Mystify |
||||
|
|
|||
Prjónuð peysa úr DROPS Delight með dominoferningum. Stærð S - XXXL.
DROPS 158-31 |
||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. LEIÐBEININGAR 1: Til þess að sleppa við að festa alla enda getur hver ferningur í 1. röð verið prjónaður með einni dokku. Í stað þess að klippa frá getur dokkan fylgt út alla röndina með dominoferningunum. LEIÐBEININGAR 2: Lykkjur eru alltaf prjónaðar upp frá réttu. ÚRTAKA (á við um alla domino ferninga): Þegar fækka á lykkjum jafnt yfir í öllum dominoferningnum er fækkað um sama fjölda lykkja hvoru megin við prjónamerki. HÁLFUR DOMINOFERNINGUR (lóðréttur): 6 kantlykkjur að framan eru prjónaðar í garðaprjón þar til hálfi ferningurinn hefur verið prjónaður til loka. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið slétt. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið sl þar til 8 l eru eftir (meðtalinn kantur að framan), 2 l slétt saman, 6 kantlykkjur að framan. Prjónið nú gagnstætt á ferningnum í hinni hlið á stykki. Endurtakið umf 1 og 2, þ.e.a.s. fækkað er um 1 l á ferningi (við kant að framan) í annarri hverri umf þar til 1 l er eftir (+ 6 kantlykkjur að framan). Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þessa l. Setjið 6 kantlykkjur að framan á þráð. HEILL DOMINOFERNINGUR: Setjið 1 prjónamerki í miðjulykkju. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið slétt. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið sl þar til 1 l er eftir á undan prjónamerki, takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, prjónið sl út umf. Endurtakið umf 1 og 2, þ.e.a.s. fækkað er um 2 l í miðju á ferningi í annarri hverri umf þar til 1 l er eftir á prjóni, klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þessa l. HÁLFUR / HEILL DOMINOFERNINGUR (láréttur): Prjónið eins og hálfur / heill Dominoferningur nema án úrtöku í miðju / hlið á ferningi, setjið síðustu l í lok hverrar umf á þráð. Haldið áfram þar til 4-3-4-4-4 l eru eftir á prjóni. STÆRÐ S-L-XL-XXL/XXXL: Í næstu umf (= rétta) er prjónað þannig: Takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, síðasta l á prjóni er sett á þráð í hlið (6-7-8-9 l á þræði í hvorri hlið á heilum og 6-7-8-9 l á þræði á hálfum). Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru. STÆRÐ M: 3 l eftir á prjóni (6 l á þræði í hvorri hlið). Prjónið 1 umf slétt frá röngu yfir 3 l. Næsta umf (= rétta) prjónið þannig: Takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir (= 6 l á þræði í hvorri hlið á heilum og 6 l á þræði á hálfum). Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru. HÁLFUR DOMINOFERNINGUR ÁN KANTLYKKJU AÐ FRAMAN (lóðrétt): UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið slétt. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið sl þar til 2 l eru eftir, 2 l slétt saman. Prjónið gangstætt á ferningi í hinni hlið á stykki. Endurtakið umf 1 og 2, þ.e.a.s. fækkað er um 1 l á ferningi í annarri hveri umf þar til 1 l er eftir. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum lykkjuna. