DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7040.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Autumn Cardinal Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Lima. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og klukkuprjónslykkjum. Stærð S - XXXL.

DROPS 235-23
DROPS Design: Mynstur li-148
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS LIMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
500-550-600-650-750-800 g litur 9023, rauðbrúnn

DROPS TALA NR 537: 6-6-6-6-7-7 st.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7040.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3 Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.3).
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið 3 síðustu lykkjur slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsi mælist ca 8-8-8-9-9-9 cm. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-5-6-6 næstu hnappagötum með ca 9-9-9½-10-8½-9 cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 119-125-129-133-139-143 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Lima. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt, endið með 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í ca 8-8-8-9-9-9 cm, endið eftir umferð frá röngu.
Setjið 1 prjónamerki eftir kant að framan í byrjun á umferð. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 4.
Prjónið fyrstu umferð frá réttu þannig: 7 lykkjur í garðaprjóni (kantur að framan), prjónið sléttar lykkjur þar til 7 lykkjur eru eftir og aukið jafnframt út um 34-34-36-38-38-40 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, endið með 7 lykkjur í garðaprjóni (kantur að framan) – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan = 153-159-165-171-177-183 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantar að framan eru prjónaðir í garðaprjóni).
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 7 lykkjur í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið fyrstu lykkjur í A.1, þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins, endið með 7 lykkjur í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka þar til stykkið mælist 8-8-9-9-10-11 cm frá prjónamerki og næsta umferð er prjónuð frá röngu.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Í næstu umferð (ranga) eru allar 2 lykkjur slétt (séð frá röngu) auknar út til 3 lykkjur slétt með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á milli allra 2 lykkja slétt = 199-207-215-223-231-239 lykkjur.
Prjónið 2 umferðir sléttprjón með 7 lykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið (í fyrstu umferð er uppslátturinn frá útaukningum prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat).

Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 7 lykkjur í garðaprjóni, prjónið A.2 þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið fyrstu lykkju í A.2, þannig að mynstrið byrji og endi alveg eins, endið með 7 lykkjum í garðaprjóni.
Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 7 lykkjur í garðaprjóni, prjónið A.3 þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.3, þannig að mynstrið byrji og endi alveg eins og endið með 7 lykkjur í garðaprjóni = 291-303-315-327-339-351 lykkjur.
Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 291-303-315-353-366-379 lykkjur í umferð. Síðan eru 2 umferðir merktar með stjörnu í A.3 endurteknar.
Prjónið þar til stykkið mælist 15-15-17-18-19-21 cm frá prjónamerki.
Síðan er prjónað sléttprjón með 7 lykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið.
JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu eftir A.3, aukið út um 23-24-25-39-40-42 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 314-327-340-392-406-421 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 18-18-21-22-23-26 cm frá prjónamerki, aukið út um 5-16-27-15-25-42 lykkjur jafnt yfir = 319-343-367-407-431-463 lykkjur.

Prjónið þar til stykkið mælist 21-23-25-27-29-31 cm frá prjónamerki.
Í næstu umferð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 52-56-59-65-70-76 lykkjur, setjið næstu 62-66-72-80-82-86 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 91-99-105-117-127-139 lykkjur sléttprjón, setjið næstu 62-66-72-80-82-86 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið eins og áður yfir síðustu 52-56-59-65-70-76 lykkjur.
Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 211-227-243-267-291-315 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 56-60-64-70-76-82 lykkjur inn frá hvorri hlið = 99-107-115-127-139-151 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu.
Prjónið sléttprjón fram og til baka með 7 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 22 cm frá skiptingu – endið eftir umferð frá röngu.
Nú skiptist stykkið við bæði prjónamerkin. Framstykkin og bakstykkið er prjónað til loka hvert fyrir sig, þannig að það myndist klauf í hvorri hlið.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 17-19-19-21-23-25 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kant að framan) = 73-79-83-91-99-107 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir við miðju að framan, prjónið 1 lykkju brugðið, endið með 7 lykkjur í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff í 8 cm. Fellið af aðeins laust. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 17-19-19-21-23-25 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kant að framan) = 73-79-83-91-99-107 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 7 lykkjur í sléttprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir að hlið, prjónið 1 lykkju brugðið, endið með 1 lykkju í sléttprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 8 cm. Fellið af aðeins laust.

BAKSTYKKI:
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 30-32-34-38-42-46 lykkjur jafnt yfir = 129-139-149-165-181-197 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt, * prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið, endið með 1 lykkju í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff í 8 cm. Fellið af aðeins laust.

