DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7392.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Sweet As Candy Set

Settið samanstendur af: Prjónaðri basker / alpahúfu, hálsskjóli og handstúkum með marglitum mynsturbekk úr DROPS Karisma

DROPS 165-5
DROPS Design: Mynstur nr u-764
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

BASKER / ALPAHÚFA:
Stærð: S/M - M/L
Höfuðmál: ca 54/56 - 56/58 cm

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
50-100 gr litur nr 71, silfur bleikur
50-50 gr litur nr 39, dökk bleikvínrauður (13-14 gr)
50-50 gr litur nr 40, ljós bleikfjólublár (3-4 gr)
50-50 gr litur nr 52, sinnepsgulur (4-5 gr)
50-50 gr litur nr 65, gallabuxnablár (4-5 gr)
50-50 gr litur nr 68, ljós himinblár (4-5 gr)
50-50 gr litur nr 69, ljós grágrænn (11-12 gr)
50-50 gr litur nr 74, fjólublár (2-3 gr)
Tölur í (-) sýna ca hversu mörg gr af garni þarf í hverjum lit ef nota á afgangsgarn.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með mynsturprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN (40 cm) NR 3 – fyrir stroff.

HÁLSSKJÓL:
Stærð: Ein stærð
Ummál: Að neðan: ca 93 cm
Ummál að ofan: ca 53 cm
Hæð: ca 30 cm

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
150 gr litur nr 71, silfur bleikur
50 gr litur nr 39, dökk bleikvínrauður (18-20 gr)
50 gr litur nr 40, ljós bleikfjólublár (5-6 gr)
50 gr litur nr 52, sinnepsgulur (2-3 gr)
50 gr litur nr 65, gallabuxnablár ((6-7 gr)
50 gr litur nr 68, ljós himinblár (4-5 gr)
50 gr litur nr 69, ljós grágrænn (12-14 gr)
50 gr litur nr 74, fjólublár (2-2 gr)
Tölur í (-) sýna ca hversu mörg gr af garni þarf í hverjum lit ef nota á afgangsgarn.

DROPS HRINGPRJÓNAR (40 og 60 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með mynsturprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR (40 og 60 cm) NR 3 – fyrir stroff.

HANDSTÚKUR:
Stærð: Ein stærð
Ummál að neðan: ca 20 cm
Ummál að ofan: ca 24 cm
Lengd: ca 24 cm

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
50 gr litur nr 71, silfur bleikur (22 gr)
50 gr litur nr 39, dökk bleikvínrauður (2 gr)
50 gr litur nr 40, ljós bleikfjólublár (12 gr)
50 gr litur nr 52, sinnepsgulur (9 gr)
50 gr litur nr 65, gallabuxnablár (4 gr)
50 gr litur nr 68, ljós himinblár (10 gr)
50 gr litur nr 69, ljós grágrænn (10 gr)
50 gr litur nr 74, fjólublár (9 gr)
Tölur í (-) sýna ca hversu mörg gr af garni þarf í hverjum lit ef nota á afgangsgarn.

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með mynsturprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3 – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7392.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynstur A.1 til A.3. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

ALPAHÚFA / BASKER - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf.

ALPAHÚFA / BASKER:
Fitjið upp 104-112 l á hringprjón nr 3 með litnum silfur bleikur. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 l sl, 2 l br) í 3-4 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið 1 umf slétt með litnum silfur bleikur. Prjónið síðan mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.1 (= 13-14 mynstureiningar í umf) aukið út eins og útskýrt er í mynstri = 156-168 l á prjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Í umf merktri með ör A í mynstri er fækkað um 22-24 l jafnt yfir (prjónið 6. og 7. hverja l slétt saman) = 134-144 l. Haldið áfram með mynstur.
Í umf merktri með ör B í mynstri er fækkað um 22-24 l jafnt yfir (prjónið 5. og 6. hverja l slétt saman) = 112-120 l. Haldið áfram með mynstur.
Í umf merktri með ör C í mynstri er fækkað um 24-26 l jafnt yfir (prjónið til skiptis 3. og 4. hverja l og 4. og 5. hverja l slétt saman) = 88-94 l. Haldið áfram með mynstur.
Í umf merktri með ör D í mynstri er fækkað um 24-26 l jafnt yfir (prjónið til skiptis aðra og 3. hverja l og í 3. og 4. hverja l slétt saman) = 64-68 l eftir á prjóni. Haldið áfram með mynstur.
Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað áfram með litnum silfur bleikur þannig: Prjónið * 1 umf slétt, síðan er prjónuð 1 umf þar sem fækkað er um 16-17 l jafnt yfir (prjónið 3. og 4. hverja l slétt saman) *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum (ATH: Í hverri umf sem lykkjum er fækkað er prjónuð 1 l færri áður en 2 l eru prjónaðar slétt saman) = 16-17 l. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan þær l sem eftir eru 2 og 2 slétt saman = 8-9 l eftir á prjóni. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Húfan mælist ca 21-22 cm á hæðina.

-------------------------------------------------------

HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón neðan frá og upp.

