DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13090.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Autumn Getaway

Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk með laskalínu, hettu og áferðamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 157-3
DROPS Design: Mynstur nr z-676
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
300-350-400-400-450-500 gr litur nr 501, ljós grár
Og einnig
DROPS KID-SILK frá Garnstudio
125-150-175-175-200-225 gr litur nr 20, ljós beige

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 4,5 – fyrir garðaprjón.
DROPS PERLUTALA, NR 522: 5-6-6-7-7-7 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13090.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á sokkaprjóna):
*1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR-1:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.4. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

MYNSTUR-2:
UMFERÐ 1: sl frá réttu.
UMFERÐ 2: br frá röngu.
UMFERÐ 3: sl frá réttu.
UMFERÐ 4: sl frá röngu.
UMFERÐ 5: sl frá réttu.
UMFERÐ 6: br frá röngu.
Endurtakið umf 1-6.

MÆLING:
Öll mæling er gert þegar stykkinu er haldið uppi.

ÚRTAKA:
Öll úrtaka er gerð frá réttu.
Fækkið um 1 l á undan merkiþræði þannig: Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan merkiþræði, lyftið 1 lykkju af prjóni, 1 lykkja slétt / brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir.
Fækkið um 1 l á eftir merkiþræði þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt / brugðið saman.
ATH: Úrtaknu lykkjum er stillt af eftir mynstri-2 miðað við ef prjónað er sl eða br.

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 l á undan 1.-3.-5.-7. merki og 1 l á eftir 2.-4.-6.-8. merki.
Aukið út frá RÉTTU þannig: Prjónið að merki, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er síðan prjónaður snúinn brugðið í næstu umf.
Aukið út frá RÖNGU þannig: Prjónið að merki, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umf.
ATH: Uppslátturinn á ermi er stilltur af eftir mynstri-2 miðað við ef prjónað er snúið sl eða snúið br.

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjóni þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 4, 14, 24, 34 og 42 cm.
STÆRÐ M: 2, 10, 19, 28, 37 og 46 cm.
STÆRÐ L: 2, 11, 20, 30, 40 og 50 cm.
STÆRÐ XL: 2, 10, 18, 26, 34, 42 og 50 cm.
STÆRÐ XXL: 2, 10, 19, 28, 37, 46 og 55 cm.
STÆRÐ XXXL: 2, 11, 20, 29, 39, 49 og 59 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað ofan frá og niður, fram og til baka á hringprjóna.

HETTA:
Fitjið upp 98-98-106-106-114-114 l á hringprjóna nr 5 með 1 þræði af Kid-Silk og 1 þræði Alpaca (= 2 þræðir). Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið 6 l garðaprjón, MYNSTUR-2 – sjá útskýringu að ofan, þar til 6 l eru eftir, JAFNFRAMT er setttur 1 merkiþráður eftir 49-49-53-53-57-57 l, endið á 6 l garðaprjón. Þegar stykkið mælist 26-26-27-27-28-28 cm fækkið um 1 l hvoru megin við merkiþráðinn – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í 8. hverri umf 3 sinnum til viðbótar = 90-90-98-98-106-106 l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið þar til stykkið mælist 38-38-39-39-40-40 cm – LESIÐ MÆLING, passið að síðasta umf er frá röngu. Setjið 1 merki í stykkið. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

BERUSTYKKI:
Prjónið 2 umf garðaprjón JAFNFRAMT í 1. umf er fækkað um 6-6-10-6-10-10 l jafnt yfir = 84-84-88-92-96-96 l. Prjónið 2 umf garðaprjón JAFNFRAMT í síðustu umf er aukið út um 8-16-20-36-44-56 l jafnt yfir = 92-100-108-128-140-152 l. MUNIÐ EFTIR HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Í næstu umf frá réttu eru sett 8 merki í stykkið þannig: Prjónið 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 10-12-14-18-21-24 l sléttprjón (= vinstra framstykki), setjið 1. merki, prjónið 4 l sléttprjón, setjið 2. merki, 12-12-12-14-14-14 l mynstur-2 (= vinstri ermi), setjið 3. merki, prjónið 4 l sléttprjón, setjið 4. merki, 20-24-28-36-42-48 l sléttprjón (= bakstykki), setjið 5. merki, 4 l sléttprjón, setjið 6. merki, 12-12-12-14-14-14 l mynstur-2 (= hægri ermi), setjið 7. merki, 4 l sléttprjón, setjið 8. merki, 10-12-14-18-21-24 l sléttprjón og endið á 6 l kantlykkjur að framan í garðaprjóni (= hægra framstykki). Kantlykkjur að framan eru prjónaðar í garðaprjóni til loka. Ermarnar eru prjónaðar með mynstri-2 til loka. Aukið síðan út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, þannig: Aukið út í hverri umf 2-4-6-4-6-8 sinnum, aukið síðan út í hverri umf frá réttu 18-18-18-20-20-20 sinnum = 252-276-300-320-348-376 l. Stykkið mælist nú ca 17-18-19-20-21-22 cm.

