-3-4½-4½ cm millibili alls 4-4-4-4-3-3 sinnum í hvorri hlið = 171-187-203-223-255-279 l – ATH: Stillið úrtökuna af þannig að lykkjum er fækkað í einni umf með litnum ljós beige.
Þegar stykkið mælist 22-22-23-23-23-23 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 3½-3½-4-4-6-6 cm millibili alls 4-4-4-4-3-3 sinnum = 187-203-219-239-267-291 l.
Þegar stykkið mælist ca 37-38-39-40-41-42 cm – stillið af að prjónuð sé 1 eða 2 umf með litnum silfur bleikur á eftir 1 umf með “doppum" og að síðasta umf sé prjónuð frá röngu, prjónið næstu umf frá réttu þannig: Prjónið 45-49-53-57-64-70 l (= hægra framstykki), fellið af 8-8-8-10-10-10 l fyrir handveg, prjónið 81-89-97-105-119-131 l (= bakstykki), fellið af 8-8-8-10-10-10 l fyrir handveg og prjónið næstu 45-49-53-57-64-70 l (= vinstra framstykki). Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 60-60-64-64-68-68 l á sokkaprjóna nr 3 með litnum silfur bleikur. Prjónið 1 umf sl, prjónið síðan stroff (= 2 l sl, 2 l br). Þegar stroffið mælist 4 cm er prjónuð 1 umf sl þar sem fækkað er um 12-12-14-12-14-14 l jafnt yfir = 48-48-50-52-54-54 l á prjóni. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4 og prjónið sléttprjón og mynstur eftir A.1. Þegar stykkið mælist 8-8-7-8-8-10 cm er aukið út um 2 l mitt undir ermi. Endurtakið útaukningu með 3½-3-3-2½-2½-2 cm millibili alls 11-13-13-14-14-16 sinnum = 70-74-76-80-82-86 l. Prjónið þar til ermin mælist 46-46-45-45-44-44 cm – stillið af þannig að prjónaðar verði jafnmargar umf með litnum ljós beige og á fram- og bakstykki (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Prjónið 1 umf sl þar sem miðju 8-8-8-10-10-10 l undir ermi eru felldar af = 62-66-68-70-72-76 l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjóna nr 4 eins og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg (þetta er gert án þess að prjóna l) = 295-319-339-359-391-423 l á prjóni. Prjónið 1 umf br frá röngu með litnum silfur bleikur (kantur að framan heldur áfram í garðaprjóni) þar sem fækkað er um 8-8-10-12-14-16 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) = 287-311-329-347-377-407 l á prjóni – munið eftir LEIÐBEININGAR-1 og LEIÐBEININGAR-2.
Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.2 þar til 6 l eru eftir á prjóni (veljið mynstur fyrir rétta stærð og byrjið umf merkta með ör í réttri stærð), prjónið fyrstu l í A.2 (þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins í hvorri hlið við miðju að framan) og endið á 5 kantlykkjum í garðaprjóni eins og áður. Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT í umf merktri með ör 1 í mynstri er fækkað um 36-40-42-48-50-56 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) = 251-271-287-299-327-351 l á prjóni. Haldið áfram með mynstur.
Í umf merktri með ör 2 í mynstri er fækkað um 40-40-44-48-52-56 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) = 211-231-243-251-275-295 l á prjóni.
Í umf merktri með ör 3 í mynstri er fækkað um 40-44-44-52-52-60 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) = 171-187-199-199-223-235 l á prjóni.
Í umf merktri með ör 4 í mynstri er fækkað um 48-60-60-60-64-68 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) = 123-127-139-139-159-167 l á prjóni.
Þegar A.2 er lokið mælist stykkið ca 53-55-57-59-61-63 cm upp að öxl.

UPPHÆKKUN AFTAN Í HNAKKA:
Til þess að flíkin passi betur er prjónuð upphækkun aftan í hnakka þannig: Setjið 1 prjónamerki fyrir miðju að aftan. Byrjið frá réttu með litnum silfur bleikur og prjónið sl þar til prjónaðar hafa verið 12-12-14-14-15-15 l framhjá prjónamerki, snúið við, herðið á þræði og prjónið 24-24-28-28-30-30 l br til baka. Snúið við, herðið á þræði og prjónið 36-36-40-40-44-44 l sl, snúið við, herðið á þræði og prjónið 48-48-52-52-58-58 l br til baka. Snúið við, herðið á þræði og prjónið 60-60-64-64-72-72 l sl, snúið við, herðið á þræði og prjónið 72-72-76-76-86-86 l br til baka. Snúið við, herðið á þræði og prjónið 84-84-88-88-100-100 l sl, snúið við, herðið á þræði og prjónið 96-96-100-100-114-114 l br til baka. Snúið við og prjónið út umf.

HÁLSMÁL:
Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið 1 umf br frá röngu (kantur að framan heldur áfram í garðaprjóni) þar sem fækkað er um 27-31-31-31-43-51 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) = 96-96-108-108-116-116 l á prjóni. Prjónið nú stroff (= 2 l sl, 2 l br) með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni og 2 l sl í hvorri hlið við miðju að framan (séð frá réttu) – ATH: Síðasta hnappagatið er fellt af í hægri kant að framan og þegar hálsmálið mælist ca 1½-2 cm. Þegar stroffið mælist 3 cm er fellt af með sl yfir sl og br yfir br í stroffi og sl yfir garðaprjóns l í kanti að framan.
Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm upp að öxl.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í.

