Sand Diamond Cardigan |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Daisy eða DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, v-hálsmáli, gatamynstri og ¾ löngum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 248-5 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.8. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: RÉTTA: Prjónið 10 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykki og prjónið 1 lykkju slétt. RANGA: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 10 lykkjur í garðaprjóni. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: RÉTTA: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 10 lykkjur í garðaprjóni. RANGA: Prjónið 10 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykki og prjónið 1 lykkju slétt. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan frá réttu. UMFERÐ 1: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 síðustu lykkjur frá kanti að framan eins og áður. UMFERÐ 2: Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar öll útaukning fyrir v-hálsmáli er lokið (framstykkið mælist 23 cm, mælt efst frá öxl), síðan er fellt af fyrir hnappagötum þegar framstykkið mælist (mælt efst frá öxl): S: 29, 36 og 43 cm M: 30, 38 og 45 cm L: 30, 39 og 47 cm XL: 30, 39 og 48 cm XXL: 31, 40 og 50 cm XXXL: 31, 41 og 52 cm (= fellt er af fyrir síðasta hnappagatinu í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs neðst á framstykki). ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir (á undan lykkju með merki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt (merkiþráðurinn situr í þessari lykkju), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka, ofan frá og niður. Byrjað er á að prjóna 2 lausa kanta að framan. Lykkjur eru fitjaðar upp fyrir hálsmáli á milli lausu kantana að framan og prjónað er fram og til baka. Berustykkið er prjónað ofan frá og niður, fram og til baka á hringprjóna. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Eftir fram- og bakstykki eru ermar prjónaðar niður á við í hring á hringprjóna / sokkaprjóna. Kantar að framan frá hvoru framstykki eru saumaðir saman, saumur = mitt að aftan, kantar að framan eru saumaðir við lykkjur í kringum hálsmál. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN (hægri = séð þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp 12 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Daisy eða DROPS Merino Extra Fine. Prjónið HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 4 cm, prjónið 2 fyrstu lykkjur frá réttu slétt saman (gagnstæð hlið á I-cord), fækkið lykkjum svona í 3. hverjum cm alls 5 sinnum = 7 kantlykkjur að framan. Haldið áfram þar til kantur að framan mælist 21 cm í öllum stærðum, endið eftir 1 umferð slétt frá röngu. Klippið þráðinn og leggið stykkið til hliðar. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN (vinstri = séð þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp 12 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Daisy eða DROPS Merino Extra Fine. Prjónið VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 4 cm, prjónið 2 síðustu lykkjur frá réttu slétt saman (gangstæð hlið á I-cord), fækkið lykkjum svona í 3. hverjum cm alls 5 sinnum = 7 kantlykkjur að framan. Haldið áfram þar til kantur að framan mælist 21 cm í öllum stærðum, endið eftir 1 umferð slétt frá réttu, en ekki klippa þráðinn. Haldið áfram frá umferð með vinstri kanti að framan. Nú eru fitjaðar upp 99-99-99-103-103-103 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar, síðan eru prjónaðar 7 lykkjur frá hægri kanti að framan inn í umferð = 113-113-113-117-117-117 lykkjur. Prjónið 1 umferð frá röngu yfir allar lykkjur, prjónið brugðið yfir nýjar 99-99-99-103-103-103 lykkjur og haldið áfram með kantlykkjur að framan eins og áður yfir 7 lykkjur í hvorri hlið. UPPLÝSINGAR ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM: FRAMSTYKKI OG BAKSTYKKI: Á framstykki og bakstykki er prjónað gatamynstur eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Útaukning fyrir V-hálsmáli og laskalínu