DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24
DROPS 158-31
DROPS Design: Modell nr de-126
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL/XXXL

Efni:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio
550-600-650-750-800 gr litur nr 09, turkos/fjólublár

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 27 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

LEIÐBEININGAR 1:
Til þess að sleppa við að festa alla enda getur hver ferningur í 1. röð verið prjónaður með einni dokku. Í stað þess að klippa frá getur dokkan fylgt út alla röndina með dominoferningunum.

LEIÐBEININGAR 2:
Lykkjur eru alltaf prjónaðar upp frá réttu.

ÚRTAKA (á við um alla domino ferninga):
Þegar fækka á lykkjum jafnt yfir í öllum dominoferningnum er fækkað um sama fjölda lykkja hvoru megin við prjónamerki.

HÁLFUR DOMINOFERNINGUR (lóðréttur):
6 kantlykkjur að framan eru prjónaðar í garðaprjón þar til hálfi ferningurinn hefur verið prjónaður til loka.
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið slétt.
UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið sl þar til 8 l eru eftir (meðtalinn kantur að framan), 2 l slétt saman, 6 kantlykkjur að framan. Prjónið nú gagnstætt á ferningnum í hinni hlið á stykki.
Endurtakið umf 1 og 2, þ.e.a.s. fækkað er um 1 l á ferningi (við kant að framan) í annarri hverri umf þar til 1 l er eftir (+ 6 kantlykkjur að framan). Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þessa l. Setjið 6 kantlykkjur að framan á þráð.

HEILL DOMINOFERNINGUR:
Setjið 1 prjónamerki í miðjulykkju.
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið slétt.
UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið sl þar til 1 l er eftir á undan prjónamerki, takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, prjónið sl út umf.
Endurtakið umf 1 og 2, þ.e.a.s. fækkað er um 2 l í miðju á ferningi í annarri hverri umf þar til 1 l er eftir á prjóni, klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þessa l.

HÁLFUR / HEILL DOMINOFERNINGUR (láréttur):
Prjónið eins og hálfur / heill Dominoferningur nema án úrtöku í miðju / hlið á ferningi, setjið síðustu l í lok hverrar umf á þráð. Haldið áfram þar til 4-3-4-4-4 l eru eftir á prjóni.

STÆRÐ S-L-XL-XXL/XXXL:
Í næstu umf (= rétta) er prjónað þannig: Takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, síðasta l á prjóni er sett á þráð í hlið (6-7-8-9 l á þræði í hvorri hlið á heilum og 6-7-8-9 l á þræði á hálfum). Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru.
STÆRÐ M: 3 l eftir á prjóni (6 l á þræði í hvorri hlið).
Prjónið 1 umf slétt frá röngu yfir 3 l.
Næsta umf (= rétta) prjónið þannig: Takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir (= 6 l á þræði í hvorri hlið á heilum og 6 l á þræði á hálfum). Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru.

HÁLFUR DOMINOFERNINGUR ÁN KANTLYKKJU AÐ FRAMAN (lóðrétt):
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið slétt.
UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið sl þar til 2 l eru eftir, 2 l slétt saman. Prjónið gangstætt á ferningi í hinni hlið á stykki. Endurtakið umf 1 og 2, þ.e.a.s. fækkað er um 1 l á ferningi í annarri hveri umf þar til 1 l er eftir. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum lykkjuna.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Byrjið á að fitja upp l fyrir alla víddina á stykkinu, síðan eru ferningarnir prjónaðir einn og einn fram og til baka í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan.

PEYSA:
Fitjið upp 531-559-587-615-671 l (meðtaldar 6 kantlykkjur að framan í hvorri hlið) á hringprjóna nr 4 með Delight. Prjónið 1 umf br frá röngu. LESIÐ LEIÐBEININGAR 1! Í næstu umf (frá réttu) er prjónað þannig: Prjónið 6 l garðaprjon (kantlykkjur að framan), * 34-36-38-40-44 l sl, takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, * endurtakið frá *-* alls 13 sinnum og endið á 34-36-38-40-44 l sl, 2 l slétt saman, 6 l garðaprjón (kantur að framan)= 503-531-559-587-643 l. Kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni til loka.

