DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8580.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

City Chic Jacket

Prjónuð peysa með pepita mynstri úr DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað í garðaprjóni og rúðumynstri með löngum lykkjum. Stærð S – XXXL.

DROPS 206-21
DROPS Design: Mynstur ks-159
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
75-100-100-100-125-125 g litur 02, svartur
75-75-100-100-100-125 g litur 32, hindber

PRJÓNFESTA:
23 lykkjur á breidd og 46 umferðir á hæð með garðaprjóni og löngum lykkjum = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3,5: lengd 80 cm fyrir garðaprjón með löngum lykkjum (pepita-mynstri).
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 80 cm fyrir kanta.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 521: 7-7-7-8-8-8 st.

Litasamsetning sem sýnd er á mynd er (í sömu litaröð sem gefin er upp í efnismagni að ofan):
A) DROPS Kid-Silk 02, 30
B) DROPS Kid-Silk 02, 03

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8580.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING (á við um hliðar á bakstykki, framstykki og hliðar á ermum).
Aukið út innan við ystu lykkju í hvorri hlið á bakstykki og ermum og í hlið á báðum framstykkjum. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í garðaprjóni og prjónið jafnóðum inn í mynstur

ÚTAUKNING-2 (á við um kant í hálsi):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 104 lykkjur) og dragið frá þann lykkjufjölda sem auka á út í hálsi (t.d. 122 lykkjur) = 18 útaukningar. Síðan deilir þú 104 lykkjum með 18 útaukningum = 5,8.
Í þessu dæmi er slegið 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 6. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með tvöföldum þræði. Eða hægt er að fella ef með grófari prjónum.

HNAPPAGAT (á við um hægri kant að framan þegar flíkin er mátuð):
Fellið af fyrir 6-6-6-7-7-7 hnappagötum í hægri kanti að framan (fellt er af fyrir síðasta hnappagatinu í kanti í hálsmáli).
1 hnappagat = prjónið 2 lykkjur slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn – ATH: Fallegast er ef fellt er af fyrir hnappagötum með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman í einingu með 2 lykkjur brugðið (séð frá réttu). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Neðsta hnappagatið á að vera ca 2 cm frá neðri kanti og efsta hnappagatið á undan hnappagati í hálsmáli á að vera ca 6 til 7 cm frá kanti í hálsmáli. Hin 4-4-4-5-5-5 hnappagötin eru staðsett með ca 7 til 8 cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Bakstykki, framstykki og ermar er prjónað fram- og til baka á hringprjón hvert fyrir sig.
Öll stykkin eru prjónuð neðan frá og upp. Stykkið er saumað saman áður en kantur að framan er prjónaður, kantur í hálsmáli og skraut vasar .

BAKSTYKKI:
Notið 2 þræði í litnum svartur og fitjið upp 95-105-115-125-140-155 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 3. Prjónið GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan, í ca 2 með 2 þræði í litnum svartur.
Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Takið frá annan þráðinn og prjónið nú einungis með 1 þræði.
Nú byrjar pepita mynstrið, þ.e.a.s. prjónið mynstur frá réttu þannig: Prjónið A.1 yfir 2 lykkjur, endurtakið A.2 þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið A.3 yfir 1 lykkju og endið með A.1 yfir 2 síðustu lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur (A.X er endurtekið á hæðina eins og útskýrt er í mynsturteikningu). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 5 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING-1. Aukið svona út með 5-5-5-6-6-6 cm millibili alls 5 sinnum í hvorri hlið = 105-115-125-135-150-165 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm, fellið lykkjur af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1-1-1-2-3-3 sinnum, 2 lykkjur 2-2-3-3-4-5 sinnum og 1 lykkja 3-3-6-8-8-11 sinnum í hvorri hlið = 85-95-95-95-100-105 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður.
Þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm, fellið af miðju 33-35-35-35-34-39 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig (það eru 26-30-30-30-33-33 lykkjur í hvorri öxl). Haldið áfram með mynstur eins og áður og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 1 lykkju 2 sinnum = 24-28-28-28-31-31 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til eftir er ca ½ cm þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, en endið eftir annað hvort heila rönd í litnum svartur eða heila rönd í litnum hindber. Skiptið yfir á hringprjón 3. Byrjið frá réttu og prjónið 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur með litnum svartur. Felllið af með sléttum lykkjum frá réttu – sjá AFFELLING!
Prjónið hina öxlina á sama hátt.
Bakstykki mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður.

HÆGRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð):
Notið 2 þræði í litnum svartur og fitjið upp 45-50-55-60-70-75 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 3. Prjónið garðaprjón fram og til baka – sjá útskýringu að ofan, í ca 2 með 2 þræði í litnum svartur.
Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Takið frá annan þráðinn og prjónið nú einungis með 1 þræði frá réttu þannig (þ.e.a.s. frá miðju að framan): Prjónið A.1 yfir 2 lykkjur, endurtakið A.2 þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið A.3 yfir 1 lykkju og endið með A.1 yfir 2 síðustu lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur.
Þegar stykkið mælist 5 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING-1. Aukið svona út með 5-5-5-6-6-6 cm millibili alls 5 sinnum í hlið = 50-55-60-65-75-80 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm, fellið lykkjur af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá hlið þannig (þ.e.a.s. í byrjun á hverri umferð frá röngu): Fellið af 3 lykkjur 1-1-1-2-3-3 sinnum, 2 lykkjur 2-2-3-3-4-5 sinnum og 1 lykkja 3-3-6-8-8-11 sinnum í hvorri hlið = 40-45-45-45-50-50 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður.
Þegar stykkið mælist 43-45-46-48-49-51 cm, fellið af ystu 10-11-11-11-13-13 lykkjur við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli, en til að þurfta ekki að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á band. Haldið áfram með mynstur eins og áður og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 2 sinnum = 24-28-28-28-31-31 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til eftir er ca ½ cm þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, en endið á sama stað og á bakstykki. Skiptið yfir á hringprjón 3. Byrjið frá réttu og prjónið 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur með svartur. Felllið af með sléttum lykkjum frá réttu – sjá AFFELLING!

VINSTRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð):
Notið 2 þræði í litnum svartur og fitjið upp 45-50-55-60-70-75 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 3. Prjónið garðaprjón fram og til baka í ca 2 cm með þræði í litnum svartur.
Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Takið frá annan þráðinn og prjónið nú einungis með 1 þræði frá réttu þannig (þ.e.a.s. frá hlið): Prjónið A.1 yfir 2 lykkjur, prjónið A.3 yfir 1 lykkju, endurtakið A.4 þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni og endið með A.1 yfir 2 síðustu lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur.
Þegar stykkið mælist 5 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING-1. Aukið svona út með 5-5-5-6-6-6 cm millibili alls 5 sinnum í hlið = 50-55-60-65-75-80 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 5 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið. Aukið svona út með 5-5-5-6-6-6 cm millibili alls 5 sinnum í hlið = 50-55-60-65-75-80 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm, fellið lykkjur af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá hlið þannig (þ.e.a.s. í byrjun á hverri umferð frá réttu): Fellið af 3 lykkjur 1-1-1-2-3-3 sinnum, 2 lykkjur 2-2-3-3-4-5 sinnum og 1 lykkja 3-3-6-8-8-11 sinnum í hvorri hlið = 40-45-45-45-50-50 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður.
Þegar stykkið mælist 43-45-46-48-49-51 cm, fellið af ystu 10-11-11-11-13-13 lykkjur við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli. Haldið áfram með mynstur eins og áður og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 2 sinnum = 24-28-28-28-31-31 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til eftir er ca ½ cm þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, en endið á sama stað og á hægra framstykki. Skiptið yfir á hringprjón 3. Byrjið frá réttu og prjónið 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur með litnum svartur. Felllið af með sléttum lykkjum frá réttu.

