DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Vivaldi
DROPS Vivaldi
56% Mohair, 30% Polyamide, 14% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Super Sale

October

Prjónuð peysa með laskalínu, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Delight og DROPS Vivaldi eða DROPS Delight og Brushed Alpaca Silk. Stæðir S - XXXL.

DROPS 143-23
DROPS Design: Mynstur nr de-082
Garnflokkur A + C
-----------------------------------------------------------

Stærð S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni
DROPS DELIGHT frá Garnstudio
200-250-250-300-300-350 gr litur nr 10, ólífa/ryð/plóma
Og einnig:
DROPS VIVALDI frá Garnstudio
150-150-150-200-200-200 gr litur nr 02, dökk brúnn

Eða notið:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio
150-150-150-200-200-200 g litur nr 05, beige

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 14 l og 18 umf með sléttprjóni með 1 þræði af hvorri tegund verði 10 x 10 cm.

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 5 – fyrir kant með garðaprjóni.

DROPS HORNATALA, NR 537: 8 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Vivaldi
DROPS Vivaldi
56% Mohair, 30% Polyamide, 14% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna):
*1 umf sl og 1 umf br, endurtakið frá *-*.

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir hnappagati í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l á kant slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fellið af fyrir hnappagati þegar stykkið mælist (mælt frá hálsmáli og niður):
STÆRÐ S: 2, 9, 16, 23, 30, 37, 44 og 51 cm
STÆRÐ M: 2, 9, 17, 24, 31, 39, 46 og 53 cm
STÆRÐ L: 2, 10, 17, 25, 32, 40, 47 og 55 cm
STÆRÐ XL: 2, 9, 17, 25, 33, 41, 49 og 57 cm
STÆRÐ XXL: 2, 10, 18, 26, 34, 42, 50 og 59 cm
STÆRÐ XXXL: 2, 11, 19, 27, 36, 44, 52 og 61 cm

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

LASKALÍNA:
Byrjið 4 l á undan prjónamerki: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið mynstur A.1/A.2 (prjónamerki er staðsett í miðju mynstri), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um fram- og bakstykki og ermar):
Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 l sl saman og síðan 2 l snúnar slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá hálsmáli og niður.

