Northern Lights |
|||||||
|
|
||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Big Delight og DROPS Nepal með stuttum umferðum, röndum og garðaprjóni, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 158-17 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: * 2 umf slétt með Big Delight (= 1 rönd), 2 umf slétt með Nepal (= 1 rönd) *, endurtakið frá *-*. LEIÐBEININGAR-1: Þegar skipt er um lit í röndum verða þræðirnir alltaf að vera á röngunni við stykkið. LEIÐBEININGAR-2: Til þess að litaskiptingin í Big Delight verði falleg þegar byrjað er á nýjum þræði verður að finna dokku sem byrjar á þeim lit sem síðast var prjónað með. KRAGI: * 1 umf slétt yfir allar l, snúið við, 1 umf slétt yfir allar l, snúið við, 1 umf slétt yfir fyrstu 17-17-17-18-18-18 l, snúið við, 1 umf slétt til baka, snúið við *, endurtakið frá *-*. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum í hægra framstykki. 1 hnappagat = prjónið fjórðu og fimmtu l frá miðju að framan slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagati þegar stykkið mælist (frá öxl): STÆRÐ S: 29 og 37 cm STÆRÐ M: 30 og 38 cm STÆRÐ L: 31 og 39 cm STÆRÐ XL: 32 og 40 cm STÆRÐ XXL: 33 og 41 cm STÆRÐ XXXL: 34 og 42 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í 4 hlutum, vinstra og hægra bakstykki er saumað saman við miðju að aftan í lokin. Teknar eru upp l í kringum ermar og prjónað er stroff frá olnboga og niður. Prjónað er fram og til baka á hringprjóna svo að stykkið getur verið flutt til að gagnstæðri hlið og prjónað frá hvorri hlið á prjóni. LESIÐ LEIÐBEININGAR-2! HÆGRA FRAMSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna nr 8 með GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, kraginn er prjónaður ofan frá og niður. Fitjið upp 22-22-22-24-24-24 l með Nepal og prjónið KRAGA – sjá útskýringu að ofan (1. umf = ranga). Þegar kraginn mælist 8-8-8-9-9-9 cm þar sem hann er stystur eru fitjaðar upp 49-53-53-55-57-61 nýjar l fyrir ermi frá kraga þar sem hann er stystur = 71-75-75-79-81-85 l. Setjið nú 1 prjónamerki í þessa umf – héðan er nú mælt. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Nú er stykkið prjónað með MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan, skipting á garnenda er gerð í hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 10 cm er fækkað frá röngu innan við 1 kantlykkju við miðju að framan þannig: 1 l í 6. hverri umf alls 2 sinnum, 1 l í 4. hverri umf alls 4-4-4-5-5-5 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 16-17-18-19-20-21 cm er fellt af fyrir handveg þannig: Fellið af 0-0-3-4-2-2 l 1 sinni, síðan eru felldar af 5 l í annarri hverri umf alls 5-5-4-4-4-4 sinnum = 40-44-46-48-52-56 l á eftir alla affellingu. Mundið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Prjónið mynstur þar til stykkið mælist 20-21-22-23-24-25 cm – passið að næsta umf sé frá RÉTTU og með Nepal. Kafli 1 UMFERÐ 1: Takið 2 fyrstu l óprjónaðar yfir á hægra prjón, leggið þráðinn bakvið þessar 2 l – LESIÐ LEIÐBEININGAR-1 sjá útskýringu að ofan, prjónið yfir þær l sem eftir