er teiknuð í mynsturteikningu. Þegar A.2, A.3 og A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið 1 mynstureiningu til viðbótar af A.3 á milli A.2 og A.4. ERMAR: Á ermum er prjónað sléttprjón og aukið út eins og útskýrt er í LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan. BERUSTYKKI: Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 7 kantlykkjur að framan eins og áður, A.1, 2 lykkjur í garðaprjóni – lesið útskýringu að ofan, 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan, 20-20-20-22-22-22 lykkjur sléttprjón, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur í garðaprjóni, A.2, A.3 yfir næstu 20-20-20-30-30-30 lykkjur sléttprjón, A.4, 2 lykkjur í garðaprjóni, 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, 20-20-20-22-22-22 lykkjur sléttprjón, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur í garðaprjóni, A.1, 7 kantlykkjur að framan eins og áður. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! FINNDU ÞÍNA STÆRÐ: Prjónið síðan mynstur og aukið út mismunandi eftir stærðum, prjónaðu eftir þinni stærð að neðan. STÆRÐ S: Aukið út fyrir laskalínu og prjónið mynstur eins og útskýrt er að neðan – þetta er gert samtímis, lestu bæði LASKALÍNA og MYNSTUR áður en þú prjónar áfram. LASKALÍNA: Aukið út innan við 2 lykkjur sléttprjón í hvorri hlið á ermum þannig: Aukið út í annarri hverri umferð 4 sinnum, síðan í 4. hverri umferð 10 sinnum = 14 útaukningar í hvorri hlið á ermi. MYNSTUR: Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, hefur öll útaukning verið gerð til loka = 289 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 7 kantlykkjur að framan, A.3 yfir næstu 40 lykkjur, prjónið fyrstu lykkju í A.3, 2 lykkjur í garðaprjóni, prjónið sléttprjón yfir lykkjur fyrir ermi, 2 lykkjur í garðaprjóni, A.3 yfir næstu 80 lykkjur, prjónið fyrstu lykkju í A.3, 2 lykkjur í garðaprjóni, prjónið sléttprjón yfir lykkjur fyrir ermi, 2 lykkjur í garðaprjóni, A.3 yfir næstu 40 lykkjur, prjónið fyrstu lykkju í A.3, 7 kantlykkjur að framan – JAFNFRAMT í þessari umferð byrjar affelling fyrir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan! Prjónið A.3 alls 1 sinni á hæðina, stykkið mælist ca 27 cm frá öxl. Prjónið síðan frá SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR. STÆRÐ M-L: Aukið út fyrir laskalínu og prjónið mynstur eins og útskýrt er að neðan – þetta er gert samtímis, lestu bæði LASKALÍNA og MYNSTUR áður en þú prjónar áfram. LASKALÍNA: Aukið út innan við 2 lykkjur sléttprjón í hvorri hlið á ermum þannig: Aukið út í annarri hverri umferð 3-2 sinnum, síðan í 4. hverri umferð 13-13 sinnum = 16-15 útaukningar í hvorri hlið á ermi. MYNSTUR: Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, hefur öll útaukning við miðju að framan verið gerð til loka, en síðan á að auka út fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 7 kantlykkjur að framan, A.3 yfir næstu 30 lykkjur, prjónið A.4, 2 lykkjur í garðaprjóni, prjónið og aukið út eins og áður yfir lykkjur fyrir ermi, 2 lykkjur í garðaprjóni, A.2, A.3 yfir næstu 60 lykkjur, A.4, 2 lykkjur í garðaprjóni, prjónið og aukið út eins og áður yfir lykkjur fyrir ermi, 2 lykkjur í garðaprjóni, A.2, A.3 yfir næstu 30 lykkjur, prjónið fyrstu lykkju í A.3, 7 kantlykkjur að framan – JAFNFRAMT í þessari umferð byrjar affelling fyrir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan! Haldið áfram með útaukningu með þessum hætti þar til A.2, A.3 og A.4 hefur verið prjónað 1-1 sinni á hæðina. Öll útaukning er nú lokið. Það eru alls 317-313 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 27-27 cm frá öxl. Prjónið síðan frá SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR. STÆRÐ XL - XXL: Aukið út fyrir laskalínu og prjónið mynstur eins og útskýrt er að neðan – þetta er gert samtímis, lestu bæði LASKALÍNA og MYNSTUR áður en þú prjónar áfram. LASKALÍNA: Aukið út innan við 2 lykkjur sléttprjón í hvorri hlið á ermum þannig: Aukið út í annarri hverri umferð 11-7 sinnum, síðan í 4. hverri umferð 12-14 sinnum = 23-21útaukningar í hvorri hlið á