Sweet Marigold |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og gatamynstri. Stærð 6 mánaða – 8 ára.
DROPS Baby & Children 38-11 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring – á við um ermar): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 82 lykkjur) mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 7) = 10,3. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 10. hverja lykkju. Ekki í aukið út yfir kantlykkjur að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð í umferð frá réttu! Á framstykki og bakstykki er laksalínu útaukningin inni í mynsturteikningu. Aukið er út í laskalínu á hvorri ermi þannig: Aukið út um 1 lykkju á eftir 1. og 3. prjónamerki og á undan 2. og 4. prjónamerki með því að slá einu sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið í næstu umferð (= frá röngu). Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan lykkju með prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 3 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 4-4(4-4-5-5) næstu hnappagötum með ca 6- 6½ (7-7½-7-7½) cm millibili. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSI: Fitjið upp 82-86 (92-95-100-104) lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 2,5 með Baby Merino. Prjónið 8 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Fellt er af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 7-3 (3-0-9-5) lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 89-89 (95-95-109-109) lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni við miðju að framan. Setjið 1 prjónamerki mitt að framan innan við 5 kantlykkjur að framan. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! BERUSTYKKI: Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Vinstra framstykki: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 (= 10-10 (12-12-14-14) lykkjur), A.4 (= 2-2 (1-1-3-3) lykkjur). Vinstri ermi: Prjónið 1 lykkju sléttprjón, setjið 1. prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 14 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, setjið 2. prjónamerki, 1 lykkja sléttprjón. Bakstykki: Prjónið A.5 (= 1-1 (1-1-2-2) lykkjur), A.2 yfir 20-20 (24-24-28-28) lykkjur, A.4 yfir 2-2 (1-1-3-3) lykkjur. Hægri ermi: Prjónið 1 lykkju sléttprjón, setjið 3. prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 14 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, setjið 4. prjónamerki, 1 lykkja sléttprjón. Hægra framstykki: Prjónið A.5 yfir 1-1 (1-1-2-2) lykkjur, A.3 (= 11-11 (13-13-15-15) lykkjur) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni = 97-97 (103-103-113-113) lykkjur (meðtalinn allur uppsláttur). Haldið svona áfram með mynstur og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, aukið út í hverri umferð frá réttu alls 14-16 (17-18-19-20) sinnum (meðtalin útaukning í fyrstu umferð frá réttu á eftir kanti í hálsmáli). Þegar útaukning fyrir ermar hefur verið gerð til loka, prjónið í sléttprjóni og mynstri eins og áður. Eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu og þegar A.4/A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 219-227 (255-259-287-291) lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 10-10 (12-12-15-15) cm frá kanti í hálsi. Prjónið nú mynstur þannig (frá réttu): Vinstra framstykki: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 yfir 10-10 (12-12-14-14) lykkjur, A.2 yfir 10-10 (12-12-14-14) lykkjur, A.3 yfir 11-11 (13-13-15-15) lykkjur. Vinstri ermi: Prjónið 43-47 (49-51-53-55) lykkjur sléttprjón. Bakstykki: Prjónið A.1 yfir 10-10 (12-12-14-14) lykkjur, A.2 yfir 40-40 (48-48-56-56) lykkjur (= 4 sinnum á breiddina), A.3 yfir 11-11 (13-13-15-15) lykkjur. Hægri ermi: Prjónið 43-47 (49-51-53-55) lykkjur sléttprjón. Hægra framstykki: Prjónið A.1 yfir 10-10 (12-12-14-14) lykkjur, A.2 yfir 10-10 (12-12-14-14) lykkjur, A.3 yfir 11-11 (13-13-15-15) lykkjur og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 12-13 (14-15-16-17) cm frá prjónamerki eftir kant í hálsi mitt að framan – endið þannig að síðasta umferð sé prjónuð frá réttu. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Haldið áfram með kant að framan og mynstur eins og áður yfir fyrstu 36-36 (42-42-48-48) lykkjur (= framstykki), setjið næstu 43-47 (49-51-53-55) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 9-9 (11-11-13-13) nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), haldið áfarm með mynstur eins og áður yfir næstu 61-61 (73-73-85-85) lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 43-47 (49-51-53-55) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 9-9 (11-11-13-13) nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), haldið áfram með mynstur eins og áður yfir síðustu 36-36 (42-42-48-48) lykkjur (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 151-151 (179-179-207-207) lykkjur. Næst umferð er prjónuð frá réttu þannig (haldið áfram í réttri umferð í mynsturteikningu): Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 yfir 10-10 (12-12-14-14) lykkjur, A.2 yfir 120-120 (144-144-168-168) lykkjur (= 12 sinnum á breidd), A.3 yfir 11-11 (13-13-15-15) lykkjur og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 14-15 (17-19-22-25) cm frá skiptingu – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið 6 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum – sjá AFFELLING. ERMI: Setjið 43-47 (49-51-53-55) lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 3, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 9-9 (11-11-13-13) lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi = 52-56 (60-62-66-68) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í miðju lykkju undir ermi og byrjið umferð hér. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 1½-1½ (2-3-3-3) cm millibili alls 8-9 (9-8-9-9) sinnum = 36-38 (42-46-48-50) lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 16-19 (22-28-32-33) cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Fellið af með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 17-20 (23-29-33-34) cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (33)
Helen wrote:
Jag stickar efter 6/9-12/18. Var ska jag ta den extra maskan som behövs till v 9 i A4.
