DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10560.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Maiden Shield

Prjónuð peysa úr DROPS Lima með mynstri með mynstri, víðum ermum og djúpri laskalínu. Stærð S - XXXL

DROPS Extra 0-958
DROPS Design: Mynstur nr li-032
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS LIMA frá Garnstudio
650-750-800-850-950-1050 gr litur nr 9010, ljós grár

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 20 l og 25 umf með mynstri (A.1 + A.2/A.3 – mælt lárétt) verði 10 x 10 cm og 19 l x 25 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 4 – fyrir kant í garðaprjóni.
DROPS PERLUTALA, NR 522; 6 stk í allar stærðir

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10560.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjóna):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á sokkaprjóna):
*1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð). Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið aðra og þriðju l frá kanti saman slétt og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist (mælt í hlið þar sem stykkið er styst):
STÆRÐ S: 1, 10, 19, 28, 37 og 46 cm.
STÆRÐ M: 2, 11, 20, 29, 38 og 47 cm.
STÆRÐ L: 3, 12, 21, 30, 39 og 48 cm.
STÆRÐ XL: 3, 12, 21, 30, 39 og 48 cm.
STÆRÐ XXL: 3, 12, 21, 30, 39 og 48 cm.
STÆRÐ XXXL: 3, 12, 21, 30, 39 og 48 cm.

ÚTAUKNING:
Aukið er út frá réttu!
Aukið er út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn sbr þannig ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um laskalínu):
Fækkið lykkjum fyrir laskalínu hvoru megin við A.1 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma.
FRÁ RÉTTU:
Fækkið lykkjum á undan A.1 þannig: Prjónið 2 l slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir A.1 þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
FRÁ RÖNGU:
Fækkið lykkjum á undan A.1 : Prjónið 2 l br saman.
Fækkið lykkjum á eftir A.1: Prjónið 2 l br saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 230-246-262-282-302-326 l (meðtaldar 5 kantlykkjur við miðju að framan í hvorri hlið) á hringprjóna nr 4 með Lima. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5 og setjið 2 prjónamerki 60-64-68-73-78-84 l inn frá hvorri hlið (= 110-118-126-136-146-158 l á milli prjónamerkja á bakstykki).
Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.3 (= 42-42-42-56-56-56 l), A.1 (= 6 l), 14-22-30-12-22-34 l sléttprjón (prjónamerki er staðsett á milli þessa l), A.1 (= 6 l), A.2 (= 42-42-42-56-56-56 l), A.3 (= 42-42-42-56-56-56 l), A.1 (= 6 l), prjónið 14-22-30-12-22-34 l í sléttprjóni (prjónamerki er staðsett á milli þessa ) A.1 (= 6 l), A.2 (= 42-42-42-56-56-56 l), og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. LESIÐ ALLAN KAFLANN Á FRAM- OG BAKSTYKKI ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!

ÚTAUKNING Í HLIÐUM:
Þegar stykkið mælist 6-6-6-7-7-7 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 8-8-8-9-9-9 cm millibili, 2 sinnum til viðbótar = 242-258-274-294-314-338 l.

ÚRTAKA OG ÚTAUKNING Í MYNSTRI Á FRAM- OG BAKSTYKKI:
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 7-7-7-8-8-8 cm – stillið af að næsta umf sé umf með útaukningu og úrtöku í A.2/A.3, fækkið um 1 l aukalega í A.2 og A.3 bæði á fram- og bakstykki, þannig að mynstureiningin með hornréttu línunum verða minni. Fækkið um 1 l í A.2 með því að prjóna 2 síðustu l á undan úrtöku alveg eins og úrtaka, þ.e.a.s. prjónið 2 l slétt saman. Fækkið um 1 l í A.3 með því að prjóna 2 næstu l á eftir úrtöku alveg eins og úrtaka, þ.e.a.s. takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= alls 4 l færri).
Til þess að lykkjufjöldinn verði stöðugur, aukið út í sömu umf og úrtakan var í A.2/A.3. Aukið út um 1 l á ytri hlið á A.1 á móti mynstureiningar í sléttprjóni í hvorri hlið bæði á fram- og bakstykki – LESIÐ ÚTAUKNING (= alls 4 l fleiri).
Lykkjufjöldinn á fram- og bakstykki kemur nú til með að haldast stöðugur (þrátt fyrir útaukningu á hliðum). Mynstureiningin í garðaprjóni við miðju að framan og fyrir miðju að aftan verður minni og mynstureining í sléttprjóni í hvorri hlið verður stærri.
Endurtakið þessa úrtöku og útaukningu með 4-4-5-5-5-5 cm millibili, 4 sinnum til viðbótar (= alls 5 úrtökur í mynstri A.2/A.3 og 5 útaukningar í mynstureiningu í sléttprjóni).

