DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2772.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Sweet Marigold Sweater

Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og gatamynstri. Stærð 6 mánaða – 8 ára.

DROPS Baby & Children 38-12
DROPS Design: Mynstur bm-022-bn
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

STÆRÐ:
Stærð: 6/9 - 12/18 mánaða (2 - 3/4 - 5/6 - 7/8 ára)
Stærðin jafngildir ca hæð á barni cm:
68/74 - 80/86 (92 - 98/104 - 110/116 - 122/128)

EFNI:
DROPS BABYMERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150-150 (150-200-200-200) g litur 45, sítróna

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 60 cm fyrir sléttprjón/gatamynstur.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 2,5: lengd 40 cm og 60 cm fyrir kant í garðaprjóni.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2772.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 72 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 6) = 12.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 12. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

LASKALÍNA:
Á framstykki og bakstykki er laksalínu útaukningin inni í mynsturteikningu.
Aukið er út í laskalínu á hvorri ermi þannig:
Aukið út um 1 lykkju á eftir 1. og 3. prjónamerki og á undan 2. og 4. prjónamerki með því að slá einu sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið í næstu umferð. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan lykkju með prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 3 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 72-76 (82-84-90-94) lykkjur á stuttan hringprjón 2,5 með Baby Merino. Prjónið 8 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-2 (2-0-8-4) lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 78-78 (84-84-98-98) lykkjur.
Prjónið 1 umferð brugðið. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt að aftan). HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT!
Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

BERUSTYKKI:
Næsta umferð er prjónuð þannig:
Hálft bakstykki: Prjónið A.1 (= 10-10 (12-12-14-14) lykkjur), A.2 (= 2-2 (1-1-3-3) lykkjur).
Hægri ermi: Prjónið 1 lykkju sléttprjón, setjið 1. prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 14 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, setjið 2. prjónamerki, 1 lykkja sléttprjón.
Framstykki: Prjónið A.3 (= 1-1 (1-1-2-2) lykkjur), A.1 yfir 20-20 (24-24-28-28) lykkjur, A.2 yfir 2-2 (1-1-3-3) lykkjur.
Vinstri ermi: Prjónið 1 lykkju sléttprjón, setjið 3. prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 14 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, setjið 4. prjónamerki, 1 lykkja sléttprjón.
Hálft bakstykki: Prjónið A.3 yfir 1-1 (1-1-2-2) lykkjur, A.1 (= 10-10 (12-12-14-14) lykkjur) = 86-86 (92-92-102-102) lykkjur (ásamt öllum uppsláttum).
Í umferð sem byrjar með að það er lyft 1 lykkja af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónaðar 2 lykkjur slétt saman, lyftu lykkjunni steypt yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman í A.1, færist byrjun á umferð um 1 lykkju til baka, þ.e.a.s. byrjun á umferð byrjar þegar eftir er 1 lykkja frá fyrri umferð.

Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið næstu umferð slétt. Prjónið síðan byrjun á umferð eins og áður í stykki.
Haldið svona áfram með mynstur og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, aukið svona út í annarri hverri umferð alls 14-16 (17-18-19-20) sinnum (meðtalin útaukning í fyrstu umferð eftir kant í hálsmáli). Þegar útaukning fyrir ermar hefur verið gerð til loka, prjónið í sléttprjóni og mynstri eins og áður.
Eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu og A.2/A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 208-216 (244-248-276-280) lykkjur í umferð.
Stykkið mælist ca 10-10 (12-12-15-15) cm frá kanti í hálsmáli.
Prjónið nú mynstur þannig:
Hálft bakstykki: Prjónið A.1 yfir 20-20 (24-24-28-28) lykkjur, A.4 yfir 11-11 (13-13-15-15) lykkjur.
Hægri ermi: Prjónið 43-47 (49-51-53-55) lykkjur sléttprjón.
Framstykki: Prjónið A.5 yfir 10-10 (12-12-14-14) lykkjur, A.1 yfir 40-40 (48-48-56-56) lykkjur (= 4 sinnum á breidd), A.4 yfir 11-11 (13-13-15-15) lykkjur.
Vinstri ermi: Prjónið 43-47 (49-51-53-55) lykkjur sléttprjón.
Hálft bakstykki: Prjónið A.5 yfir 10-10 (12-12-14-14) lykkjur og A.1 yfir 20-20 (24-24-28-28) lykkjur.
Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 12-13 (14-15-16-17) cm frá prjónamerki eftir kant í hálsmáli mitt að aftan.
Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Haldið áfram með mynstur eins og áður yfir fyrstu 31-31 (37-37-43-43) lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 43-47 (49-51-53-55) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 9-9 (11-11-13-13) nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), haldið áfram með mynstur eins og áður yfir næstu 61-61 (73-73-85-85) lykkjur (= framstykki), setjið næstu 43-47 (49-51-53-55) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 9-9 (11-11-13-13) nýjar lykkjur á prjóni (= í hlið undir ermi), haldið áfram með mynstur eins og áður yfir síðustu 30-30 (36-36-42-42) lykkjur (= hálft bakstykki).
Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 140-140 (168-168-196-196) lykkjur.
Prjónið A.1 yfir allar lykkjur (= 14 sinnum á breidd, haldið áfram í réttri umferð í mynsturteikningu).
Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 14-15 (17-19-22-25) cm frá skiptingu. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið 6 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum – sjá AFFELLING.

