DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6864.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Embrace of the Sun

Prjónaður kjóll með gatamynstri, hringlaga berustykki og stuttum ermum, prjónaður ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Muskat.

DROPS 191-5
DROPS Design: Mynstur r-719
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS MUSKAT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
600-650-750-800-900-950 g litur 07, ljós gulur

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 og 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkja og 28 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 3,5 fyrir perluprjón – eða þá stærð sem þarf til að 22 lykkjur og 30 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6864.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

PERLUPRJÓN:
UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 2: sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur.
Endurtakið umferð 2.

ÚTAUKNING-1:
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 121 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 15) = 8,1.
Í þessu dæmi þá er aukið út eftir ca 8. hverja lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1 og A.3).

LASKALÍNA:
Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 prjónamerkin í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig: Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri).
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um fram- og bakstykki):
Byrjið 4 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

ÚTAUKNING-2 (á við um fram- og bakstykki):
Aukið út um 1 lykkju með því að taka upp lykkjuna frá fyrri umferð og prjónið nýju lykkjuna slétt. Þegar aukið er út á eftir 1. og 3. prjónamerki er tekin upp 1 lykkja í fyrsta lykkjuboga á eftir prjónamerki. Þegar aukið er út á undan 2. og 4. prjónamerki á að taka upp 1 lykkju í síðasta lykkjuboga á undan prjónamerki.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Berustykki og fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Kantur á ermum er prjónaður í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 121-125-129-135-145-149 lykkjur á stuttan hringprjón 3,5 með Muskat. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í 2 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 15-19-23-17-15-19 lykkjur jafnt yfir - LESIÐ ÚTAUKNING-1 = 136-144-152-152-160-168 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Prjónið A.1 hringinn (= 17-18-19-19-20-21 mynstureiningar með 8 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 204-216-228-228-240-252 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 10-10-10-11-11-11 cm frá uppfitjunarkanti.
Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið fyrir laskalínu þannig (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar): Fyrsta prjónamerkið er sett á eftir fyrstu 31-32-34-36-39-43 lykkjur (= ½ bakstykki), 2. prjónamerkið er sett á eftir næstu 40-44-46-42-42-40 lykkjur (= ermi), 3. prjónamerki er sett á eftir næstu 62-64-68-72-78-86 lykkjur (= framstykki) og 4. prjónamerki er sett á eftir næstu 40-44-46-42-42-40 lykkjur (= ermi). Nú eru 31-32-34-36-39-43 lykkjur á eftir síðasta prjónamerki á hálfu bakstykki.
Prjónið sléttprjón hringinn. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 lykkjur fleiri). Aukið út svona í annarri hverri umferð alls 0-3-5-11-11-12 sinnum og síðan í 4. hverri umferð alls 6-6-6-4-5-6 sinnum. Á eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu eru 252-288-316-348-368-396 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-4-0-0-4-0 lykkjur jafnt yfir = 256-292-316-348-372-396 lykkjur.
Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 19-21-23-25-27-29 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan.
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 38-42-45-51-56-61 lykkjur sléttprjón (= ½ bakstykki), setjið næstu 52-62-68-72-74-76 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 76-84-90-102-112-122 lykkjur í sléttprjóni (= framstykki), setjið næstu 52-62-68-72-74-76 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 38-42-45-51-56-61 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni (= bakstykki). Klippið frá. Fram- og bakstykki og kantur á ermum er prjónað til loka hvort fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 168-184-200-224-248-272 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki á eftir 84-92-100-112-124-136 lykkjur (= í hliðar á kjól). Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – lesið ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í öðrum hverjum cm alls 4 sinnum í hvorri hlið = 152-168-184-208-232-256 lykkjur. Takið frá öll prjónamerki í stykkinu, nema prjónamerki í byrjun á umferð. Þegar stykkið mælist 15 cm frá skiptingu eru sett 4 ný prjónamerki í stykkið þannig: Fyrsta prjónamerki er sett á eftir fyrstu 15-18-21-26-31-36 lykkjur, 2. prjónamerkið er sett á eftir næstu 46-48-50-52-54-56 lykkjur, 3. prjónamerkið er sett á eftir næstu 30-36-42-52-62-72 lykkjur og 4. prjónamerkið er sett á eftir næstu 46-48-50-52-54-56 lykkjur. Nú eru 15-18-21-26-31-36 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki.
Í næstu umferð er aukið út á eftir 1. og 3. prjónamerki og á undan 2. og 4. prjónamerki – lesið ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 4-5-3½-3½-3½-3½ cm millibili alls 7-6-8-8-8-8 sinnum = 180-192-216-240-264-288 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 44-45-46-45-46-46 cm prjónið A.2 hringinn (= 15-16-18-20-22-24 mynstureiningar með 12 lykkjum). Í hverri umferð með ör í A.2 færist byrjun á umferð um 2 lykkjur til vinstri, þ.e.a.s. takið 2 fyrstu lykkjurnar óprjónaðar á hægri prjón, prjónið síðan A.2 hringinn. Þær 2 lykkjur sem teknar voru yfir á hægri prjón koma til með að prjónast í síðustu endurtekningu með A.2.

Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt. Síðan byrjar næstu umferð eins og venjulega. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka eru 240-256-288-320-352-384 lykkjur í umferð. Prjónið síðan A.3 hringinn (= 15-16-18-20-22-24 mynstureiningar með 16 lykkjur). Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka eru 315-336-378-380-418-456 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 14-15-17-19-21-23 lykkjur jafnt yfir = 329-351-395-399-439-479 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið perluprjón hringinn í 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir sléttar lykkjur. Kjólinn mælist ca 87-90-93-96-99-101 cm frá öxl og niður.

KANTUR Á ERMI:
Setjið 52-62-68-72-74-76 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 3,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 60-70-78-82-86-90 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt og fækkið jafnframt um 1 lykkju í þessari umferð = 59-69-77-81-85-89 lykkjur. Prjónið perluprjón hringinn í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir sléttar lykkjur.
Prjónið hinn kant á ermi á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem voru prjónaðar saman
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat
symbols = byrjun á umferð færist um 2 lykkjur til vinstri
symbols = byrjun á umferð færist um 2 lykkjur til vinstri, síðan byrjar hver umferð hér
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

191-5 Embrace of the Sun

KnitCeli, Netherlands

Embrace of the Sun

Rachael, New Zealand

Embrace of the Sun

Nureczka, Poland

191-5 Embrace of the Sun

trudyburch, United States

Embrace of the Sun

OutiH, Finland

191-5 Embrace of the Sun

Yevgenia, United States

Skrifaðu athugasemd um DROPS 191-5

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (37)

country flag Jo Bolt wrote:

What would be the best alternative yarn to the one recommended as I am allergic to wool but would love to knit this dress.

13.09.2023 - 19:44

DROPS Design answered:

Hi Jo, Drops yarns are in groups and all yarns within one group can be used for the same pattern. Drops Muskat is from group B, so click på "Yarns and Needles" at the top of the page, then "Yarn groups" bottom right-ish. A list of yarns in group B will include all types and qualities so you can choose freely. We always recommend that you work a swatch before beginning your project, to check your knitting tension. Happy crafting!

14.09.2023 - 06:48

country flag Pernilla wrote:

Hej, jag undrar hur jag gör när oket delar sig från fram och bakstycket. Om jag förstår det rätt så ska jag klippa av tråden mitt bak och nu räknas början av varvet från mitt under armen. Hur gör jag med de maskor som är på stickan fram till mitt under armen? Lyfter jag bara över dem utan att sticka dem?

02.05.2023 - 12:28

DROPS Design answered:

Hej Pernilla, ja det stemmer, det er bare at flytte maskerne over på den anden pind :)

03.05.2023 - 07:54

country flag Pierre Luc wrote:

Bonjour, J'ai une question concernant le passage entre l'Empiècement et le Dos/Devant : ou commence le début du tour pour le Dos/Devant. Pour l'empiècement, il était au milieu du dos, et si j'ai bien compris pour le dos/devant, le début du tour se situe à la moitié des mailles ajoutées (coté de la robe). est bien cela? Merci d'avance pour votre retour, Pierre Luc

18.08.2022 - 10:44

DROPS Design answered:

Bonjour Pierre Luc, tout à fait, l'empiècement et le dos/le devant se tricotent en commençant les tours à partir du milieu dos. Lorsque vous tricotez le bas de la robe, placez un marqueur au milieu des mailles montées sous les manches = côtés de la robe. On va diminuer de chaque côté de ces marqueurs. On place ensuite d'autres marqueurs (4) pour augmenter après/avant ces marqueurs pour le bas de la robe. Bon tricot!