eru á prjóni, snúið við. UMFERÐ 2: Prjónið til baka en prjónið ekki yfir 2 l sem teknar voru óprjónaðar yfir, snúið við. UMFERÐ 3: Takið 2 fyrstu l óprjónaðar yfir á hægra prjón, leggið bandið bakvið þessar 2 l, prjónið yfir þær l sem eftir eru á prjóni, snúið við. UMFERÐ 2: Prjónið til baka en prjónið ekki yfir 4 l sem teknar voru óprjónaðar yfir, snúið við. Haldið svona áfram með 2 l færri í annarri hverri umf þar til prjónað hefur verið yfir 2 umf yfir síðustu 2 l. Klippið frá. Prjónið nú 1 rönd yfir allar l með 1. umf frá réttu. Kafli 2 LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM – ÞAÐ ER SNÚIÐ VIÐ OG LYKKJUM FÆKKAÐ SAMTÍMIS. STUTTAR UMFERÐIR: UMFERÐ 1: Prjónið þar til 2 l eru eftir, snúið við. UMFERÐ 2: Prjónið til baka. UMFERÐ 3: Prjónið þar til 4 l eru eftir, snúið við. UMFERÐ 4: Prjónið til baka. Haldið svona áfram með 2 l færri í annarri hverri umf þar til 2 l eru eftir á hægri prjóni. ÚRTAKA: Prjónið 3-3-3-2-2-2 rendur. Fækkið lykkjum í byrjun á næstu rönd þannig: Prjónið 2 l slétt saman, endurtakið úrtöku í annarri hverri rönd (= í 4. hverri umf) alls 6-7-8-8-8-10 sinnum, síðan er fækkað um 0-1-0-0-0-0 sinnum í næstu rönd = 34-36-38-40-44-46 l. Kafli 3 LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM – ÞAÐ ER SNÚIÐ VIÐ OG AUKIÐ ÚT SAMTÍMIS. STUTTAR UMFERÐIR: UMFERÐ 1: Prjónið yfir 4 fyrstu l, snúið við. UMFERÐ 2: Prjónið til baka yfir þessar 4 l, snúið við. UMFERÐ 3: Prjónið yfir 6 fyrstu l, snúið við. UMFERÐ 4: Prjónið til baka yfir þessar 6 l, snúið við. Haldið svona áfram með 2 l fleiri í annarri hverri umf – endurtakið þar til prjónuð hefur verið 1 rönd yfir allar l. ÚTAUKNING: Prjónið 2 rendur. Aukið síðan út í byrjun á næstu rönd þannig: Prjónið 2 l í fyrstu l, endurtakið útaukningu í annarri hverri rönd (= í 4. hverri umf) alls 6-8-8-8-8-10 sinnum = 40-44-46-48-52-56 l. Klippið frá. Kafli 4 Takið fyrstu 38-42-44-46-50-54 l óprjónaðar yfir á hægir prjón. Síðan er prjónað þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 2 l, snúið við. UMFERÐ 2: Prjónið til baka yfir 2 l, snúið við. UMFERÐ 3: Takið 2 l af hægri prjóni yfir á vinstri prjón, prjónið yfir 4 l, snúið við. UMFERÐ 4: Prjóni til baka yfir 4 l. Haldið svona áfram með 2 l fleiri í annarri hverri umf þar til allar l hafa verið teknar á sama prjón og prjónuð hefur verið 1 rönd yfir allar l. Neðsti hlutinn á peysunni: Nú er prjónað áfram í mynstri. Þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm er auki út í hlið þannig: Prjónið 2 l í fyrstu l frá réttu alls 4 sinnum með 4 cm millibili = 44-48-50-52-56-60 l. Prjónið þar til stykkið mælist 78-80-82-84-86-88 cm – stillið af að síðasta röndin sé með Nepal og fellið laust af með Nepal. