DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Super Sale
DROPS 158-11
DROPS Design: Mynstur nr de-130
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL/XXXL

Efni:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio
450-500-550-650-700 gr litur nr 09, turkos/fjólublár

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 27 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

LEIÐBEININGAR 1:
Til þess að sleppa við að festa alla enda getur hver ferningur í 1. Röð verið prjónaður með einni dokku. Í stað þess að klippa frá getur dokkan fylgt út alla röndina með domino ferningunum.

LEIÐBEININGAR 2:
Lykkjur eru alltaf prjónaðar upp frá réttu.

ÚRTAKA (á við um alla domino ferninga):
Þegar fækka á lykkjum jafnt yfir í öllum dominoferningnum er sami fjöldi lykkja fækkað hvoru megin við prjónamerki.

HÁLFUR DOMINO FERNINGUR (lóðréttur):
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið slétt.
UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið sl þar til 2 l eru eftir, 2 l slétt saman. Prjónið gagnstætt í ferningi í annarri hlið á stykki.
Endurtakið umf 1 og 2, þ.e.a.s. að fækkað er um 1 l í ferningi í annarri hverri umf þegar 1 l er eftir. Klippið frá og dragið þráðinn í gegnum þessa l.

HEILL DOMINOFERNINGUR:
Setjið 1 prjónamerki í miðjulykkju.
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið slétt.
UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið sl þar til 1 l er eftir á undan prjónamerki, takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, prjónið sl út umf.
Endurtakið umf 1 og 2, þ.e.a.s. að fækkað er um 2 l í miðju á ferningi í annarri hverri umf þar til 1 l er eftir á prjóni, klippið frá og dragið þráðinn í gegnum þessa l.

HÁLFUR / HEILL DOMINOFERNINGUR (láréttur):
Prjónið eins og hálfur/heill Dominoferningur nema án úrtöku í miðju / hlið á ferningi, setjið síðustu l í lok hverrar umf á þráð. Haldið áfram þar til 4-3-4-4-4 l eru eftir á prjóni.

STÆRÐ S-L-XL-XXL/XXXL:
Í næstu umf (= rétta) er prjónað þannig: Takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, síðasta l á prjóni er sett á þráð í hlið (6-7-8-9 l á þræði í hvorri hlið á heilum ferningi og 6-7-8-9 l á þræði í hálfum ferningi). Klippið frá og dragið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru.
STÆRÐ M: 3 l eftir á prjóni (6 l á þræði í hvorri hlið).
Prjónið 1 umf slétt frá röngu yfir 3 l.
Næsta umf (= rétta) prjónið þannig: Takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir (= 6 l á þræði í hvorri hlið á heilum ferningi og 6 l á þræði í hálfum ferningi). Klippið frá og dragið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Byrjað er á að fitja upp lykkjur fyrir alla víddina á stykkinu, síðan eru ferningarnir prjónaðir einn og einn fram og til baka í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan.

PEYSA:
Fitjið upp 370-390-410-430-470 l á hringprjóna nr 4 með Delight. Prjónið 1 umf br. LESIÐ LEIÐBEININGAR 1! Í næstu umf er prjónað þannig: Prjónið 17-18-19-20-22 l sl, takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, * 34-36-38-40-44 l sl, takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir *, endurtakið frá *-* alls 9 sinnum og endið á 17-18-19-20-22 l sl = 350-370-390-410-450 l.

1. RÖÐ MEÐ DOMINOFERNINGUM: Prjónið HEILL DOMINOFERNINGUR – sjá útskýringu að ofan – yfir fyrstu 35-37-39-41-45 l á prjóni. Þegar Dominoferningurinn hefur verið prjónaður er prjónað yfir næstu 35-37-39-41-45 l á prjóni alveg eins. Haldið svona áfram þar til prjónaðir hafa verið 10 Dominoferningar í röð 1. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

2. RÖÐ MEÐ DOMINOFERNINGUM: Prjónið upp 17-18-19-20-22 l meðfram kanti á næsta ferningi – LESIÐ LEIÐBEININGAR 2! Prjónið síðan upp 1 l á milli fernings og næsta fernings frá röð 1. Prjónið upp 17-18-19-20-22 l meðfram næsta ferningi = 35-37-39-41-45 l á prjóni. Prjónið heilan Dominoferning eins og áður. Þegar Dominoferningurinn hefur verið prjónaður til loka eru prjónaðar upp 35-37-39-41-45 l á milli 2 og 2 ferninga frá röð 1 þar til prjónaðir hafa verið 10 Dominoferningar í röð 2.