HANDVEGUR:
Þegar stykkið mælist 26-28-28-29-30-31 cm (útaukning og úrtöku á nú að vera lokið), prjónið næstu umf þannig: Prjónið 57-61-65-69-74-80 l á vinstra framstykki (þ.e.a.s. 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.2 yfir næstu 37-37-37-51-51-51 l, A.1 (= 6 l) og 9-13-17-7-12-18 l sléttprjón), fellið af 12-12-12-14-14-14 l fyrir handveg, prjónið 104-112-120-128-138-150 l á bakstykki (þ.e.a.s. 9-13-17-7-12-18 l sléttprjón), A.1 (= 6 l) A.2 yfir næstu 37-37-37-51-51-51 l, A.3 yfir næstu 37-37-37-51-51-51 l. A.1 (= 6 l) og 9-13-17-7-12-18 l sléttprjón), fellið af 12-12-12-14-14-14 l fyrir handveg og prjónið síðustu 57-61-65-69-74-80 l á hægra framstykki (þ.e.a.s. 9-13-17-7-12-18 l sléttprjón, A.1 (= 6 l), A.3 yfir næstu 37-37-37-51-51-51 l og 5 kantlykkjur að framan). Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, skiptið yfir á hringprjóna eftir þörf.
Fitjið upp 44-46-46-48-50-52 l á sokkaprjóna nr 4 með Lima. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= miðja undir ermi). Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 5 og prjónið sléttprjón. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 15-14-12-11-10-9 cm er aukið út um 2 l fyrir miðju undir ermi (þ.e.a.s. 1 l hvoru megin við prjónamerki). Endurtakið útaukningu í annarri hverri umf, 30-31-32-33-33-34 sinnum til viðbótar (= alls 31-32-33-34-34-35 útaukningar) = 106-110-112-116-118-122 l á prjóni. Í næstu umf (á eftir síðustu útaukningu – stykkið mælist ca 39-39-38-38-37-37 cm), fellið af miðju 12-12-12-14-14-14 l undir ermi (fellið af 6-6-6-7-7-7 l hvoru megin við prjónamerki) = 94-98-100-102-104-108 l eftir á prjóni.
Geymið stykkið og prjónið aðra ermi á sama hátt.

BERUSTYKKI:
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki, þar sem fellt var af fyrir handveg (þetta er gert án þess að prjóna l) = 406-430-450-470-495-526 l á prjóni. Setjið 1 prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki) og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu.
Prjónið nú sléttprjón og mynstur eins og áður JAFNFRAMT í A.1 er prjónað í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (prjónamerki á að vera staðsett fyrir miðju í A.1).

LASKALÍNA:
JAFNFRAMT í 1. umf eftir að fram- og bakstykki og ermar voru sett á sama hringprjón (= rétta), byrjar úrtaka fyrir laskalínu – LESIÐ ÚRTAKA (= 8 l færri). Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu), 30-30-32-34-35-36 sinnum til viðbótar (= alls 31-31-33-35-36-37 sinnum) og síðan í hverri umf (= bæði frá réttu og frá röngu) alls 8-10-9-8-8-9 sinnum.

ÚRTAKA OG ÚTAUKNING Í MYNSTRI Á FRAM- OG BAKSTYKKI:
JAFNFRAMT þegar prjónaðir hafa verið 2-3-4-0-1-2 cm eftir að fram- og bakstykki og ermar voru sett á sama hringprjón, fækkið um 1 l aukalega í A.2/A.3 eins og áður og aukið út um 1 l í ytri hlið við A.1 á móti mynstureiningu í sléttprjóni í hvorri hlið á fram- og bakstykki eins og áður = 4 l færri og 4 l fleiri í umf. Endurtakið þessa úrtöku/útaukningu í annarri hverri umf alls 33-33-33-39-39-39 sinnum (þessi úrtaka/útaukning án laskaúrtöku hefur ekki áhrif á lykkjufjölda).