Mynstur

symbols = silfurbleikur
symbols = ljós grágrænn
symbols = sinnepsgulur
symbols = ljós bleikfjólublár
symbols = dökk bleikvínrauður
symbols = gallabuxnablár
symbols = fjólublár
symbols = ljós himinblár
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 165-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (35)

country flag Maria wrote:

Hej! I början på mönstret står det att man ska sticka 5 maskor i rätstickning och 2 rm i varje sida mot mitt fram. Ska jag alltså sticka 7 rm mot mitt fram? Mvh Maria

25.02.2021 - 13:44

DROPS Design answered:

Hej Maria, de 5 maskor i varje sida som skall rätstickas = rät från både avigsidan och rätsidan. De 2 maskor som stickas rät = rät från rätsidan och avig från avigsidan. Lycka till :)

25.02.2021 - 14:37

country flag Lina wrote:

Buona sera, ho realizzato il cardigan nella taglia XXXL, seguendo scrupolosamente le indicazioni, ma lo sprone mi è risultato 7-8 cm più lungo della misura riportata nel diagramma. Come mai è successo questo? Dovendo rifarlo nella stessa taglia, è opportuno seguire lo schema dello sprone per taglie più piccole che risulta un pò più corto rispetto a quello della taglia 3x. Grazie

30.01.2020 - 16:56

DROPS Design answered:

Buonasera Lina, prima di iniziare a lavorare il modello ha controllato che il suo campione corrispondesse a quello indicato? se così non fosse le misure non combaciano. Buon lavoro!

18.02.2020 - 21:44

country flag Lina wrote:

Buonasera, nelle indicazioni per il corpo, fa riferimento ad un "ferro con i puntini". E' quello che viene lavorato con il ferro azzurro cielo chiaro? Bisogna quindi arrivare a questo punto prima di lavorare lo sprone?

26.12.2019 - 18:32

DROPS Design answered:

Buongiorno Lina. Il ferro con i puntini è uno dei ferri in cui si alterna una maglia lavorata con il rosa argento a una maglia lavorata con un altro colore. Buon lavoro!

27.12.2019 - 08:26

country flag Karianne Fossmo-Sørensen wrote:

Når jeg strikker A.2 skal jeg begynne vrange omganger til venstre i diagrammet? Må jeg da starte med første maske til høyre, siden jeg avslutter med den på rette omganger?

12.03.2019 - 13:19

DROPS Design answered:

Hei Karianne. Ja, det stemmer: når du strikker fra vrangen leses diagrammet fra venstre mot høyre. Den første masken etter stolpen strikkes som første maske i A.2. God fornøyelse

13.03.2019 - 08:21

country flag Jacoline wrote:

Dan zou de mouw 6 cm. te lang worden. Ik denk dat ik hem nu maar uithaal en aan de onderkant met een andere kleur begin zodat het wel uitkomt.

12.08.2018 - 18:08

country flag Jacoline wrote:

Dan zou de mouw 6 cm. te lang worden. ik denk dat ik hem nu maar uithaal en aan de onderkant met een andere kleur begin zodat het wel uitkomt.

12.08.2018 - 17:35

country flag Jacoline wrote:

Als de mouwen bij het lijf op de rondbreinaald komen loopt de kleurenvolgorde aan de bovenpas niet gelijk. Dit doordat de mouwen langer zijn. Hoe hebben jullie dat opgelost? Op de foto lopen de kleuren wel mooi door. Ik heb als enige oplossing; de mouw uithalen en met een andere streep beginnen dan het lijf zodat het boven wel uit komt? Met vriendelijke groet, Jacoline

12.08.2018 - 15:12

DROPS Design answered:

Dag Jacoline, Het staat inderdaad niet duidelijk aangegeven bij de mouw dat je uit moet komen met het patroon. Op de afbeelding is er 1 herhaling extra van patroon A.1 in de mouw te zien. Hoe kom je uit als je de mouw door breit tot het patroon overeenkomt. Ik zal het even aan de designafdeling doorgeven om dit evt. te verduidelijken.

12.08.2018 - 17:14

country flag Jacoline wrote:

De kleuren doorbreien in de boord/ ribbelsteek vind ik niet zo mooi worden omdat het een ribbelsteek is.\r\nHeeft u ook een mooier alternatief?\r\nAls ik de kleuren niet doorbrei krijg ik gaatjes omdat ik dan de hoofdkleur daar steeds moet aanhechten.\r\nIk hoor graag van u.\r\nHart. Gr,\r\nJacoline

10.07.2018 - 08:29

DROPS Design answered:

Dag Jacoline, Als je de voorbies in een kleur wilt hebben is het misschien handiger om achteraf steken op te nemen over de voorpanden en boordsteken te breien. Maar misschien ben je al een eindje op weg en haal je liever niet uit. In dat geval is het even puzzelen wat het beste voor je werkt zodat je geen gaatjes krijgt, bijv. door een klein koopje in de draden te maken of de draden om elkaar heen te leggen o.i.d.

10.07.2018 - 16:21

country flag Karianne Fossmo-Sørensem wrote:

Hvor finner jeg målene i de forskjellige størrelsene?

15.05.2016 - 16:12

DROPS Design answered:

Hej. Du hittar de på måttskissen längst ner i oppskriften. Lycka till!

16.05.2016 - 14:07

country flag Jette Jonstrup wrote:

Kan jeg ikke strikke den rundt og klippe den op. Det synes jeg er nemmere end at strikke frem og tilbage. Hvor mange klippemasker skal jeg slå op og kan jeg ellers bare føge opskriften.

02.05.2016 - 21:53

DROPS Design answered:

Hej Jette. Jo, det kan du godt. Jeg ville saette 5-6 klippemasker op. God fornöjelse.

03.05.2016 - 17:01