DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12276.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Red Tape

Prjónuð peysa úr DROPS Wish eða DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, laskalínu og röndum. Stærð S - XXXL.

DROPS 236-22
DROPS Design: Mynstur wi-050
Garnflokkur E eða C + C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS WISH frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
400-450-500-550-600-650 g litur 01, natur
50-50-100-100-100-100 g litur 11, tabasco

Eða notið:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
400-450-500-550-600-650 g litur 01, natur
50-50-100-100-100-100 g litur 13, appelsína

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 8: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 6: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 8.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 6.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
11 lykkjur á breidd og 15 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12276.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 lykkju með því að taka upp lykkju frá fyrri umferð, prjónið þessa lykkju slétt.

LASKALÍNA:
Mismunandi er aukið út á fram- og bakstykki og ermum eftir stærðum.
Öll útaukning er gerð á undan/eftir 3 lykkjur í sléttprjóni (lykkja með prjónamerki er miðjulykkja af þessum 3 lykkjum).
Aukið út fyrir fram- og bakstykki á undan 3. og 1. prjónamerki og á eftir 2. og 4. prjónamerki.
Aukið út fyrir ermar á eftir 3. og 1. prjónamerki og á undan 4. og 2. prjónamerki.
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn.

Þegar prjónað er fram og til baka er uppslátturinn prjónaður frá röngu þannig:
Á UNDAN PRJÓNAMFERKI:
Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann. Það eiga ekki að myndast göt.
Á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann. Það eiga ekki að myndast göt.

Þegar prjónað er í hring er uppslátturinn í næstu umferð þannig:
Á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann (uppslátturinn snýr til hægri). Það eiga ekki að myndast göt.
Á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann (uppslátturinn snýr til vinstri). Það eiga ekki að myndast göt.

RENDUR Á FRAM- OG BAKSTYKKI:
* 4 umferðir með litnum tabasco / appelsína, 8 umferðir með litnum natur/natur*, prjónið frá *-* alls 2 sinnum á hæðina, prjónið 4 umferðir með litnum tabasco/appelsína. Prjónið síðan með litnum natur/natur að loka máli.

RENDUR Á ERMI:
* 4 umferðir með litnum tabasco, 8 umferðir með litnum natur *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum á hæðina, prjónið 4 umferðir með litnum tabasco. Prjónið síðan með litnum natur að loka máli.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 60-64-64-68-68-72 lykkjur með litnum natur úr DROPS Wish eða litnum natur DROPS Air yfir stuttan hringprjón 6 og stuttan hringprjón 8 sem haldið er saman. Dragið út stuttan hringprjón 8 og haldið eftir lykkjum á stuttum hringprjóni 6 (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 9 cm.
Brjótið nú stroffið inn þannig að kanturinn verði teygjanlegur – prjónið síðan næstu umferð í stroffprjóni eins og áður jafnframt því sem önnur hver lykkja er prjónuð saman með annarri hverri lykkju frá uppfitjunarkanti. Nú hefur myndast tvöfaldur kantur í hálsmáli.

STÆRÐ S, M og L:
Setjið 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna umferðina).
Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu.
Teljið 8-8-8 lykkjur (hálft bakstykki), setjið 1. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 13 lykkjur (ermi), setjið 2. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 15-17-17 lykkjur (framstykki), setjið 3. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 13 lykkjur (ermi), setjið 4. prjónamerki í næstu lykkju, það eru 7-9-9 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki (hálft bakstykki). Klippið þráðinn. Farðu áfram í HÁLSMÁL.

STÆRÐ XL, XXL og XXXL:
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-8-8 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 72-76-80 lykkjur. Setjið síðan 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna umferðina). Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu.
Teljið 10-10-12 lykkjur (hálft bakstykki), setjið 1. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 15 lykkjur (ermi), setjið 2. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 19-21-23 lykkjur (framstykki), setjið 3. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 15 lykkjur (ermi), setjið 4. prjónamerki í næstu lykkju, það eru 9-11-11 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki (hálft bakstykki).
Klippið þráðinn. Farðu áfram í HÁLSMÁL.

HÁLSMÁL:
Skiptið yfir á hringprjón 8. Nú er prjónað hálsmál með stuttum umferðum JAFNFRAMT því sem aukið er út fyrir laskalínu – þetta er gert eins og útskýrt er að neðan.
Byrjið frá réttu, 2 lykkjur á undan lykkju með 3. prjónamerki (þ.e.a.s. í vinstri hlið á hálsmáli að framan, séð þegar flíkin er mátuð). Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá lykkju með 2. prjónamerki (hægri hlið í hálsmáli að framan – nú hafa verið auknar út 8 lykkjur fyrir laskalínu).
Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka frá röngu þar til prjónaðar hafa verið 5 lykkjur fram hjá 3. prjónamerki.
Snúið stykkinu og prjónið til baka frá réttu þar til prjónaðar hafa verið 5 lykkjur fram hjá 2. prjónamerki – munið eftir útaukningu fyrir laskalínu.
Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka frá röngu þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá 3. prjónamerki. Klippið þráðinn.
Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