3. RÖÐ MEÐ DOMINOFERNINGUM: Prjónið þannig: * Prjónið upp 17-18-19-20-22 l frá réttu meðfram kanti í hvorn af næstu 2 ferningum frá röð 2 og 1 l á milli ferninga = 35-37-39-41-45 l á prjóni. Prjónið 1 umf slétt frá röngu JAFNFRAMT er fækkað um 6 l jafnt yfir – LESIÐ LEIÐBEININGAR = 29-31-33-35-39 l. Prjónið nú heilan Dominoferning, byrjið á 2. umf *, endurtakið frá *-* þar til prjónaðir hafa verið 10 Dominoferningar í röð 3.

4. RÖÐ MEÐ DOMINOFERNINGUM: Prjónið upp 14-15-16-17-19 l meðfram kanti á næsta ferningi. Prjónið nú upp 1 l á milli fernings og næsta fernings frá röð 3. Prjónið upp 14-15-16-17-19 l meðfram hlið á næsta ferningi = 29-31-33-35-39 l á prjóni. Prjónið heilan Dominoferning eins og áður. Þegar Dominoferningurinn hefur verið prjónaður til loka eru prjónaðar upp 29-31-33-35-39 l á milli 2 og 2 ferninga frá röð 3. Haldið svona áfram þar til prjónaðir hafa verið 10 Dominoferningar í röð 4.

5. og 6. RÖÐ MEÐ DOMINOFERNINGUM: Prjónið eins og röð 4.

7. RÖÐ MEÐ DOMINOFERNINGUM: * Prjónið upp 14-15-16-17-19 l meðfram kanti á hvorum af næstu ferningum frá 6. röð og 1 l á milli ferninga = 29-31-33-35-39 l. Prjónið 1 umf slétt frá röngu JAFNFRAMT er fækkað um 4-4-4-2-2 l jafnt yfir = 25-27-29-33-37 l. Prjónið nú heilan Domionferning, byrjið á 2. umf *, endurtakið frá *-* þar til prjónaðir hafa verið alls 10 Dominoferningar í röð 7.

8. RÖÐ MEÐ DOMINOFERNINGUM: Prjónið upp 12-13-14-16-18 l meðfram kanti á næsta ferningi. Prjónið nú upp 1 l á milli ferninga og næsta fernings frá röð 7. Prjónið upp 12-13-14-16-18 l meðfram hlið á næsta ferning = 25-27-29-33-37 l á prjóni. Prjónið heilan Dominoferning eins og áður. Þegar Dominoferningurinn hefur verið prjónaður til loka eru prjónaðar upp 25-27-29-33-37 l á milli 2 og 2 ferninga frá röð 7. Haldið svona áfram þar til prjónaðir hafa verið 10 Dominoferningar í röð 8.

Stykkið er nú prjónað áfram mismunandi eftir stærðum:

Stærð L-XL-XXL/XXXL:
9. og 10. RÖÐ MEÐ DOMINOFERNINGUM: Prjónið eins og röð 8.

ALLAR STÆRÐIR:
Nú er stykkinu skipt upp, framstykki og bakstykki eru nú prjónuð til loka hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
1. RÖÐ MEÐ DOMINOFERNINGUM Á BAKSTYKKI: Prjónið upp 12-13-14-16-18 l meðfram kanti á hvorum af næstu 2 ferningum frá fyrri röð og 1 l á milli ferninga = 25-27-29-33-37 l á prjóni. Prjónið heilan Dominoferning eins og áður. Þegar Dominoferningurinn hefur verið prjónaður til loka eru prjónaðar upp 25-27-29-33-37 l á milli 2 og 2 ferninga. Haldið svona áfram þar til prjónaðir hafa verið 5 Dominoferningar.

2. RÖÐ MEÐ DOMINOFERNINGUM Á BAKSTYKKI: Prjónið upp 13-14-15-17-19 l meðfram kanti á fyrsta ferningi sem prjónaður var í röð 1. Prjónið HÁLFUR DOMINOFERNINGUR (lóðréttur) – sjá útskýringu að ofan. Þegar hálfi ferningurinn hefur verið prjónaður er prjónað þannig: * Prjónið upp 12-13-14-16-18 l meðfram kanti í hvern og einn af 2 næstu ferningum frá röð 1 og 1 l á milli ferninga = 25-27-29-33-37 l á prjóni. Prjónið heilan Dominoferning eins og áður *, endurtakið frá *-* þar til prjónaðir hafa verið 4 heilir Dominoferningar og 1 hálfur Dominoferningur. Prjónið upp 13-14-15-17-19 l meðfram kanti á síðasta ferningi. Prjónið hálfan Dominoferning (lóðréttur). Þegar hálfi ferningurinn hefur verið prjónaður til loka eru 4 heilir og 2 hálfir Dominoferningar.