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægra framstykki nema gagnstætt, kraginn byrjar frá réttu, fellið ekki af fyrir hnappagötum – endaskipti fyrir rendur byrja við miðju að framan. Prjónið þar til stykkið mælist 20-21-22-23-24-25 cm passið uppá að næsta umf sé frá RÉTTU og með Nepal. Kafli 5 STUTTAR UMFERÐIR: UMFERÐ 1: Prjónið þar til 2 l eru eftir, snúið við. UMFERÐ 2: Prjónið til baka. UMFERÐ 3: Prjónið þar til 4 l eru eftir, snúið við. UMFERÐ 4: Prjónið til baka. Haldið áfram með 2 l færri í annarri hverri umf þar til prjónað hefur verið fram og til baka yfir síðustu 2 l. Prjónið eina rönd yfir allar l. Kafli 6 LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM – ÞAÐ ER SNÚIÐ VIÐ OG LYKKJUM FÆKKAÐ SAMTÍMIS UMFERÐ 1: Takið 2 fyrstu l yfir á hægri prjón, leggið þráðinn aftan við þessar 2 l – munið eftir LEIÐBEININGAR-1 sjá útskýringu að ofan, prjónið yfir þær l sem eftir eru á prjóni, snúið við. UMFERÐ 2: Prjónið til baka en prjónið ekki yfir þær 2 l sem teknar voru af prjóni, snúið við. UMFERÐ 3: Takið 2 fyrstu l yfir á hægri prjón, leggið þráðinn aftan við þessar 2 l, prjónið yfir þær l sem eftir eru á prjóni, snúið við. UMFERÐ 4: Prjónið til baka en prjónið ekki yfir þær 4 síðust l, snúið við. Haldið svona áfram með 2 l færri í annarri hverri umf þar til 2 l eru eftir á vinstri prjóni. Klippið frá. ÚRTAKA: Prjónið 3-3-3-2-2-2 rendur. Fækkið lykkjum í lok næstu randar þannig: Prjónið 2 l slétt saman, endurtakið úrtöku í annarri hverri rönd (= í 4. hverri umf) alls 6-7-8-8-8-10 sinnum, fækkið nú lykkjum 0-1-0-0-0-0 sinnum í næstu rönd = 34-36-38-40-44-46 l. Kafli 7 LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM – ÞAÐ ER SNÚIÐ VIÐ OG AUKIÐ ÚT SAMTÍMIS Fyrstu 32-34-36-38-42-44 l eru á hægri prjóni. Síðan er prjónað þannig: UMFERÐ 1: Takið 2 l af hægri prjóni yfir á vinstri prjón, prjónið yfir 4 l, snúið við. UMFERÐ 2: Prjónið til baka yfir 4 l. UMFERÐ 3: Takið 2 l af hægri prjóni yfir á vinstri prjón, prjónið yfir 6 l, snúið við. UMFERÐ 4: Prjónið til baka yfir 6 l. Haldið svona áfram með 2 l fleiri í annarri hverri umf þar til allar l hafa verið teknar af prjóni yfir á sama prjóni og prjónuð hefur verið 1 rönd yfir allar l. ÚTAUKNING: Prjónið 2 rendur. Aukið síðan út í lok næstu randar þannig: Prjónið 2 l í síðustu l, endurtakið útaukningu í annarri hverri rönd (= í 4. hverri umf) alls 6-8-8-8-8-10 sinnum = 40-44-46-48-52-56 l. Kafli 8 UMFERÐ 1: Prjónið yfir 2 fyrstu l, snúið við. UMFERÐ 2: Prjónið til baka yfir þessar 2 l, snúið við. UMFERÐ 3: Prjónið yfir 4 fyrstu l, snúið við. UMFERÐ 4: Prjónið til baka yfir þessar 4 l, snúið við. Haldið svona áfram með 2 l fleiri í annarri hverri umf – endurtakið þar til prjónuð hefur verið 1 rönd yfir allar l. Neðri hluti á peysu: Prjónið nú áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm aukið út á hlið þannig: Prjóni 2 l í síðustu l frá réttu alls 4 sinnum með 4 cm millibili = 44-48-50-52-56-60 l. Prjónið þar til stykkið mælist 78-80-82-84-86-88 cm – stillið af að síðasta röndin sé með Nepal og fellið laust af með Nepal. VINSTRA BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna nr 8 með mynstri, endaskipti er gert frá hlið og prjónað er ofan frá og niður. Fitjið upp 49-53-53-55-57-61 l með Nepal. Prjónið 2 umf (1. umf = rétta). Fitjið síðan upp í lok 2 næstu umf frá réttu fyrir hálsmál þannig: 1 l 1 sinni og 7-7-7-8-8-8 l 1 sinni = 57-61-61-64-66-70 l. Þegar