1. RÖÐ MEÐ DOMINOFERNINGUM: Prjónið HÁLFUR DOMINOFERNINGUR (lóðréttur) – sjá útskýringu að ofan – yfir fyrstu 24-25-26-27-29 l (meðtaldar 6 kantlykkjur að framan). Hinar l eru eftir á prjóni. Prjónið nú HEILL DOMINOFERNINGUR – sjá útskýringu að ofan – yfir næstu 35-37-39-41-45 l á prjóni. Þegar Dominoferningurinn hefur verið prjónaður til loka er prjónað yfir næstu 35-37-39-41-45 l á prjóni alveg eins. Haldið svona áfram þar til 24-25-26-27-29 l eru eftir á prjóni (nú hafa verið prjónaðir 13½ Dominoferningar). Prjónið nú hálfan Dominoferning (lóðréttur) og kant að framan yfir þessar l. Þegar hálfi ferningurinn hefur verið prjónaður og 6 kantlykkjur að framan hafa verið settar á band eru 13 heilir og 2 hálfir Dominoferningar í röð 1. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

2. RÖÐ MEÐ DOMINOFERNINGUM: Prjónið upp 17-18-19-20-22 l meðfram kanti á næsta ferningi – LESIÐ LEIÐBEININGAR 2! Prjónið síðan upp 1 l á milli fernings og næsta fernings frá röð 1. Prjónið upp 17-18-19-20-22 l meðfram næsta ferningi = 35-37-39-41-45 l á prjóni. Prjónið heilan Dominoferning eins og áður. Þegar Dominoferningurinn hefur verið prjónaður til loka eru prjónaðar upp 35-37-39-41-45 l á milli 2 og 2 ferninga frá röð 1 þar til prjónaðir hafa verið 14 Dominoferningar í röð 2.

3. RÖÐ MEÐ DOMINOFERNINGUM: Prjónið þannig: * Prjónið upp 18-19-20-21-23 l meðfram kanti á síðasta ferningi sem prjónaður var í röð 2 – Munið eftir LEIÐBEININGAR-2 – og prjónið til baka 6 kantlykkjur að framan = 24-25-26-27-29 l. Í næstu umf er prjónað sl frá röngu. JAFNFRAMT er fækkað um 3 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) = 21-22-23-24-26 l. Prjónið nú hálfan Dominoferningi (lóðréttur), byrjið á 2. umf og 6 kantlykkjum að framan. Þegar hálfi ferningurinn hefur verið prjónaður til loka og 6 kantlykkjur að framan hafa verið settar á þráð er prjónað þannig: * Prjónið upp 17-18-19-20-22 l frá réttu meðfram kanti á hvorum af næstu 2 ferningum frá 2. röð og 1 l á milli ferninga = 35-37-39-41-45 l á prjóni. Prjónið 1 umf slétt frá röngu JAFNFRAMT er fækkað um 6 l jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA = 29-31-33-35-39 l. Prjónið nú heilan Dominoferning, byrjið á 2. umf *, endurtakið frá *-* þar til prjónaðir hafa verið 13½ Dominoferningar í röð 3. Prjónið nú upp 18-19-20-21-23 l frá réttu meðfram kanti á síðasta ferningi. Prjónið 1 umf slétt frá röngu JAFNFRAMT er fækkað um 3 l jafnt yfir = 15-6-17-18-20 l og prjónið til baka 6 kantlykkjur að framan = 21-22-23-24-26 l. Prjónið kant að framan og hálfan Dominoferning (lóðréttur) byrjið á 2. umf. Þegar hálfi ferningurinn hefur verið prjónaður og 6 kantlykkjur að framan hafa verið settar á þráð eru 13 heilir og 2 hálfir Dominoferningar í röð 3.