ERMI:
Setjið 43-47 (49-51-53-55) lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 3, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 9-9 (11-11-13-13) lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi = 52-56 (60-62-66-68) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í miðju lykkju undir ermi og byrjið umferð hér.
Prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 1½-1½ (2-3-3-3) cm millibili alls 8-9 (9-8-9-9) sinnum = 36-38 (42-46-48-50) lykkjur.
Prjónið áfram þar til ermin mælist 16-19 (22-28-32-33) cm.
Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5.
Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan.
Fellið af með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 17-20 (23-29-33-34) cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónað
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby & Children 38-12

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (22)

country flag Irina Teșcan wrote:

Hi, love the pattern, but I'm also having trouble continuing the yoke after the first line. Beside the A1,A2 and A3 there are indications for additional stockinette stitches and yarn overs which I don't know how to continue on the 3rd row of the yoke, it doesn't seem to add up for me. Do I repetat those extra stitches and yo on every "right side" row, and then continue with the charter as indicated? Are they only a setup and occur only on the first rs row? Thank you!

09.04.2024 - 13:49

DROPS Design answered:

Hi Irena, You work stockinette across the sleeves. The yarn overs are the increases for raglan on both sides of each marker, on both the sleeves and the front and back pieces. Stockinette is continued on the sleeves to finished length. The yarn overs are knitted twisted (through the back loop) on the next round (without making new yarn overs on this round), then increase for raglan on the next and every 2nd round as described in the text, always knitting the yarn overs twisted on subsequent rounds. Hope this helps and happy knitting!

10.04.2024 - 06:42

country flag Nathalie SNIADY wrote:

Où trouver le tutoriel en vidéo de ce model ? Cordialement

28.11.2023 - 16:21

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Sniady, il n'existe pas de tutoriel vidéo spécifique à ce modèle, vous trouverez, sous les explications (et au-dessus de cette rubrique), une liste de vidéos et de leçons expliquant/démontrant les différentes techniques utilisées dans ce modèle. Pour toute question complémentaire, n'hésitez pas à utiliser cet espace. Bon tricot!

28.11.2023 - 16:34

country flag Maria wrote:

Potreste verificare le misure dello schema.? Mi pare che vi sia un errore. Prendendo ad esempio l’ ultima misura risulta che la larghezza della maglia deve essere 41 cm tuttavia la larghezza dello scollo (14cm) sommata alla larghezza delle spalle (17cm) non equivale a 41cm . Credo che la larghezza delle spalle debba essere in questa misura 13,5cm. Il disegno in effetti mostra spalle più’ strette dello scalfo mentre le misure sono uguali. 17 cm scalfo e 17cm la spalla .

26.10.2023 - 20:20

DROPS Design answered:

Buongiorno Maria, al momento non sono riportati errori nelle misure. Buon lavoro!

30.12.2023 - 11:02

country flag Maria wrote:

Hej! I storlek 5/6 på första varvet som börjar med dubbelminskningen i diagram A.2 så får jag det till att det blir tre minskningar (två i dubbelminskningen i början) och fyra ökningar. Då bör det endast ökas med totalt en maska i det varvet. Trots det så ska nästa varv ha ökats med två maskor. När jag stickar enligt diagrammet får jag en maska för lite. Stickar jag fel någonstans eller är det mönstret som inte stämmer?