18.08.2022 - 15:04

country flag Barbara wrote:

Hallo, könntet Ihr einmal ein Kleid, gestrickt, mit Farbverlaufsgarn als Anleitung vorstellen, das würde mich sehr freuen. Danke für die schönen Modelle.

25.06.2022 - 15:50

DROPS Design answered:

Liebe Barbara, hier finden Sie einige mit Delight - und hier mit Fabel. Hoffentlich können Ihnen diese Modellen inspirieren. Viel Spaß beim stricken!

27.06.2022 - 09:16

country flag Birgit Jessen wrote:

Hi! Die Anleitung und das Kleid sind toll, ich habe allerdings 250g Wolle übrig gehabt, ist nicht schlimm, ich mache etwas anderes daraus. Ich wollte bloß den Hinweis geben. VG BJ

03.06.2022 - 12:22

country flag Robin Brower wrote:

Where do I see a dress size chart so I know what size to make that will fit me? I do not know which size to make that will fit me.

14.04.2022 - 18:20

DROPS Design answered:

Dear Robin, you can check the measurements chart after the pattern instructions and diagram, with all measurements in cm, to see which size will fit you best. Happy knitting!

14.04.2022 - 18:37

country flag Kateřina Schmiedová wrote:

Dobrý den, ráda bych se doptala na raglánové zkosení. Pletu velikost S - znamená to tedy, že přidávám pouze v 1. řadě a potom až v každé 4. řadě 6x ? A poté v další 1. řadě již nepřidávam? Děkuji, přeji hezký den :-)

09.04.2022 - 20:17

DROPS Design answered:

Dobrý den, Kateřino, pro raglánové zkosení přidáte u velikosti S v 1. kruhové řadě, a pak v každé 4. řadě 6x. Potom v následující kruh. řadě přidáte rovnoměrně 4 oka - tj. podle popisu v odstavci TIP – PŘIDÁVÁNÍ 1. Ať se daří!

23.04.2022 - 08:35

country flag Meaghen wrote:

Hi there! I love this dress but it is a bit too short for my liking. Am I able to add a few extra inches to the body of the dress so it ends at my knees? Thank you, Meaghen

14.02.2022 - 22:53

DROPS Design answered:

Hi Meaghan, Yes, this is no problem. Continue working to the desired length before starting the pattern at the bottom of the dress. Happy knitting!

15.02.2022 - 08:20

country flag Wesley Lucas wrote:

Hi DROPS Team! First off, can I just say thank you so much for the amazing free patterns and all of the responses you folks give in these comment sections? You're an awesome company and I'm so grateful to be able to knit them! My question is: Instead of doing my incs with a YO that gets twisted on the next round, can I do a M1L and M1R on either side of the markers? I'm not a huge fan of YO incs unless I *need* the hole and I just think it would look cleaner. Would it pose a problem?

06.02.2022 - 04:13

DROPS Design answered:

Dear Mrs Lucas, thank you very much for your feedback! Feel free to use another technique to increase here if you are not ease with the yarn overs increases. Happy knitting!

07.02.2022 - 09:52

country flag Fuad wrote:

I have followed your instructions, you left for Kim ,"Dear Kim, at the very beg of the round, move the first 2 sts onto right needles without working them, rounds now start here,.. " regarding the arrow A2 however I'm still struggling , cause on row 15 it seems that the pattern is not lining up. Does this mean the NEW beginning would be after I move the 2 stitch to the right needle. Is there a video to demonstrate this please, I'm so confuse, but I'm not giving up

17.09.2021 - 15:17

DROPS Design answered:

Dear Mrs Fuad, you have to displace the beg of the round only on the row with an arrow, this means, on row after (= row 15), beg the round as before to make sure the pattern will be lined up. Happy knitting!

20.09.2021 - 10:22