Idun |
||||||||||
|
|
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og norrænu mynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 206-4 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 92 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 30) = 3,1. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. UPPHÆKKUN (aftan í hnakka): Til að peysan verði aðeins hærri aftan í hnakka þegar berustykkið er prjónað, er hægt að prjóna upphækkun eins og útskýrt er að neðan. Hoppaðu yfir þennan kafla ef þú vilt ekki hafa upphækkun. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar (= miðja að aftan). Byrjið frá réttu með bensínblár/kirsuber og prjónið 13-14-15-15-16-17 lykkjur slétt framhjá prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið 26-28-30-30-32-34 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 39-42-45-45-48-51 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 52-56-60-60-64-68 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 65-70-75-75-80-85 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 78-84-90-90-96-102 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur til baka að miðju að aftan. Prjónið síðan BERUSTYKKI eins og útskýrt er í uppskrift. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðunum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki og mitt undir ermum): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerki). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með grófari prjónum. Eða að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 92-96-100-104-108-112 lykkjur á stuttan hringprjón 3,5 með litnum bensínblár/kirsuber. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 30-32-34-34-36-38 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1= 122-128-134-138-144-150 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð (= miðja að framan) – berustykkið er mælt frá þessu prjónamerki. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð slétt (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt). Nú er hægt að prjóna UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan. Ef þú vilt ekki prjóna upphækkunina, farðu beint áfram í BERUSTYKKI. BERUSTYKKI: Prjónið A.1 hringinn (lykkjufjöldinn gengur ekki jafnt upp í mynstureiningu með 10 lykkjum, en það gerir ekkert til þar sem umferðin er einlit). Haldið svona áfram með mynstur. Sjá LEIÐBEININGAR og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1, aukið út lykkjur jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir ÚTAUKNING-1: ÖR-1: Aukið út um 40-44-46-46-48-56 lykkjur jafnt yfir = 162-172-180-184-192-206 lykkjur. ÖR-2: Aukið út um 28-28-30-36-38-44 lykkjur jafnt yfir = 190-200-210-220-230-250 lykkjur (nú er pláss fyrir 19-20-21-22-23-25 mynstureiningar A.1 með 10 lykkjum). ÖR-3: Aukið út um 22-30-40-48-54-58 lykkjur jafnt yfir = 212-230-250-268-284-308 lykkjur. ÖR-4: Aukið út um 22-30-36-44-54-56 lykkjur jafnt yfir = 234-260-286-312-338-364 lykkjur (nú er pláss fyrir 9-10-11-12-13-14 lykkjur jafnt yfir A.1 með 26 lykkjum). ÖR-5: Aukið út um 16-20-24-28-22-26 lykkjur jafnt yfir = 250-280-310-340-360-390 lykkjur (nú er pláss fyrir 25-28-31-34-36-39 mynstureiningar A.1 með 10 lykkjum). ÖR-6: Aukið út um 12-14-8-6-10-12 lykkjur jafnt yfir = 262-294-318-346-370-402 lykkjur (nú er pláss fyrir 25-28-31-34-36-39 mynstureiningar A.1 með 10 lykkjum). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, mælist stykkið ca 18-18-18-21-21-21 cm frá prjónamerki við háls. Prjónið síðan sléttprjón með bensínblár/kirsuber þar til stykkið mælist 19-21-23-25-27-29 cm frá prjónamerki við háls. Nú skiptist berustykki til fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 38-42-45-50-55-61 lykkjur í sléttprjóni (= ½ bakstykki), setjið næstu 54-62-68-72-74-78 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 77-85-91-101-111-123 lykkjur í sléttprjóni (= framstykki), setjið næstu 54-62-68-72-74-78 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 39-43-46-51-56-62 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni (= ½ bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvort fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 166-182-198-218-242-266 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau eru notuð aðeins síðar þegar auka á út í hliðum. Byrjið umferð við prjónamerki í annarri hlið á stykki og prjónið sléttprjón hringinn með litnum bensínblár/kirsuber. Þegar stykkið mælist 6 cm frá skiptingu í öllum stærðum, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 6 cm millibili alls 4 sinnum í hvorri hlið = 182-198-214-234-258-282 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 29 cm frá skiptingu í öllum stærðum (nú eru eftir ca 3 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 50-54-58-66-70-78 lykkjur jafnt yfir = 232-252-272-300-328-360 lykkjur. Aukið út til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjóna, dragi stykkið saman. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 54-62-68-72-74-78 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4,5 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 60-68-76-80-84-88 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Prjónamerki undir ermi á að nota síðar þegar lykkjum er fækkað mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn með bensínblár/kirsuber. Þegar ermin mælist 3-3-3-2-2-2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4-1½-1-1-1-1 cm millibili alls 3-7-10-11-11-13 sinnum = 54-54-56-58-62-62 lykkjur. Þegar ermin mælist 15-15-16-16-16-17 cm frá skiptingu, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 4-4-3-3-2-2 cm millibili alls 3 sinnum = 60-60-62-64-68-68 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 39-38-36-35-33-32 cm frá skiptingu (nú eru eftir 3 cm til loka, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 16-16-18-20-20-20 lykkjur jafnt yfir = 76-76-80-84-88-88 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 42-41-39-38-36-35 cm frá skiptingu og niður. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (41)
Jonna Clausen wrote:
Der bliver hak i mønsteret når jeg skifter farve ved den nye omgang.
