Favourite Catch |
|||||||
|
|
||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Merino Extra Fine eða DROPS Lima. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með norrænu mynstri og laskalínu. Stærð 5-14 ára.
DROPS Children 37-9 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR (á við um neðan frá og upp/ofan frá og niður): Þetta stykki er prjónað neðan frá og upp. Ef þú vilt prjóna stykkið ofan frá og niður þá getur þú gert það, en þú verður að aðlaga uppskriftina sjálf/ur. Þetta gerir þú með því að byrja neðst niðri í uppskrift með því að fitja upp lykkjur fyrir kant í hálsi. Síðan verða úrtökurnar í uppskriftinni gerðar að útaukningum og útaukningar eru gerða að úrtökum. Með því að prjóna flíkina ofan frá og niður, er hægt að stilla af lengd á fram- og bakstykki og ermum auðveldlega að réttu máli. STROFF-1 (á við um neðst niðri á fram- og bakstykki og ermar): Stroffið er prjónað annað hvort 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið eða 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið (eftir eigin ósk) þannig: 3 umferðir milligrár/dökk grár, 2 umferðir natur, 2 umferðir milligrár/dökk grár, 2 umferðir natur, 2 umferðir milligrár/dökk grár, 2 umferðir natur. STROFF-2 (á við um einfaldan kant í hálsi): Stroffið er prjónað annað hvort í 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið eða 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið (eftir eigin ósk) þannig: 2 umferðir milligrár/dökk grár, 2 umferðir natur, 2 umferðir milligrár/dökk grár, 2 umferðir natur, 2 umferðir milligrár/dökk grár. STROFF-3 (á við um tvöfaldan kant í hálsi): Stroffið er prjónað annað hvort í 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið eða 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið (eftir eigin ósk) þannig: 2 umferðir milligrár/dökk grár, 4 umferðir natur, 2 umferðir milligrár/dökk grár, 12 umferðir natur. ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð sem fækka á/fjölga eigi út lykkjum (t.d. 168 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 14. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna 13. og 14. hverja lykkju slétt saman. Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 14. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermum): Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur með A.1 eins og áður, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo að ekki myndast göt. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1. LASKALÍNA: Fækkið lykkjum fyrir laskalínu hvoru megin við 4 prjónamerkin sem sett voru í hverja skiptingu á milli framstykkist/bakstykkis og erma. Fækkið lykkjum þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman með natur, prjónamerki, prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman með natur (= 2 lykkjur færri við prjónamerki og alls 8 lykkjur færri í úrtöku umferð). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn verðu áfram stífur er hægt að slá uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (þessi uppsláttur er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp að handveg. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, neðan frá og upp að handveg. Síðan eru fram- og bakstykki og ermar sett saman og haldið er áfram í hring á hringprjón/sokkaprjóna til loka. Allt stroffið er prjónað 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið eða 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið. Kantur í hálsi er prjónaður annað hvort einfaldur eða tvöfaldur. Sjá LEIÐBEININGAR! FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 168-172-176-184-200 lykkjur á hringprjón 3 með milligrár/dökk grár. Prjónið STROFF-1 hringinn – sjá útskýringu að ofan. Eftir stroffið er prjónuð 1 umferð slétt með natur þar sem fækkað er um 12-16-8-16-20 lykkjur jafnt yfir – sjá AFFELLING/ÚTAUKNING = 156-156-168-168-180 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 78-78-84-84-90 lykkjur. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau merkja hliðar á fram- og bakstykki. Prjónið síðan A.1 hringinn (= 26-26-28-28-30 mynsturteikningar með 6 lykkjum, byrjið með fyrstu lykkju í A.1 þannig að það sé lykkja með milligrár/dökk grár «ferningur» frá A.1 mitt í hvorri hlið á fram- og bakstykki). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 26-28-30-32-34 cm, fellið af fyrir handvegi þannig: Byrjið í byrjun á umferð, fellið af 3 lykkjur fyrir handveg, prjónið 72-72-78-78-84 lykkjur mynstur eins og áður (= framstykki), fellið af 6 lykkjur fyrir handveg (3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki), prjónið 72-72-78-78-84 lykkjur mynstur eins og áður (= bakstykki) og fellið af þær 3 lykkjur sem eftir eru. Klippið frá, geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Fitjið upp 36-36-40-40-44 lykkjur á sokkaprjón 3 með milligrár/dökk grár. Prjónið STROFF-1 hringinn – sjá útskýringu að ofan. Eftir stroff er prjónuð 1 umferð slétt með natur þar sem aukið er út um 0-0-2-2-4 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 36-36-42-42-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Setið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það á að nota það síðar þegar auka á út lykkjum mitt undir ermi. Prjónið síðan A.1 hringinn (= 6-6-7-7-8 mynstureiningar með 6 lykkjum, byrjið með fyrstu lykkju í A.1 þannig að það sé lykkja með milligrár/dökk grár «ferningur» frá A.1 mitt undir ermi). Þegar stykkið mælist 6-6-7-7-8 cm, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 1½-1½-1½-2-2 cm millibili alls 6 sinnum í öllum stærðum, síðan er aukið út með 2-2½-3-3-3½ cm millibili alls 6 sinnum í öllum stærðum = 60-60-66-66-72 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist ca 28-32-36-39-43 cm, en stillið af að endað sé í sömu umferð í mynstri og á fram- og bakstykki áður en lykkjur eru felldar af fyrir handveg – þetta er mikilvægt til að mynstrið passi þegar fram- og bakstykki og ermar er sett saman. Næsta umferð er prjónuð þannig: Fellið af 3 lykkjur fyrir handveg, prjónið 54-54-60-60-66 lykkjur mynstur eins og áður og fellið af þær 3 lykkjur sem eftir eru. Klippið frá, geymið stykkið og prjónið hina ermina alveg eins. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Setjið ermar á sama hringprjón 4 og fram- og bakstykki þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar) = 252-252-276-276-300 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki í hverja skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma = 4 prjónamerki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar fækka á lykkjum fyrir laskalínu. Byrjið umferð á bakstykki í skiptingunni á milli erma og fram- og bakstykkis og haldið áfram með A.1 hringinn eins og áður, en 1 lykkjan hvoru megin við 4 prjónamerkin er alltaf prjónuð með natur. Þegar prjónaðar hafa verið 2-4-4-6-2 umferðir eftir að fram- og bakstykki og ermar var sett saman, fækkið lykkjum fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Fækkið lykkjum fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 20-20-22-22-25 sinnum á hæðina. Eftir síðustu úrtöku eru 92-92-100-100-100 lykkjur eftir í umferð (32-32-34-34-34 lykkjur á milli prjónamerkja á framstykki/bakstykki og 14-14-16-16-16 lykkjur á milli prjónamerkja á ermum). Stykkið mælist ca 15-16-17-18-19 cm frá þar sem fram- og bakstykki og ermar er sett saman. Prjónið síðan kant í hálsi að eigin ósk eins og útskýrt er að neðan. Peysan mælist Prjónið síðan kant í hálsi eins og útskýrt er að neðan ca 44-47-50-53-56 cm frá öxl og niður. EINFALDUR KANTUR Í HÁLSI: Prjónið 1 umferð slétt með natur og fækkið um 12-8-16-12-12 lykkjur jafnt yfir = 80-84-84-88-88 lykkjur í umferð. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 3. Prjónið STROFF-2 hringinn – sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffið er tilbúið, fellið af með milligrár/dökk grár, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur/brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSI: Prjónið 1 umferð slétt með natur og fækkið um 4-0-8-4-4 lykkjur jafnt yfir = 88-92-92-96-96 lykkjur í umferð. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 3. Prjónið STROFF-3 hringinn – sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffið er tilbúið, fellið af með natur, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur/brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING og fellið af með uppslætti svo að kanturinn verði ekki stífur! Brjótið uppá kantinn að röngu og saumið fallega niður með smáu spori, en passið uppá að saumurinn verði ekki stífur. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (21)
Kirsten wrote:
Hei! Kan det stemme at ein skal felle masker på bolen etter vrangborden slik det står i oppskrifta? «Etter vrangborden strikkes det 1 omgang rett med natur der det felles 12-16-8-16-20 masker jevnt fordelt – les FELLE-/ØKETIPS = 156-156-168-168-180 masker.» Det vanlige er jo å auke etter vrangborden.