4. RÖÐ MEÐ DOMINOFERNINGUM: Prjónið upp 14-15-16-17-19 l meðfram kanti á hálfum ferningi. Prjónið nú upp 1 l á milli hálfa fernings og næsta fernings frá röð 3. Prjónið upp 14-15-16-17-19 l meðfram hlið á næsta ferningi = 29-31-33-35-39 l á prjóni. Prjónið heilan Dominoferning eins og áður. Þegar Dominoferningurinn hefur verið prjónaður til loka eru prjónaðar upp 29-31-33-35-39 l á milli 2 og 2 ferninga frá röð 3. Haldið svona áfram þar til prjónaðir hafa verið 14 Dominoferningar í röð 4.

5. RÖÐ MEÐ DOMINOFERNINGUM: Prjónið upp 15-16-17-18-20 l – Munið eftir LEIÐBEININGAR 2! Meðfram kanti á síðasta ferningi sem prjónaður var í 4. röð og prjónið til baka 6 kantlykkjur að framan = 21-22-23-24-26 l. Prjónið hálfan Dominoferningi (lóðréttur) og kant að framan. Þegar hálfi ferningurinn hefur verið prjónaður til loka og 6 kantlykkjur að framan hafa verið settar á þráð er prjónað þannig: * Prjónið upp 14-15-16-17-19 l meðfram köntum á hvorum af næstu 2 ferningum frá 4. röð og 1 l á milli ferninga = 29-31-33-35-39 l á prjóni. Prjónið heilan Dominoferning eins og áður *, endurtakið frá *-* þar til prjónaðir hafa verið alls 13½ Dominoferningar í 5. röð. Prjónið nú upp 15-16-17-18-20 l meðfram kant á síðasta ferning. Prjónið 1 umf slétt frá röngu og prjónið til baka 6 kantlykkjur að framan = 21-22-23-24-26 l. Prjónið kant að framan og hálfan Dominoferning (lóðrétt) byrjið á 2. umf. Þegar hálfi ferningurinn hefur verið prjónaður og 6 kantlykkjur að framan hafa verið settar á þráð eru 13 heilir og 2 hálfir Dominoferningar í röð 5.

6. RÖÐ MEÐ DOMINOFERNINGUM: Prjónið eins og röð 4.

7. RÖÐ MEÐ DOMINOFERNINGUM: Prjónið upp 15-16-17-18-20 l meðfram kanti á síðasta ferningi sem prjónaður var í 6. röð og prjónið til baka 6 kantlykkjur að framan = 21-22-23-24-26 l. Í næstu umf er prjónað sl frá röngu JAFNFRAMT er fækkað um 2-2-2-1-1 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) = 19-20-21-23-25 l. Prjónið nú hálfan Dominoferning (lóðréttur), byrjið á 2. umf og kant að framan. Þegar hálfi ferningurinn hefur verið prjónaður og 6 kantlykkjur að framan hafa verið settar á þráð er prjónað þannig: * Prjónið upp 14-15-16-17-19 l meðfram kanti á hvorum af næstu 2 ferningum frá 6. röð og 1 l á milli ferninga = 29-31-33-35-39 l. Prjónið 1 umf slétt frá röngu JAFNFRAMT er fækkað um 4-4-4-2-2 l jafnt yfir = 25-27-29-33-37 l. Prjónið nú heilan Dominoferning, byrjið á 2. umf *, endurtakið frá *-* þar til prjónaðir hafa verið alls 13½ Dominoferningar í 7. röð. Prjónið nú upp 15-16-17-18-20 l meðfram kanti á síðasta ferning. Prjónið 1 umf slétt frá röngu JAFNFRAMT er fækkað um 2-2-2-1-1 l jafnt yfir = 13-14-15-17-19 l og prjónið til baka 6 kantlykkjur að framan = 19-20-21-23-25 l. Prjónið kant að framan og hálfan Dominoferning (lóðréttur), byrjið á 2. umf. Þegar hálfi ferningurinn hefur verið prjónaður og 6 kantlykkjur að framan hafa verið settar á þráð eru 13 heilir og 2 hálfir Dominoferningar í röð 7.