DREIFING Á HORNRÉTTUM LÍNUM Á BAKSTYKKI:
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 46-48-50-52-54-56 cm (mælt meðfram hlið þar sem stykkið er styst), fellið af og aukið út í A.2/A.3 á bakstykki í 8. hverri umf í stað 4. hverri umf (þetta á einungis við í venjulegri úrtöku/útaukningu í mynstri (ekki í aukalegri úrtöku/útaukningu í annarri hverri umf þar sem miðju mynstureiningin verður minni). Þegar þetta er gert verða hornréttar línur fyrir miðju að aftan að rétta úr sér og hálsmálið við miðju að aftan verður beint.
Endurtakið þessa úrtöku/útaukningu í 8. hverri umf, 2 sinnum til viðbótar, prjónið síðan mynstur í A.2/A.3 án venjulegrar úrtöku/útaukningar (úrtaka/útaukning til þess að minka miðju mynstureininguna heldur áfram eins og áður).

HÁLSMÁL:
Eftir síðustu úrtöku fyrir laskalínu eru 94-102-114-126-142-158 l á prjóni og síðasta hnappagatið á að vera eins nærri hálsmáli og mögulegt er. Prjónið 1 umf mynstur frá röngu eins og áður. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT er fækkað um 14-18-24-26-32-38 l jafnt yfir (ekki er fellt af yfir kant að framan) = 80-84-90-100-110-120. Prjónið 3 umf sl (1. umf = ranga) og fellið síðan laust af með sl frá réttu.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = prjónið framan í og aftan í sömu l (= 1 l fleiri)
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = prjónið 3 l sl, steypið fyrstu l sem prjónuð var yfir hinar 2 þannig að l er utan um 2 síðustu l á hægri prjóni (= 1 l færri)
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-958

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (7)

country flag Sylvie wrote:

Bonjours les augmentations son faite après les 5 mailles du début ou avant A 1 merci

28.12.2018 - 08:21

DROPS Design answered:

Chère Sylvie, 4 mailles sont augmentées selon les diagrammes A.2 et A.3, au debut de A.2 et a la fin de A.3. 4 mailles supplémentaires (pour que le nombre de mailles ne change pas) sont augmentées entre A.1 et le jersey, côté jersey (au debut et a la fin de la partie jersey), de chaque côté sur les devants et le dos. Bon tricot!

28.12.2018 - 10:50

country flag Briggs wrote:

Im Abschnitt AB- UND AUFNAHME IM MUSTER, VORDER- UND RÜCKENTEIL steht .. "wird wie vorher 1 zusätzliche M in A.2/A.3 abgenommen" und zwar in jeder Hinreihe. Die Abn. in A.2/A.3 wurden aber zuvor in der Rückreihe gemacht. Wenn ich die M in der Hinreihe abn., was mache ich dann, wenn ich bei A2 und A3 die regulären Ab- und Zun. im Muster habe?

25.09.2018 - 18:16

country flag Briggs wrote:

Nach Beginn des Raglans: wie viele M werden re zwischen A1 und dem Ärmel gestrickt? Ich stricke die kleinste Größe, d.h. 9 M re, aber 3 M werden davon für das neue A1-Muster genommen. Dann muss ich für den Raglan mind. 2x abnehmen, bevor ich nach 2cm erst zu dem Abschnitt AB- UND AUFNAHME IM MUSTER, VORDER- UND RÜCKENTEIL komme. Dann bleiben höchstens noch 4 M übrig. Auf dem Foto sieht es nach mehr aus

25.09.2018 - 18:05

country flag Briggs wrote:

Ich bin kein Spammer und habe auch noch nie eine Frage bei Ihnen gestellt!!

25.09.2018 - 17:57

country flag Kim wrote:

This pattern fine UNTIL sleeves are joined. The raglan decrease instructions DO NOT look like the picture!

02.02.2017 - 02:42

DROPS Design answered:

Dear Kim, make sure to not forget dec and inc in pattern front and back, ie dec 1 st in A.2/A.3 and inc 1 st outside A.1 to inc number of sts worked in stocking st. So that you will inc 33-39 sts in stocking st between both A.1 and dec 30-36 sts (see size) for raglan. Happy knitting!

02.02.2017 - 10:26

country flag Jette Bjærge wrote:

Jeg er meget i tvivl mht til målene. Skal skabelonen betyde at ved 58 cm i brystmål, så er målet omkring brystet 116 cm hele vejen rundt. Jeg er normalt en str 40 men det ser ud som om jeg kan "krybe" i en small :-)

12.02.2014 - 11:59

DROPS Design answered:

Hej Jette. Maalene stemmer, modellen skal ogsaa falde meget löst, som du ogsaa kan se paa billedet. God fornöjelse med den

12.02.2014 - 13:05

country flag Patricia wrote:

Dank voor de uitleg van deze vest was een van mijn favoriten

26.09.2013 - 12:44