DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6468.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Queen Bee Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og gatamynstri. Stærð S - XXXL

DROPS 231-15
DROPS Design: Mynstur bm-098
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
350-400-450-450-500-550 g litur 45, sítróna

DROPS TALA NR 521: 6-6-6-7-7-7 stykki

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 2,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6468.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7.

LASKALÍNA:
Öll útaukning er gerð í umferð frá réttu!
Á framstykki og bakstykki er útaukning fyrir laskalínu í mynsturteikningu.
Aukið er út fyrir laskalínu í hvorri hlið á ermi þannig:
Aukið út um 1 lykkju á eftir 1. og 3. prjónamerki og á undan 2. og 4. prjónamerki með því að slá einu sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið í næstu umferð (= frá röngu), svo ekki myndist gat.
Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.
Þegar A.4 og A.5 hefur verið prjónað til loka, hafa útaukningar verið gerðar til loka á framstykki og bakstykki. Nú heldur útaukningin einungis áfram á ermum.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). 1 hnappagat = prjónið frá réttu eins og áður þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman og endið með 2 lykkjur slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroffið í hálsmáli mælist 3 cm, fellið síðan af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum eins og útskýrt er að ofan með ca 8-8-8½-8-8-8½ cm millibili.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón / sokkaprjóna ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 139-145-149-153-163-173 lykkjur á hringprjóna 2,5 með DROPS Baby Merino. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan stroff þannig – frá réttu: 7 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið stroff í 3 cm. Fellið af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna 3.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og aukið út um 10-4-28-24-42-60 lykkjur jafnt yfir (aukið út með uppslætti og ekki er aukið út yfir lykkjur í köntum að framan) = 149-149-177-177-205-233 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantlykkjur að framan halda áfram í garðaprjóni og uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið).
Setjið 1 prjónamerki mitt að framan innan við 7 kantlykkjur að framan. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

BERUSTYKKI:
Stærð S-M:
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig:
Vinstra framstykki: Prjónið 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1, A.4.
Vinstri ermi: Prjónið 1 lykkju sléttprjón, setjið 1. prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 18 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, setjið 2. prjónamerki, 1 lykkja sléttprjón.
Bakstykki: Prjónið A.5, A.2 er prjónað yfir 42 lykkjur, A.4.
Hægri ermi: Prjónið 1 lykkju sléttprjón, setjið 3. prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 18 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, setjið 4. prjónamerki, 1 lykkja sléttprjón.
Hægra framstykki: Prjónið A.5, A.3 og endið með 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 153-153 lykkjur (meðtalinn allur uppsláttur).
Haldið svona áfram með mynstur og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, aukið út á ermum í hverri umferð frá réttu alls 24-27 sinnum. Þegar A.4 og A.5 hefur verið prjónað til loka, prjónið þannig – frá réttu:
Vinstra framstykki: Prjónið 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1, A.2, A.7.
Vinstri ermi: Haldið áfram í sléttprjóni og aukið út í annarri hverri umferð eins og áður.
Bakstykki: Prjónið A.6, A.2 yfir 70 lykkjur, A.7.
Hægri ermi: Haldið áfram í sléttprjóni og aukið út í annarri hverri umferð eins og áður.
Hægra framstykki: Prjónið A.6, A.2, A.3 og endið með 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.

Stærð L-XL-XXXL:
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig:
Vinstra framstykki: Prjónið 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.6, A.2 er prjónað yfir 14-14-28 lykkjur. A.4.
Vinstri ermi: Prjónið 1 lykkju sléttprjón, setjið 1. prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 18 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, setjið 2. prjónamerki, 1 lykkja sléttprjón.
Bakstykki: Prjónið A.5, A.2 er prjónað yfir 56-56-84 lykkjur, A.4.
Hægri ermi: Prjónið 1 lykkju sléttprjón, setjið 3. prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 18 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, setjið 4. prjónamerki, 1 lykkja sléttprjón.
Hægra framstykki: Prjónið A.5, A.2 og endið með 14-14-28 lykkjur. A.7 og endið með 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 181-181-237 lykkjur (meðtalinn allur uppsláttur).
Haldið svona áfram með mynstur og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, aukið út á ermum í hverri umferð frá réttu alls 32-36-41 sinnum. Þegar A.4 og A.5 hefur verið prjónað til loka, prjónið þannig – frá réttu:
Vinstra framstykki: Prjónið 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.6, A.2 yfir 28-28-42 lykkjur, A.7.
Vinstri ermi: Haldið áfram í sléttprjóni og aukið út í annarri hverri umferð eins og áður.
Bakstykki: Prjónið A.6, A.2 yfir 84-84-112 lykkjur, A.7.
Hægri ermi: Haldið áfram í sléttprjóni og aukið út í annarri hverri umferð eins og áður.
Hægra framstykki: Prjónið A.6, A.2 yfir 28-28-42 lykkjur og endið með 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.