8. RÖÐ MEÐ DOMINOFERNINGUM: Prjónið upp 12-13-14-16-18 l meðfram kanti á hálfa ferningnum. Prjónið nú upp 1 l á milli hálfa ferningsins og næsta ferning frá röð 7. Prjónið upp 12-13-14-16-18 l meðfram hlið á næsta ferning = 25-27-29-33-37 l á prjóni. Prjónið heilan Domino ferning eins og áður. Þegar Dominoferningurinn hefur verið prjónaður til loka eru prjónaðar upp 25-27-29-33-37 l á milli 2 og 2 ferninga frá röð 7. Haldið svona áfram þar til prjónaðir hafa verið 14 heilir Dominoferningar í röð 8.

Stykkið er nú prjónað áfram mismunandi eftir stærðum:

Stærð L-XL-XXL/XXXL:
9. RÖÐ MEÐ DOMINOFERNINGUM: Prjónið upp 13-14-15-17-19 l meðfram kanti á fyrsta ferningi sem prjónaður var í 8. röð og prjónið til baka 6 kantlykkjur að framan = 19-20-21-23-25 l. Prjónið hálfan Dominoferning (lóðréttur) og kant að framan. Þegar hálfi ferningurinn hefur verið prjónaður og 6 kantlykkjur hafa verið settar á þráð er prjónað þannig: * Prjónið upp 12-13-14-16-18 l meðfram kant á hvorum af næstu 2 ferningum frá 8. röð og 1 l á milli ferninga = 25-27-29-33-37 l á prjóni. Prjónið heilan Dominoferning eins og áður *, endurtakið frá *-* þar til prjónaðir hafa verið 13½ Dominoferningar í 9. röð. Prjónið nú upp 13-14-15-17-19 l meðfram kanti á síðasta ferningi og prjónið til baka 6 kantlykkjur að framan = 19-20-21-23-25 l. Prjónið hálfan Dominoferning (lóðrétt) og kant að framan. Þegar hálfi ferningurinn hefur verið prjónaður og 6 kantlykkjur að framan hafa verið settar á þráð eru 13 heilir og 2 hálfir Dominoferningar í röð 9.

10. RÖÐ MEÐ DOMINOFERNINGUM: Prjónið eins og röð 8.

ALLAR STÆRÐIR:
Nú skiptist stykkið, framstykki og bakstykki er prjónað til loka fyrir sig.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
1. RÖÐ MEÐ DOMINOFERNINGUM Á FRAMSTYKKI: Prjónið upp 13-14-15-17-19 l meðfram kanti á fyrsta ferning sem prjónaður var í fyrri umf og prjónið til baka 6 kantlykkjur að framan = 19-20-21-23-25 l. Prjónið hálfan Dominoferningi (lóðrétt) og kant að framan. Þegar hálfi ferningurinn hefur verið prjónaður og 6 kantlykkjur að framan hafa verið settar á þráð er prjónað þannig: * Prjónið upp 12-13-14-16-18 l meðfram köntum á hvorum af næstu 2 ferningum frá fyrri umf og 1 l á milli ferninga = 25-27-29-33-37 l á prjóni. Prjónið heilan Dominoferning eins og áður *, endurtakið frá *-* þar til prjónaðir hafa verið 4½ Dominoferningar.

2. RÖÐ MEÐ DOMINOFERNINGUM Á FRAMSTYKKI: Prjónið upp 12-13-14-16-18 l meðfram kanti á hálfa ferningnum og næsta ferningi frá 1. röð. Prjónið upp 12-13-14-16-18 l meðfram hlið á næsta ferning = 25-27-29-33-37 l á prjóni. Prjónið heilan Dominoferning eins og áður. Þegar Dominoferningurinn hefur verið prjónaður til loka eru prjónaðar upp 25-27-29-33-37 l á milli 2 næstu ferninga frá 1. Röð þar til prjónaðir hafa verið 4 heilir Dominoferningar. Prjónið nú upp 13-14-15-17-19 l meðfram kant á síðasta ferning sem prjónaður var í röð 1. Prjónið HÁLFUR DOMONOFERNINGUR ÁN KANTLYKKJU AÐ FRAMAN (lóðréttur) – sjá útskýringu að ofan. Þegar hálfi ferningurinn hefur verið prjónaður eru 4½ Dominoferningar.

Endurtakið þessar 2 raðir með Dominoferningum 1 sinni til viðbótar. Endurtakið síðan 1. röð 1 sinni til viðbótar.

