DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6820.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Aftensol

Peysa með hringlaga berustykki og gatamynstri, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Air. Stærð S - XXXL.

DROPS 186-5
DROPS Design: Mynstur ai-113
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
250-300-300-350-400-400 g litur 20, bleikur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 60 eða 80 cm) NR 5,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 lykkjur og 20 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 60 eða 80 cm) NR 4,5 – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6820.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð.

LASKALÍNA:
Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 prjónamerkin í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig: Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa tveggja lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 156 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 21) = 7,4.
Í þessu dæmi þá er aukið út til skiptis eftir ca 7. hverja og 8. hverja lykkju. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

ÚTAUKNING-2 (á við um miðju undir ermi):
Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA- STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Berustykki og fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður.
Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 72-78-78-84-90-96 lykkjur á hringprjón 4,5 með Air.
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3-3-3-4-4-4 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Prjónið A.1 hringinn (= 12-13-13-14-15-16 mynstureiningar með 6 lykkjum – mynstrið á að passa fallega yfir stroff þannig að affellingarkantur í A.1 kemur beint yfir 1 lykkju slétt frá stroffi og að slétta lykkjan mitt í blaði í A.1 kemur beint yfir 1 lykkju slétt í stroffi).
Haldið áfram með A.1 eins og útskýrt er í mynsturteikningu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 216-234-234-252-270-288 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 20-20-20-20-23-23 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan.
Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna fyrst lykkjurnar:
Fyrsta prjónamerkið er sett á eftir fyrstu 34-36-36-40-44-47 lykkjur (= ½ bakstykki), 2. prjónamerki er sett á eftir næstu 40-45-45-46-47-50 lykkjur (= ermi), 3. prjónamerki er sett á eftir næstu 68-72-72-80-88-94 lykkjur (= framstykki) og 4. prjónamerki er sett á eftir næstu 40-45-45-46-47-50 lykkjur (= ermi). Nú eru 34-36-36-40-44-47 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki (= ½ bakstykki).
Prjónið sléttprjón hringinn. JAFNFRAMT þegar prjónuð hefur verið 1 umferð í sléttprjóni eftir A.1 byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 2-3-5-6-6-5 sinnum = 232-258-274-300-318-328 lykkjur í umferð.
Prjónið síðan sléttprjón þar til eftir er 1 umferð þar til stykkið mælist 23-24-25-27-29-31 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 36-39-41-46-50-52 lykkjur slétt (= ½ bakstykki), setjið næstu 44-51-55-58-59-60 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið undir ermi), prjónið 72-78-82-92-100-104 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 44-51-55-58-59-60 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 36-39-41-46-50-52 lykkjur sem eftir eru í umferð (= ½ bakstykki). Klippið frá. Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig.
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 156-168-180-200-220-232 lykkjur. Byrjið umferð mitt undir ermi í annarri hlið á stykki, þ.e.a.s. mitt í 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 32-33-34-33-33-33 cm frá skiptingu er prjónuð 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 21-24-27-28-29-32 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING-1 = 177-192-207-228-249-264 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið stroff í hring (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3-3-3-4-4-4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 44-51-55-58-59-60 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5,5, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 50-57-63-66-69-72 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-10-12 lykkjum undir ermi og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3-1½-1½-1-1-1 cm millibili alls 5-8-10-11-11-12 sinnum = 40-41-43-44-47-48 lykkjur. Þegar stykkið mælist 17-16-20-15-15-16 cm frá skiptingu (úrtaka á nú að vera lokið), aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 6-6-5-4½-4½-4 cm millibili alls 4-4-4-5-5-5 sinnum = 48-49-51-54-57-58 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 42-41-41-39-37-35 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 0-2-0-0-0-2 lykkjur jafnt yfir = 48-51-51-54-57-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3-3-3-4-4-4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Ermin mælist ca 45-44-44-43-41-39 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat

symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Aftensol

Céline

Aftensol

Deanna, Canada

aftensol

BirTual, Norway

Aftensol

Handmadeknittings.lv, Latvia

Clover & Aftensol

Mira, Norway

Skrifaðu athugasemd um DROPS 186-5

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (46)

country flag Jean Shanbeck wrote:

Where are the body measurements for this pattern? Example: Size XL: Bust 42", Sleeve Length: 16" etc???? Thanks! Jean

21.01.2024 - 23:25

DROPS Design answered:

Dear Jean, these measurements can be found in the sketch below the pattern instructions. Happy knitting!

22.01.2024 - 05:16

country flag Mascha wrote:

Hallo! Ich möchte diesen Pulli in GrößeXL Cotton Merino + Kid Silk stricken und bräuchte bitte Hilfe bei der Berechnung des Garnbedarfs. Laut Anleitung braucht man 350 g Air; weil ich lieber lange Ärmel stricken möchte, rechne ich mit 400 g Air, also 1200 m Garn. Das entspricht 11 Knäul Cotton Merino (11 mal 110 m sind 1210 m) und 6 Knäul Kid Silk (6 mal 210 m sind 1260 m). Ist das so richtig? Herzlichen Dank im Voraus für Ihre Hilfe!