ermi. MYNSTUR: Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, hefur öll útaukning við miðju að framan verið gerð til loka, en síðan á að auka út fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 7 kantlykkjur að framan, A.3 yfir næstu 30 lykkjur, prjónið A.4, 2 lykkjur í garðaprjóni, prjónið og aukið út eins og áður yfir lykkjur fyrir ermi, 2 lykkjur í garðaprjóni, A.2, A.3 yfir næstu 60 lykkjur, A.4, 2 lykkjur í garðaprjóni, prjónið og aukið út eins og áður yfir lykkjur fyrir ermi, 2 lykkjur í garðaprjóni, A.2, A.3 yfir næstu 30 lykkjur, prjónið fyrstu lykkju í A.3, 7 kantlykkjur að framan – JAFNFRAMT í þessari umferð byrjar affelling fyrir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan! Haldið áfram með útaukningu með þessum hætti þar til A.2, A.3 og A.4 hefur verið prjónað 1-1 sinni á hæðina. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 7 kantlykkjur að framan, A.5, A.3 yfir næstu 30 lykkjur, prjónið A.4, 2 lykkjur í garðaprjóni, prjónið og aukið út eins og áður yfir lykkjur fyrir ermi, 2 lykkjur í garðaprjóni, A.2, A.3 yfir næstu 70 lykkjur, A.4, 2 lykkjur í garðaprjóni, prjónið og aukið út eins og áður yfir lykkjur fyrir ermi, 2 lykkjur í garðaprjóni, A.2, A.3 yfir næstu 30 lykkjur, A.6, 7 kantlykkjur að framan. Haldið áfram með útaukningu með þessum hætti þar til A.2, A.3 og A.4 hefur verið prjónað 1-1 sinni á hæðina. Öll útaukning er nú lokið. Það eru alls 369-361 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 32-32 cm frá öxl. Prjónið síðan frá SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR. STÆRÐ XXXL: Aukið út fyrir laskalínu og prjónið mynstur eins og útskýrt er að neðan – þetta er gert samtímis, lestu bæði LASKALÍNA og MYNSTUR áður en þú prjónar áfram. LASKALÍNA: Aukið út innan við 2 lykkjur sléttprjón í hvorri hlið á ermum þannig: Aukið út í annarri hverri umferð 6 sinnum, síðan í 4. hverri umferð 17 sinnum = 23 útaukningar í hvorri hlið á ermi. MYNSTUR: Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, hefur öll útaukning við miðju að framan verið gerð til loka, en síðan á að auka út fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 7 kantlykkjur að framan, A.3 yfir næstu 30 lykkjur, prjónið A.4, 2 lykkjur í garðaprjóni, prjónið og aukið út eins og áður yfir lykkjur fyrir ermi, 2 lykkjur í garðaprjóni, A.2, A.3 yfir næstu 60 lykkjur, A.4, 2 lykkjur í garðaprjóni, prjónið og aukið út eins og áður yfir lykkjur fyrir ermi, 2 lykkjur í garðaprjóni, A.2, A.3 yfir næstu 30 lykkjur, prjónið fyrstu lykkju í A.3, 7 kantlykkjur að framan – JAFNFRAMT í þessari umferð byrjar affelling fyrir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan! Haldið áfram með útaukningu með þessum hætti þar til A.2, A.3 og A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 7 kantlykkjur að framan, A.5, A.3 yfir næstu 30 lykkjur, prjónið A.4, 2 lykkjur í garðaprjóni, prjónið og aukið út eins og áður yfir lykkjur fyrir ermi, 2 lykkjur í garðaprjóni, A.2, A.3 yfir næstu 70 lykkjur, A.4, 2 lykkjur í garðaprjóni, prjónið og aukið út eins og áður yfir lykkjur fyrir ermi, 2 lykkjur í garðaprjóni, A.2, A.3 yfir næstu 30 lykkjur, A.6, 7 kantlykkjur að framan. Haldið áfram með útaukningu með þessum hætti þar til A.2, A.3 og A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 7 kantlykkjur að framan, A.3 yfir næstu 40 lykkjur, prjónið A.4, 2 lykkjur í garðaprjóni, prjónið og aukið út eins og áður yfir lykkjur fyrir ermi, 2 lykkjur í garðaprjóni, A.2, A.3 yfir næstu 80 lykkjur, A.4, 2 lykkjur í garðaprjóni, prjónið og aukið út eins og áður yfir lykkjur fyrir ermi, 2 lykkjur í garðaprjóni, A.2, A.3 yfir næstu 40 lykkjur, prjónið fyrstu lykkju í A.3, 7 kantlykkjur að framan. Haldið áfram með útaukningu með þessum hætti þar til A.2, A.3 og A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina. Öll útaukning er nú lokið. Það eru alls 389 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 36 cm frá öxl. Prjónið síðan frá SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR – ALLAR STÆRÐIR: Prjónið frá réttu þannig: Prjónið kantlykkjur að framan og slétt yfir fyrstu 50-55-55-60-60-65 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið næstu 52-56-54-72-68-72 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 15-15-25-15-25-25 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið slétt yfir næstu 85-95-95-105-105-115 lykkjur (bakstykki), setjið næstu 52-56-54-72-68-72 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 15-15-25-15-25-25 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið slétt yfir síðustu 50-55-55-60-60-65 lykkjur (= hægra framstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI ALLAR STÆRÐIR: = 215-235-255-255-275-295 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið umferð 2 í A.3 með 7 kantlykkjum að framan í hvorri hlið eins og áður. FINNDU ÞÍNA STÆRÐ: Prjónaðu síðan eftir þinni stærð að neðan: STÆRÐ S - M - L- XXXL: ATH! Í fyrsta skipti sem er prjónað, er byrjað í umferð 3 í mynsturteikningu. * Prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður, A.5, A.3 þar til 13 lykkjur eru eftir, prjónið A.6 og 7 kantlykkjur að framan eins og áður. Prjónið mynsturteikningu 1 sinni á hæðina. Prjónið síðan 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið A.7, A.3 þar til 18 lykkjur eru eftir, prjónið A.8 og 7 kantlykkjur að framan eins og áður. Prjónið mynsturteikningu 1 sinni á hæðina *. Prjónið frá *-* þar til stykkið mælist 16-18-20-16 cm, stillið af eftir heilli mynstureiningu af A.3 á hæðina. Prjónið síðan frá ALLAR STÆRÐIR. STÆRÐ XL - XXL: ATH! Í fyrsta skipti sem er prjónað, er byrjað í umferð 3 í mynsturteikningu. * Prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður, A.7, A.3 þar til 18 lykkjur eru eftir, prjónið A.8 og 7 kantlykkjur að framan eins og áður. Prjónið mynsturteikningu 1 sinni á hæðina. Prjónið síðan 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið A.5, A.3 þar til 13 lykkjur eru eftir, prjónið A.6 og 7 kantlykkjur að framan eins og áður. Prjónið mynsturteikningu 1 sinni á hæðina *. Prjónið frá *-* þar til stykkið mælist 18-16 cm, stillið af eftir heilli mynstureiningu af A.3 á hæðina. Prjónið síðan frá ALLAR STÆRÐIR. ALLAR STÆRÐIR: Í næstu umferð (= rétta) byrjar stroff JAFNFRAMT því er aukið út um 42-42-48-48-48-58 lykkjur jafnt yfir í umferð = 257-277-303-303-323-353 lykkjur, prjónið þannig: Prjónið síðan með hringprjón 3, prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukning) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 7 kantlykkjur að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 5-5-5-6-6-6 cm, fellið af. Peysan mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm frá öxl. ERMAR: Setjið 52-56-54-72-68-72 lykkjur frá ermi af öðrum þræðinum á hringprjón 4, prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 15-15-25-15-25-25 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 67-71-79-87-93-97 lykkjur. Setjið 1 merki í miðju af 15-15-25-15-25-25 lykkjum undir ermi – umferðin byrjar á undan lykkju með merki. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingunni, er lykkjum fækkað mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA, endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 8-8-9-6-6-6 cm = 63-67-75-83-89-93 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 15-16-17-12-13-10 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 13-13-15-17-19-19 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 76-80-90-100-108-112 lykkjur. Fellið af þegar stroffið mælist 5-5-5-6-6-6 cm. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstra framstykki. Kantar að framan frá hvoru framstykki eru saumaðir saman – saumur = mitt að aftan, saumið síðan kanta að framan við lykkjur í kringum hálsmál. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (53)
Susanne Storm Hansen wrote:
Mit spørgsmål fra igår er løst. Men jeg kan ikke få de 99 masker til at passe med opskriften i str M. Som jeg ser det er der 56 m til ærmer (iregnet 4 m før og 4 m efter altså 16 m ialt) plus 33 m til mønster og 8 til raglan ialt kun 97. Hvad er der galt ?????????
