DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8250.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Elinor Dashwood Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Alaska með áferðamynstri og hringlaga berustykki, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 157-4
DROPS Design: Mynstur nr x-402
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALASKA frá Garnstudio
750-850-950-1000-1100-1250 gr litur nr 02, natur

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 4 – fyrir stroff.
DROPS PERLUTALA, NR 522: 8 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8250.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1- A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING 1 (á við berustykki + og aðsnið):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan) til þess að koma í veg fyrir göt.

ÚTAUKNING 2 (á við um hliðar):
Prjónið fram að 1 l á undan merki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl (merkið er á milli þessa l), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn (prjónað aftan í lykkjubogann í stað framan) til að koma í veg fyrir göt.

ÚRTAKA (á við um aðsnið + ermi):
Fækkið lykkjum á eftir merki þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir.
Fækkið um 2 lykkjum á undan merki þannig: 2 lykkjur slétt saman.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist (mælt frá uppfitjunarkanti):
STÆRÐ S: 2, 9, 16, 23, 30, 38, 45 og 53 cm.
STÆRÐ M: 2, 9, 16, 23, 31, 39, 47 og 55 cm.
STÆRÐ L: 2, 10, 17, 24, 32, 40, 48 og 56 cm.
STÆRÐ XL: 2, 10, 18, 26, 34, 42, 50 og 58 cm.
STÆRÐ XXL: 2, 10, 18, 26, 35, 43, 51 og 59 cm.
STÆRÐ XXXL: 2, 10, 18, 26, 36, 44, 52 og 60 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka, ofan frá og niður.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 79-86-90-94-97-101 l á hringprjóna nr 4 með Alaska. Prjónið 8 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið nú yfir á hringprjóna nr 5. Prjónið sléttprjón með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið (kantlykkjurnar halda áfram i garðaprjóni til loka), JAFNFRAMT er aukið út um 41-45-52-59-67-85 l jafnt yfir frá réttu – LESIÐ ÚTAUKNING 1! Nú eru 120-131-142-153-164-186 l á prjóni. Munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Prjónið nú upphækkun aftan í hnakka þannig: Prjónið 69-76-81-88-93-105 l, snúið við, prjónið 18-20-20-22-22-24 l til baka, snúið við, prjónið 27-30-30-33-33-36 l, snúið við, prjónið 36-40-40-44-44-48 l til baka, snúið við, 45-50-50-55-55-60 l, snúið við, prjónið 54-60-60-66-66-72 l, snúið við, prjónið út umf. Í næstu umf frá réttu, prjónið og aukið út eftir mynstri A.1 – veljið mynstur fyrir rétta stærð.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar öll mynsturteikning A.1 hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina eru 230-252-274-296-318-362 l á prjóni. Í næstu umf er prjónuð 1. umf í A.2, JAFNFRAMT er aukið út um 8-8-8-10-16-0 l jafnt yfir = 238-260-282-306-334-362 l. Næsta umf er prjónuð þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 2. umf í A.2 yfir næstu 31-35-39-43-48-53 l (= framstykki), setjið næstu 51-55-57-61-65-69 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8 nýjar l (= undir ermi), haldið áfram með A.2 yfir næstu 64-70-80-88-98-108 l (= bakstykki), setjið næstu 51-55-57-61-65-69 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8 nýjar l undir ermi, A.2 yfir næstu 31-35-39-43-48-53 l (= framstykki), 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Nú eru 152-166-184-200-220-240 l fyrir fram- og bakstykki.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Haldið síðan áfram fram og til baka með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið og sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 4 cm frá nýju l undir ermum, setjið 6 merki í stykkið þannig: 5 kantlykkjur að framan, 17-20-23-25-28-31 l sléttprjón, setjið merki, 36-38-40-44-48-52 l sléttprjón, setjið merki, 36-40-48-52-58-64 l sléttprjón, setjið merki, 36-38-40-44-48-52 l sléttprjón, setjið merki, 17-20-23-25-28-31 l sléttprjón, 5 kantlykkjur að framan með garðaprjóni. Í næstu umf frá réttu byrjar úrtaka – LESIÐ ÚRTAKA! Fækkið um 1 l á undan 1. og 3. merki og 1 l á eftir 2. og 4. merki (ATH! 1. merki er 1. merki í umf frá réttu). Endurtakið úrtöku með 1-1-1½-2-3½-3½ cm millibili alls 4-4-4-3-2-2 sinnum = 136-150-168-188-212-232 l. Setjið nú merki mitt á milli 36-38-40-42-48-52 l á hvorri hlið (þ.e.a.s. á milli 1. og 2. merkis og á milli 3. og 4. merkis) = 5. og 6. merkis. Þegar stykkið mælist 14-15-16-17-18-19 cm frá nýju l undir ermum byrjar útaukning – munið eftir ÚTAUKNING 1! Aukið út á undan 1. og 3. merki og á eftir 2. og 4. merkis. Endurtakið útaukningu með 3 cm millibili alls 4 sinnum til viðbótar, JAFNFRAMT 2., 3. og 4. skiptis sem aukið er út, aukið út um 1 l hvoru megin við 5. og 6. merkis (= hliðar) – LESIÐ ÚTAUKNING 2! Þegar útaukningu er lokið eru 168-182-200-220-244-264 l á prjóni. Þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm frá nýju l undir ermum er aukið út um 4-2-2-0-0-4 l = 172-184-202-220-244-268 l. Prjónið síðan A.3 með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru auknar út 43-46-52-67-79-91 l jafnt yfir = 215-230-254-287-323-359 l. Prjónið 1 umf til baka. Skiptið nú yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið stroff þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 6 l eru eftir á prjóni, 1 l sl, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram þar til stroffið mælist 8 cm. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br.