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Byrjið á að fitja upp l fyrir alla víddina á stykkinu, síðan eru ferningarnir prjónaðir einn og einn fram og til baka í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. PEYSA: Fitjið upp 531-559-587-615-671 l (meðtaldar 6 kantlykkjur að framan í hvorri hlið) á hringprjóna nr 4 með Delight. Prjónið 1 umf br frá röngu. LESIÐ LEIÐBEININGAR 1! Í næstu umf (frá réttu) er prjónað þannig: Prjónið 6 l garðaprjon (kantlykkjur að framan), * 34-36-38-40-44 l sl, takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, * endurtakið frá *-* alls 13 sinnum og endið á 34-36-38-40-44 l sl, 2 l slétt saman, 6 l garðaprjón (kantur að framan)= 503-531-559-587-643 l. Kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni til loka. 1. RÖÐ MEÐ DOMINOFERNINGUM: Prjónið HÁLFUR DOMINOFERNINGUR (lóðréttur) – sjá útskýringu að ofan – yfir fyrstu 24-25-26-27-29 l (meðtaldar 6 kantlykkjur að framan). Hinar l eru eftir á prjóni. Prjónið nú HEILL DOMINOFERNINGUR – sjá útskýringu að ofan – yfir næstu 35-37-39-41-45 l á prjóni. Þegar Dominoferningurinn hefur verið prjónaður til loka er prjónað yfir næstu 35-37-39-41-45 l á prjóni alveg eins. Haldið svona áfram þar til 24-25-26-27-29 l eru eftir á prjóni (nú hafa verið prjónaðir 13½ Dominoferningar). Prjónið nú hálfan Dominoferning (lóðréttur) og kant að framan yfir þessar l. Þegar hálfi ferningurinn hefur verið prjónaður og 6 kantlykkjur að framan hafa verið settar á band eru 13 heilir og 2 hálfir Dominoferningar í röð 1. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! 2. RÖÐ MEÐ DOMINOFERNINGUM: Prjónið upp 17-18-19-20-22 l meðfram kanti á næsta ferningi – LESIÐ LEIÐBEININGAR 2! Prjónið síðan upp 1 l á milli fernings og næsta fernings frá röð 1. Prjónið upp 17-18-19-20-22 l meðfram næsta ferningi = 35-37-39-41-45 l á prjóni. Prjónið heilan Dominoferning eins og áður. Þegar Dominoferningurinn hefur verið prjónaður til loka eru prjónaðar upp 35-37-39-41-45 l á milli 2 og 2 ferninga frá röð 1 þar til prjónaðir hafa verið 14 Dominoferningar í röð 2. 3. RÖÐ MEÐ DOMINOFERNINGUM: Prjónið þannig: * Prjónið upp 18-19-20-21-23 l meðfram kanti á síðasta ferningi sem prjónaður var í röð 2 – Munið eftir LEIÐBEININGAR-2 – og prjónið til baka 6 kantlykkjur að framan = 24-25-26-27-29 l. Í næstu umf er prjónað sl frá röngu. JAFNFRAMT er fækkað um 3 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) = 21-22-23-24-26 l. Prjónið nú hálfan Dominoferningi (lóðréttur), byrjið á 2. umf og 6 kantlykkjum að framan. Þegar hálfi ferningurinn hefur verið prjónaður til loka og 6 kantlykkjur að framan hafa verið settar á þráð er prjónað þannig: * Prjónið upp 17-18-19-20-22 l frá réttu meðfram kanti á hvorum af næstu 2 ferningum frá 2. röð og 1 l á milli ferninga = 35-37-39-41-45 l á prjóni. Prjónið 1 umf slétt frá röngu JAFNFRAMT er fækkað um 6 l jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA = 29-31-33-35-39 l. Prjónið nú heilan Dominoferning, byrjið á 2. umf *, endurtakið frá *-* þar til prjónaðir hafa verið 13½ Dominoferningar í röð 3. Prjónið nú upp 18-19-20-21-23 l frá réttu meðfram kanti á síðasta ferningi. Prjónið 1 umf slétt frá röngu JAFNFRAMT er fækkað um 3 l jafnt yfir = 15-6-17-18-20 l og prjónið til baka 6 kantlykkjur að framan = 21-22-23-24-26 l. Prjónið kant að framan og hálfan Dominoferning (lóðréttur) byrjið á 2. umf. Þegar hálfi ferningurinn hefur verið prjónaður og 6 kantlykkjur að framan hafa verið settar á þráð eru 13 heilir og 2 hálfir Dominoferningar í röð 3. 