DROPS Cloud
DROPS Cloud
72% Alpakka, 21% Polyamide, 7% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Super Sale

By The Lake Jacket

Prjónuð peysa úr 1 þræði DROPS Cloud eða 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk með áferðamynstri og sjalkraga. Stærð S - XXXL.

DROPS 157-6
DROPS Design: Mynstur nr co-001
Garnflokkur E eða C + C
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS CLOUD frá Garnstudio
550-650-700-750-850-900 gr litur nr 03, perlugrár
Eða notið:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio
325-375-400-450-500-525 gr litur nr 02, ljós grár

DROPS HRINGPRJÓNN NR 8 (60 eða 80 cm) – eða þá stærð sem þarf til að 11 l og 15 umf með sléttprjóni með 1 þræði af Cloud eða 2 þráðum af Brushed Alpaca Silk verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 7 (60 eða 80 cm) – fyrir garðaprjón.
DROPS PERLUTALA, NR 540: 1 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cloud
DROPS Cloud
72% Alpakka, 21% Polyamide, 7% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

ÚRTAKA:
Öll úrtaka er gerð frá réttu.
Fækkið um 1 l í byrjun umf þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið um 1 l í lok umf þannig: Prjónið þar til 3 l eru eftir á prjóni, prjónið næstu 2 l slétt saman, 1 kantlykkja í garðaprjóni.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.4, mynsturteikning sýnir allar umf séð frá réttu.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn til þess að koma í veg fyrir göt.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagati í hægri kanti að framan.
1 hnappagat = fellið af þriðju l frá miðju að framan og fitjið upp 1 nýja l yfir þá l sem felld var af í næstu umf. Fellið af fyrir hnappagati þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 50 cm
STÆRÐ M: 51 cm
STÆRÐ L: 52 cm
STÆRÐ XL: 53 cm
STÆRÐ XXL: 54 cm
STÆRÐ XXXL: 55 cm

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 62-66-72-76-86-90 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 7 með 1 þræði af Cloud eða 2 þráðum Brushed Alpaca Silk. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 8. Prjónið frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.2 (= 7 l) 4-4-5-5-6-6 sinnum á breiddina, sléttprjón yfir næstu 4-8-0-4-0-4 l, A.1 (= 7 l) 4-4-5-5-6-6 sinnum á breiddina, 1 kantlykkja. Kantlykkjur í hliðum eru prjónaðar í garðaprjóni til loka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Endurtakið tilfærslu á lykkjum í A.1-A.2 á hæðina þar til tilfærsla á lykkjum hafa mætt hver annarri við miðju að aftan. Þegar stykkið mælist 12 cm er fækkað um 1 l innan við kantlykkju í hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með 7-7½-7-8½-6½-9 cm millibili 6-6-7-6-8-6 sinnum til viðbótar = 48-52-56-62-68-76 l. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 50-51-52-53-54-55 cm, passið að prjónuð hefur verið heil mynstureining eða hálf mynstureining af A.1-A.2, prjónið yfir A.2 og A.3 yfir A.1 til loka. Þegar stykkið mælist 61-63-65-67-69-71 cm fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umf í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 l 0-0-1-1-1-1 sinnum, 2 l 1-1-1-1-2-3 sinnum og 1 l 2-3-1-3-3-4 sinnum = 40-42-44-46-48-50 l. Þegar stykkið mælist 78-81-84-87-90-93 cm fellið af miðju 14-14-14-16-16-16 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umf frá hálsmáli er felld af 1 l = 12-13-14-14-15-16 l eftir fyrir ölx. Fellið laust af allar l þegar stykkið mælist 80-83-86-89-92-95 cm.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 44-46-4951-56-58 l (meðtaldar 6 kantlykkjur að framan og 1 kantlykkja) á hringprjóna nr 7 með 1 þræði Cloud eða 2 þráðum Brushed Alpaca Silk. Prjónið 6 umf garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjóna nr 8. Prjónið síðan frá réttu þannig: 6 l garðaprjón (= kantur að framan), 2-4-0-2-0-2 l sléttprjón, A.1 5-5-6-6-7-7 sinnum á breiddina, 1 kantlykkja í garðaprjóni. ATH! Kantlykkja í hlið og í kanti að framan eru prjónaðar í garðaprjóni til loka. Endurtakið tilfærslu á lykkjum í A.1 á hæðina þar til tilfærsla á lykkjum mætir kanti að framan. Þegar stykkið mælist 12 cm er fækkað um 1 l innan við kantlykkju í hlið – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með 7-7½-7-8½-6½-9 cm millibili 6-6-7-6-8-6 sinnum til viðbótar = 37-39-41-44-47-51 l. JAFNFRMAT þegar stykkið mælist 50-51-52-53-54-55 cm, stillið af með bakstykki - fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT er prjónað A.3 yfir A.1 til loka. Þegar stykkið mælist 61-63-65-67-69-71 cm fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umf frá réttu þannig: Fellið af 3 l 0-0-1-1-1-1 sinni, 2 l 1-1-1-1-2-3 sinnum og 1 l 2-3-1-3-3-4 sinnum = 33-34-35-36-37-38 l. Þegar stykkið mælist 80-83-86-89-92-95 cm, stillið af að næsta umf er frá röngu, fellið af fyrstu 15-16-16-17-17-18 l (= öxl), prjónið út umf = 18-18-19-19-20-20 l. Prjónið garðaprjón yfir þessar l – JAFNFRAMT eru prjónaðar stuttar umf með byrjun frá hálsmáli (1. umf = rétta) þannig: * Prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l. Í næstu umf frá réttu eru prjónaðar 14-14-14-16-16-16 l sl, snúið við og prjónið sl til baka *, endurtakið frá *-* þar til stykkið mælist ca 10 cm frá þeim stað sem fellt var af fyrir öxl (styttir hlið). Fellið laust af allar l.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd, prjónið A.2 og A.4 í stað A.1 og A.3. Fellið ekki af fyrir hnappagötum. Stuttar umferðir byrja frá röngu.