stykkið mælist 16-17-18-19-20-21 cm fellið af fyrir handvegi þannig: Fellið af 0-0-3-4-2-2 l 1 sinni, síðan eru felldar af 5 l í annarri hverri umf alls 5-5-4-4-4-4 sinnum = 32-36-38-40-44-48 l. Prjónið mynstur þar til stykkið mælist 20-21-22-23-24-25 cm passið að næsta umf sé frá RÉTTU og með Nepal. Prjónið kafli 1 – sjá HÆGRA FRAMSTYKKI. Prjónið nú 4-3-4-3-4-3 rendur yfir allar l. JAFNFRAMT í annarri hverri rönd er aukið út um 1 l í byrjun á umf frá réttu og felld er af 1 l í lok umf frá réttu. Þetta er gert til þess að stykkið fái rétt horn. Kafli 9 LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM – SNÚIÐ ER VIÐ OG FELLT AF SAMTÍMIS. STUTTAR UMFERÐIR: UMFERÐ 1: Prjónið þar til 2 l eru eftir, snúið við. UMFERÐ 2: Prjónið til baka. UMFERÐ 3: Prjónið þar til 4 l eru eftir, snúið við. UMFERÐ 4: Prjónið til baka. Haldið svona áfram með 2 l færri í annarri hverri umf þar til 2 l eru eftir á hægri prjóni. ÚRTAKA: Prjónið 1-0-0-2-0-0 rendur. Fækkið lykkjum í byrjun á næstu rönd þannig: Prjónið 2 l slétt saman, endurtakið úrtöku í annarri hverri rönd (= í 4. hverri umf) alls 4-6-6-6-6-8 sinnum = 28-30-32-34-38-40 l. Kafli 10 LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM – ÞAÐ ER SNÚIÐ VIÐ OG AUKIÐ ÚT SAMTÍMIS. STUTTAR UMFERÐIR: UMFERÐ 1: Prjónið yfir 4 fyrstu l, snúið við. UMFERÐ 2: Prjónið til baka yfir þessar 4 l, snúið við. UMFERÐ 3: Prjónið yfir 6 fyrstu l, snúið við. UMFERÐ 4: Prjónið tilbaka yfir þessar 6 l, snúið við. Haldið svona áfram með 2 l fleiri í annarri hverri umf – endurtakið þar til prjónuð hefur verið 1 rönd yfir allar l. ÚTAUKNING: Prjónið 2 rendur. Aukið síðan út í byrjun á næstu rönd þannig: Prjónið 2 l í fyrstu l, endurtakið útaukningu í annarri hverri rönd (= í 4. hverri umf) alls 4-6-6-6-6-8 sinnum = 32-36-38-40-44-48 l. Klippið frá. Prjónið nú 4 rendur yfir allar l. JAFNFRAMT í annarri hverri rönd er aukið út um 1 l í byrjun á umf frá réttu og felld af 1 l í lok umf frá réttu. Þetta er gert til að stykkið fái rétt horn. Klippið frá. Prjónið kafla 4 – sjá HÆGRA FRAMSTYKKI. Neðsti hluti á peysu: Prjónið nú áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm er aukið út í hlið þannig: Prjónið 2 l í síðustu l frá réttu alls 4 sinnum með 4 cm millibili = 36-40-42-44-48-52 l. Prjónið þar til stykkið mælist 78-80-82-84-86-88 cm – stillið af að síðasta röndin sé með Nepal og fellið laust af með Nepal. HÆGRA BAKSTYKKI: Fitjið upp og prjónið eins og vinstra bakstykki nema gagnstætt – endaskipti við rendur er gert frá miðju að aftan. Prjónið þar til stykkið mælist 20-21-22-23-24-25 cm stillið af að næsta umf sé frá RÉTTU og með Nepal. Prjónið kafla 5 – sjá VINSTRA FRAMSTYKKI. Prjónið nú 4-3-4-3-4-3 rendur yfir allar l. JAFNFRAMT í annarri hverri rönd er felld af 1 l í byrjun á umf frá réttu og aukið er út um 1 l í lok umf frá réttu. Þetta er gert til þess að stykkið fái rétt horn. Kafli 11 LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM – SNÚIÐ ER VIÐ OG LYKKJUM FÆKKAÐ SAMTÍMIS. UMFERÐ 1: Takið 2 fyrstu l yfir á hægri prjón, leggið þráðinn aftan