4. RÖÐ MEÐ DOMINOFERNINGUM: Prjónið upp 14-15-16-17-19 l meðfram kanti á hálfum ferningi. Prjónið nú upp 1 l á milli hálfa fernings og næsta fernings frá röð 3. Prjónið upp 14-15-16-17-19 l meðfram hlið á næsta ferningi = 29-31-33-35-39 l á prjóni. Prjónið heilan Dominoferning eins og áður. Þegar Dominoferningurinn hefur verið prjónaður til loka eru prjónaðar upp 29-31-33-35-39 l á milli 2 og 2 ferninga frá röð 3. Haldið svona áfram þar til prjónaðir hafa verið 14 Dominoferningar í röð 4. 5. RÖÐ MEÐ DOMINOFERNINGUM: Prjónið upp 15-16-17-18-20 l – Munið eftir LEIÐBEININGAR 2! Meðfram kanti á síðasta ferningi sem prjónaður var í 4. röð og prjónið til baka 6 kantlykkjur að framan = 21-22-23-24-26 l. Prjónið hálfan Dominoferningi (lóðréttur) og kant að framan. Þegar hálfi ferningurinn hefur verið prjónaður til loka og 6 kantlykkjur að framan hafa verið settar á þráð er prjónað þannig: * Prjónið upp 14-15-16-17-19 l meðfram köntum á hvorum af næstu 2 ferningum frá 4. röð og 1 l á milli ferninga = 29-31-33-35-39 l á prjóni. Prjónið heilan Dominoferning eins og áður *, endurtakið frá *-* þar til prjónaðir hafa verið alls 13½ Dominoferningar í 5. röð. Prjónið nú upp 15-16-17-18-20 l meðfram kant á síðasta ferning. Prjónið 1 umf slétt frá röngu og prjónið til baka 6 kantlykkjur að framan = 21-22-23-24-26 l. Prjónið kant að framan og hálfan Dominoferning (lóðrétt) byrjið á 2. umf. Þegar hálfi ferningurinn hefur verið prjónaður og 6 kantlykkjur að framan hafa verið settar á þráð eru 13 heilir og 2 hálfir Dominoferningar í röð 5. 6. RÖÐ MEÐ DOMINOFERNINGUM: Prjónið eins og röð 4. 7. RÖÐ MEÐ DOMINOFERNINGUM: Prjónið upp 15-16-17-18-20 l meðfram kanti á síðasta ferningi sem prjónaður var í 6. röð og prjónið til baka 6 kantlykkjur að framan = 21-22-23-24-26 l. Í næstu umf er prjónað sl frá röngu JAFNFRAMT er fækkað um 2-2-2-1-1 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) = 19-20-21-23-25 l. Prjónið nú hálfan Dominoferning (lóðréttur), byrjið á 2. umf og kant að framan. Þegar hálfi ferningurinn hefur verið prjónaður og 6 kantlykkjur að framan hafa verið settar á þráð er prjónað þannig: * Prjónið upp 14-15-16-17-19 l meðfram kanti á hvorum af næstu 2 ferningum frá 6. röð og 1 l á milli ferninga = 29-31-33-35-39 l. Prjónið 1 umf slétt frá röngu JAFNFRAMT er fækkað um 4-4-4-2-2 l jafnt yfir = 25-27-29-33-37 l. Prjónið nú heilan Dominoferning, byrjið á 2. umf *, endurtakið frá *-* þar til prjónaðir hafa verið alls 13½ Dominoferningar í 7. röð. Prjónið nú upp 15-16-17-18-20 l meðfram kanti á síðasta ferning. Prjónið 1 umf slétt frá röngu JAFNFRAMT er fækkað um 2-2-2-1-1 l jafnt yfir = 13-14-15-17-19 l og prjónið til baka 6 kantlykkjur að framan = 19-20-21-23-25 l. Prjónið kant að framan og hálfan Dominoferning (lóðréttur), byrjið á 2. umf. Þegar hálfi ferningurinn hefur verið prjónaður og 6 kantlykkjur að framan hafa verið settar á þráð eru 13 heilir og 2 hálfir Dominoferningar í röð 7. 