BERUSTYKKI:
= 76-80-80-88-92-96 lykkjur.
Byrjið mitt að aftan og haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 3-6-7-7-5-6 sinnum (meðtalin útaukning í stuttum umferðum) = 84-112-120-128-116-128 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og útaukningu fyrir laskalínu, en í annað hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á fram- og bakstykki (4 lykkjur fleiri í umferð). Þ.e.a.s. aukið er út á fram- og bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð. Aukið svona út alls 12-10-10-12-16-16 sinnum á fram- og bakstykki (6-5-5-6-8-8 sinnum á ermum).
Nú hefur verið aukið út alls 15-16-17-19-21-22 sinnum á fram- og bakstykki og 9-11-12-13-13-14 sinnum á ermum.
Á eftir síðustu útaukningu eru 156-172-180-200-212-224 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón án útaukninga þar til stykkið mælist 21-23-25-26-28-30 cm mitt að framan – mælt eftir stroffi í hálsmáli.

Berustykkið skiptist nú fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið 25-26-27-31-33-36 lykkjur sléttprjón (hálft bakstykki), setjið næstu 29-33-35-39-39-41 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 49-53-55-61-67-71 lykkjur sléttprjón (framstykki), setjið næstu 29-33-35-39-39-41 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið síðustu 24-27-28-30-34-35 lykkjur í sléttprjóni (hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 110-118-126-138-150-162 lykkjur. Prjónið 1 umferð sléttprjón. Prjónið síðan RENDUR Á FRAM- OG BAKSTYKKI – sjá útskýringu að ofan. Þegar rendur hafa verið prjónaðar til loka, prjónið sléttprjón með litnum natur/natur þar til stykkið mælist 20 cm frá skiptingu.
Prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 16-18-18-20-22-24 lykkjur jafnt yfir = 126-136-144-158-172-186 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 29-33-35-39-39-41 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 8 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-8-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 35-39-43-47-47-51 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6-6-8-8-8-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi.
Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið 1 umferð sléttprjón. Síðan er prjónaðar RENDUR Á ERMI – sjá útskýringu að ofan. Þegar rendur hafa verið prjónaðar til loka, prjónið sléttprjón með litnum natur/natur.
JAFNFRAMT þegar ermin mælist 4-4-4-3-3-3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 10-7-4-4-4-3 cm millibili alls 3-4-6-7-6-8 sinnum = 29-31-31-33-35-35 lykkjur.
Prjónið þar til ermin mælist 31-29-28-29-28-26 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 12 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff.
Prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 9-9-11-9-9-11 lykkjur jafnt yfir = 38-40-42-42-44-46 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 6. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 12 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 43-41-40-41-40-38 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Red Tape

Alvringar, Poland

Red Tape

Anna, Poland

Red Tape

SoftStop, Sweden

Skrifaðu athugasemd um DROPS 236-22

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (19)

country flag Veerle wrote:

Het minderen voor de mouwen in maat S, is dat dus op 4 cm, 14 cm en 24 cm? (Gemeten vanaf de eerste rij tricotsteek NA de pas)?

30.12.2023 - 20:07

DROPS Design answered:

Dag Veerle,

Ja, dat klopt helemaal!

01.01.2024 - 13:12

country flag Veerle wrote:

Ik brei de trui in maat S. Kan het zijn dat - NA het breien van de halslijn (verkorte toeren) er nog 6 steken van de dubbelgebreide kraag niet meegebreid werden in de verkorte toeren, en dat die pas bij het breien van de PAS voor het eerst verder gebreid worden ? Deze 6 steken bevinden zich aan de midden voorkant. Ik ben in elk geval geëindigd met 76 steken. Dank alvast voor het antwoord.

19.12.2023 - 09:24

country flag Nina Alfredsson wrote:

Hej! Jag undrar lite över markörerna. Det står att 1:a markören skall vara efter halva bakstycket,2:a efter ärm och 3:e efter framstycket. Sedan startas halsringningen vid 3:e markören och att det då är vänster sida om man ha tröjan på. Menar ni att man skall tänka sig att man ser tröjan på någon annan - då blir det vänster sida för mig. Om jag räknar rätt borde väl 3:e markören hamna på höger sida (innan hö ärm) om jag själv tänker att jag har tröjan på? /Nina

13.08.2023 - 18:25

country flag Anna wrote:

Hej! Nie rozumiem tej części:KARCZEK: = 76-80-80-88-92-96 oczek. Zaczynając na środku tyłu, dalej przerabiać na okrągło dżersejem, dodając na reglan w sumie 3-6-7-7-5-6 razy co 2 okrążenia (w tym dodawanie oczek w rzędach skróconych) = 84-112-120-128-116-128 oczek. Dlaczego po 3 krotnym dodaniu oczek nie mamy ich na końcu 76+3x8=100?

