Sweet Country Sunrise Jacket |
|
|
|
Prjónuð peysa með röndum, blöðruermum og laskalínu. Stykkið er prjónað úr DROPS Air, ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 202-21 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. RENDUR BERUSTYKKI: Rendurnar eru prjónaðar í sléttprjóni, ofan frá og niður þannig: 9-9-10-10-11-11 cm með lit 15, fjólublá þoka, 9-9-10-10-11-11 cm með lit 14, fjólublár, 0-2-2-4-4-6 cm með lit 08, ljós bleikur. RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI: Rendurnar eru prjónaðar í sléttprjóni, ofan frá og niður þannig: 9-7-8-6-7-5 cm með lit 08, ljós bleikur (þ.e.a.s. ljós bleika röndin verður alls 9-9-10-10-11-11 cm meðtalin umferð frá berustykki), 9-9-10-10-11-11 cm með lit 27, sægrænn, 9-11-9-11-9-11 cm (eða til loka) með lit 16, blár. RENDUR ERMI: Rendurnar eru prjónaðar í sléttprjóni, ofan frá og niður þannig: 13-11-11-9-9-8 cm með lit 08, ljós bleikur (þ.e.a.s. ljós bleika röndin verður alls 13-13-13-13-13-14 cm meðtalin umferð frá berustykki), 13-13-13-13-13-14 cm með lit 27, sægrænn, 20-21-19-20-18-17 cm (eða til loka) með lit 16, blár. LASKALÍNA: Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 prjónamerki í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig: Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri hvoru megin við prjónamerki og alls 8 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚTAUKNING (á við um mitt undir ermum): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. Prjónið nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 112 lykkjur), mínus kantlykkjur (t.d. 2 lykkjur) og deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 26) = 4,2. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 3. og 4. hverja lykkju saman. LEIÐBEININGAR (á við um lengd á ermum): Hægt er að stilla lengd á ermum eins og útskýrt er í uppskrift, en athugið að lengd á ermum á að vera aðeins lengri en vanalega til að ermin „pokist“ aðeins neðst niðri. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykki skiptist síðan fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er síðan prjónað fram og til baka frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/ stuttan hringprjón, ofan frá og niður. Kantar að framan eru prjónaðir meðfram miðju að framan og að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli. Allt stykkið er prjónað í sléttprjóni með röndum og stroff kanti. BERUSTYKKI: Lesið allan kaflann um berustykki áður en byrjað er að prjóna! Fitjið upp 102-106-114-114-118-126 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 5,5 með litnum fjólublá þoka. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar): Teljið 20-21-22-22-23-25 lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 12-12-14-14-14-14 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 38-40-42-42-44-48 lykkjur (= bakstykki), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 12-12-14-14-14-14 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju. Nú eru 20-21-22-22-23-25 lykkjur á eftir síðasta prjónamerki á framstykki. Prjónið nú RENDUR BERUSTYKKI með 1 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið við miðju að framan – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 18-20-21-24-26-28 sinnum = 246-266-282-306-326-350 lykkjur. Eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 18-20-22-24-26-28 cm frá kanti í hálsi mitt að framan. Ef þessu máli hefur ekki verið náð, prjónið áfram þar til náð hefur verið réttu máli. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 38-41-43-47-51-56 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 48-52-56-60-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 74-80-84-92-100-110 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 48-52-56-60-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 38-41-43-47-51-56 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er prjónað síðan hvort fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 162-174-186-202-222-242 lykkjur. Prjónið RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI – sjá útskýringu að ofan, með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 21 cm frá skiptingu í öllum stærðum, prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem aukið er út um 2 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 164-176-188-204-224-244 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið * prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur, er hægt að fella af með hringprjón 5,5 (þetta á við um alla affellingarkanta á þessu stykki). Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 48-52-56-60-62-64 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna / stuttan hringprjón 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-58-64-68-72-74 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Prjónamerkið er notað aðeins síðar þegar auka á út lykkjum undir ermi. Prjónið RENDUR ERMI – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu í öllum stærðum, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 3½-3½-3½-3-3-3 cm millibili alls 9-9-8-8-8-8 sinnum = 72-76-80-84-88-90 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til ermin mælist ca 39-38-36-35-33-32 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 7 cm að loka máli – sjá LEIÐBEININGAR). ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna víðara hálsmáls og lengra berustykkis. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 0-4-0-4-0-2 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 72-72-80-80-88-88 lykkjur. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 36-36-40-40-44-44 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með hringprjón 5,5. Ermin mælist ca 46-45-43-42-40-39 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið upp frá réttu innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni, ca 85 til 109 lykkjur meðfram vinstra framstykki á hringprjón 4,5 með litnum blár (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4 + 1). Fyrsta umferðin er prjónuð frá röngu þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 2½-3 cm. Fellið laust af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið upp frá réttu innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni, ca 85 til 109 lykkjur meðfram hægra framstykki á hringprjón 4,5 með litnum blár (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4 + 1). Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 2 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff, en eftir ca 1-1½ cm er fellt af fyrir 45-5-5-6-6-6 hnappagötum jafnt yfir. Neðsta hnappagatið á að vera ca 2-3 cm frá neðri kanti og efsta hnappagatið á að vera ca 5-6 cm frá kanti í hálsmáli. 1 hnappagat = prjónið 2 lykkjur saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn – ATH: Fallegast er þegar fellt er af fyrir hnappagötum í brugðnu einingunum (séð frá réttu). Haldið áfram með stroff þar til stykkið mælist eins og vinstri kantur að framan. Fellið laust af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp frá réttu ca 112-116-124-124-128-136 lykkjur meðfram öllum kanti í hálsmálii á hringprjón 4,5 með blár. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem lykkjum er fækkað jafnt yfir til 86-90-94-98-102-106 lykkjur – munið eftir ÚRTAKA. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 2 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff, en eftir ca 1-1½ cm er fellt af fyrir 1 hnappagati yfir hin í hægri kant að framan. Prjónið síðan áfram þar til kantur í hálsmáli mælist ca 3 cm og fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (16)
Deb Hobson wrote:
How many grammes/balls would be needed to knit the cardigan in one shade for the smallest size please? I'm assuming it's fewer than all the colours added together 😊
07.06.2023 - 20:18DROPS Design answered:
Dear Mrs Hobson, we unfortunately have no experience with this jumper worked with a single colour as it was worked with stripes, and we don't have the piece anymore. You can add all colours together, you might require somewhat less - your DROPS store will be able to help you - even per mail or telephone. Thanks for your comprehension. Happy knitting!