Prjónið nú þannig:
SÍÐASTA RÖÐIN MEÐ DOMINOFERNINGUM: Prjónið upp 12-13-14-16-18 l meðfram kanti á hálfum ferningi. Prjónið nú upp 1 l á milli hálfa ferningnum og næsta ferningi frá fyrri röð. Prjónið upp 12-13-14-16-18 l meðfram hlið á næsta ferning = 25-27-29-33-37 l á prjóni. Prjónið nú HÁLFUR DOMINOFERNINGUR (láréttur) – sjá útskýringu að ofan. Þegar hálfi Dominoferningurinn hefur verið prjónaður eru prjónaðar upp 25-27-29-33-37 l á milli 2 og 2 ferninga frá fyrri röð. Haldið svona áfram þar til prjónaðir hafa verið 4 hálfir Dominoferningar (láréttir). Prjónið nú upp 13-14-15-17-19 l meðfram kanti á síðasta ferningi sem prjónaður var frá fyrri röð, prjónið hálfan Dominoferning (láréttur) yfir þessar l.

Byrjið frá röngu innan við 6 háu kantlykkjunum að framan, prjónið 1 umf slétt frá röngu yfir 6 kantlykkjur að framan. Prjónið nú frá réttu þannig: Prjónið 6 kantlykkjur að framan, prjónið upp 1 l á milli kant að framan og l af þræði, * prjónið til baka l af þræði (= 6-6-7-8-9 l) l á prjóni, prjónið upp 3 l á milli þráða, prjónið til baka l af þræði (= 6-6-7-8-9 l) á prjóni, prjónið upp 1 l á milli ferninga *, endurtakið frá *-* þar til 6-6-7-8-9 l eru eftir á þræði, prjónið til baka l af þræði = 77-77-86-95-104 l. Prjónið 4 umf garðaprjón yfir allar l. Setjið nú 54-54-60-64-69 l við miðju að framan á þráð = 23-23-26-31-35 l fyrir öxl. Prjónið garðaprjón yfir þær l sem eftir eru í 2½ cm. Fellið af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema gagnstætt.

BAKSTYKKI:
1. RÖÐ MEÐ DOMINOFERNINGUM Á BAKSTYKKI: Prjónið upp 12-13-14-16-18 l meðfram kanti á hvorum af næstu 2 ferningum frá fyrri umf og 1 l á milli ferninga = 25-27-29-33-37 l á prjóni. Prjónið einn heilan Dominoferning eins og áður. Þegar Dominoferningurinn hefur verið prjónaður til loka eru prjónaðar upp 25-27-29-33-37 l á milli 2 og 2 ferninga. Haldið áfram þar til prjónaðar hafa verið 5 Dominoferningar.

2. RÖÐ MEÐ DOMINOFERNINGUM Á BAKSTYKKI: Prjónið upp 13-14-15-17-19 l meðfram kanti á fyrsta ferningi sem prjónaður var í röð 1. Prjónið hálfan Dominoferning án kantlykkja að framan (lóðréttur). Þegar háfi ferningurinn hefur verið prjónaður er prjónað þannig: * Prjónið upp 12-13-14-16-18 l meðfram kanti í hvorum af næstu 2 ferningum frá röð 1 og 1 l á milli ferninga = 25-27-29-33-37 l á prjóni. Prjónið heilan Dominoferning eins og áður *, endurtakið frá *-* þar til prjónaðir hafa verið 4½ Dominoferningar. Prjónið upp 13-14-15-17-19 l meðfram kanti á síðasta ferningi. Prjónið hálfan Dominoferning án kantlykkja að framan (lóðréttur). Þegar hálfi ferningurinn hefur verið prjónaður til loka eru 4 heilir og 2 hálfir Dominoferningar.

Endurtakið þessar 2 raðir með Dominoferningum 1 sinni til viðbótar.
Endurtakið síðan 1. röð 1 sinni til viðbótar.