BERUSTYKKI:
Fitjið laust upp 80-80-88-88-92-92 l (meðtaldar 6 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna nr 5 með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir). Byrjið frá réttu og prjónið 8 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 6 og prjónið 1 umf frá réttu JAFNFRAMT er aukið út um 4-4-8-8-12-12 l jafnt yfir (aukið ekki út yfir kanta að framan) = 84-84-96-96-104-104 l. Prjónið nú sléttprjón JAFNFRAMT er prjónuð upphækkun að aftan við hnakka (1. umf = ranga og þær 6 kantlykkjur í byrjun umf eru prjónaðar sl) þannig: Prjónið þar til eftir eru 16-16-18-18-19-19 l, snúið við, herðið á þræði og prjónið þar til eftir eru 16-16-18-18-19-19 l í hinni hliðinni, snúið við, herðið á þræði, prjónið þar til eftir eru 26-26-29-29-31-31 l, snúið við, herðið á þræði og prjónið þar til eftir eru 26-26-29-29-31-31 l í hinni hliðinni, snúið við, herðið á þræði, prjónið þar til eftir eru 36-36-40-40-43-43 l, snúið við, herðið á þræði og prjónið þar til eftir eru 36-36-40-40-43-43 l í hinni hliðinni, snúið við, herðið á þræði og prjónið út umf. Nú eru sett 4 prjónamerki í stykkið fyrir laskalínu (setjið prjónamerki í stykkið án þess að prjóna) þannig: Setjið 1. prjónamerki á eftir 18-18-21-21-23-23 l (= framstykki), setjið 2. prjónamerki á eftir 12-12-12-12-12-12 l (= ermi), setjið 3. prjónamerki á eftir 21-24-30-30-34-34 l (= bakstykki) og setjið 4. prjónamerki á eftir 12-12-12-12-12-12 l (= ermi). Það eru nú 18-18-21-21-23-23 l á eftir síðasta prjónamerki á framstykki.
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Prjónið 1 umf slétt frá réttu (kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni), JAFNFRAMT er aukið út um 3 l við hvert og eitt þeim 4 prjónamerkjum þannig: Prjónið 2 l í hverja og eina af þeim 2 l innan við prjónamerki fyrir framan ermi og prjónið 2 l í l innan við prjónamerki fyrir framan fram- og bakstykki (það eru nú 12 l fleiri í umf, þ.e.a.s. 4 l við hverja ermi, 2 l á bakstykki og 1 l á hvoru framstykki) = 96-96-108-108-116-116 l.
Prjónið nú sléttprjón með 6 l í garðaprjóni í kanti í hvorri hlið við miðju að framan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
JAFNFRAMT í næstu umf frá réttu (þ.e.a.s. í fyrstu umf frá réttu eftir að aukið er út við prjónamerki), er prjónaður kaðall eftir mynstri A.1 yfir 1. og 3. prjónamerki og kaðall eftir mynstri A.2 yfir 2. og 4. prjónamerki (prjónamerkin eru staðsett í hverjum kaðli fyrir miðju). JAFNFRAMT í sömu umf frá réttu (þ.e.a.s. jafnframt er byrjað að prjóna kaðal), aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, hvoru megin við 4 prjónamerki (= 8 l fleiri). Endurtakið útaukningu fyrir lasklínu í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu), 12-16-15-19-21-25 sinnum til viðbótar og síðan í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í annarri hverri umf frá réttu) alls 2-1-2-1-1-0 sinnum = 216-240-252-276-300-324 l. Útaukning fyrir laskalínu er nú lokið. Prjónið 1 umf frá röngu eins og áður. Prjónið nú 1 umf frá réttu eins og áður JAFNFRAMT þar sem l í kaðli í mynstri A.1, eru prjónaðar slétt saman 2 og 2, og l í kaðli í mynstri A.2 eru prjónaðar snúnar slétt saman 2 og 2 (= 3 l færri í hverjum kaðli) = 204-228-240-264-288-312 l eftir á prjóni. Næsta umf er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið fram að 1. prjónamerki, setjið 42-48-48-54-58-64 l á milli 1. og 2. prjónamerkis á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar l yfir þráðinn, prjónið fram að 3. prjónamerki, setjið 42-48-48-54-58-64 l á milli 3. og 4. prjónamerkis á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar l yfir þráðinn og prjónið út umf = 132-144-156-172-188-200 l á prjóni (stykkið mælist nú ca 22-24-26-28-30-32 cm frá öxl og niður).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 6 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. JAFNFRAMT er sett 1 prjónamerki í miðju við 6-6-6-8-8-8 nýjar l í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 10 cm, er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerkin í hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA (= 4 l færri).
Endurtakið úrtöku með 12-12-12-8-8-8 cm millibili, 1-1-1-2-2-2 sinnum til viðbótar = 124-136-148-160-176-188 l. Prjónið nú áfram þar til stykkið mælist 29 cm (stykkið mælist nú ca 51-53-55-57-59-61 cm frá öxl og niður). Skiptið yfir á hringprjóna nr 5 og prjónið garðaprjón fram og til baka í 5 cm, fellið LAUST af. Stykkið mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið l af öðrum þræðinum á stutta hringprjóna nr 6 (skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörfum) og fitjið að auki upp 6-6-6-8-8-8 nýjar l undir ermi = 48-54-54-62-66-72 l. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= miðja undir ermi). Prjónið sléttprjón hringinn þar til ermin mælist 2-4-4-4-4-2 cm. Fækkið nú um 2 l við miðju undir ermi – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með 4-2½-2½-2-1½-1½ cm millibili, 8-11-10-13-14-17 sinnum til viðbótar = 30-30-32-34-36-36 l. Þegar ermin mælist 35-34-32-31-29-28 cm (styttri mæling í stærri stærðum vegna breiðari axla og víðari handvegs), skiptið yfir á sokkaprjóna nr 5. Prjónið garðaprjón hringinn í 10 cm og fellið síðan LAUST af. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermi. Saumið tölur í.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = setjið 3 lykkjur á hjálparprjón aftan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt af hjálparprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á hjálparprjón framan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt af hjálparprjóni
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 143-23

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (36)

country flag Willemien Wierenga-Bremmer wrote:

Gewijzigd online: 30.07.2013 Begin aan de goede kant en brei 8 nld in RIBBELST (= 4 ribbels) - zie uitleg boven. Kunt u ook aangeven waar deze wijziging hoort in eht patroon? Ik kan dat niet vinden. Alvast dank, Willemien

06.04.2023 - 14:51

DROPS Design answered:

Dag Willemien,

In het online patroon is de wijziging al doorgevoerd en het staat aan in een van de eerste regels onder de paragraaf 'PAS'

12.04.2023 - 20:33

country flag Julia wrote:

Hallo, ich habe eine Frage zum Stricken der Rundpasse. So wie ich das verstehe, sollte man an den vier Markierern das Zopfmuster stricken und auch dort jeweils rechts und links davon Maschen zunehmen. Stimmt das? Das würde bedeuten, ich nehme direkt im Muster Maschen dazu, sieht das nicht komisch aus? Oder ist das so zu verstehen, dass man nicht direkt neben den Markierern, sondern neben dem Muster zunimmt? Danke und viele Grüße

20.11.2020 - 18:32

DROPS Design answered:

Liebe Julia, die Markierer sind in der Mitte von den Zöpfe = 4 Maschen vor A.1/A.2 + 4 Maschen nach A.1/A.2, die Raglanzunahmen werden beidseitig von A.1/A.2 gestrickt, dh stricken Sie bis A.1/A.2, 1 Umschlag, A.1/A.2 stricken, 1 Umschlag - und so bei jedem Markierer stricken (= 8 Zunahmen pro Zunahmenrunde). Viel Spaß beim stricken!