24.05.2023 - 21:42DROPS Design answered:
Hej Jonna, vi har en video som viser hvordan man kan strikke striber/mønster uden at få hak i overgangen: Hvordan strikkes striber rundt uden hak
25.05.2023 - 07:57Tanis Day wrote:
Is there any ease accounted for in the measurements or should I add it to the body measurements? Thank you!
02.01.2023 - 02:52DROPS Design answered:
Dear Mrs Day, we don't work with the concept of "ease", measure a similar garment you have and like the shape and compare the measurements to those in the chart, that's the best way to find your size (and decide if you rather get it fitting or loose). Read more here. Happy knitting!
02.01.2023 - 16:09Coni wrote:
Hola, Acabo de terminarlo , fue fácil tejerlo, sólo que el resorte de abajo se vira hacia arriba. Como puedo corregirlo? Un millón de gracias
14.03.2022 - 05:08DROPS Design answered:
Hola Coni, para alisarlo, se recomienda plancharlo con vapor, con un trapo encima para evitar el contacto de la plancha con la prenda.
20.03.2022 - 18:00Lieve Ryckaert wrote:
Hartelijk dank voor uw advies! ,( zie hoger) Ik heb mijn trui voorzichtig gestreken en wonder, o wonder, hij kruipt niet meer omhoog en past perfect. Ik ben weer gelukkig en trots op mijn mooie trui! Eeuwige dank!
21.01.2022 - 10:56Lieve Ryckaert wrote:
Goede dag, ik heb trui Idun gebreid helemaal volgens het patroon en met Karisma. Hij is prachtig en de halslijn past perfect maar zodra ik hem aanheb kruipt de voorkant ophoog tot onder mijn kin. Heeft u een idee waardoor dit komt en of dit eventueel te corrigeren is? Ik ben zeer ontgoocheld want zo kan ik hem niet dragen. Dank voor uw advies.
29.12.2021 - 14:17DROPS Design answered:
Dag Lieve,
Dat is erg vervelend en heeft waarschijnlijk met de pasvorm te maken. Je schouders zorgen ervoor dat de trui omhoog kruipt. Als dit zo is, dan zou de trui voor jou bij de schouders breder moeten zijn. Wat je kunt doen is dat je het werk heel voorzichtig opperst met een natte (thee)doek en een strijkijzer, op zo'n manier dat je de schouders in vorm brengt (steeds tussendoor de trui passen). Let erop dat je dit echt heel voorzichtig doet, dus voorzichtig deppen met een heet strijkijzer op de de doek waar de trui onder licht. Je kunt een mouwplankje gebruiken of het uiteinde van het strijkijzer.
12.01.2022 - 10:22Anne wrote:
Hello! I would love to knit this one with these colours but I can´t find them (colours 75 and 77 from Finland. Are those still in production?
28.03.2021 - 11:47DROPS Design answered:
Dear Anner, HERE, you can find all the currently produced colors of our Karisma yarn. Petrol Cherise is still produced. Happy Knitting!
28.03.2021 - 11:54Karin wrote:
Net als Anna hierboven wil ik ook de opmerking maken dat er bij de meerderingen op het lijfdeel ( onder de arm) een fout staat. Meerderen moet iedere 6 cm en niet iedere 6e naald.Helaas zag ik het te laat. Zou fijn zijn dat dit gecorrigeerd wordt zodat een volgende breister dit niet uit hoeft te halen. Verder een mooi en fijn patroon
18.01.2021 - 00:35Adrienne Richter wrote:
I knitted this sweater, finishing it just in time for Christmas. It was very easy to follow and if I didn’t understand a portion there were instructional videos. Thank you. I look forward to knitting another project.
20.12.2020 - 18:03Nicole wrote:
Je trouve vraiment dommage que le bas et les manches soient aussi lâches et trop larges pour un si beau modèle.
08.06.2020 - 22:28DROPS Design answered:
Bonjour Nicole, vous pouvez tout à fait ajuster le bas du pull et des manches en vous basant sur vos propres mesures et envies et sur un modèle de même tension qui aurait la forme que vous souhaitez. Votre magasin DROPS pourra vous aider si nécessaire, même par mail ou téléphone. Bon tricot!
09.06.2020 - 10:09Fleck wrote:
J'aime beaucoup ce motif floral. Je vois que vous tricotez en continental. Actuellement, je souffre beaucoup des mains avec la méthode française et je me rends compte que cette façon de passer le fil est moins agressive et surtout assure une meilleure tension du fil. Il faut que je m'y fasse..
12.01.2020 - 17:25