Stærð XXL:
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig:
Vinstra framstykki: Prjónið 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1. A.2, A.4.
Vinstri ermi: Prjónið 1 lykkju sléttprjón, setjið 1. prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 18 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, setjið 2. prjónamerki, 1 lykkja sléttprjón.
Bakstykki: Prjónið A.5, A.2 er prjónað yfir 70 lykkjur, A.4.
Hægri ermi: Prjónið 1 lykkju sléttprjón, setjið 3. prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 18 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, setjið 4. prjónamerki, 1 lykkja sléttprjón.
Hægra framstykki: Prjónið A.5, A.2, A.3 og endið með endið með 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 209 lykkjur (meðtalinn allur uppsláttur).
Haldið svona áfram með mynstur og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, aukið út á ermum í hverri umferð frá réttu alls 39 sinnum. Þegar A.4 og A.5 hefur verið prjónað til loka, prjónið þannig – frá réttu:
Vinstra framstykki: Prjónið 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1, A.2 yfir 28 lykkjur, A.7.
Vinstri ermi: Haldið áfram í sléttprjóni og aukið út í annarri hverri umferð eins og áður.
Bakstykki: Prjónið A.6, A.2 yfir98 lykkjur, A.7.
Hægri ermi: Haldið áfram í sléttprjóni og aukið út í annarri hverri umferð eins og áður.
Hægra framstykki: Prjónið A.6, A.2 yfir 28 lykkjur, A.3 og endið með 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.

Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 21-23-24-26-28-30 cm frá prjónamerki eftir kanti í hálsmáli mitt að framan – endið þannig að síðasta umferðin sé prjónuð frá réttu. Þegar útaukning fyrir ermar hefur verið gerð til loka eru 349-361-409-425-465-501 lykkjur í umferð.
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig:
Haldið áfram með kant að framan og mynstur eins og áður yfir fyrstu 57-57-64-64-71-78 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 68-74-84-92-98-102 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 13 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), haldið áfram með mynstur eins og áður yfir næstu 99-99-113-113-127-141 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 68-74-84-92-98-102 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 13 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), haldið áfram með mynstur eins og áður yfir síðustu 57-57-64-64-71-78 lykkjur (= framstykki).
Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 239-239-267-267-295-323 lykkjur.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig (haldið áfram í réttri umferð í mynsturteikningu):

STÆRÐ S-M-XXL: Prjónið 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1, A.2 yfir 182-182-238 lykkjur, A.3 og 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.

STÆRÐL-XL-XXXL: Prjónið 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.6, A.2 yfir 224-224-280 lykkjur (= 12 sinnum á breidd), A.7 og 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.

Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 24-24-25-25-25-25 cm frá skiptingu – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Prjónið 1 umferð frá réttu þar sem aukið er út um 24-24-26-26-30-32 lykkjur jafnt yfir = 263-263-293-293-325-355 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá röngu: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkjur brugðið, 1 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið stroff svona í 3 cm. Fellið af.

ERMI:
Setjið 68-74-84-92-98-102 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 3, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 13 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 81-87-97-105-111-115 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í miðju lykkju undir ermi og byrjið umferð hér.
Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 4-3½-2½-2-1½-1½ cm millibili alls 8-9-12-14-15-15 sinnum = 65-69-73-77-81-85 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 37-36-35-34-32-30 cm.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 1 lykkju = 66-70-74-78-82-86 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5. Prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Prjónið stroff í 3 cm.
Fellið af. Ermin mælist ca 40-39-38-37-35-33 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu

symbols = 2 lykkjur slétt saman

symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð

symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður slétt í næstu umferð, það eiga að myndast göt
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman

diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Queen Bee Cardigan

Knit Guy, Sweden

Queen Bee Cardigan

Monika, Poland

Queen Bee Cardigan

Merja, Finland

Queen Bee Cardigan

Agnes Van Der Meer, Netherlands

Skrifaðu athugasemd um DROPS 231-15

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (44)

country flag Britta wrote:

Når jeg har strikket kraven, og skal starte på mønstret, passer det ikke med maskerne, jeg har 6 masker for meget . Min veninde har også prøvet uden held. Hun har købt sweater og kan heller ikke få mønsteret til at passe.

15.04.2024 - 13:56

DROPS Design answered:

Hej Britta, i den mindste størrelse har du 149m. 1.pind strikkes: 7kant, A.1=21m, A.4=3m (31m forstykke), 1m, 1oms, 18m, 1oms, 1m (20m+2nye ærme), A.5=2m, A.2=42m, A.4=3m (47m ryg), 1m, 1oms, 18m, 1oms, 1m (20m+2nye ærme), A.5=2m, A.3=22m, 7kant (31m forstykke) = 149m +2+2=153 masker :)

16.04.2024 - 08:22

country flag Susanne wrote:

"In dieser Weise weiterarbeiten und dabei die RAGLANZUNAHMEN arbeiten – siehe oben; an den Ärmeln in jeder Hin-Reihe insgesamt 24-27 x in der Höhe zunehmen." Wie ist das gemeint? Die Ärmel werden doch sowieso weiterzugenommen. Ich stricke Größe M und verstehe nicht, was mit der 27x gemeint ist bzw. was ich hier machen muss.

