Greenland |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Lima með áferðamynstri, víðum ermum og djúpri laskalínu. Stærð S - XXXL
DROPS 150-13 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna/sokkaprjóna): *1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð). ÚTAUKNING: Aukið er út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um laskalínu): Fækkið lykkjum fyrir laskalínu hvoru megin við A.1 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Fækkið lykkjum á undan A.1 þannig: Prjónið 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir A.1 þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 220-236-252-272-292-316 l á hringprjóna nr 4 með Lima. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5 og setjið 1 prjónamerki í byrjun umf og 1 prjónamerki eftir 110-118-126-136-146-158 l (= hliðar). Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið 7-11-15-6-11-17 l sléttprjón, A.1 (= 6 l), A.2 (= 42-42-42-56-56-56 l), A.3 (= 42-42-42-56-56-56 l, A.1 (= 6 l), 14-22-30-12-22-34 l sléttprjón (prjónamerki er staðsett á milli þessa l), A.1 (= 6 l), A.2 (= 42-42-42-56-56-56 l), A.3 (= 42-42-42-56-56-56 l), A.1 (= 6 l) og prjónið síðustu 7-11-15-6-11-17 l í sléttprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! LESTU ALLAN KAFLANN Á FRAM- OG BAKSTYKKI ÁÐUR EN ÞÚ PRJÓNAR ÁFRAM! ÚTAUKNING Í HLIÐUM: Þegar stykkið mælist 6-6-6-7-7-7 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 8-8-8-9-9-9 cm millibili, 2 sinnum til viðbótar = 232-248-264-284-304-328 l. ÚRTAKA OG ÚTAUKNING Í MYNSTRI Á FRAM- OG BAKSTYKKI: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 7-7-7-8-8-8 cm – stillið af að næsta umf sé umf með útaukningu og úrtöku í A.2/A.3, fækkið um 1 l aukalega í A.2 og A.3 bæði á fram- og bakstykki, þannig að mynstureiningin með hornréttu línum verða minni. Fækkið um 1 l í A.2 með því að prjóna 2 síðustu l á undan úrtöku alveg eins og úrtaka, þ.e.a.s. prjónið 2 l slétt saman. Fækkið um 1 l í A.3 með því að prjóna 2 næstu l á eftir úrtöku alveg eins og úrtaka, þ.e.a.s. takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= alls 4 l færri). Til að lykkjufjöldinn verði stöðugur, aukið út í sömu umf og úrtakan var í A.2/A.3. Aukið út um 1 l í ytri hlið á A.1 á móti mynstureiningar í sléttprjóni í hvorri hlið bæði á fram- og bakstykki – LESIÐ ÚTAUKNING (= alls 4 l fleiri). Lykkjufjöldinn á fram- og bakstykki kemur nú til með að haldast stöðugur (þrátt fyrir útaukningu í hliðum). Mynstureining í garðaprjóni við miðju að framan og fyrir miðju að aftan verður minni og mynstureiningin í sléttprjóni í hvorri hlið verður stærri. Endurtakið þessa úrtöku og útaukningu með 4-4-5-5-5-5 cm millibili, 4 sinnum til viðbótar (= alls 5 úrtökur í mynstri A.2/A.3 og 5 útaukningar í mynstureiningu í sléttprjóni). HANDVEGUR: Þegar stykkið mælist 26-28-28-29-30-31 cm (útaukning og úrtaka á nú að vera lokið), prjónið næstu umf þannig: Fellið af 6-6-6-7-7-7 l fyrir handveg, prjónið 104-112-120-128-138-150 l á framstykki (þ.e.a.s. 9-13-17-7-12-18 l í sléttprjóni, A.1 (= 6 l), A.2 yfir næstu 37-37-37-51-51-51 l, A.3 yfir næstu 37-37-37-51-51-51 l, A.1 (= 6 l) og 9-13-17-7-12-18 l sléttprjón), fellið af 12-12-12-14-14-14 l fyrir handveg, prjónið 104-112-120-128-138-150 l á bakstykki (alveg eins og á framstykki) og fellið af síðustu 6-6-6-7-7-7 l fyrir handveg. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, skiptið yfir á hringprjóna þegar þess er þörf. Fitjið upp 44-46-46-48-50-52 l á sokkaprjóna nr 4 með Lima. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= miðja undir ermi). Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 5 og prjónið sléttprjón. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 15-14-12-11-10-9 cm er aukið út um 2 l fyrir miðju undir ermi (þ.e.a.s. 1 l hvoru megin við prjónamerki). Endurtakið útaukningu í annarri hverri umf, 30-31-32-33-33-34 sinnum til viðbótar (= alls 31-32-33-34-34-35 útaukningar) = 106-110-112-116-118-122 l á prjóni. Í næstu umf (á eftir síðustu útaukningu – stykkið mælist ca 39-39-38-38-37-37 cm), fellið af miðju 12-12-12-14-14-14 l undir ermi (fellið af 6-6-6-7-7-7 l hvoru megin við prjónamerki) = 94-98-100-102-104-108 l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: LESTU ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN ÞÚ PRJÓNAR ÁFRAM! Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki, þar sem fellt var af fyrir handveg (þetta er gert án þess að prjóna l) = 396-420-440-460-484-516 l á prjóni. Setjið 1 prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki) og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Prjónið nú sléttprjón og mynstur eins og áður JAFNFRAMT í A.1 er prjónað í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (prjónamerki á að vera staðsett fyrir miðju í A.1). LASKALÍNA: JAFNFRAMT í 1. umf eftir að fram- og bakstykki og ermar var sett á sama hringprjón, byrjar laskalína – LESIÐ ÚRTAKA (= 8 l færri). Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf 30-30-32-34-35-36 sinnum til viðbótar (= alls 31-31-33-35-36-37 sinnum) og síðan í hverri umf alls 8-10-9-8-8-9 sinnum. ÚRTAKA OG ÚTAUKNING Í MYNSTRI Á FRAM- OG BAKSTYKKI: JAFNFRAMT þegar prjónaðir hafa verið 2-3-4-0-1-2 cm eftir að fram- og bakstykki og ermar var sett á sama hringprjón, fækkið um 1 l aukalega í A.2/A.3 eins og áður og aukið út um 1 l í ytri hlið við A.1 á móti mynstureiningu í sléttprjóni í hvorri hlið á fram- og bakstykki eins og áður = 4 l færri og 4 l fleiri í umf. Endurtakið þessa úrtöku/útaukningu í annarri hverri umf alls 33-33-33-39-39-39 sinnum (þessi úrtaka/útaukning án laskalínu hefur ekki áhrif á lykkjufjöldann). DREIFING Á HORNRÉTTUM LÍNUM Á BAKSTYKKI: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 46-48-50-52-54-56 cm (mælt meðfram hlið þar sem stykkið er styst), fellið af og aukið út í A.2/A.3 á bakstykki í 8. hverri umf í stað 4. hverrar umf (þetta á einungis við í venjulegri úrtöku/útaukningu í mynstri (ekki í aukalegri úrtöku/útaukningu í annarri hverri umf þar sem miðju mynstureiningin verður minni). Þegar þetta er gert verða hornréttu línurnar fyrir miðju að aftan að rétta úr sér og hálsmálið við miðju að aftan verður beint. Endurtakið þessa úrtöku/útaukningu í 8. hverri umf, 2 sinnum til viðbótar, prjónið síðan mynstur í A.2/A.3 án venjulegrar úrtöku/útaukningar (úrtaka/útaukning til þess að minka miðju mynstureininguna heldur áfram eins og áður). HÁLSMÁL: Eftir síðustu úrtöku fyrir laskalínu eru 84-92-104-116-132-148 l á prjóni. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 14-18-24-26-32-38 l jafnt yfir = 70-74-80-90-100-110 l á prjóni. Prjónið 1 umf br, 1 umf sl og 1 umf br og fellið síðan laust af með sl. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (34)
José Van Baalen wrote:
Moet ik het telpatroon van links naar rechts of van rechts naar links lezen?
23.01.2021 - 12:32DROPS Design answered:
Dag José,
Nee, je leest het telpatroon van rechts naar links en van onder naar boven. Alle naalden staan aangegeven in het telpatroon. Bij veel gestelde vragen kun je ook info vinden over hoe je telpatronen leest. zie hier.