við þessar 2 l – MUNDIÐ EFTIR LEIÐBEININGAR-1, prjónið yfir þær l sem eftir eru á prjóni, snúið við. UMFERÐ 2: Prjónið til baka en prjónið ekki yfir 2 l sem teknar voru af prjóni, snúið við. UMFERÐ 3: Takið 2 fyrstu l óprjónaðar yfir á hægri prjón, leggið þráðinn aftan við þessar 2 l, prjónið yfir þær l sem eftir eru á prjóni, snúið við. UMFERÐ 4: Prjónið til baka en prjónið ekki yfir 4 síðustu l, snúið við. Haldið svona áfram með 2 l færri í annarri hverri umf þar til 2 l eru eftir á hægri prjóni. Klippið frá. ÚRTAKA: Prjónið 1-0-0-2-0-0 rendur. Fækkið lykkjum í lok næstu randar þannig: Prjónið 2 l slétt saman, endurtakið úrtöku í annarri hverri rönd (= í 4. hverri umf) alls 4-6-6-6-6-8 sinnum = 28-30-32-34-38-40 l. Kafli 12 LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM – SNÚIÐ ER VIÐ OG AUKIÐ ÚT SAMTÍMIS Fyrstu 26-28-30-32-36-38 l eru á hægri prjóni. Prjónið nú þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Takið 2 l af hægri prjóni yfir á vinstri prjón, prjónið yfir 4 l, snúið við. UMFERÐ 2: Prjónið til baka yfir 4 l. UMFERÐ 3: Takið 2 l af hægri prjóni óprjónaðar yfir á vinstri prjón, prjónið yfir 6 l, snúið við. UMFERÐ 4: Prjónið tilbaka yfir 6 l. Haldið svona áfram með 2 l fleiri í annarri hverri umf þar til allar l hafa verið teknar yfir á sama prjón og prjónið 1 rönd yfir allar l. ÚTAUKNING: Prjónið 2 rendur. Aukið síðan út í lok næstu randar þannig: Prjónið 2 l í síðustu l, endurtakið útaukningu í annarri hverri rönd (= í 4. hverri umf) alls 4-6-6-6-6-8 sinnum = 32-36-38-40-44-48 l. Prjónið nú 4 rendur yfir allar l. JAFNFRAMT í annarri hverri rönd er felld af 1 l í byrjun á umf frá réttu og aukið út um 1 l í lok umf frá réttu. Þetta er gert til að stykkið fái rétt horn. Prjónið Kafli 8 – sjá VINSTRA FRAMSTYKKI. Neðsti hluti á peysu: Prjónið nú áfram með mynstri. Þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm er aukið út í hlið þannig: Prjónið 2 l í fyrstu l alls 4 sinnum með 4 cm millibili = 36-40-42-44-48-52 l. Prjónið þar til stykkið mælist 78-80-82-84-86-88 cm – stillið af að síðasta röndin sé með Nepal og fellið laust af með Nepal. FRÁGANGUR: Saumið hægra bakstykki við vinstra bakstykki við miðju að aftan. Saumið axla- og hliðarsauma. Saumið saman kraga við miðju að aftan og saumið niður við hálsmál að aftan. HÆGRA STROFF: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Takið upp 42-44-46-50-52-54 l með hringprjóna nr 8 í kringum ermi með Nepal. Stykkið er prjónað í mynstri. Fellið af þegar stykkið mælist 17-16-16-15-13-11 cm – passið að fella af með Nepal. VINSTRA STROFF: Takið upp lykkjur og prjónið á sama hátt og hægra stroff. FRÁGANGUR: Saumið sauma á stroffi saman. Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (60)
Sandra Morgan-Griffiths wrote:
Can I buy a Drops Colour Chart and if so where please Thank You
19.05.2023 - 16:42DROPS Design answered:
Dear Sandra, we have no DROPS Colour Charts. You can print the yarn info page, alongside the colours of each yarn, by accessing to the specific yarn page and clicking on the button "print".