HÁLSSKJÓL:
Fitjið upp 290 l á hringprjón nr 3 með litnum silfur bleikur. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 l sl, 3 l br). Þegar stroffið mælist 3 cm er lykkjum fækkað í annarri hverri mynstureiningu 3 l br til 2 l br (prjónið 2 fyrstu l br saman) = 261 l. Þegar stykkið mælist 4 cm eru 3 l br sem eftir eru fækkað í 2 l br = 232 l. Haldið áfram með stroff með 2 l sl, 2 l br þar til stykkið mælist 5 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið 1 umf slétt þar sem fækkað er um 36 l jafnt yfir (prjónið til skiptis 5. og 6. hverja l og 6. og 7. hverja l slétt saman) = 196 l. Prjónið síðan mynstur hringinn eftir A.2 (= 14 mynstureiningar í umf) og lykkjum er fækkað eins og útskýrt er í mynstri. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 112 l í umf. Prjónið 1 umf slétt með litnum silfur bleikur þar sem auknar eru út 16 l jafnt yfir (aukið út eftir 7. hverja l) = 128 l í umf. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið stroff (= 2 l sl, 2 l br) þar til stroffið mælist 5 cm. Fellið laust af með sl yfir sl og br yfir br. Hálsskjólið mælist ca 30 cm á hæðina.

-------------------------------------------------------

HANDSTÚKUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna ofan frá og niður.

HANDSTÚKA:
Fitjið upp 52 l á sokkaprjóna nr 3 með litnum silfur bleikur (passið uppá að uppfitjunarkanturinn verði ekki of stífur). Prjónið stroff (= 2 l sl, 2 l br) í 2,5 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4 og prjónið 1 umf slétt þar sem fækkað er um 4 l jafnt yfir (prjónið 12. og 13. hverja l slétt saman) = 48 l. Prjónið mynstur hringinn eftir mynstri A.3. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í umf merktri með ör 1 í mynstri er fækkað um 4 l jafnt yfir (prjónið 11. og 12. hverja l slétt saman) = 44 l. Endurtakið úrtöku í umf merktri með ör 2 í mynstri (þ.e.a.s. prjónið 10. og 11. hverja l slétt saman) = 40 l. Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónuð 1 umf slétt með litnum silfur bleikur og aukið er út um 4 l jafnt yfir (aukið út um 1 l eftir 10. hverja l) = 44 l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3 og prjónið stroff (= 2 l sl, 2 l br) í 2,5 cm. Fellið síðan laust af með sl yfir sl og br yfir br.
Prjónið aðra handstúku á sama hátt.

Mynstur

symbols = silfur bleikur
symbols = ljós bleikfjólublár
symbols = sinnepsgulur
symbols = fjólublár
symbols = ljós grágrænn
symbols = gallabuxnablár
symbols = dökk bleikvínrauður
symbols = ljós himinblár
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = úrtökuumferð
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 165-5

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (8)

country flag Louise Smith wrote:

Why is there no PDF Link. I don't want to waste ink but could download the pattern and use it from my computer.

31.08.2021 - 00:23

DROPS Design answered:

Dear Louise, if you click on the "print" ikon, then "continue to pattern" you can "save as PDF". Happy Stitching!

31.08.2021 - 00:29

country flag Eve wrote:

Il y a un problème dans le nom du coloris 71 de la laine Karisma : ce n'est pas rose argenté mais beige clair. Ce serait utile de corriger cette petite erreur ;)

22.04.2016 - 16:04

DROPS Design answered:

Bonjour Eve, le coloris 71 en Karisma est bien "Rose argenté" conformément au nuancier. Bon tricot!

22.04.2016 - 17:53

country flag YSEULT CARDE wrote:

Pour le béret n° 165-5 je ne trouve pas les explications des augmentations vous dites augmenter comme indiqué dans le schéma 156-168; Pouvez vous m'aider par avance je vous en remercie

26.03.2016 - 19:57

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Carde, les 2 premiers rangs de A.1 se font sur 8 m, puis on augmente 2 m au 3ème et au 5ème tour de A.1 en faisant 1 jeté après la 1ère m du motif et 1 jeté avant la dernière m du motif à répéter - tricotez ces jetés torse à l'end au tour suivant pour éviter un trou. Bon tricot!

29.03.2016 - 09:27

country flag Patricia wrote:

Bonjour, Béret taille S/M. Je ne comprends pas la "NOTE". Comment tricoter les 2 tours suivants de diminutions après le premier où j'ai réparti 16 dim en tricotant ens toutes les 3ème et 4ème mailles. Qu'entendez vous par tricoter 1m en moins entre 2 tricotées ens à l'endroit. Je suis bloquée. Merci de votre aide.

14.10.2015 - 08:42

DROPS Design answered:

Bonjour Patricia, pour répartir 16 dim, vous avez tricoté *2 m end, 2 m ens à l'end*, au rang de diminution suivant, tricotez *1 m end, 2 m ens à l'end*, puis au suivant, tricotez toutes les m ens à l'end. Bon tricot!

14.10.2015 - 08:59

country flag J.Parhan wrote:

Leuke set in mooie kleuren!

14.06.2015 - 22:08

Anne How wrote:

Elegant and simple Fair Isle design. Great in natural colours of handspun wool.

10.06.2015 - 06:54

country flag Gabriele wrote:

Ein sehr schönes Set und ein Hingucker...

02.06.2015 - 22:34

country flag Dea wrote:

Bello!

29.05.2015 - 22:06