8. RÖÐ MEÐ DOMINOFERNINGUM: Prjónið upp 12-13-14-16-18 l meðfram kanti á hálfa ferningnum. Prjónið nú upp 1 l á milli hálfa ferningsins og næsta ferning frá röð 7. Prjónið upp 12-13-14-16-18 l meðfram hlið á næsta ferning = 25-27-29-33-37 l á prjóni. Prjónið heilan Domino ferning eins og áður. Þegar Dominoferningurinn hefur verið prjónaður til loka eru prjónaðar upp 25-27-29-33-37 l á milli 2 og 2 ferninga frá röð 7. Haldið svona áfram þar til prjónaðir hafa verið 14 heilir Dominoferningar í röð 8. Stykkið er nú prjónað áfram mismunandi eftir stærðum: Stærð L-XL-XXL/XXXL: 9. RÖÐ MEÐ DOMINOFERNINGUM: Prjónið upp 13-14-15-17-19 l meðfram kanti á fyrsta ferningi sem prjónaður var í 8. röð og prjónið til baka 6 kantlykkjur að framan = 19-20-21-23-25 l. Prjónið hálfan Dominoferning (lóðréttur) og kant að framan. Þegar hálfi ferningurinn hefur verið prjónaður og 6 kantlykkjur hafa verið settar á þráð er prjónað þannig: * Prjónið upp 12-13-14-16-18 l meðfram kant á hvorum af næstu 2 ferningum frá 8. röð og 1 l á milli ferninga = 25-27-29-33-37 l á prjóni. Prjónið heilan Dominoferning eins og áður *, endurtakið frá *-* þar til prjónaðir hafa verið 13½ Dominoferningar í 9. röð. Prjónið nú upp 13-14-15-17-19 l meðfram kanti á síðasta ferningi og prjónið til baka 6 kantlykkjur að framan = 19-20-21-23-25 l. Prjónið hálfan Dominoferning (lóðrétt) og kant að framan. Þegar hálfi ferningurinn hefur verið prjónaður og 6 kantlykkjur að framan hafa verið settar á þráð eru 13 heilir og 2 hálfir Dominoferningar í röð 9. 10. RÖÐ MEÐ DOMINOFERNINGUM: Prjónið eins og röð 8. ALLAR STÆRÐIR: Nú skiptist stykkið, framstykki og bakstykki er prjónað til loka fyrir sig. HÆGRA FRAMSTYKKI: 1. RÖÐ MEÐ DOMINOFERNINGUM Á FRAMSTYKKI: Prjónið upp 13-14-15-17-19 l meðfram kanti á fyrsta ferning sem prjónaður var í fyrri umf og prjónið til baka 6 kantlykkjur að framan = 19-20-21-23-25 l. Prjónið hálfan Dominoferningi (lóðrétt) og kant að framan. Þegar hálfi ferningurinn hefur verið prjónaður og 6 kantlykkjur að framan hafa verið settar á þráð er prjónað þannig: * Prjónið upp 12-13-14-16-18 l meðfram köntum á hvorum af næstu 2 ferningum frá fyrri umf og 1 l á milli ferninga = 25-27-29-33-37 l á prjóni. Prjónið heilan Dominoferning eins og áður *, endurtakið frá *-* þar til prjónaðir hafa verið 4½ Dominoferningar. 2. RÖÐ MEÐ DOMINOFERNINGUM Á FRAMSTYKKI: Prjónið upp 12-13-14-16-18 l meðfram kanti á hálfa ferningnum og næsta ferningi frá 1. röð. Prjónið upp 12-13-14-16-18 l meðfram hlið á næsta ferning = 25-27-29-33-37 l á prjóni. Prjónið heilan Dominoferning eins og áður. Þegar Dominoferningurinn hefur verið prjónaður til loka eru prjónaðar upp 25-27-29-33-37 l á milli 2 næstu ferninga frá 1. Röð þar til prjónaðir hafa verið 4 heilir Dominoferningar. Prjónið nú upp 13-14-15-17-19 l meðfram kant á síðasta ferning sem prjónaður var í röð 1. Prjónið HÁLFUR