06.05.2024 - 21:25Linda wrote:
The first row of the yoke adds up to 93 stitches, not the 103 I have between bands. Maybe there is one pattern block left out? Can't continue without knowing.
06.05.2024 - 15:13DROPS Design answered:
Dear Linda, work the 117 sts (size XL) as follows: 7 sts front band, A.1 (= 1 st), 2 sts garter stitch, knit 2, 22 sts stocking stitch, knit 2, 2 sts garter stitch, A.2 (10 sts), repeat A.2 over the next 20 sts (2 times), A.4 (= 11 sts), 2 sts garter stitch, knit 2, 22 sts stocking st, knit 2, 2 sts garter stitch, A.1 (= 1 st) , 7 sts front band = 7+1+2+2+22+2+2+10+20+11+2+2+22+2+2+1+7=117 sts - but remember you will increase for the raglan as explained in the written pattern. Happy knitting!
06.05.2024 - 15:45Linda wrote:
I have knitted the bands, about to start the yoke but I cannot see how to do this- adding up the stitches I will have 10 too many. This doesn't appear to factor in the different sizes either. I am working size XL
06.05.2024 - 14:22DROPS Design answered:
Dear Linda, in XL you should have: 7 sts for left front band, then cast on 103 sts and work the 7 sts of right front piece = 117 sts in total. Note that the 12 sts cast on for each front band piece are decreased to 7 sts (you decrease a total of 5 sts on each front band). Happy knitting!
06.05.2024 - 15:40Susanne Storm Hansen wrote:
Når de to forkanter er strikket og masker er slået op imellem skal jeg slutte med en pind vrang. Så skal A 1 strikkes og der skal man starte med ret fra vrangsiden. Men man er på en retpind. Hvad gør man ???? Mvh Susanne
05.05.2024 - 22:22Kari wrote:
Jag menade hur många maskor som jag ska ha i stl XL på stickan innan jag går vidare till respektive storlek, efter att ha stickat A1 klart. 369 maskor är när hela oket är klart?
04.05.2024 - 08:06Sigrid Van Impe wrote:
Ik maakte ondertussen een proeflapje enkel van het design...en inderdaad het klopt als een bus...en het is supermooi 😁
03.05.2024 - 21:09Maggan wrote:
Hej. Stickar M Har sammanlagt 259 m.(7,41,2,56,2,43,2,56,2,41,7)
03.05.2024 - 18:06Marjut Svala wrote:
Hej, Det står att mönstret är uppdaterat (diagram A.2) ska finnas 'on line'. Det går inte att komma vidare på detta. Går det bra att följa mönstret utan att sett uppdateringen?
03.05.2024 - 15:35DROPS Design answered:
Hei Marjut. Litt usikker på hva du mener. Diagram A.2 ble oppdatert 29. februar 2024 og det er kun den oppdaterte versjonene som du ser online. mvh DROPS Design
06.05.2024 - 08:34Sigrid Van Impe wrote:
Bij het telpatroon A2 in de derde rij staat brei een omslag - 1steek afhalen 1 recht breien en de afgehaald steek over halen - 1 omslag. In de terugnaald staat daar brei 2 rechte mieten dat er geen drie zijn?
02.05.2024 - 14:53DROPS Design answered:
Dag Sigrid,
Doordat je in de driehoek in het midden 2 steken mindert, minder je dus (met de steek overhalen aan het begin) in totaal 3 steken. Er staan ook 3 omslagen in die rij, dus het totaal aantal steken blijft hetzelfde op de volgende toer.
03.05.2024 - 20:24Marggan wrote:
Stickat A1. Kommer inte vidare. Ser inte i beskrivningen att man ska öka något på oket utan bara bara på ärmarna. Har jag missuppfattat något?Förstår inte hur jag ska göra på första varvet efter A1 då jag inte har så många maskor som behövs efter beskrivningen.
01.05.2024 - 13:16DROPS Design answered:
Hej Marggan, jo efter A.1 fortsætter du udtagningerne ifølge A.2 og A.4 (med A.3 i midten) de vil da stemme over mønsteret du har strikket ifølge A.1. Hvis du skriver hvilken størrelse du strikker, hvor mange masker du har, så kan vi hjælpe dig med første pind :)
03.05.2024 - 14:18