HÆGRI ERMI (þegar flíkin er mátuð):
Notið 2 þræði í litnum svartur og fitjið upp 58-58-62-62-66-66 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 3. Allt stroffið er prjónað með 2 þráðum í litnum svartur. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið í 6 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 8-8-7-7-6-6 lykkjur jafnt yfir = 50-50-55-55-60-60 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu.
Takið frá annan þráðinn og prjónið síðan einungis með 1 þræði.
Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið mynstur frá réttu þannig: Prjónið A.1 yfir 2 lykkjur, endurtakið A.2 þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið A.3 yfir 1 lykkju og endið með A.1 yfir 2 síðustu lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 7-8-7-8-6-9 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – munið eftir ÚTAUKNING. Aukið svona út með 3-2½-2½-2-2-1½ cm millibili alls 15-17-18-21-22-24 sinnum = 80-84-91-97-104-108 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 51-51-51-50-49-47 cm (nú eru eftir ca 8-8-9-11-12-14 cm þar til ermakúpan hefur náð réttu máli, en athugið að það á að brjóta uppá 3 neðstu cm).
ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla og lengri ermakúpu.
Prjónið nú ermakúpu, þ.e.a.s. fellið lykkjur af í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1-1-1-1-1-1 sinni í hvorir hlið, 2 lykkjur 2-2-2-3-3-3 sinnum í hvorri hlið og 1 lykkja 12-12-14-17-20-24 sinnum í hvorri hlið. Fellið síðan af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til ermin mælist ca 58-58-59-60-60-60 cm. Fellið af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið og fellið síðan af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 59-59-60-61-61-61 cm ofan frá og niður.

VINSTRI ERMI:
Prjónið vinstri ermi á sama hátt og hægri ermin, en þegar pepita mynstrið byrjar er fyrsta umferðin prjónuð frá réttu þannig: Prjónið A.1 yfir 2 lykkjur, prjónið A.3 yfir 1 lykkju, endurtakið A.4 þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni og endið með A.1 yfir 2 síðustu lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Brjótið uppá neðstu 3 cm á ermum.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN (þegar flíkin er mátuð):
Notið 2 þræði í litnum svartur og hringprjón 3 og prjónið upp frá réttu ca 109-113-117-121-125-129 lykkjur meðfram kanti mitt að framan á hægra framstykki (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4 + 1). Allur kanturinn að framan er prjónaður með 2 þráðum í litnum svartur.
Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og 1 umferð slétt frá réttu.
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig (þ.e.a.s. frá hálsmáli): 1 kantlykkja í garðaprjóni, * prjónið 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff, en eftir ca 1-1½ cm er fellt af fyrir 6-6-6-7-7-7 HNAPPAGAT jafnt yfir – sjá útskýringu að ofan. Prjónið áfram þar til kantur að framan mælist ca 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN (þegar flíkin er mátuð):
Notið 2 þræði í litnum svartur og hringprjón 3 og prjónið upp frá réttu ca 109-113-117-121-125-129 lykkjur meðfram kanti mitt að framan á vinstra framstykki.
Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og 1 umferð slétt frá réttu.
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig (þ.e.a.s. neðri kanti): 2 kantlykkjur í garðaprjóni, * prjónið 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í ca 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Notið 2 þræði í litnum svartur og hringprjón 3 og prjónið upp frá réttu ca 104 til 124 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þráðum að framan).
Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út jafnt yfir til 122-126-130-130-134-142 lykkjur (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4 + 2) – sjá ÚTAUKNING-2. Næsta umferð er prjónuð frá röngu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * prjónið 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff en þegar kantur í hálsmáli mælist ca 1-1½ cm fellið af fyrir 1 hnappagati yfir hin hnappagötin í hægri kant að framan. Fellið af fyrir hnappagötum með því að prjóna þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman, sláið síðan 1 sinni uppá prjóninn (uppslátturinn er prjónaður brugðið í næstu umferð svo það myndist gat). Prjónið áfram þar til kantur í hálsmáli mælist ca 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

SKRAUT VASI:
Vasarnir eru einungis til skrauts og hafa enga notkunarmöguleika.
Notið 2 þræði í litnum svartur og fitjið upp 20-20-22-22-24-24 lykkjur á hringprjón 3. Prjónið garðaprjón fram og til baka með 2 þráðum í litnum svartur í ca 2 til 2½ cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið annan vasa á sama hátt. Staðsetjið vasana á framstykkin ca 8 til 12 cm frá neðri kanti og ca 7 til 11 cm frá kanti yst á kanti að framan (mátið e.t.v. peysuna og staðsetjið eftir eigin ósk). Saumið vasana niður með smáu spori.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 30.08.2019
Leiðrétting á mynsturtexta hefur verið gerð

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu með litnum hindber

symbols = slétt lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu með litnum svartur
symbols = lyftið lykkjunni af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, passið uppá að þráðurinn sem prjónað er með liggi frá röngu á stykki (frá þér, séð frá réttu)
symbols = lyftið lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, passið uppá að þráðurinn sem prjónað er með liggi frá röngu á stykki (að þér, séð frá röngu)
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 206-21

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (27)

country flag Breige wrote:

Your answer on City chic jacket cannot be right. I started with 4 stitches in raspberry, finishing on row 20 with 4 stitches in raspberry. If I start again at row 1 , I would have 4 stitches in raspberry instead of 4 stitches in black. According to the pattern it looks like those 4 stitches across the row alter ate from one color to the other throughout the entire pattern.