ERMI:
Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna/hringprjóna.
Setjið til baka 51-55-57-61-65-69 l af þræði á sokkaprjóna nr 5. Prjónið 2. umf í A.2, fitjið upp 8 nýjar l undir ermi í lok umf = 59-63-65-69-73-77 l. Setjið eitt merki mitt á milli nýju 8 l (þ.e.a.s. 4 l hvoru megin við merki). Prjónið síðan í hring. Haldið áfram með mynstur eftir A.2 – ATH: Stillið mynstrið af eftir miðju, ör í mynstri merkir miðju-l ofan á ermi, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4 cm frá merki byrjar úrtaka – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku með 2-1½-1½-1½.-1½-1 cm millibili 8-10-11-10-12-14 sinnum til viðbótar = 41-41-41-47-47-47 l eftir. Þegar stykkið mælist 34 cm í öllum stærðum er aukið út um 1 l = 42-42-42-48-48-48 l. Prjónið síðan mynstur eftir mynsturteikningu A.3. Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru auknar út 3 l jafnt yfir = 45-45-45-51-51-51 l. Skiptið nú yfir á sokkaprjóna nr 4 og prjónið stroff (1 l sl, 2 l br). Fellið af með sl yfir sl og br yfir br þegar stroffið mælist 8 cm.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 14.11.2016
FRAM- OG BAKSTYKKI:..Haldið síðan áfram fram og til baka með 5 kantlykkjur að framan með garðaprjóni á hvorri hlið og sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 4 cm frá nýju l undir ermum, setjið 6 prjónamerki í stykkið þannig: 5 kantlykkjur að framan, 17-20-23-25-28-31 l sléttprjón, setjið prjónamerki, 36-38-40-44-48-52 l sléttprjón, setjið prjónamerki, 36-40-48-52-58-64 l sléttprjón, setjið prjónamerki, 36-38-40-44-48-52 l sléttprjón, setjið prjónamerki, 17-20-23-25-28-31 l sléttprjón, 5 kantlykkjur að framan með garðaprjóni. Í næstu umf frá réttu byrjar úrtaka – LESIÐ ÚRTAKA!

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 157-4

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (54)

country flag Jeannette Van Hulten wrote:

Op patroontekening A1 de 12e tour, als ik 11 x het patroon brei en er de ribbels van 5 steken erbij optel kom ik aan 155 steken ipv 153. Ik zie ook nu pas dat het patroon over die 5 toeren helemaal.niet juist is. Waar zit de fout?

01.10.2023 - 10:06

DROPS Design answered:

Dag Jeanette,

Je begint A.1 als je 153 steken op de naald hebt. Als je beide voorbiessteken eraf haalt kom je op 143 en als je deze deelt door 11 kom je op 13 herhalingen van A.1. Je begint A.1 onderaan bij de pijl in jouw maat en niet op toer 12.

03.10.2023 - 06:31

country flag Sybille wrote:

Liebes Drops-Team, habe ich die Anleitung richtig verstanden, dass nach Teilung für die Ärmel nur 2 Runden A2 gestrickt werden und das Rumpfteil glatt rechts weiter gestrickt wird? Also ohne A2 am Rumpfteil zu Ende zu stricken? Vielen Dank für Ihre Antwort Sybille

20.02.2021 - 11:06

DROPS Design answered:

Liebe Sybille, ja ganz genau, nur die 2 ersten Reihen in A.2 werden beim Rumpfteil gestrickt, A.2 wird dann bis zur Ende nur bei den Ärmeln gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

22.02.2021 - 07:55

country flag Sofia Coelho wrote:

Bom dia. Quando se diz «Tricotar 69-76-81-88-93-105 ms/pts» (portanto, quando se faz a primeira carreira encurtada), estas malhas incluem as 5 malhas da orla? Isto é, por exemplo para o tamanho Small, devo fazer as 5 malhas da orla, tricotar 64 malhas e virar? Ou devo fazer as 5 malhas da orla, tricotar 69 malhas e virar? Muito obrigada.