17.01.2024 - 19:31Andrea Guillemette wrote:
Bonjour je voudrais savoir comment on tricoteles mailles pour les manches sans changer le patron de 6 mailles
09.05.2023 - 14:27DROPS Design answered:
Bonjour Mme Guillemette, tricote A.1 en commençant le tour par la 1ère maille de A.1, ainsi, vous avez bien une maille tricotée alternativement en gris moyen/gris foncé au milieu sous la manche. Tricotez ensuite les augmentations en agrandissant le motif au début du tour et à la fin du tour. Bon tricot!
09.05.2023 - 16:36Bodil Bendixen wrote:
Super flot model og enkel at strikke.
04.04.2023 - 14:54Bodil Bendixen wrote:
Hej Jeg vil gerne strikke denne opskrift (37-9) i en størrelse 3 - 4 år - jeg ved ikke om opskriften findes Hvor mange masker skal jeg bruge til krop og ærme - Har du nogle gode råd? - Hvor meget garn? Er der evt en anden opskrift jeg kan tage udgangspunkt i? Mvh Bodil
04.04.2023 - 14:53DROPS Design answered:
Hej Bodil, ja den hedder DROPS Children 34-30 - Reykjavik Kids :)
13.04.2023 - 12:11Marith wrote:
Hvorfor feller man etter ta man har strikket vrangborden på bolen?
22.02.2023 - 13:27DROPS Design answered:
Hei Vrangbord er mer elastisk enn glattstrikk og trekker seg derfor mer sammen. Ved å felle masker etter vrangborden unngår man at det blir en markant viddeforskjell på vrangborden og resten av bolen. Mvh DROPS Design
23.02.2023 - 13:42Maj-Britt Hansson wrote:
Der står ragland 2ret sammen før merketråd 2vrid sammen etter det står det er 8 m felt i omgangen.jeg får det bare til 4
18.12.2022 - 23:16DROPS Design answered:
Hei Maj-Britt, 2 rett sammen (1 maske felt) før merketråd og 2 vridd sammen (1 maske felt) etter. Da blir 2 masker felt ved hver merketråd. Du har 4 markertåder, så da blir det 8 masker felt på omgangen. God fornøyelse!
19.12.2022 - 07:01Yvonne wrote:
Stickar ärmarna de ökade maskorna går inte in i mönstret har stickat och repat upp flera gånger ringt garnaffären och dem fattar ingenting hur man gör. Snälla hjälp mig på en enkel förklaring
15.11.2021 - 10:40DROPS Design answered:
Hej Yvonne. Du ökar ska ha en grå fyrkant mitt under ärmen så ökningarna kommer bli på varje sida av den. Se till att mönstret stämmer utifrån ärmen och in mot mitten. Mönstret kommer inte gå upp hela vägen runt förens du har gjort 3 ökningar (=6 ökade maskor, dvs ett helt A.1). (Tycker du det är svårt att få det bra så kan man alltid välja att bara sticka de ökade maskorna i bottenfärgen så att det blir som en vit rand mitt under ärmen istället.) Mvh DROPS Design
18.11.2021 - 08:28R C Andersson wrote:
Hej, jeg er lidt forvirret over følgende: Når arbejdet måler 26-28-30-32-34 cm, lukkes der af til ærmegab således: Start i begyndelsen af omgangen, tag 3 masker ind til ærmegab, strik 72-72-78-78-84 masker mønster som før (= forstykke), tag 6 masker ind til ærmegab (3 masker på hver side af mærketråden), strik 72-72-78-78-84 masker mønster som før (= bagstykke), og luk de resterende 3 masker af. Skal der tages masker ind eller lukkes masker af til ærmegabet? MVH
28.10.2021 - 17:06DROPS Design answered:
Hej. Det ska lukkes af masker till ærmegabet. Tack för info, vi ska rätta det i opskriften. Mvh DROPS Design
29.10.2021 - 08:17Carina Richard wrote:
Har problem att sticka fram-bakstycke o ärmar tillsammans på rundstickan ? Hur gör man enklast ?
29.08.2021 - 16:41DROPS Design answered:
Hei Carina. Når du setter sammen frem -og bakstykket og ermene er det 2-3 omganger det er litt vanskelig/trangt, men det er bare noen omganger så blir det lettere. Du kan evnt prøve å strikke med 2 rundpinner (magic loop). mvh DROPS design
30.08.2021 - 14:15Johanna Andersson wrote:
Hei, neulon kokoa 9/10 eikä lanka 300+150g tule riittämään. Ostin varuiksi lisäkerän, mutta se ei auta.
01.04.2021 - 19:12