DROPS Fabel uni colour 75% Ull, 25% Polyamide |
638.00 kr /50g |
Panta | |
DROPS Fabel 75% Ull, 25% Polyamide |
682.00 kr /50g |
Panta | |
DROPS Fabel long print 75% Ull, 25% Polyamide |
726.00 kr /50g |
Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
DROPS Fabel uni colour 75% Ull, 25% Polyamide 638.00 kr /50g Panta |
|
DROPS Fabel print 75% Ull, 25% Polyamide 682.00 kr /50g Panta |
|
DROPS Fabel long print 75% Ull, 25% Polyamide 726.00 kr /50g Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Swirly |
|
|
|
Prjónaðir sokkar með snúningi og stroffprjóni úr DROPS Fabel. Stærð 35-43.
DROPS 150-20 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚRTAKA (á við um hæl): Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 l slétt saman, prjónamerki, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring, ofan frá og niður að tá. VINSTRI SOKKUR: Fitjið upp 56-60-64 l á sokkaprjóna nr 2,5 með Fabel. Prjónið 2 umf slétt. Prjónið nú stroffprjón þannig: * Prjónið 1 l sl, 3 l br *, endurtakið frá *-*. Þegar stroffprjónið mælist 4 cm er prjónað áfram þannig: Setjið 1 prjónamerki í 1. l og 1 prjónamerki í 25.- 29.- 33. l. Haldið áfram með stroffprjón 1 l sl, 3 l br, JAFNFRAMT í hverri umf er fækkað um 1 l eftir fyrra prjónamerki og aukið út um 1 l á undan seinna prjónamerki þannig að stroffprjónið færist til. Fækkið l með því að taka 1 l óprjónaða við prjónamerki, prjónið 1 l, steypið óprjónuðu l yfir og aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á undan seinna prjónamerki – uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umf og jafnóðum inn í stroffprjón. Lykkjufjöldinn er alltaf sá sami. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 17-18-19 cm. Prjónið nú inn lausan þráð yfir síðustu 31 l á prjóni. Lykkjur hvoru megin við þráðinn eru síðar prjónaðar inn þegar hællinn er prjónaður. Haldið nú áfram með stroffprjón yfir 25-29-33 l ofan á fæti, aðrar l eru prjónaðar í sléttprjóni. Haldið áfram með snúning eins og áður, en útauknar lykkjur eru nú prjónaðar í sléttprjóni, fjöldi l í stroffprjóni fækkar, fjöldi l í sléttprjóni eykst. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 11-13-16 cm frá lausa þræðinum (= ca 5 cm til loka, allar l eru nú prjónaðar í sléttprjóni). Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið þannig að það verða 28-30-32 l ofan á fæti og 28-30-32 l undir fæti. Prjónið nú sléttprjón yfir allar l, JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju við tá hvoru megin við bæði prjónamerkin. Fækkið nú lykkjum á undan 1 l sl og prjónamerki þannig: Fækkið lykkjum á undan prjónamerki og 1 l sl: Prjónið 2 l snúnar slétt saman. Fækkið lykkjum í hvorri hlið í annarri hverri umf alls 7 sinnum og síðan í hverri umf 3 sinnum = 16-20-24 l eftir á prjóni. Í næstu umf eru allar l prjónaðar saman 2 og 2. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. HÆLL: Dragið út lausa þráðinn og skiptið l hvoru megin við þráðinn á sokkaprjóna nr 2,5 = 62 l. Byrjið frá hlið og prjónið þannig: Prjónið yfir 31 l undir hæl, prjónið upp 2 nýjar l frá hlið, prjónið yfir 31 l aftan við hæl og prjónið upp 2 nýjar l frá hlið = 66 l. Setjið 1 prjónamerki á milli 2 nýrra l á hvorri hlið. Prjónið sléttprjón, JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í hvorri hlið í annarri hverri umf alls 10 sinnum – LESIÐ ÚRTAKA! = 26 l eftir á prjóni. Prjónið 1 umf yfir allar l. Fellið af. Saumið saman hæl með lykkjuspori, l á móti l við affellingarkantinn. HÆGRI SOKKUR: Fitjið upp og prjónið eins og vinstri sokkur, nema þegar stroffprjónið færist til er það gert þannig: Setjið 1 prjónamerki í 1. l og 1. prjónamerki í 29.- 33.- 37. l. Haldið áfram með stroffprjón 1 l sl, 3 l br, JAFNFRAMT í hverri umf er aukið út um 1 l á eftir fyrra prjónamerki og fækkið um 1 l á undan seinna prjónamerki þannig að stroffprjónið færist til. Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir fyrra prjónamerki, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umf og jafnóðum inn í stroffprjón. Fellt er af á undan seinna prjónamerki þannig: Prjónið lykkju með prjónamerki og lykkju á undan slétt saman. Prjónið áfram á sama hátt og vinstri sokkur. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6925 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (28)
Susanna wrote:
Och angående höger socka måste ni väl mena att man ökar efter andra markören och minskar före första?? Alltså att baksidan av sockan är maska 2 t.o.m 32? Annars borde inte antalet maskor mellan markörerna skilja mellan höger och vänster.