ERMI:
Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 26-26-30-30-34-34 l (meðtalin 1 kantlykkja á hvorri hlið) á hringprjóna nr 7 með 1 þræði Cloud eða 2 þræðir Brushed Alpaca Silk. Prjónið 6 umf garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjóna nr 8. Prjónið nú sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 9 cm er aukið út um 1 l – LESIÐ ÚTAUKNING – innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu með 6½-4½-5-4½-5-4 cm millibili alls 5-7-6-7-6-7 sinnum = 38-42-44-46-48-50 l. Þegar stykkið mælist 47-46-45-44-43-43 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengri topp á ermi) fellið af í byrjun á hverri umf í hvorri hlið fyrir ermakúpu þannig: 3 l 1 sinni, 2 l 1 sinni og 1 l 3-3-4-5-6-5 sinnum. Fellið síðan af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist ca 56 cm, fellið síðan af 3 l 1 sinni í hvorri hlið. Fellið síðan af þær l sem eftir eru, stykkið mælist ca 57 cm.

FRÁGANGUR:
Saumið saman axlasauma og saumið ermar í yst í lykkjubogann. Saumið saman hliðarsauma og ermasauma í eitt innan við 1 kantlykkju. Saumið saman kant að framan við miðju að aftan fyrir kraga – ATH: Saumurinn á að vera á bakhlið svo að hann sjáist ekki þegar kraginn er brotinn niður. Saumið kraga við hálsmál. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 21.08.2014
Nýtt efnismagn: DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio 325-375-400-450-500-525 gr litur nr 02, ljós grár

Mynstur

symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = sl frá réttu, br frá röngu
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 157-6

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (31)

country flag Barbara Marsden wrote:

Stuck on front right side! I bound off 16 stitches with 19 stitches left. stuck where it says “on next row from RS K 14, turn & knit back”. But there are 19 stitches...What happens to the remaining 5 stitches left on needle?

26.01.2022 - 02:38

DROPS Design answered:

Hi Barbara, You work every other row a short row and the other 5 stitches are worked on the alternate non-short rows. This shapes the bands around the back of the neck. Happy knitting!

26.01.2022 - 07:47

country flag Marieke Veenstra wrote:

Dank voor uw reactie. Toch staat er bij dit patroon dat het gebreid wordt met 1 draad Cloud of 2 draden Brushed alpaca silk, evenals bij het patroon van de trui.

11.06.2020 - 10:23

DROPS Design answered:

Dag Mariek,

Ja, ik zie het inderdaad, ik heb me vergist. Maar met 850 gram cloud in 1 draad of totaal 500 gram burshed alpaca silk in 2 draden kom je nog steeds uit. Brushed alpaca silk heeft namelijk een heel andere looplengte en de bollen wegen 25 gram per stuk.