08.06.2023 - 09:23Victoria wrote:
When starting the rib at the lower part of the body the pattern says to 'knit one for from the wrong side while increasing 2 stitches'. This leaves a ridge of stitches on the right side before going into the ribbed section, which looks strange. Should it be a purl row on the row of increases? Many thanks
05.06.2023 - 14:16DROPS Design answered:
Dear Victoria, correct, this row should be purled from the wrong side, pattern has been fixed, thanks for your feedback. Happy knitting!
05.06.2023 - 17:32Vickyf wrote:
I'm doing this lovely cardigan in size medium but my tension is very different to the suggested 16 stitches and 20 rows. I've got 16 stitches and 26 rows. Will the yoke shaping work as mine only measure 16 cms after finishing the increases (rather than 20mins). Thanks
20.05.2023 - 23:27DROPS Design answered:
Dear Vicky, since your tension is higher in amount of rows, that means that you work too many rows in 10 cm. You need to reach the necessary length of the yoke (20 cm), so you may need to spread out your increases, so as to reach the necessary number of stitches by the time the piece measures 20cm. For example, instead of increasing every other row, increase every other row at the beginning and then, after having worked 2/3 of the increases, start increasing every 4th row instead. Happy knitting!
21.05.2023 - 18:52Ana Cecilia Ramirez wrote:
Når man strikker opp maskene til Venstre stolpe begynner man ned til halsen eller halsen til nede? Takk for hjelpen
11.06.2022 - 19:51DROPS Design answered:
Hei Ana Cecilia. Du skal strikke opp masker fra retten og da blir det fra halsen og ned. mvh DROPS Design
13.06.2022 - 10:07Ana Cecilia Ramirez wrote:
Hvilken end skal man begynne å strikke opp maskene til Venstre stolpen? Fra halsen eller fra neden.?
11.06.2022 - 19:36Erin wrote:
Est-il possible de rajouter un léger décolleté ? Si oui, comment ?
19.02.2021 - 18:36DROPS Design answered:
Bonjour Erin, tout à fait, vous pouvez par exemple tricoter une réhausse pour que l'encolure dos soit plus haute que celle du devant - pour ceci, vous pouvez vous inspirer d'un modèle de même tension qui en propose une. Bon tricot!
22.02.2021 - 07:27Anne wrote:
To get the 10 1/4 inch length before I separate the sleeves and body, I will have more stitches. What should I do to match the pattern count? Also, when I separate the sleeves and body I do it on a wrong side row? Do the yarn overs just slide onto the stitch holder too? How do I knit them in the round? 😊
12.09.2020 - 19:46DROPS Design answered:
Dear Anne, check your tension, you should have 20 rows = 4" - if you have less rows, yoke will be too long, you can compensate by working less rows between the increase rows for raglan. The dividing row is worked from WS, if you still have some yarn overs on the needle, just count them as stitches when counting/dividing pieces. This lesson shows how to work a jumper top down and could help you with this jacket. Happy knitting!
14.09.2020 - 08:44Pia Nielsen wrote:
Jeg har brugt omregneren, som viser, at man kan bruge Brushed Alpaca Silk. Jeg kan bare ikke få strikkefastheden til at passe. Har prøvet tykke og tynde pinde.
16.02.2020 - 21:51DROPS Design answered:
Hej Pia, Hvis du får strikkefastheden til at stemme i bredden, så kan du følge målene i opskriften. Vi bruger pinde 5,5-6 for at få 16 masker på 10 cm i Brushed Alpaca Silk. God fornøjelse!
18.02.2020 - 11:26Karete wrote:
Nå er det mulig jeg surrer fælt, men jeg har lest meg blind på oppskriften. I forklaringen til oppskriften står det at alle striper strikkes i glattstrikk. I selve oppskriften står det på sin side: strikkes i rillestrikk. Er ikke rillestrikk å strikke rett på alle pinner, også fra vrangsiden? Hva er det jeg ikke får med meg? 😅
12.09.2019 - 22:45DROPS Design answered:
Hei Karete, Kant maskene er strikket i rille, resten av stykket er strikket i glattstrikk. God fornøyelse!
13.09.2019 - 07:30Tine wrote:
Kan man strikke den i sky og så evt gå en størrelse op?
14.07.2019 - 10:43DROPS Design answered:
Hei Tine. Nei, denne jakken er strikket i et garn fra garngruppe C, mens garnet DROPS Sky tilhører garngruppe B (tynnere garn), slik at resultatet vil ikke bli det samme. mvh Drops design
26.08.2019 - 13:20