28.02.2023 - 16:52

DROPS Design answered:

Witaj Aniu, w najmniejszym rozmiarze jest 60 o. na dekolt. Następnie przerabiamy rzędy skrócone na dekolt, jednocześnie dodając oczka na reglan 2 razy (w każdym rzędzie przerabianym na prawo): 60+(8x2)=76 o. Karczek zaczynamy liczbą 76 o. „dalej przerabiać na okrągło dżersejem, dodając na reglan w sumie 3-6-7-7-5-6 razy co 2 okrążenia (w tym dodawanie oczek w rzędach skróconych) = 84 o.” > w rozmiarze S zostaje nam tylko 1 okrążenie z dodawaniem oczek (2 już wykonaliśmy w rzędach skróconych): 76+8=84 oczka. Pozdrawiamy!

01.03.2023 - 09:16

country flag Sylvie Lachance wrote:

Oui, j'ai acheté la laine Wish, et mon échantillon était parfait. Il m'a manqué de laine pour 3 rayures sur une manche. C'est quand même beaucoup...

26.01.2023 - 18:05

country flag Sylvie Lachance wrote:

J'ai acheté les quantités de laine recommandées, selon ce patron, pour la taille medium. Il m'a manqué 1 balle pour terminer les rayures. Dommage de payer à nouveau les frais d'envoi pour une seule balle... Pourriez-vous corriger l'info afin d'éviter à d'autres d'être déçus? Merci!

26.01.2023 - 16:39

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lachance, avez-vous tricoté en DROPS Wish? Aviez-vous bien le bon échantillon en largeur mais aussi en hauteur? soit 11 mailles x 15 rangs jersey = 10 x10 cm, une différence même légère peut jouer sur la quantité totale. Merci.

26.01.2023 - 16:48

country flag Sylvie Lachance wrote:

J'ai acheté les quantités de laine recommandées, selon ce patron, pour la taille medium. Il m'a manqué 1 balle pour terminer les rayures. Dommage de payer à nouveau les frais d'envoi pour une seule balle... Pourriez-vous corriger l'info afin d'éviter à d'autres d'être déçus? Merci!

26.01.2023 - 16:38

country flag Lila wrote:

Hallo zusammen :-) Habe ich es richtig verstanden, dass bei den verkürzten Reihen nur bei den Hinreihen zugenommen wird? Aber nicht bei den Rückreihen? Ich wollte außerdem lieber aus tiefer gestochenen Maschen zunehmen. Ändert das was an der Passform des Pullovers? Haut das hin? Ich würde mich sehr über Hilfe freuen ! Liebe Grüße

24.01.2023 - 15:28

DROPS Design answered:

Liebe Lila, für die Zunahmen, am besten versuchen Sie auf Ihrer Maschenprobe, so lange es Ihnen gefällt, dann ist es auch richtig - beachten Sie nur, daß Sie die richtigen Maschenanzahl zunehmen (je nach Wunsch) - aber dann sind die Raglanlinien verschieden als im Bild hier. Viel Spaßb eim stricken!

24.01.2023 - 16:51

country flag Lila wrote:

Hallo zusammen :-) Habe ich es richtig verstanden, dass bei den verkürzten Reihen nur bei den Hinreihen zugenommen wird? Aber nicht bei den Rückreihen? Ich wollte außerdem lieber aus tiefer gestochenen Maschen zunehmen. Ändert das was an der Passform des Pullovers? Haut das hin? Ich würde mich sehr über Hilfe freuen ! Liebe Grüße

24.01.2023 - 15:28

DROPS Design answered:

Liebe Lila, ja ganz genau, es wird nur bei den Hinreihen zugenommen, dh 16 Maschen werden insgesamt zugenommen wenn die verkürzten Reihen gestrickt sind. Viel Spaß beim stricken!

24.01.2023 - 16:48

country flag Lila wrote:

Wo sind die 6 Maschen des angeschlagenen Halsausschnittes bei Größe M (64 Maschen) hin? Bei der Verteilung der Maschenmarkierer IN den Maschen komme ich in der Beschreibung nur auf 58 Maschen bei Größe M. Anschlagen sollte ich beim Halsausschnitt aber 64? Ist hier ein Fehler in der Anleitung?

22.01.2023 - 15:00

DROPS Design answered:

Liebe Lila, die Markierungen werden in je einer Masche eingesetzt, so haben Sie: 8 M (1/2 Rückenteil), 1 M mit einem Markierer, 13 M (Ärmel), 1 M mit einem Markierer, 17 M (Vorderteil), 1 M mit einem Markierer, 13 M (Ärmel), 1 M mit einem Markierer, 9 M (1/2 Rückenteil) = 8+1+13+1+17+1+13+1+9= 64 Maschen. Viel Spaß beim stricken!

23.01.2023 - 09:45