07.02.2024 - 00:32

DROPS Design answered:

Dear Mrs Breige, it looks like you are right, repeat the whole diagram - I forwarded this to our design team so that they can check and edit asap. Happy knitting!

07.02.2024 - 08:22

country flag Breige wrote:

Thank you for your timely response. If I do start again at row 1, when do I knit rows 21 to 40?

06.02.2024 - 17:55

country flag Breige wrote:

Hello, I have just completed row 20 on the back piece. I do not understand the directions saying A.X. is repeated in height as shown in diagrams. Not sure what that means. Do I continue onto row 21 or do I repeat A.X. again starting at row 1? If I continue why is the AX shown in brackets. Thank you.

06.02.2024 - 07:19

DROPS Design answered:

Dear Breige, start again from 1st row and repeat the 20 rows shown with A.x. Happy knitting!

06.02.2024 - 09:03

country flag Irina wrote:

Is it really possible that only 175g of yarn ( 100+75 for size M) is needed? That must be a misprint.

24.05.2020 - 20:10

DROPS Design answered:

Hi Irina. 175 g of yarn is correct for size M. Remember that this is a very lightweight yarn (25 g = 210 m). Happy knitting!

25.05.2020 - 09:08

country flag Martine Dionisio wrote:

Correction pour ma dernière question, il s’agit de A3 sur la 3ème maille avant la fin mais non A1. Excusez-moi

25.12.2019 - 20:04

country flag Martine Dionisio wrote:

Bonjour, Très joli modèle mais je ne comprends pas le diagramme : à la fin du premier rang pied-de-poule, il est écrit de tricoter A1 ( maille glissée) pour la 3ème maille avant la fin mais la 4ème maille avant la fin est déjà une maille glissée. Ce qui voudrait dire qu’il y aurait 2 mailles glissées de suite. Est-ce normal ? Merci d’avance pour votre réponse.

25.12.2019 - 20:01

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Dionisio, vous tricotez (vu sur l'endroit): A.1, puis vous répétez A.2 (= en commençant par 1 m glissée, 4 m end) jusqu'à ce qu'il reste 3 mailles et terminez par A.3 (= 1 m glissée = comme la 1ère m de A.2) et 2 m end de A.1. Sur l'envers, tricotez: A.1, A.3, répétez A.2 (en lisant de gauche à droite) et terminez par A.1. Cette vidéo pourra peut-être vous aider. Bon tricot!

02.01.2020 - 10:55

country flag Sahar Taha wrote:

Thanks for your explanation l got it

26.08.2019 - 13:25

country flag Sahar Taha wrote:

I can't understand the daigram specially how can a slip the stitches and the strand Ian using in the wrong side... Can you make keep video about this stitch

25.08.2019 - 17:34

DROPS Design answered:

Dear Mrs Taha, your request has been forwarded to our team. When you slip the stitch from RS, the working yarn should be behind work = from WS (as before, ie just slip the stitch and work the next stitch) - when you have to slip the stitch from WS the working yarn is behind work (facing RS), before slipping the stitch, place the working yarn facing you (= towards the WS of piece), slip the stitch, then place the working yarn again as it should be (= facing RS) to continue knitting the next stitches. Happy knitting!

26.08.2019 - 09:16

country flag Sahar Taha wrote:

This pattern is beautiful but l can not understand the diagram especially how can l slip stitch and the strand I am using in the wrong side. can you make video about this stitch thanks a lot

25.08.2019 - 17:32

DROPS Design answered:

Dear Sahar, unfortunately we don't have a video tutorial, but you simply have to pass one stitch from the left to the right needle kkeping the yarn in front or on the back of the work to get the decorative pattern. Happy knitting!

25.08.2019 - 18:21

country flag Pia Olsen wrote:

Hvor bliver den fulde opskrift til denne pæne trøje/jakke af? Jeg kan se at den er der på blusen. Venlig hilsen Pia

21.08.2019 - 14:07

DROPS Design answered:

Hej. Nu finns den även på danska. Lycka till!

22.08.2019 - 08:40