21.05.2023 - 18:14Justyna wrote:
Dobry wieczór. Zastanawiam się gdzie popełniam błąd, bo niezależnie od tego jak robię kołnierz, to zawsze wychodzi mi ta sama wersja (a muszę zrobić odwrotność do lewego przodu...). Już próbowałam na wszystkie sposoby i za każdym razem, nawet jak zaczynam na lewej stronie robótki, moja mniejsza część kołnierza jest po tej samej stronie. Więc mam dwa "lewe przody"... Proszę o pomoc bo już nie wiem jak się za to zabrać.
23.03.2023 - 00:11DROPS Design answered:
Witaj Justyno, ważne jest aby rzędy skrócone były przerabiane od środka przodu, czyli z tej strony, z której kołnierz jest dłuższy. De facto te dwie części możesz wykonać tak samo, a następnie kołnierz drugiej strony obrócić (jedna część kołnierza będzie widoczna na prawej stronie, a druga na lewej), aby później z odpowiedniej strony nabrać oczka na ramiona. Pozdrawiamy!
23.03.2023 - 16:23Sophie wrote:
Bonjour, ce modèle peut il être feutré? Et si oui, quelle taille faut il tricoter pour obtenir une taille S après feutrage. Merci d'avance
16.04.2021 - 11:51DROPS Design answered:
Bonjour Sophie, il n'est pas prévu de feutrer la veste terminée. Nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir adapter chacun de nos modèles à chaque demande. Merci de bien vouloir contacter votre magasin, même par mail ou téléphone, pour toute assistance complémentaire - ou éventuellement à un forum spécialisé. Merci pour votre compréhension.
16.04.2021 - 14:43Carla wrote:
Hola, Nepal va tejido con doble hebra o simple? porque he notado que es mucho mas fino que big delight.
09.06.2020 - 14:58DROPS Design answered:
Hola Carla. Ambos hilos pertenecen al mismo grupo de lanas (grupo C) y la chaqueta se trabaja con un hilo.
13.06.2020 - 20:43Wendy wrote:
Ik ben begonnen om dit model in maat XXL te breien. Maar nog voor deel 1 zou je 52 steken moeten overhouden. Als ik in het patroon tel kom ik uit op 50. Bij 81 steken minder/kant je 31 steken. (Minder 2x1 en 5x1 st, en kant 2x2 en 4x5 st af) M.vr.gr. Wendy
06.11.2019 - 09:50DROPS Design answered:
Dag Wendy,
Het patroon is gecontroleerd en er zat inderdaad een fout in de vertaling. Er is nu een correctie gemaakt in het aantal minderingen voor de mouw op het voorpand.
22.11.2019 - 10:57Ilka wrote:
Hallo, ich habe alle Teile fertig. Verstehe aber nicht, wie der Kragen zusammengenäht werden soll. Wenn ich ihn in der Mitte zusammennähe sieht es komisch aus und es steht dort ja auch"an den rückwärtigen Halsausschnitt nähen." Der ist doch aber schon fest. (ist es richtig, dass bei den Rückenteilen kein Kragen gestrickt wird?) Es ist leider weder durch die Zeichnung noch durch die Bilder zu sehen, da keine richtige Rückseite gezeigt wird...... und irgendwie erklärt es sich mir nicht..