04.11.2020 - 12:45

country flag Heidi Elleman wrote:

Hej. Jeg vil gerne vide, hvordan jeg i størrelse XL tager 59 masker ud jævnt fordelt på første pind når der kun er 94 masker at gøre det over? Hilsen Heidi

09.05.2020 - 00:05

DROPS Design answered:

Hei Heidi. I løpet av økeomgangen kan du strikke 1 maske, så øke 1 gang 25 ganger, og strikke 34 ganger 2 masker før det økes med 1 maske (men bytte på hva du strikker jevnt fordelt) + 1 maske. God Fornøyelse!

11.05.2020 - 09:48

country flag Jonna Nielsen wrote:

Kan ikke nå op på 182 m efter udtagning. 4x4 udtagning 1-3-2-4 =16 m. Udtagning 5-6 3x 4 = 12 ialt 178 m. Hvad gør jeg forkert? Efter mønster 3 (slutter på r-siden) skal man tage ud på vrangpinden?

19.02.2019 - 10:57

DROPS Design answered:

Hei Jonna. Du skal øke ved merkene 4 ganger TIL (altås i tillegg til den første økingen beskrevet) = totalt 5 økinger, 20 masker økt. da får du 182 masker. God fornøyelse

21.02.2019 - 11:24

country flag Elvia McCormack wrote:

Hello. I just finished Chart A1. I’m not sure what to do next. I’m supposed to work on chart A2. Is it just for two rows? After which I continue in stockinette for the body? Thanks.

06.04.2018 - 03:56

DROPS Design answered:

Dear Mrs McCormack, work first the first row in A.2 inc evenly (see your size), then on 2nd row in A.2 divide pieces for armholes (= you will work row 2 in A.2 only on front and back pieces, stitches for sleeves will be slipped on a stitch holder). Continue then body in stocking stitch, A.2 will continue on the sleeves (= when working sleeves start with row 2 in A.2). Happy knitting!

06.04.2018 - 08:45

country flag Elvia McCormack wrote:

Hello. Thank you for providing such beautiful patterns for free. I found this pattern on Ralvery and there was a notation that an errata was available but I don't see one on the website. Could you please confirm? Thanks.

28.03.2018 - 18:15

DROPS Design answered:

Dear Elvia, you can find the correction of you click on the link right below the patern and above the diagrams. Click on the text that says "Click here to see the correction/s..". Happy Knitting!

29.03.2018 - 02:11

country flag Gerrie Hazekamp wrote:

Als het hele telpatroon A.1 een keer in de hoogte is gebreid, staan er 362 st op de nld. Dat is een verdubbeling van het aantal steken. Hoe kom je hieraan? Ik zie in totaal maar 11 meerderingen in het telpatroon A1

29.10.2017 - 17:21

DROPS Design answered:

Hallo Gerrie, Dat komt omdat er meerderingen in het telpatroon A.1 zijn verwerkt in de vorm van omslagen. Aan het begin heeft A.1 11 steken in de breedte en aan het eind 22 steken. Een verdubbeling dus. A.1 herhaal je steeds in de breedte over de hele naald (met uitzondering van de 5 voorbiessteken; zie beschrijving in het patroon.

29.10.2017 - 18:47

country flag Eglantine wrote:

Je suis en train de tricoter ce modèle en taille XL. A l'étape Dos & devants, pour placer les marqueurs, on obtient 5 + 25 + 42 + 52 + 42 + 25 + 5 mailles, soit 196 mailles. Or, à la fin de l'empiècement, on a 200 mailles. Où sont passées les 4 mailles manquantes ? Faut-il placer les marqueurs autrement ? Faut-il répartir 4 diminutions quelque part ? Je n'ai rien vu de tel dans les instructions. Merci

08.11.2016 - 21:44

DROPS Design answered:

Bonjour Églantine, une correction a été faite pour la taille XL, il faut compter 44 m et non 42. Merci, bon tricot!

14.11.2016 - 11:41

country flag Laly wrote:

Bonjour, ce modèle me plaît énormément, mais je voudrais mettre un point fantaisie "léger" dans la partie jersey pour casser la "monotonie" de ce point. Que pourriez-vous me conseiller? merci beaucoup!

23.04.2016 - 12:37

DROPS Design answered:

Bonjour Laly, vous trouverez probablement l'inspiration dans notre bibliothèque de points: ajourés, ou même texturés. Bon tricot!

25.04.2016 - 09:56