30.06.2023 - 09:46

DROPS Design answered:

Hei Maria. Har du husket at på omgangene som starter med å ta 1 maske løs av pinnen som om den skulle strikkes rett, strikk 2 rett sammen, løft den løse masken over maskene som ble strikket sammen i A.1, FORFLYTTES starten på omgangen 1 maske tilbake, dvs starten på omgangen starter når det gjenstår 1 maske på forrige omgang? mvh DROPS Design

03.07.2023 - 09:48

country flag Nghia Fulcher wrote:

Hello (size 7/8 years) I'm lost. After first round (Yoke) has been worked, first round of patterns A1, A2 and A3, I assume 2nd round is knitted? How are the next rows done? A1, A2, raglan increase and then stocking stitches for the sleeve, What about the front piece. Which patterns and over how many stitches? Thank you for your help

11.03.2023 - 08:03

DROPS Design answered:

Dear Nghia, it's worked on the round so you work following the same exact sequence as before: A.1 over A.1, A.2 over A.2, stocking stitch over stocking stitch. The only thing you change is that you work the 2nd round of the charts and that the raglan increases/yarn overs from the previous round are worked twisted so that there are no holes. You have already established the pattern for the sleeves, front piece and back piece in the first round. Happy knitting!

12.03.2023 - 18:24

country flag Lena wrote:

Hej! Vackert mönster och roligt att sticka. Dock upptäcker jag att diagram A2 inte blir symmetriskt med A3 vid avslut på sista mönstervarvet. Visst saknas det ett omslag innan sista maskan. A2 och A3 ramar ju in A1 och bör ju vara symmetriska.

23.07.2022 - 09:48

DROPS Design answered:

Hej Lena, vi forstår hvad du mener og det kan du naturligvis gøre, men antal masker stemmer med dem du har i diagrammet, så du bliver evt nødt til at lægge en ekstra maske til hvis du laver et ekstra omslag. God fornøjelse!

03.08.2022 - 15:42

country flag Kaidi wrote:

Jeg strikker str 2 år. Og er kommet til bolen men forstår ikke helt hva jeg skal gjør videre. Står at det skal strikkes A1 over alle maskene. Men i forrige omgangen har jeg strikket både A4, og A5. Og lagt til 11 maskene til i under arma. Kan du forklarer meg litt nærmere. Jeg får ikke mønsteret til å stemme overens.

21.07.2022 - 01:31

country flag Angela wrote:

Hallo liebes Drops Team, nach einigen Versuchen dieses Muster zu stricken, bin ich gescheitert. Bis Runde 11 mit dem Versetzen ist alles in Odnung. Danach habe ich Probleme bei A.2 und A.3. Nach der Musterrunde 11 , A.2 - Abstricken mit rechten Maschen, es sind 8 Maschen gestrickt auf der Nadel und aber 9 Kästchen im Diagramm. A.3 : Runde 11 - 7 Schlaufen auf der Nadel, zum Abstricken mit rechten Maschen Runde 12 sind aber 6 Kästchen angegeben.Würde mich sehr über ihre Hilfe freuen

02.02.2022 - 14:25

DROPS Design answered:

Liebe Angela, bei der 9. bis 16. Reihe stricken Sie die letzte Masche in A.3 zusammen mit den 2 ersten Maschen A.1, dann stricken Sie die letzte Masche A.1 zusammen mit den 2 ersten Maschen A.1 und dann A.2,beachten Sie nur, daß Sie immer die richtige Maschenanzahl wie in jedem Diagram haben. Viel Spaß beim stricken!

02.02.2022 - 14:36

country flag Karin Mickelsson Johansson wrote:

Hej! Stickar strl 12/18 mån, på oket, är det ökningar varannat varv med 8 maskor? Mvh Karin

05.01.2022 - 15:35

DROPS Design answered:

Hei Karin. Ja. Kastene/økningene til ermene er forklart i oppskriften, mens økningene til forstykket og bakstykket inngår raglanøkningen i diagrammene. 8 økninger på hver 2.omgang. mvh DROPS Design

14.01.2022 - 13:29

country flag Gitte Segato wrote:

Er det korrekt at A2 og A3 for str 2-3/4 ikke har det samme antal masker fra 3. mønsterpind? Så der er 1 maske forskel i antallet på de 2 halve bagstykker?

01.01.2022 - 19:59

DROPS Design answered:

Hej Gitte, jeg er ikke sikker på at jeg forstår dit spørgsmål. Diagram A.2 og A.3 er samme for både størrelse 2 og 3/4 år. Men antal masker i opskriften vil ikke være det samme :)

05.01.2022 - 08:41