11.06.2020 - 13:16

country flag Marieke Veenstra wrote:

Ik twijfel of ik dit vest, of de trui zal gaan breien, in brushed alpaca silk. Er is een opvallend verschil in benodigde wol tussen dit vest (500gr in maat XXL) en de trui (925 gr). Wat is juist? Alvast dank voor uw reactie

07.06.2020 - 19:48

DROPS Design answered:

Dag Marieke,

Zowel het vest als de trui wordt met 2 draden gebreid: 1 draad Cloud en 1 draad Brushed alpaca silk. Om het vest te breien in maat XXL heb je 850 gram Cloud en 500 gram Brushed alpaca silk nodig. Om de trui te breien in maat XXL heb je hetzelfde nodig: 850 gram Cloud en 500 gram Brushed alpaca silk.

10.06.2020 - 12:03

country flag Mirta Beatriz Delgado wrote:

Buenas Tardes: Quisiera saber cómo puedo encontrar una tabla de medidas para confeccionar una prenda. No se a que talla pertenezco... Muchas gracias por su respuesta!!!

01.05.2019 - 15:50

DROPS Design answered:

Hola Mirta Beatriz Delgado. Mira una de nos lecciones AQUI. Buen trabajo!

02.05.2019 - 09:17

country flag Daniela Nabers wrote:

Liebes Drops Team, ich stricke gerade das rechte Vorderteil und bin beim Schalkragen angekommen. Leider verstehe ich das mit den verkürzten Reihen nicht...stricke ich über 16 Maschen 10 cm hoch und kette dann 19 Maschen ab? Vielen Dank für Eure Hilfe! LG Daniela Nabers

01.12.2017 - 11:22

DROPS Design answered:

Liebe Frau Nabers, die 16 M für Schulter (Größe M und L) sind abgekettet (= am Anfang einer Rückreihe), dann die restlichen 18-19 M noch bis zur Ende der Reihe stricken. Am Anfang nächster Hinreihe beginnen Sie die verkürzten Reihen: *2 Reihen über alle Maschen, und 2 Maschen über die ersten 14 M* stricken, dh diese 4 Reihe wiederholen bis der Kragen ca 10 cm vom Schulter misst. Viel Spaß beim stricken!

01.12.2017 - 14:03

country flag Astrid wrote:

Achterpand zet ik 66 steken op en voor voorpand 46 steken? klopt dit wel? dan wordt het voorpand toch breder dan het achterpand? 46 steken - 6 steken is 40 steken. Achterpand 66 steken : 2 = 33 steken. zijn 7 steken extra.

24.10.2017 - 11:39

DROPS Design answered:

Hallo Astrid, Ja, dat klopt. In dit patroon zet je meer steken op voor de voorpanden.

25.10.2017 - 09:48

country flag RAVASSAT wrote:

Bonjour, est-ce qu'après avoir supprimé la qualité Cloud , vous allez supprimé AIR car chez le revendeur il est indiqué "en rupture" et qu'il n'y a pas de commande chez le fournisseur, cause inconnue ? Merci

17.10.2017 - 12:26

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Ravassat, DROPS Air n'est pas arrêtée, mais certaines couleurs sont momentanément en rupture de stock, n'hésitez pas à contacter votre magasin DROPS il pourra vous dire quand il devrait en recevoir à nouveau. Bon tricot!

26.10.2017 - 10:18

country flag Daniela Nabers wrote:

Vielen lieben Dank für die schnelle Antwort, dann leg ich jetzt mal los. Ein tolle Jacke!!! Schönes Wochenende und liebe Grüße. Daniela

08.09.2017 - 16:34

country flag Daniela Nabers wrote:

Liebes Drops-Team, ich fange gerade an, die Drops-Jacke by the lake 157-6 zu stricken. Meine Frage: beim Rückenteil bei der ersten Reihe auf Nadel 8 werden zwischen Muster A2 und A1 vier Maschen glatt rechts bei Größe XL gestrickt. Bleiben diese vier Maschen immer zwischen den Mustern und werden hin glatt re und rück glatt links gestrickt? Vielen Dank für Eure Nachricht und Gruß! Daniela

08.09.2017 - 13:36

DROPS Design answered:

Liebe Frau Nabers, diese 4 M glatt rechts werden dann im Muster gestrickt, "Die Verschiebung der Links-M in A.1-A.2 in der Höhe so lange wdh, bis sich die Verschiebungen an der rückwärtigen Mitte treffen". Viel Spaß beim stricken!

08.09.2017 - 16:10

country flag Margit wrote:

Liebes Drops-Team, könnte man den Mantel auch mit Eskimo stricken? (Lauflänge natürlich umgerechnet). Danke und liebe Grüße Margit

10.03.2017 - 17:51

DROPS Design answered:

Liebe Margit, 1 Faden Cloud = 1 Faden Eskimo (= selbe Garngruppe), hier können Sie die Lauflänge kalkulieren. Viel spaß beim stricken!

13.03.2017 - 09:34