Prjónið nú þannig:
SÍÐASTA RÖÐIN MEÐ DOMINOFERNINGUM: Prjónið upp 13-14-15-17-19 l meðfram kanti á fyrsta ferningi sem prjónaður var á bakstykki frá fyrri röð. Prjónið hálfan Dominoferning (láréttur). Þegar hálfi ferningurinn hefur verið prjónaður til loka er prjónað þannig: * Prjónið upp 12-13-14-16-18 l meðfram kanti á hvorum af næstu 2 ferningum frá fyrri röð og 1 l á milli ferninga = 25-27-29-33-37 l á prjóni. Prjónið heilan Dominoferning (láréttur)*, endurtakið frá *-* þar til prjónaðir hafa verið 4½ Dominoferningar. Prjónið nú upp 13-14-15-17-19 l meðfram kanti á síðasta ferningi. Prjónið hálfan Dominoferning (láréttur). Þegar hálfi ferningurinn hefur verið prjónaður til loka eru 4 heilir og 2 hálfir Dominoferningar (láréttir).

Prjónið nú frá réttu þannig: Prjónið 6 fyrstu l af þræði, prjónið upp 1 l á milli ferninga * prjónið til baka l af þræði (= 6-6-7-8-9 l) á prjóni, prjónið upp 3 l á milli þráða, prjónið l af þræði (= 6-6-7-8-9 l) eftir á prjóni, prjónið upp 1 l á milli ferninga *, endurtakið frá *-* þar til 6-6-7-8-9 l eru eftir á þræði, prjónið til baka l af þræði á prjóninn = 77-77-87-97-107 l. Prjónið 4 umf garðaprjón yfir allar l. Fellið nú af miðju 31-31-35-39-43 l = 23-23-26-29-32 l eftir á hvorri öxl. Prjónið garðaprjón yfir öxl í 2,5 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma.

HÁLSMÁL:
Prjónið upp 231-231-259-287-315 l (meðtaldar l af þræði) á hringprjóna nr 4 með Delight. Prjónið garðaprjón fyrir kant á hálsmáli mælist 12 cm. Fellið LAUST af.

ERMI:
Ermin er prjónuð fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 50-52-54-56-58 (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 4 með Delight. Prjónið 6 umf slétt yfir allar l. Prjónið nú sléttprjón til loka. Þegar stykkið mælist 8-5-5-5-5 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið á stykki. Endurtakið útaukningu með 4-3½-3-2½-2 cm millibili 9-11-13-15-17 sinnum til viðbótar = 70-76-82-88-94 l. Þegar stykkið mælist 49-48-48-46-45 cm (ATH! Styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið ermar í með rönguna út. Saumið ermasauma og sauma undir ermum frá þeim stað þar sem framstykki og bakstykki voru skipt upp að ermi.

Mynstur

symbols = prjónstefna
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 158-31

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (39)

country flag Jackeline wrote:

DROPS DELIGHT från Garnstudio 550-600-650-750-800 g nr 09, turkos/lila Hej! Jag söker detta garn jag är tacksam av hjälpen Mvh. Jackeline

25.04.2024 - 09:04

DROPS Design answered:

Hej Jackeline, DROPS Delight er desværre udgået. Vi har et meleret garn som hedder DROPS Fabel og det kan strikkes på samme strikkefasthed, prøv at se om du kan finde en farve som passer dig :)

26.04.2024 - 11:35

country flag Gitte Regine wrote:

Hej. Jeg har strikket denne trøje men mangler 2 nøgler for at kunne gøre den færdig. Kan I hjælpe med, hvem har garnet, så jeg kan bestille og gøre trøjen færdig. MVH Gitte Regine

30.12.2023 - 19:38

DROPS Design answered:

Hej Gitte, Inde på farvekortet kan du klikke på bestil, så får du en liste over de butikker som stadigvæk kan have DROPS Delight på lager: DROPS Delight

02.01.2024 - 14:57

country flag Jannie Ravn wrote:

Jeg har nu lavet 1 række ruder; 13 hele og 2 halve. Min strikkefasthed passer, og jeg strikker str L. Målet 65 cm passer med de på tegningen viste 5 ruder i bredden. På forstykkerne er på tegningen vist 3 hele ruder og en halv: 3 1/2, 5 og 3 1/2 er kun 11 1/2 rude i alt. Er der fejl i opskriften eller på tegningen? Mvh Jannie Ravn

21.02.2023 - 12:12

DROPS Design answered:

Hei Jannie. Målskissen er kun en skisse og viser ikke detaljer. Følg oppskriften og jakken vil bli riktig. mvh DROPS Design

06.03.2023 - 09:29

country flag Vibeke Humlum wrote:

Er det meningen at vrangen skal vende udad på ærmerne i jakken?