23.11.2020 - 07:59

country flag Mireille Crick wrote:

For the pattern October, do you knit with the thread of the 2 different yarns for the whole cardigan? If so, why do you need less yarn for the 'brushed alpaca silk ' than for the 'delight'yarn? Thanks.

02.11.2020 - 17:37

DROPS Design answered:

Hi Mireille, Yes the whole garment is worked with 2 strands. The length of wool in a ball varies between the different qualities, which is why you need slightly less Silk yarn in weight than Delight. Happy knitting!

03.11.2020 - 05:49

country flag Berbett wrote:

Bonjour, Le rendu de la couleur du gilet n'est pas le même que celui du modèle présenté (delight n° 10, alpaca n°5) le rendu est plus foncé et terne. Pia.

16.07.2018 - 00:43

country flag Anja Wagner wrote:

Hallo! Ich würde gerne diese schöne Jacke stricken. Allerdings ist die Wolle Drops Vivaldi ausverkauft. Könnten Sie mir hier bitte eine Garnalternative nennen? Vielen Dank! Viele Grüße - Anja

30.05.2015 - 10:37

DROPS Design answered:

Liebe Anja, eine gute Alternative mit sehr ähnlichem und tollem Flauschcharakter ist Brushed Alpaca Silk. Ein ebenso dunkles Braun wie bei Vivaldi gibt es bei Brushed Alpaca Silk nicht, aber beige (Fb 05) würde sich stattdessen anbieten, die Jacke bekommt dann einen etwas helleren Charakter und die Farben von Delight dürften damit etwas besser zur Geltung kommen und nicht so stark gedämpft werden. Aber letztendlich sind die Farben nur Geschmackssache, lassen Sie sich einfach von den Farbpaletten inspirieren! Die benötigte Garnmenge ist übrigens identisch, Brushed Alpaca Silk und Vivaldi haben auf 50 m gerechnet dieselbe Lauflänge.

30.05.2015 - 11:08

country flag Gertrud wrote:

Für diese Jacke habe ich mich entschieden, die werde ich stricken. Find sie einfach schön!

10.10.2014 - 16:13

country flag ClaraTejeteje wrote:

En la situación de tener 96p tras realizar los aumentos: 18 p+1 Primer MP +2 12p+2 Segundo MP +1 24p +1 Tercer MP +2 12p +2 Cuarto MP +1 18 p ¿El diagrama A1 o el A2, no sé, no debería estar entre Primer y Segundo MP y entre Tercer y Cuarto MP? No entiendo que estén los MP en el centro de las torsadas...¿Cuál diagrama en cuál? ¿Y dónde se empieza? Entre los marcapuntos primero y segundo tras los aumentos hay 2p+12+2p, un total de 16 p y el diagrama tiene 8p...,¿Centrado?

08.10.2014 - 10:37

DROPS Design answered:

Hola Clara. Los MP se colocan de la misma manera: 18 pts - MP - 12 pts - MP - 24 pts - MP - 12 pts - MP - 18 pts. Las trenzas (torzadas) están SOBRE (no entre) los MP. Los MP están en el centro de los pts de la trenza. Los diagramas te vienen debajo del patrón. Si tienes alguna dificultad para seguir el patrón te recomendamos acudir a la tienda más cercana de Drops.

13.10.2014 - 12:55

country flag Sabine wrote:

Bonjour, J'aimerai tricoter ce modèle en pull avec Drops Delight n0 17 "framboisier" en l'associant avec un autre fil. Quelle couleur en Vivaldi et en Brush Alpaca Silk conviendraient ? Merci

25.09.2014 - 11:03

DROPS Design answered:

Bonjour Sabine, pensez à contacter votre magasin DROPS (ses coordonnées mail et téléphone se trouvent dans la liste des détaillants en Suisse) - il pourra vous renseigner sur les associations possibles. Bon tricot!

25.09.2014 - 13:52

country flag Marie wrote:

Merci de votre réponse aussi rapide, je mls mets de ce pas. Jevous tiens au courant. Merci encore.Marie

25.07.2014 - 21:36

country flag Marie wrote:

Bonjour, j, ai un problème pour ce modèle, le raglan J'ai mis les marqueurs. Il faut ensuite tricoter 3 m à chacun des 4 marqueurs, tricoter 2 fois chacune des 2m avant/après les marqueurs côté manches, idem pour le dos. Si je dois tricoter 2 fois 2 m avant et après cela me fait 4m et pas 3 comme indiqué. A ce moment la on ne parle pas encore du diagramme. Je commence le diagramme après la première augmentation? ? Merci de m'éclairer. Marie

25.07.2014 - 12:06

DROPS Design answered:

Bonjour Marie, les premières augmentations se font: 1 m avant le 1er marqueur (devant), 2 m après le 1er marqueur, 2 m avant le 2ème marqueur (manche), 1 m après le 2ème marqueur et 1 m avant le 3ème marqueur (dos), 2 m après le 3ème marqueur et 1 m avant le 4ème marqueur (manche) et 1 m après les 4ème marqueur (devant). Tricotez 1 rang sur l'env et continuez en suiv les diag. comme indiqué. Bon tricot!

25.07.2014 - 14:31