08.09.2021 - 19:40DROPS Design answered:
Hei Helen. Bruk masken som er før du starter med A.4, altså i A.1 (siste maske "mangler" i A.1, rad 9). mvh DROPS design
15.09.2021 - 14:07Petronelle wrote:
Jeg laver en str. 98/104, og har lige strikket første retpind på bærestykket. Jeg får kun 101 masker i stedet for de 103, der står i opskriften. Jeg har talt efter, og synes at have lavet de omslag, der skal være, så hvad gør jeg forkert?
01.08.2021 - 13:36DROPS Design answered:
Hej Petronelle, hvis du sætter et mærke mellem hver rapport, så kan du let kontrollere at du har det rigtige antal masker i hver rapport og derved kan du let se i hvilken rapport du kan have glemt at tage ud. God fornøjelse!
04.08.2021 - 12:31Mait Pettersson wrote:
Vilket A5 mönster skall användas till storlek 6/9-12/18. Det står på mönstret att man ska sticka 1 maska A5
17.07.2021 - 14:38DROPS Design answered:
Hej Mait, det stemmer, du finder diagram A.5 til 6/9-12/18 lige over A.1 A.2og A.3 som er nederst i opskriften. Du starter med 1 ret, 1 omslag osv :)
04.08.2021 - 11:09Marketa wrote:
Hello, could you please advise how to adjust the pattern for XS women size? I would love to have the same sweater as my daughter (it would be great if more patterns were available in both children and adult sizes). Thank you in advance
12.07.2021 - 06:57DROPS Design answered:
Dear Marketa, we are unfortunately not able to adjust every pattern to every single request - you can take inspiration from our jacket for woman, some of them are starting with size XS. Your yarn store should be able to help you - even per mail or telephone. Thanks for your comprehension. Happy knitting!
12.07.2021 - 08:16SELEM Annita wrote:
Bonjour, je tricote la taille 12/ 18 mois, il est dit d'augmenter 9 mailles sous la manche , je voudrais savoir comment le dois les tricoter, c'est 9 mailles. Merci
18.05.2021 - 17:20DROPS Design answered:
Bonjour Mme Selem, ces 9 mailles sont relevées dans les 9 mailles montées lors de la division de l'empiècement, autrement dit, procédez comme dans la photo 18 B de cette leçon. Bon tricot!
19.05.2021 - 07:30Kirsten Iversen wrote:
Den er så fin.
13.05.2021 - 10:13Gabriele Sinclair wrote:
I'm attempting to make this cardigan and am having trouble beginning the yoke. I have 5 band stitches on the left and on the right of the 95 stitches between. The beginning of the yoke has left front with 13st, left sleeve with 18st, back with 26st, right sleeve with 18st and finally right front with 14st, which equals 89 st, not 103st as stated in the pattern. Am I missing something? Shouldn't the right front be equal to the left front. Any help would be appreciated, Thank you
06.05.2021 - 22:15DROPS Design answered:
Dear Gabriele, You have not stated which size, so from the 95 stitch I will assume its for a 92 cm tall child. The 92 stitches cast on INCLUDE the band stitches, add 3 stitches after the garter stitch = 95 stitch. There are 8 yarnovers in the row (4 in the pattern for the front and back and 2X2 for the sleeves). If you add that to the 95 stitch you will get the stated 103 stitch. (the number of stitches are different in the two fronts because of the pattern). Happy Knitting!
06.05.2021 - 23:35Mai R wrote:
Hvorfor skal der slås om i første omgang på ærmerne? Der er ingen videre forklaring, hvorfor der må formodes at de skal strikkes ret, men det giver jo huller i ærmerne?
01.05.2021 - 12:06DROPS Design answered:
Hei Mai. Det skal ikke legges opp nye masker når du strikker 1 omgang på ermene, men du skal strikke opp 1 maske i hver av de 9-9 (11-11-13-13) maskene som ble lagt opp under ermet. På den måten slipper du å sy igjen hullet under ermene. mvh DROPS design
03.05.2021 - 14:23Anne-Grethe wrote:
Er der rettelser til mønstret? Når A1,2 og 3 er strikket fortsættes der så med A4/A5, og i hvilken rækkefølge?
27.03.2021 - 10:52DROPS Design answered:
Hei Anne-Grethe. Du strikker A.1, A.2, A.3, A.4 og A.5 samtidig og når A.1, A.2 og A.3 er strikket 1 gang i høyden gjentas disse i høyden i samme rekkefølge og når A.4 og A.5 er strikket 1 gang i høyden er det 219-227 (255-259-287-291) masker på pinnen og arbeidet måler ca 10-10 (12-12-15-15) cm fra halskanten. Les for videre strikk under: BÆRESTYKKET og "Nå strikkes det mønster videre slik (fra retten)". mvh DROPS design
07.04.2021 - 13:40Market wrote:
Dobrý den, poradíte prosím, jak upravit vzor na dámskou velikost XS, ať můžeme mít s dcerkou stejný svetr? :) Předem děkuji.
21.03.2021 - 19:04