ERMI:
Setjið 62-66-72-80-82-86 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 70-74-82-90-94-98 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu – prjónamerkið er notað þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi.
Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar ermin mælist 3-3-2-2-2-2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 4-3½-2½-1½-1½-1½ cm millibili alls 9-10-13-16-17-18 sinnum = 52-54-56-58-60-62 lykkjur.
Prjónið þar til ermin mælist ca 36-35-33-31-29-28 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 8 cm að loka máli – mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12-14-14-14-14-16 lykkjur jafnt yfir = 64-68-70-72-74-78 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 8 cm. Fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 44-43-41-39-37-36 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu

symbols = prjónið 1 lykkju slétt í lykkjuna fyrir neðan þessa lykkju (= klukkuprjónslykkja)
symbols = aukið út um 4 lykkjur í 1 klukkuprjónslykkju með því að prjóna 5 lykkjur í sömu lykkju þannig (frá réttu): Prjónið 1 lykkju slétt í lykkjuna fyrir neðan þessa lykkju, en bíðið með að lyfta lykkjum af vinstri prjóni, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt í sömu lykkju á vinstri prjóni *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum, lyftið síðan lykkjum af vinstri prjóni = 5 lykkjur (4 lykkjur fleiri)
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat
symbols = 1 mynstureining á hæðina
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 235-23

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (11)

country flag Ruth wrote:

I love this pattern, however it only indicates sizes as S, M, L etc – no actual measurements to correspond! Am I missing something?

13.04.2024 - 12:08

DROPS Design answered:

Dear Ruth, the exact measurements of the finished piece can be found on the schematic drawing at the bottom of the pattern. We suggest that you take a similar sized sweater that fits the intended wearer, and compare the measurements. I hope this helps. Happy Crafting!

13.04.2024 - 20:29

country flag Steffi wrote:

Welche Farbe / Farbnummer hat die Wolle? Ich hab aktuell nur Marone oder roter Ziegelstein gefunden...

02.04.2024 - 11:20

DROPS Design answered:

Liebe Steffi, die Namen der Farbe wurde gewechselt, es ist aber doch Farbe Nr 9023; dh jetzt "Marone" gennant. Viel Spaß beim Stricken!

03.04.2024 - 08:12

country flag Catharina Conrad wrote:

Mönstret lätt att följa. Väldigt trevlig modell.

03.12.2023 - 21:33

country flag Henny wrote:

Ik heb dezelfde vraag als Carla. Het antwoord dat u geeft is niet duidelijk. Wat wordt bedoeld met “Als A.2 klaar is in de hoogte” ? Hoeveel cm A2 moet ik breien In maat XL?

01.09.2023 - 17:18

country flag Carla wrote:

Ik brei de cardigan 235-23. Het is me niet duidelijk hoe vaak ik telpatroon A2 moet breien? Aan het einde van telpatroon A1 ( hoogte pas moet dan9 cm zijn) moeten er steken worden gemeerderd, daarna begint A2. Na A2 worden er weer steken gemeerderd. Maar hoe hoog moet de pas zijn bij aanvang A3? De laatste 2 toeren van A3 worden herhaald totdat de pas 22cm is en dan worden er weer steken gemeerderd. Maar hoe hoog moet de pas zijn bij aanvang A3?

08.08.2023 - 10:26

DROPS Design answered:

Dag Carla,

A.2 bei je gewoon 1 keer in de hoogte, dus je hoeft na A.2 niet te letten op hoe hoog de pas is. Pas na A.3 herhaal je de twee naalden die gemarkeerd zijn met de ster tot de gewenste hoogte in jouw maat.

08.08.2023 - 19:58

country flag Carla wrote:

Ik brei de cardigan 235-23. Het is me niet duidelijk hoe vaak ik telpatroon A2 moet breien? Aan het einde van telpatroon A1 ( hoogte pas moet dan9 cm zijn) moeten er steken worden gemeerderd, daarna begint A2. Na A2 worden er weer steken gemeerderd. Maar hoe hoog moet de pas zijn bij aanvang A3? De laatste 2 toeren van A3 worden herhaald totdat de pas 22cm is en dan worden er weer steken gemeerderd. Maar hoe hoog moet de pas zijn bij aanvang A3?

08.08.2023 - 10:23

country flag Lilian wrote:

I just reached end of the rib section. Next part is stocking stitch. But which side of stocking stitch is for the right side in this pattern? Knit side or purl side? After all, the rib section has knit on the wrong side and purl on the right side. I am confused. I do wish to have knit side as right side from here on if possible.

20.07.2023 - 02:59

DROPS Design answered:

Hi Lilian, knit part is the right side of your work, as you can seen on the photo. Happy knitting!

20.07.2023 - 10:00

country flag Bine wrote:

Hallo, ich verstehe die Maschenzunahme bei A3 nicht. Nach der Zunahme komme ich auf die 327 (XL)Maschen nun sollen beim in die Höhe stricken am Ende 353 Maschen entstehen. Aber woher? das Muster zeigt dies nicht an. Freue mich über Hilfe, Bine

02.04.2023 - 11:40

country flag Tiphaine wrote:

Bonjour, ce modèle taille-t-il normalement ? Merci !

25.09.2022 - 11:58

country flag Eva wrote:

Rundum Wärme

05.08.2022 - 11:40