30.01.2023 - 12:14

DROPS Design answered:

Liebe Mascha, zuerst sollen Sie sicher sein, daß Sie die genaue Maschenprobe bekommen - dann sollen Sie die benötigte gesamte Länge in meter für Ihre Größe kalkulieren, dann diese Länge durch die Lauflänge Cotton Merino und Kid-Silk (dh beide) teilen - so bekommen Sie die jeweiligen Länge. Gerne wird Ihnen damit noch Ihr DROPS Händler damit - auch per Telefon oder per E-Mail weiterhelfen. Viel Spaß beim stricken!

30.01.2023 - 15:51

country flag Lise Kjær wrote:

Hej. Er denne bluse forhøjet i nakken? Jeg synes det ser sådan ud på skitsen, men synes ikke jeg kan læse det ud af opskriften. Bedste hilsner Lise

27.01.2023 - 19:08

DROPS Design answered:

Hei Lise. Nei, denne blusen har ingen forhøyning bak skrevet i oppskriften. mvh DROPS Design

30.01.2023 - 13:55

country flag Servet Özgür wrote:

Thank you so much.

18.03.2022 - 18:23

country flag Irene Fagerheim wrote:

I A1mønster genser Aftensol str L begynte jeg 1.omgang med 1vrang-neste begynte eg med 7rette og sluttet omg med vrang. Er dette rett? I 7.omg begynte eg og på 7rette også 2rett sammen- men skal eg ha 1rett/kast/ 1rett der den sorte ovalen er? Eller 2rett sm-1kast også begynne på 1vrang?Også 1vrang-1rett/kast/ 1rett,1maske løs og 1rett over ,og så 7rette igjen? Takk for svar.

04.02.2022 - 09:01

DROPS Design answered:

Hej Irene. När du stickar runt ska du läsa diagrammet från höger till vänster varje omgang. Den sorte ovalen är ett kast. Mvh DROPS Design

04.02.2022 - 13:58

country flag Britt Johansen wrote:

Nu har jeg pillet op 5 gange. Kan simpelthen ikke få mønster til at passe med den angivne vrang i de første 7 pinde. Kan I hjælpe mig? Bedste hilsner Britt

17.07.2020 - 13:36

DROPS Design answered:

Hej Britt, sæt et mærke for hver 6 maske, så du er sikker på at få alle 6 masker med inden du starter forfra. Lad gerne mærkerne følge med op. efter 1. omgang har du 8 masker imellem hvert mærke, og efter 3.omgang har du 10 masker imellem hvert mærke. God fornøjelse!

30.07.2020 - 15:01

country flag Mahin wrote:

Hi and thanks for this beautiful pattern! I am gonna knit this with my favorite yarn Baby Alpaca Silk! The right size for me is usu M, now the question is if I can knit XL to get the right size. Thanks for your answer!

30.06.2020 - 15:33

DROPS Design answered:

Dear Mahin, you can work with 2 strands BabyAlpaca Silk to get the pattern working in your size since 2 strands yarn group A just as BabyAlpaca Silk = 1 strand group C as Air. This way, you will get the correct gauge and don't have to recalculate whole pattern to get it workign. Try our yarn converter to get new amount of yarn. Happy knitting!

30.06.2020 - 18:32

country flag Gaelle wrote:

J'ai commencé à tricoter ce modèle en gris mix Il me semble que le motif n'est pas trop visible Est-ce du au choix de la couleur? Vaut-il mieux utiliser un fil uni?

24.05.2020 - 10:00

DROPS Design answered:

Bonjour Gaelle, si votre tension est correcte, le motif devrait se voir de la même façon, toutefois, le rendu est parfois différent d'une couleur à l'autre - N'hésitez pas à montrer votre ouvrage à votre magasin ou à d'autres fans dans notre groupe DROPS Workshop pour avoir d'autres avis. Bon tricot!

25.05.2020 - 09:42

country flag Julia wrote:

Hello! Such a beautiful pattern! Thanks for releasing it. I noticed that there are no short rows in most of the garnstudio patterns. However, I’d like to practice doing short rows when knitting this sweater. Since there’s a pattern (A1) beginning right after the rib, I wonder what’d be the best place for short rows when knitting this sweater? Any suggestions are very much appreciated. Thanks. Julia

27.02.2020 - 23:28

DROPS Design answered:

Dear Julia, we are unfortunately not able to adjust every pattern to every single request, you can find inspiration from similar pattern with an elevation (and same tension) - your DROPS store might be able to help you there, even per mail or telephone. Happy knitting!

28.02.2020 - 08:32

country flag Béatrice Lebriat wrote:

Bonjour, Que représente les étoiles sur le diagramme ? Merci

14.01.2020 - 11:08

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lebriat, les étoiles correspondent à 1 maille envers (cf légende 2ème symbole). Bon tricot!

14.01.2020 - 13:08