15.09.2019 - 16:48DROPS Design answered:
Liebe Ika, die angeschlagenen Maschen für den Kragen für beiden Vorderteile werden zusammengenäht, dann nähen Sie den Kragen (= die kleinste Länge) am Halsausschnitt vom Rückenteil. Viel Spaß beim fertigstellen!
16.09.2019 - 11:18Ilka Fricke wrote:
Stricke ich bei Abschnitt 1 Vorderteil die 1 R. In der Hin-oder Rückreihe. Wenn ich es wie laut Anleitung str. sind bei mir die verkürzungen auf der falschen Seite. Kann man die Kommentare in meinem Fall "deutsch" ändern? Manche Fragen würden dann evtl. nicht doppelt gestellt. Ich kann z. B. kein norwgisch, spanisch etc. würde aber gerne die Kommentare lesen...
25.07.2019 - 18:21DROPS Design answered:
Liebe Ilka, die Kommentare können wir leider nicht übersetzen. - Den Kragen (längere Seite des Kragens) beginnen Sie ja mit einer Rück-Reihe. Die kürzere Seite (die, die Sie ab der Hin-Reihe stricken), liegt in Richtung Seite der Jacke, dort schlagen Sie auch die Maschen für den Ärmel an. Die Abnahmen erfolgen am vorderen Rand der Jacke, das Abketten der Maschen für den Ärmel an der Seite (d.h. ab der Rück-Reihe). Wenn Sie dann Abschnitt 1 ab der Hin-Reihe stricken, werden die Reihen in Richtung Seite der Jacke kürzer als in Richtung vorderer Rand. Gutes Gelingen weiterhin!
27.07.2019 - 09:25Cecilie Skovbjerg wrote:
Jeg undrer mig over at der anbefales pind 8 til garntyper, der normalt strikkes på pind 5? Er der fejl?
19.07.2019 - 21:30DROPS Design answered:
Hei Ceccilie. På denne jakken skal det strikkes løs og derfor større pinner enn det vi vanligvis bruker til Nepal og Big Delight. Men husk å sjekke din strikkefasthet. mvh Drops design
09.09.2019 - 14:58FEDERICA wrote:
Buonsera, vorrei realizzare questo cappotto con un filato diverso e con un numero di ferri n.4 siccome sono una taglia XXL non vorrei che il filato messo in descrizione e il n.8 di ferri giochi a mio sfavore facendo un cappotto che risultasse per me .... una 4XXL :) Che filato mi consigliate per poter effettuare questo cappotto con i ferri n.4??? Grazie
05.05.2019 - 14:00DROPS Design answered:
Buongiorno Federica. Se vuole un filato sfumato, può considerare Delight. Ci permettiamo di far presente che la costruzione del capo è molto particolare. Modificare il filato e soprattutto la tensione del lavoro, comporterebbe rivedere interamente le spiegazioni del modello. Le suggeriamo di mettersi in contatto con il suo rivenditore Drops di fiducia per una assistenza più personalizzata. Buon lavoro!
05.05.2019 - 16:18Ute wrote:
Ich habe ein Rechts-Links-Problem: Wie ist das RECHTE Vorderteil gemeint: rechts, wenn ich es trage oder rechts, so wie ich es auf dem Diagramm sehe (das wäre dann getragen, ja das LINKE Vorderteil. 2. Frage: wird der Kragen NUR in Nepal oder schon abwechseln Nepal-Big Delight gestrickt? Herzlichen Dank sagt Ute
24.04.2019 - 16:18DROPS Design answered:
Liebe Ute, Rechte Vorderteil ist gemeint wenn die Jacke getragen wird - der Kragen wird nur mit Nepal gestrickt (siehe 2. Foto). Viel Spaß beim stricken!
25.04.2019 - 09:40