DOMONOFERNINGUR ÁN KANTLYKKJU AÐ FRAMAN (lóðréttur) – sjá útskýringu að ofan. Þegar hálfi ferningurinn hefur verið prjónaður eru 4½ Dominoferningar. Endurtakið þessar 2 raðir með Dominoferningum 1 sinni til viðbótar. Endurtakið síðan 1. röð 1 sinni til viðbótar. Prjónið nú þannig: SÍÐASTA RÖÐIN MEÐ DOMINOFERNINGUM: Prjónið upp 12-13-14-16-18 l meðfram kanti á hálfum ferningi. Prjónið nú upp 1 l á milli hálfa ferningnum og næsta ferningi frá fyrri röð. Prjónið upp 12-13-14-16-18 l meðfram hlið á næsta ferning = 25-27-29-33-37 l á prjóni. Prjónið nú HÁLFUR DOMINOFERNINGUR (láréttur) – sjá útskýringu að ofan. Þegar hálfi Dominoferningurinn hefur verið prjónaður eru prjónaðar upp 25-27-29-33-37 l á milli 2 og 2 ferninga frá fyrri röð. Haldið svona áfram þar til prjónaðir hafa verið 4 hálfir Dominoferningar (láréttir). Prjónið nú upp 13-14-15-17-19 l meðfram kanti á síðasta ferningi sem prjónaður var frá fyrri röð, prjónið hálfan Dominoferning (láréttur) yfir þessar l. Byrjið frá röngu innan við 6 háu kantlykkjunum að framan, prjónið 1 umf slétt frá röngu yfir 6 kantlykkjur að framan. Prjónið nú frá réttu þannig: Prjónið 6 kantlykkjur að framan, prjónið upp 1 l á milli kant að framan og l af þræði, * prjónið til baka l af þræði (= 6-6-7-8-9 l) l á prjóni, prjónið upp 3 l á milli þráða, prjónið til baka l af þræði (= 6-6-7-8-9 l) á prjóni, prjónið upp 1 l á milli ferninga *, endurtakið frá *-* þar til 6-6-7-8-9 l eru eftir á þræði, prjónið til baka l af þræði = 77-77-86-95-104 l. Prjónið 4 umf garðaprjón yfir allar l. Setjið nú 54-54-60-64-69 l við miðju að framan á þráð = 23-23-26-31-35 l fyrir öxl. Prjónið garðaprjón yfir þær l sem eftir eru í 2½ cm. Fellið af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema gagnstætt. BAKSTYKKI: 1. RÖÐ MEÐ DOMINOFERNINGUM Á BAKSTYKKI: Prjónið upp 12-13-14-16-18 l meðfram kanti á hvorum af næstu 2 ferningum frá fyrri umf og 1 l á milli ferninga = 25-27-29-33-37 l á prjóni. Prjónið einn heilan Dominoferning eins og áður. Þegar Dominoferningurinn hefur verið prjónaður til loka eru prjónaðar upp 25-27-29-33-37 l á milli 2 og 2 ferninga. Haldið áfram þar til prjónaðar hafa verið 5 Dominoferningar. 2. RÖÐ MEÐ DOMINOFERNINGUM Á BAKSTYKKI: Prjónið upp 13-14-15-17-19 l meðfram kanti á fyrsta ferningi sem prjónaður var í röð 1. Prjónið hálfan Dominoferning án kantlykkja að framan (lóðréttur). Þegar háfi ferningurinn hefur verið prjónaður er prjónað þannig: * Prjónið upp 12-13-14-16-18 l meðfram kanti í hvorum af næstu 2 ferningum frá röð 1 og 1 l á milli ferninga = 25-27-29-33-37 l á prjóni. Prjónið heilan Dominoferning eins og áður *, endurtakið frá *-* þar til prjónaðir hafa verið 4½ Dominoferningar. Prjónið upp 13-14-15-17-19 l meðfram kanti á síðasta ferningi. Prjónið hálfan Dominoferning án kantlykkja að framan (lóðréttur). Þegar hálfi ferningurinn hefur verið prjónaður til loka eru 4 heilir og 2 hálfir Dominoferningar. Endurtakið þessar 2 raðir með Dominoferningum 1 sinni til viðbótar. Endurtakið síðan 1. röð 1 sinni til viðbótar. Prjónið nú þannig: SÍÐASTA RÖÐIN MEÐ DOMINOFERNINGUM: Prjónið upp 