03.02.2023 - 13:59

DROPS Design answered:

Hej Vibeke, ja det har vi gjort, men det bestemmer du selvfølgelig selv :)

03.02.2023 - 14:38

country flag Vibeke Humlum wrote:

Skal ærmerne have vrangen udvendigt på cardiganen?

31.01.2023 - 18:05

country flag Ann wrote:

Wie berechnet sich der Brustumfang in dieser Anleitung? Da ich wegen Wollunverträglichkeit Baumwolle verwende und viel Brustumfang habe (110, F) bräuchte ich eine genauere Angabe, um bei der Jacke die entsprechende Weite zu berücksichtigen. Danke im Voraus

09.05.2021 - 17:19

DROPS Design answered:

Liebe Ann, unser Garnumrechner wird Ihnen damit helfen, eine alternative Baumwolle vorschlagen, so bekommen Sie die richtige Maschenprobe und genaue Maßen wie in der Maßskizze. Hier lesen Sie mehr über Größen und Maßskizze. Viel Spaß beim stricken!

10.05.2021 - 11:17

country flag Sian wrote:

I love this pattern- just about to start knitting my third. Looks great in fabel too. Always get lots of compliments when I wear it.

11.05.2019 - 14:44

country flag Deborah wrote:

Hello The neck edge pick up. I have no idea where im picking up from. The reply to Mary has left me not clearer. Does it include part of the band? if not where exactly am i meant to get so many stiches from?

01.06.2018 - 16:30

DROPS Design answered:

Dear Deborah, you will knit all sts from st holders/threrad back on needle and pick up evenly sts between these sts so that you get a total of 231-231-259-287-315 sts on needle, and then work in garter st for 12 cm. Should you have more/less sts on 1st row, you can always decrease/increase evenly sts on next row to get the correct number of sts/length. Happy knitting!

01.06.2018 - 16:58

country flag Brenda wrote:

Ik heb nu 2 rijen vierkantjes gemaakt en zie dat de breedte nu 2 meter is. Dit lijkt mij erg veel maar ik zie geen breedte maat in het patroon aangegeven. Ik heb in 2 rijen dus 14+13 en 2 halve veirkanten gemaakt. Dus 14 breed zoals in het patroon. Zal het vest veel overlappen want dit lijkt echt megagroot worden. Ik heb maat L gemaakt. Enig idee wat ik het beste kan doen? Een maatje kleiner maken bijvoorbeeld? Groet brenda

17.03.2017 - 22:18

DROPS Design answered:

Hoi Brenda. Ten eerste zou ik controleren of je stekenverhouding wel klopt (21 st x 27 st in tricotsteek = 10 x 10 cm). Het lijkt dat het veel te los is gebreid. Het is een wijdvallend vest, dus hij valt ruim, maar 2 meter is wel heel veel (plat gemeten wordt hij 65 cm - overlap gok ik zo op 20-25 cm = 170-180 cm omtrek (dat is een gok!). Ga je hem in een kleiner maat breien en klopt je stekenverhouding niet, dan kan het ook in de hoogte invloed hebben. Ik zou daarom eerst kijken naar de stekenverhouding

20.03.2017 - 13:11

country flag Willy Timmermans wrote:

Ik ben bezig met het vest...hoe krijg ik het halve vierkantje horizontaal gebreid. Ik snap het niet met de hulpvaardig. Zou dit even stap voor stap uitgelegd kunnen worden dan kan ik weer verder... Heb de rest al aardig uitgepuzzeld en het gaat goed. Nu nog de halve vierkanten... Alvast bedankt voor jet helpen

13.12.2015 - 08:04

DROPS Design answered:

Hoi Willy. Wij hebben deze video van de horizontale halve vierkantje:

14.12.2015 - 15:32