24.01.2021 - 11:26Dorthe Larsen wrote:
Felterne i diagrammet er blanke. Jeg kan ikke se hvilke tegn der høre til sætningerne
19.09.2019 - 15:01DROPS Design answered:
Hei Dorthe. Høres ut om din browser ikke har lastet inn all informasjon som er på siden. Last inn siden på nytt, evnt trykk på F5. mvh DROPS design
23.09.2019 - 13:54Britt wrote:
Voor maat M ben ik bezig en heb het idee dat ik er te weinig in dat tussenstuk over houd. Na 3 cm ga je pas weer steken uit a2 en a3 halen en verplaatsen naar het tussenstuk van tricot
07.02.2018 - 20:55Britt wrote:
Hoeveel steken moet je behouden tussen A1 en A1 als je bezig bent met de raglan? Dus A1 tricot voor x aantal steken weer A1 dan A2 A3 A1 tricot voor x aantal steken weer A1 daarna mouw tricot. Hoeveel steken moet de x dan blijven elke naald?
06.02.2018 - 21:32DROPS Design answered:
Hoi Britt, Dat is per maat verschillend. Als de maat bekend is, is het mogelijk om dat uit te tekenen en uit te rekenen? Denk je dat je daar te weinig of te veel steken hebt?
07.02.2018 - 20:46Anne-Gro Øinæs wrote:
Hei! Jeg strikker small størrelse
22.04.2015 - 16:07Anne-Gro Øinæs wrote:
Når jeg setter sammen ermer og bol og strikker slik oppskriften sier skjer jo det at raglanfellingen kommer helt inntil A2 feltet i og med at det står at fellingen i A2 skal starte først etter 2cm. Hva gjør jeg feil?
17.04.2015 - 16:18DROPS Design answered:
Hei Anne-Gro. Kan du sige hvilken störrelse du laver, saa kan jeg fölge med og se paa opskriften. Tak :-)
22.04.2015 - 15:44Valérie wrote:
Un très beau pull.... mais des explications confuses et très difficiles à suivre. un ratage complet! Ce n'est pourtant pas le premier modèle complexe que je fais mais le premier sur Drops. Je suis extrêmement déçue. Je vais le recommencer pour ne pas rester sur un échec... Mais je n'aurais pas le temps avant cet été. Quelle déception!
09.02.2015 - 21:39DROPS Design answered:
Bonjour Valérie, pour toute aide à la réalisation d'un modèle, rappelez-vous que vous pouvez demander conseil à votre magasin ou sur le forum DROPS. Bon tricot!
10.02.2015 - 08:19Rebekka wrote:
Sadly, this pattern doesn't make sense, started with it 3 times and tried everything. the mistake must be within patten A1 i think. Doing the second line of the pattern you lose all in all 4 stitches. you get them back 2 lines later, but until then you don't have those 4 stitches so you can't keep the pattern up?! the pattern looks so wrong if you do it just the way it's written here. would be lovely if you'd help me, i'm pretty frustrated now since i have the wool and everything for it.
22.10.2014 - 15:04DROPS Design answered:
Dear Rebekka, A.1 is worked over 6 sts (row 1), then alternately 2 rows over 7 sts and 2 rows over 6 sts. But your number of sts in other diagrams should keep constant. Do not hesitate to place markers before/after each A.1 to be sure your number of sts is correct. Your DROPS store can bring you any individual assistance. Happy knitting!
22.10.2014 - 15:36Kirsten Larsen wrote:
Jeg kan ikke forstå at måltallene for sweateren er så store. Hvordan hænger det sammen at for eks. hoftevidden er så stor, at når jeg fx er 115 cm og en størrelse x-large skal have en lille størrelse i dette mønster
07.09.2014 - 19:57Sheri Vucci wrote:
I am confused about working section A1 without working into A2 and not having enough stitches left to complete the entire pattern. could you help explain this to me?
22.05.2014 - 04:30DROPS Design answered:
Hello Cheri! Diagrams A.2 and A.3 just show you that you have to increase 1 st both sides of the middle part and next to diagram A.1 and decrease middle of front and back piece. In case you are already near neckline and dont have anymore stitches in middle part for A.2 and A.3, than may-be you decreased to much or forgot to increase.
22.05.2014 - 11:20