13-14-15-17-19 l meðfram kanti á fyrsta ferningi sem prjónaður var á bakstykki frá fyrri röð. Prjónið hálfan Dominoferning (láréttur). Þegar hálfi ferningurinn hefur verið prjónaður til loka er prjónað þannig: * Prjónið upp 12-13-14-16-18 l meðfram kanti á hvorum af næstu 2 ferningum frá fyrri röð og 1 l á milli ferninga = 25-27-29-33-37 l á prjóni. Prjónið heilan Dominoferning (láréttur)*, endurtakið frá *-* þar til prjónaðir hafa verið 4½ Dominoferningar. Prjónið nú upp 13-14-15-17-19 l meðfram kanti á síðasta ferningi. Prjónið hálfan Dominoferning (láréttur). Þegar hálfi ferningurinn hefur verið prjónaður til loka eru 4 heilir og 2 hálfir Dominoferningar (láréttir). Prjónið nú frá réttu þannig: Prjónið 6 fyrstu l af þræði, prjónið upp 1 l á milli ferninga * prjónið til baka l af þræði (= 6-6-7-8-9 l) á prjóni, prjónið upp 3 l á milli þráða, prjónið l af þræði (= 6-6-7-8-9 l) eftir á prjóni, prjónið upp 1 l á milli ferninga *, endurtakið frá *-* þar til 6-6-7-8-9 l eru eftir á þræði, prjónið til baka l af þræði á prjóninn = 77-77-87-97-107 l. Prjónið 4 umf garðaprjón yfir allar l. Fellið nú af miðju 31-31-35-39-43 l = 23-23-26-29-32 l eftir á hvorri öxl. Prjónið garðaprjón yfir öxl í 2,5 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. HÁLSMÁL: Prjónið upp 231-231-259-287-315 l (meðtaldar l af þræði) á hringprjóna nr 4 með Delight. Prjónið garðaprjón fyrir kant á hálsmáli mælist 12 cm. Fellið LAUST af. ERMI: Ermin er prjónuð fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 50-52-54-56-58 (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 4 með Delight. Prjónið 6 umf slétt yfir allar l. Prjónið nú sléttprjón til loka. Þegar stykkið mælist 8-5-5-5-5 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið á stykki. Endurtakið útaukningu með 4-3½-3-2½-2 cm millibili 9-11-13-15-17 sinnum til viðbótar = 70-76-82-88-94 l. Þegar stykkið mælist 49-48-48-46-45 cm (ATH! Styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið ermar í með rönguna út. Saumið ermasauma og sauma undir ermum frá þeim stað þar sem framstykki og bakstykki voru skipt upp að ermi. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (39)
Amy Jewel Campbell wrote:
I really love how this garment drapes & how the fabric draws the eye.Plus there are quite a few ways this garment can be worn. I like how the pullover looks too. ;)
10.06.2014 - 20:45Orielle wrote:
Love the options available with this version even more than the pullover version.
06.06.2014 - 10:43Conny wrote:
Todos los patrones son hermosos beatiful
06.06.2014 - 05:19C Darmanin wrote:
Beautiful. I wonder if it's difficult to make. Hope will get to see the pattern!
05.06.2014 - 10:07Jolanda Overgauw wrote:
Ik ga er vierkant voor!
04.06.2014 - 15:37Jolanda Overgauw wrote:
Ik kan niet wachten!
04.06.2014 - 15:35Marion wrote:
This looks great fun to knit and is so unusual. Just my kind of garment.
03.06.2014 - 11:19Irena wrote:
Molto bello giovanile e colorato piacerà molto anche a mia figlia.
03.06.2014 - 08:46Nita Bailey-sands wrote:
Beautiful and unique style and colors.
03.06.2014 - 05:53