08.03.2020 - 16:18DROPS Design answered:
Hej Susanne, nej for da skal ribben dreje til den anden side. Du ser det når du når dertil :9
10.03.2020 - 10:20Susanna wrote:
Jag undrar samma som Anita; ska man verkligen minska/öka på varje varv!? Min socka blir väldigt korvig på ovansidan (inte snyggt!). Tror jag river upp och provar vartannat varv som Anita skriver.
08.03.2020 - 15:39DROPS Design answered:
Hej Susanna, har du set videoen hvor vi viser ud- og indtagningerne:
How to knit the rib with displacement on the socks in DROPS 150-20 from Garnstudio Drops design on Vimeo.
10.03.2020 - 10:14Anita wrote:
Då skulle jag vilja se en bild på hur sockarna blev när man ökar/minskar varje varv. Jag ökade/ minskade varannat varv och de blev likadana som de på bilden.
21.02.2019 - 09:32DROPS Design answered:
Hei Anita. Sokkene på bildet er strikket med forskyvning hver omgang. Her er en video som viser nøyaktig hvordan det er strikket: . God fornøyelse
21.02.2019 - 13:41Anita wrote:
På bilden ser det ut som att man ökat/minskat på vartannat varv. Är det fel i beskrivningen?
16.02.2019 - 19:29DROPS Design answered:
Hei Anita. Det skal forskyves på hver omgang, så det stemmer. God fornøyelse
21.02.2019 - 08:02Nel wrote:
Dag, Ik ben met de tweede sok begonnen en heb de instructies exact gevolgd. Maar nu begrijp ik niet over welke en hoeveel steken ik de losse draad moet breien. Doordat de markers nu in steek 1 en 33 zitten ipv in steek 1 en 29 klopt het voor mijn gevoel niet helemaal. Over welke steken moet de losse draad dan tov de markeerders? Alvast bedankt.
10.01.2019 - 17:54DROPS Design answered:
Dag Nel,
De rechter sok wordt precies hetzelfde gebreid als de linker sok, maar dan omgekeerd. Omdat je over de linker sok 29 steken overhield, na het plaatsen van de losse draad, brei je nu bij de rechter sok ook over 29 die 29 steken en je zet 31 steken op de draad. Als het goed is zijn dit de 31 steken die tussen steek 1 en steek 33 zitten.
11.01.2019 - 10:17Inger wrote:
Hei! Jeg holder på å strikke høyre sokk, og har kommet til der jeg skal strikke inn en løs tråd. Når jeg teller opp de siste 31 maskene får jeg med fire masker av vrangborden som forskyves. Er det riktig? På venstre sokk ble ingen av maskene som forskyves med i hælen.
22.07.2017 - 14:27DROPS Design answered:
Hei Inger. Det er fordi forskyvningen strikkes speilvendt på den høyre sokk. God Fornøyelse!
07.08.2017 - 12:21Catherine wrote:
I believe there's an error in the placement of the markers for the right sock. They should be placed at 1st and 25th sts just like the left sock. The swirl pattern did come out reversed but just too many sts displaced. Several people inquired about this here and one person had trouble on Revelry as well. It warrants double checking and correction of the instruction for future use.
23.01.2016 - 22:13Catherine wrote:
I am half done with the second sock (right) and the socks turned out slightly different. The right sock displaces more stitches leaving 27 stitches remaining as non-displaced stitches for all 3 sizes. The left sock displaces less, leaving 31 non-displaced stitches. The foot pattern does not work for right sock because 29-33-37 stitches were displaced, not 25-29-33. Shouldn't I work a loose strand over the last 27 stitches so as not to disrupt the pattern? Is there an error in the pattern?
21.01.2016 - 07:21DROPS Design answered:
Dear Catherine, displacement is reversed on right sock - but has to be worked every round as for left sock. Happy knitting!
21.01.2016 - 11:05Catherine wrote:
Hi there, Is there a video tutorial on the closure of the heel instruction- "Work 1 round over all sts. Bind off. Sew tog heel with grafting/kitchener sts, st against st in bind-off edge." I only know grafting on live stitches still on the needles. The instruction indicates grafting on bind-off edge. Is it the same as live stitches, just imagine doing the same but on stitches that are already bound off? Am I misunderstanding the instruction? Please advise. Thank you.
02.01.2016 - 05:43DROPS Design answered:
Dear Catherine, you can use the technique for shoulder to sew toe tog. Happy knitting!
02.01.2016 - 16:21Wiedemann wrote:
Est ce une erreur de traduction mais cela fait 5 fois que je recommence le décalage sans obtenir l'effet de photo .Je n'ai pas de problème au décalage mais je n'arrive pas à obtenir que ma maille endroit soit en relief .Il me semble que pour obtenir ce résultat, je devrais croiser la maille avec la précédente et en ne faisant le décalage qu'un tour sur 2(ou 3) ?Qu'en pensez vous
06.11.2015 - 14:10DROPS Design answered:
Bonjour Mme Wiedemann, la vidéo ci-dessous montre comment faire le décalage et devrait vous aider à réaliser ce modèle. Bon tricot!
06.11.2015 - 14:20