Endurtakið þessar 2 raðir með Dominoferningum 1 sinni til viðbótar.
Endurtakið síðan 1. röð 1 sinni til viðbótar.

Prjónið nú þannig:

SÍÐASTA RÖÐIN MEÐ DOMINOFERNINGUM: Prjónið upp 13-14-15-17-19 l meðfram kanti á fyrsta ferningi sem prjónaður var á bakstykki frá fyrri röð. Prjónið hálfan Dominoferning (láréttur) – LESIÐ HÁLFUR/HEILL DOMINOFERNINGUR (láréttur). Þegar hálfi ferningurinn hefur verið prjónaður til loka er prjónað þannig: * Prjónið upp 12-13-14-16-18 l meðfram kanti á hvorum af næstu 2 ferningum frá fyrri röð og 1 l á milli ferninga = 25-27-29-33-37 l á prjóni. Prjónið heilan Dominoferning (láréttur)*, endurtakið frá *-* þar til prjónaðir hafa verið 4 heilir Dominoferningar og 1 hálfur Dominoferningur. Prjónið nú upp 13-14-15-17-19 l meðfram kanti á síðasta ferningi. Prjónið hálfan Dominoferning (láréttur). Þegar hálfi ferningurinn hefur verið prjónaður til loka eru 4 heilir og 2 hálfir Dominoferningar (láréttir).

Prjónið nú frá réttu þannig: Prjónið 6 fyrstu l af þræði, prjónið upp 1 l á milli ferninga * prjónið til baka l af þræði (= 6-6-7-8-9 l) á prjóni, prjónið upp 3 l á milli þráða, prjónið l af þræði (= 6-6-7-8-9 l) eftir á prjóni, prjónið upp 1 l á milli ferninga *, endurtakið frá *-* þar til 6-6-7-8-9 l eru eftir á þræði, prjónið til baka l af þræði á prjóninn = 77-77-87-97-107 l. Prjónið 4 umf garðaprjón yfir allar l. Fellið nú af miðju 31-31-35-39-43 l = 23-23-26-29-32 l eftir á hvorri öxl. Prjónið garðaprjón yfir öxl í 2,5 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og bakstykki.

ERMI:
Ermin er prjónuð fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 50-52-54-56-58 (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 4 með Delight. Prjónið 6 umf slétt yfir allar l. Prjónið nú sléttprjón til loka. Þegar stykkið mælist 8-5-5-5-5 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið á stykki. Endurtakið útaukningu með 4-3½-3-2½-2 cm millibili 9-11-13-15-17 sinnum til viðbótar = 70-76-82-88-94 l. Þegar stykkið mælist 49-48-48-46-45 cm (ATH! Styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í með rönguna út. Saumið ermasauma og sauma undir ermum frá þeim stað þar sem framstykki og bakstykki var skipt upp við ermi.

Mynstur

symbols = prjónstefna
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Harlequin Dreams

Sonja, Germany

Harlequin Dreams

Inga Sõelsepp, Estonia

Skrifaðu athugasemd um DROPS 158-11

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (96)

country flag Birgit Jørgensen wrote:

Hvad er ret siden? Jeg slå masker op strikker en omgang vrang og en omgang ret med indtagninger til dominoruder. Når jeg så skal starte dominorækken hvad skal jeg så starte med ? Hvis jeg starter med ret som 1. Pind i dominoruden får jeg 2 pinde glatstrikning og den side af arbejdet der vender ud mod mig på rundpinde bliver vrangsiden. Forstår ikke hvordan jeg skal fortsætte efter omgangen hvor jeg har taget ind.

13.05.2023 - 09:28

DROPS Design answered:

Hei Birgit. Husk du legger opp og så strikker du 1 omgang vrang, deretter strikker du dominorutene frem og tilbake med rettmasker. Du vil da ikke få 2 pinner glattstrikk. mvh DROPS Design

15.05.2023 - 14:10

country flag Gemma wrote:

Which cast on approach should I use for this? Cast on with loops? Old Norwegian way? Or basic cast on like the one shown in “ How to start knitting for a beginner”

13.12.2021 - 14:06

DROPS Design answered:

Dear Gemma, you can use your favorite technique to cast on stitches, we generally use the continental cast on. Happy knitting!

14.12.2021 - 07:29

country flag Ute Wybiralla wrote:

Wird der Pullover in Hin-und Rückreihen gestrickt? Wenn ich die erforderliche Maschenzahl für meine Größe anschlage(Gr.XL) und in HIn-und Rückreihen stricke ist das Teil viel zu groß. Selbst wenn ich um 2 Größen verkleiner. Woran liegt das?