27.03.2024 - 14:42

DROPS Design answered:

Liebe Susanne, die Raglanzunahmen für die Ärmel stricken Sie insgesamt 27 Mal in jeder 2. Reihe - siehe RAGLANZUNAHMEN, bei den Vorderteilen + Rückenteil nehmen Sie wie in den Diagrammen gezeigt, dh wenn A.4 und A.5 fertig sind, sind die Zunahmen für Vorder- + Rückenteile fertig. Vie Spaß beim Stricken!

02.04.2024 - 12:27

country flag Susanne wrote:

Hej Jag har en fråga gällande Ranglan-avsnittet. Det står efter hur många gånger man ska öka på ärmarna (32-36-41 ggr) att: ”När A4 och A5 är färdigstickade, stickas det så här - från rätsidan”. Min fråga är: vad menas med ”färdigstickade”? Ska A4 och A5 bara stickas i en omgång? En omgång ger 24 ökningar för ärmarna. Eller ska de stickas under hela serien för ökningen av ärmarna, stickas klart för att sedan inte stickas fler gånger?

28.02.2024 - 20:32

country flag Els wrote:

Vergeet mijn vraag, brei XXL! Excuus

19.02.2024 - 16:53

country flag Els Poort wrote:

Ik brei dit vest in de maat XL en voor de pas staat dat ik voor de voorpanden slechts 1 x A2 moet breien, maar dan hou ik steken over. Het zou volgens mij toch A2 voor 28 steken moeten zijn, dus 2 x A2?

19.02.2024 - 16:28

DROPS Design answered:

Dag Els,

Op beide voorpanden brei je inderdaad 1 x A.2 in de maat XL, je komt dan precies uit met het aantal steken.

21.02.2024 - 21:10

country flag Diana wrote:

Hallo. Ich stricke den Cardigan in Größe S. Nach dem Abschluss von A4 und A5 steht, dass man trotzdem Zunahme am Ärmel vornehmen soll bis man eine Länge von 21cm erreicht. Dann habe ich aber mehr als die in der Anleitung angegebenen Maschenzahl. Wie ist dies zu verstehen? Vielen Dank

12.02.2024 - 17:00

DROPS Design answered:

Liebe Diana, für die Ärmel nehmen Sie insgesamt 24 Mal in jeder 2. Reihe zu, dann stricken Sie ohne wietere Zunahmen bis die Arbeit 21 cm misst. Dann wird man die Maschen verteilen. Viel Spaß beim stricken!

13.02.2024 - 08:22

country flag Sanna Rosengren wrote:

Hej, jag stickar XL storlek, och har nu stickat halskant och ökat till 177 maskor. För nästa del (oket) i XL har jag räknat ut att det ska bli 183 maskor efter de 4 ytterligare omslagen för ärmar (dvs framkant+A6+A2+A4 (3 maskor första raden)+22 maskor V. ärm+A5(3 maskor första raden)+A2x4+A4 (3 maskor första raden)+22 maskor H. ärm+A5(3 maskor första raden)+A2+A7+framkant). Men i mönstret står det att det blir 181 maskor. Har jag räknat fel eller är det fel i mönstret? Tack!

07.10.2023 - 09:20

country flag Uroosa Rahim wrote:

It is stated that finished projects can be sold per order and not for commercial use. Could you please elaborate as I want to be sure.

07.09.2023 - 23:54

country flag Deborah Phillips wrote:

Hello there. I am knitting a med size cardigan but am bothered that when knitting the yoke and doing the increases 27 times I cannot find on the pattern how many stiches I should have in total. The answer would be lovely. Thank you

15.06.2023 - 08:54

DROPS Design answered:

DearMrs Phillips, when all increases for the raglan are done in size M, you should have 361 stitches on needle. Happy knitting!

15.06.2023 - 09:34

country flag José Hagedorn wrote:

Geachte mevrouw, Ik heb de Baby Marineeol roze bij u gekocht en zie dit leuke patroon voor een vest ( geel) met raglanmouwen . Ik kan niet wennen aan rondbreinaalden (ik heb fysieke beperkingen met mijn linkerarm) en wil gewoon kunnen breien met 2 naalden en van onder naar boven. Hoe is dit leuke patroon te vertalen? Graag uw hulp. Met vriendelijke groet, José Hagedorn

01.06.2023 - 12:28

DROPS Design answered:

Dag José,

Om een patroon aan te passen om op rechte naalden te breien hebben we een instructie gemaakt. Deze vind je hier.

Helaas zijn niet alle patronen hiervoor geschikt, met name patronen met een ronde pas kun je alleen op een rondbreinaald breien. Bij dit vest zou je de mouwen en de panden wel apart van elkaar kunnen breien en op de raglanlijnen in elkaar zetten.

04.06.2023 - 10:17