Nú er næsta umf prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 40-44-48-52-57-62 l, setjið næstu 52-56-60-62-66-70 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 nýjar l undir ermi, prjónið næstu 68-76-84-92-102-112 l, setjið næstu 52-56-60-62-66-70 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 nýjar l undir ermi, prjónið næstu 40-44-48-52-57-62 l. Nú eru 160-176-192-208-228-248 l á fram- og bakstykki. Setjið 1 merki í stykkið. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Prjónið nú þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 31-35-39-43-48-53 l sléttprjón, A.1 (= 6 l), A.2, 62-70-78-86-96-106 l sléttprjón, A.1, A.2, 31-35-39-43-48-53 l sléttprjón, endið á 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Br l A.1/A.2 færist til um 1 l við miðju að framan/aftan í hverri umf. Þegar 10 l sléttprjón eru á milli br l í hvorri hlið á stykki byrjar 1 ný mynstureining af A.1/A.2 á hæðina. Þegar A.1/A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, heldur áfram færast til br l í hverri umf þar til 1. l br mætist kanti að framan í hvorri hlið á stykki. Prjónið síðan A.3 yfir A.1 og A.4 yfir A.2, þ.e.a.s. br l færist nú að hlið. Br l færist til um 1 l í hverri umf. Þegar A.3/A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, heldur br l áfram að færast til í hverri umf þar til hún mætist í hlið. JAFNFRAMT er byrjið ný mynstureining á A.3/A.4 í 8. hverri umf við miðju að framan og miðju að aftan alls 3 sinnum. Þegar stykkið mælist 28-30-32-34-36-38 cm er aukið út frá réttu þannig: Prjónið garðaprjón og sléttprjón eins og áður að fyrstu l br, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið mynstur A.3/A.4 eins og áður til og með síðustu l br, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttprjón yfir bakstykki að fyrstu l br, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið mynstur A.3/A.4 eins og áður til og með síðustu l br, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttprjón og endið á 6 l garðaprjón (= 4 l fleiri). Uppslátturinn er prjónaður snúinn br. Endurtakið útaukningu með 5 cm millibili 2 sinnum til viðbótar = 172-188-204-220-240-260 l. Þegar síðasta l br mætist á hlið er stykkið prjónað áfram í sléttprjóni með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-59 cm, skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5 og prjónið 12 umf. Fellið af.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Setjið til baka l af þræði á sokkaprjóna nr 5. Haldið áfram með mynstur-2 JAFNFRAMT í 1. umf eru fitjaðar upp 6 nýjar l undir ermi (setjið merki mitt á milli nýrra lykkja) = 58-62-66-68-72-76 l. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við merki. Endurtakið úrtöku með 3-3- 2½-2½-2½-2½-2 cm millibili 10-11-12-12-13-15 sinnum til viðbótar = 36-38-40-42-44-44 l. Þegar stykkið mælist 38-39-40-41-42-43 cm, skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4,5 og prjónið 12 umf GARÐAPRJÓN – sjá utskýringu að ofan. Fellið af.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Leggið hettuna tvöfalda saman og saumið saman efst. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 157-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (100)

country flag Michelle wrote:

OK merci beaucoup, J'ai encore une demande, au tout début de l'empiècement, on doit répartir les diminutions sur le 1er rang mousse donc sur l'endroit, faire ensuite 2 rangs mousse, puis répartir des augmentations sur le 4ème rang, soit sur l'envers de l'ouvrage ? Est-ce que j'ai bien compris ?

24.11.2023 - 16:53

DROPS Design answered:

Bonjour Michelle, tout à fait. Les augmentations vont se faire sur l'envers, au dernier rang point mousse au début de l'empiècement. Bon tricot!

27.11.2023 - 07:40

country flag Michelle wrote:

Merci pour votre réponse, je parle du tout début soit : Monter 98-98-106-106-114-114 m avec l'aiguille circulaire 5 et 1 fil Alpaca + 1 fil Kid-Silk (= 2 fils). Tricoter 1 côte au POINT MOUSSE - voir ci-dessus – puis le rang suivant ainsi: 6 m point mousse,.....