30.10.2020 - 14:24

DROPS Design answered:

Liebe Frau Wybiralla, sollte Ihre Maschenprobe stimmen, dann stimmt die Maschenanzahl und so bekommen Sie die Massenangaben von der Skizze - am Anfang schlagen Sie alle Maschen von den unteren Rand, aber dann nehmen Sie Maschen (= 430 M zu 410 M abgenommen), und vergessen Sie nicht, diese Maschen sind die von jedem Quadrat (= die 1. Reihe von Quadrate werden je über 41 M gestrickt) also nicht gerade von einer Seite bis zur anderen sondern mit dem V von jedem Domino (deshalb brauch man mehr Maschne). Viel Spaß beim stricken!

30.10.2020 - 15:21

country flag Sonia wrote:

Grazie! Conosco la lavorazione domino, ma non mi avete risposto... Domani inizierò la lavorazione senza aver capito! Mi dite almeno se è lavorato in tondo?

04.08.2019 - 21:21

DROPS Design answered:

Buongiorno Sonia. Lavora in tondo, dal basso verso l’alto, fino agli scalfi. Qui il lavoro viene separato e procede avanti e indietro, separatamente, per il dietro e per il davanti. Buon lavoro!

04.08.2019 - 21:34

country flag Sonia wrote:

Ho già acquistato il filato e vorrei iniziare il progetto, ma, leggendo le spiegazioni, non riesco a capire se sia lavorato in tondo ( nella spiegazione dice avanti e indietro), dove eventualmente si troverebbe la separazione del lavoro (laterale? Dietro?) e soprattutto perché non compaiono i mezzi quadrati domino fino alla separazione del lavoro? Bisogna cucirlo a zig-zag? 🤔 Vi ringrazio se vorrete darmi delucidazioni.

04.08.2019 - 18:35

DROPS Design answered:

Buonasera Sonia, questo modello ha una costruzione particolare, non è lavorato con le solite geometrie, ma costruito riprendendo di volta in volta le maglie per i diversi quadrati. Leggendo il modello è difficile capire la costruzione, deve iniziare a lavorarlo per capire come si sviluppa. Buon lavoro!

04.08.2019 - 20:40

country flag émilie wrote:

Bonjour, Je tricote le modèle158-11 mais j'aimerai savoir les mesures au niveau de la poitrine car j'hésite entre la taille M et L. Le bas m' à l' air très large par rapport aux épaules. Merci

04.12.2017 - 08:12

DROPS Design answered:

Bonjour, au niveau de la poitrine vous avez plus ou moins 40-45-48-55-60 cm (dans la taille M est 45, et en L 48 cm). Bon travail!

04.12.2017 - 08:30

Janice wrote:

I've finally got to the top and I agree with an earlier comment that the transition row from diagonal squares to flat knitting is messy and it's made worse by the thinness of yarn and big needles. I too will be taking a darning needle to that transition and tidying it up a lot.

01.10.2017 - 15:40

Janice wrote:

2nd error - 1st ROW WITH DONINO SQUARES: line reads - over the first 35 sts on needle. However if you do this the first row is WS over RS. You need to turn the work before knitting over those first 35 sts to keep the WR & RS correct!!

01.08.2017 - 10:22

DROPS Design answered:

Dear Janice, the first round is worked from RS, then when working the 1st row with domino squares, you work the first 35 sts on round from RS, then turn to work the domino back and forth. Happy knitting!

01.08.2017 - 12:26

Jan wrote:

I have found a couple of errors you should amend. First paragraph of Jumper:- The line reads - Work next round as follows: K 17 etc., slip 1 stitch as if to K, K2 tog, psso, *K34 etc., (slip 1 stitch as if to K), K2 tog, psso* The bit in brackets is missing from that line!!

01.08.2017 - 10:21

DROPS Design answered:

Thanks Jan, this will be fixed.

01.08.2017 - 12:25

Janice wrote:

This is a very complicated pattern to read and make sense of. Right at the start it says "Cast on entire width and work "one and one" ( is that a poor translation?) square back and forth" and in the next line it says purl first ROUND - followed by "next ROUND knit. So is this knit back and forward or is in knit in the round?

29.07.2017 - 14:48

DROPS Design answered:

Dear Janice, you first cast on all sts around body, then work each square the one after the other - each square is worked back and forth (see DOMINO SQUARE): so cast on the total number of sts for bottom of body, then join in the round and P 1 round, K 1 round dec as explained, then work the dominos separately in rows = 10 dominos around the body. Then work next row with dominos and so on. Happy knitting!

31.07.2017 - 09:58