24.11.2023 - 12:09

DROPS Design answered:

Bonjour Michelle, la veste présentée a été tricotée ainsi, mais si cette côte mousse vous gêne, vous pouvez tout à fait modifier les explications à votre guise. Bon tricot!

24.11.2023 - 16:04

country flag Michelle wrote:

Bonjour, je viens de commencer le modèle, je pense que la première côte mousse est de trop, car elle casse l'harmonie du point,en se trouvant juste à la couture. Est-ce que ce n'est pas mieux de commencer par le premier rang du point ? Merci !

24.11.2023 - 10:04

DROPS Design answered:

Bonjour Michelle, je ne suis pas bien sûre de quelle côte mousse vous parlez, mais vous pouvez naturellement adapter les explications à votre goût et/ou à vos envies. Bon tricot!

24.11.2023 - 11:12

country flag Sophie LACAILLE wrote:

Bonjour, J'aimerais savoir où faire les jetés pour le raglan à partir du deuxième rang. Le jeté doit -il être fait avant le premier jeté ou après ?

12.10.2023 - 10:33

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lacaille, vous devez augmenter différemment en fonction des marqueurs et sur l'endroit/sur l'envers, vous allez augmenter avant et/ou après les 4 mailles jersey des raglans, donc sur l'endroit et sur l'envers avant et / ou après ces 4 mailles - cf RAGLAN où il est expliqué comment augmenter en fonction du marqueur + sur l'endroit ou sur l'envers. Bon tricot!

12.10.2023 - 14:07

country flag Sophie LACAILLE wrote:

Bonjour, Sur la fin de la capuche, le dernier rang doit être sur l'envers, cela veut-il dire que l'empiècement commence sur un rang envers ? ou au contraire sur un rang endroit ? Je ne comprend pas bien.

09.10.2023 - 09:45

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lacaille, le dernier rang de la capuche doit être tricoté sur l'envers, ainsi, le 1er rang de l'empiècement se tricote sur l'endroit. Bon tricot!

09.10.2023 - 10:06

country flag Anja wrote:

Ich habe die Jacke aus meiner selbstgesponnenen Alpakawolle gestrickt und sie ist wunderschön geworden! Vielen Dank für die tolle und gut verständliche Anleitung!

25.09.2023 - 12:30

country flag Elizabeth Conlan wrote:

Thank you.

26.11.2022 - 07:01

country flag Elizabeth Conlan wrote:

Hi back again l am doing the increase stitches on the yolk for seperating the sides, arms and back inbetween the four stitches would it be alright if I pick up the strand inbetween the stitches and twisting instead of the yo for increase would it still sit properly do you think. Thanks

25.11.2022 - 06:49

DROPS Design answered:

Dear Mrs Conlan, there are several techniques to increase for the raglan, please feel free to use the one you rather. Happy knitting!

25.11.2022 - 08:46

country flag Elżbieta wrote:

Witam ponownie. Proszę o wyjaśnienie narzutów ( 4dodatkowych oczek). Robię ścieg francuski, dżersej do 1 oczka lewego, narzut, dalej dżersej A3/A4, dalej do ostatniego oczka lewego włącznie, narzut, tył dżersejem do 1oczka lewego, narzut, A3/A4, dalej przerabiać do ostatniego oczka lewego włącznie, narzut, dalej przerabiać dżersejem i ściegiem francuskim. Czy dobrze zrozumiałam? Dziękuję i pozdrawiam serdecznie 😀

15.11.2022 - 18:56

DROPS Design answered:

Witaj Elu, dokładnie jest tak jak piszesz. Zobacz jeszcze korekty do tego wzoru, bo pamiętam, że ostatnio coś było. Miłej pracy :)

16.11.2022 - 14:17

country flag Elżbieta wrote:

Dzień dobry, robię kardigan 157-3, rozmiar S. Przerobiłam schemat A1 i A2 aż pierwsze oczko lewe doszło do obszycia. W ostatnim schemacie przerobiłam 2 rzędy A1A2 . Jak przejść do A3 iA4? Czy w pierwszym schemacie przesuwamy oczko lewe tylko w A3? Będę wdzięczna za pomoc i odpowiedź Pozdrawiam serdecznie Ela Paś

07.11.2022 - 10:03

DROPS Design answered:

Witaj Elu, dalej przerabiasz schemat A.3 ponad schematem A.1 i schemat A.4 ponad schematem A.2, tzn. że przesuwamy teraz oczka lewe do boków. Zaczynasz schematy od początku. Oczka lewe są przesuwane w obu schematach, czyli A.3 i A.4. Już to poprawiłam we wzorze. Pozdrawiamy!

08.11.2022 - 09:11