Magic Mountain |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki og marglitu norrænu mynstri, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Paris.
DROPS 187-8 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 90 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 6) = 15. Í þessu dæmi er fækkað með því að prjóna 14. og 15. hverja lykkju slétt saman. Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 15. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veljið mynstur fyrir rétta stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykki og fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður að handveg, síðan er fram- og bakstykki prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 90-96-96-102-102-108 lykkjur á stuttan hringprjón 4,5 með litnum kórall. Prjónið 1 umferð slétt. Skiptið yfir í litinn dökk beige og prjónið næstu umferð þannig: 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Haldið svona áfram með stroff þar til kantur í hálsmáli mælist 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 6-10-6-8-4-6 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 84-86-90-94-98-102 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 31-29-30-31-32-33 lykkjur jafnt yfir = 115-115-120-125-130-135 lykkjur. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Prjónið A.1 hringinn (= 23-23-24-25-26-27 mynstureiningar með 5 lykkjum). Haldið áfram með mynstur eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Lesið LEIÐBEININGAR og ATHUGIÐ PRJÓNFESTU! JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í mynsturteikningu er aukið út eins og útskýrt er að neðan: Ör-1: Aukið út um 15-19-20-22-23-25 lykkjur jafnt yfir = 130-134-140-147-153-160 lykkjur. Ör-2: Aukið út um 14-18-20-21-23-24 lykkjur jafnt yfir = 144-152-160-168-176-184 lykkjur (myndar pláss fyrir 18-19-20-21-22-23 mynstureiningar með 8 lykkjum). Ör-3: Aukið út um 30-34-38-42-40-44 lykkjur jafnt yfir = 174-186-198-210-216-228 lykkjur. Ör-4: Aukið út um 26-29-32-35-34-32 lykkjur jafnt yfir = 200-215-230-245-250-260 lykkjur (myndar pláss fyrir 40-43-46-49-50-52 mynstureiningar með 5 lykkjum). Ör-5: Aukið út um 24-25-26-27-30-28 lykkjur jafnt yfir = 224-240-256-272-280-288 lykkjur (myndar pláss fyrir 28-30-32-34-35-36 mynstureiningar með 8 lykkjum). Ör-6: Aukið út um 18-20-12-20-24-24 lykkjur jafnt yfir = 242-260-268-292-304-312 lykkjur. Útaukning er nú lokið í S og M. L + XL + XXL + XXXL: Ör-7: Aukið út um 12-18-21-18 lykkjur jafnt yfir = 280-310-325-330 lykkjur. Útaukning er nú lokið í L og XL. XXL + XXXL: Ör-8: Aukið út um 19-18 lykkjur jafnt yfir = 344-348 lykkjur. Útaukning er nú lokið í XXL och XXXL. ALLAR STÆRÐIR: = 242-260-280-310-344-348 lykkjur. Prjónið A.1 til loka. Stykkið mælist nú ca 24-24-28-28-32-32 cm frá uppfitjunarkanti. Næsta umferð er prjónuð þannig (með litnum mosagrænn í S og M, litnum apríkósa í L og XL og með litnum natur í XXL og XXXL): Setjið fyrstu 42-46-52-55-60-60 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-8-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 79-84-88-100-112-114 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 42-46-52-55-60-60 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-8-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 79-84-88-100-112-114 lykkjur sem eftir eru slétt (= bakstykki). Klippið frá. Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 170-180-192-216-240-252 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í þessa hlið á stykki, mitt í 6-6-8-8-8-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Byrjið umferð hér og prjónið A.2 hringinn (= 17-18-16-18-20-21 mynstureiningar með 10-10-12-12-12-12 lykkjur). Í umferð merktri með ör-7 í A.2 er fækkað um 2 lykkjur jafnt yfir (á einungis við stærð S) = 168-180-192-216-240-252 lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 33-33-29-29-25-25 cm frá skiptingu. Prjónið síðan sléttprjón með litnum dökk beige. Þegar stykkið mælist 34-36-34-36-34-36 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir 4 cm til loka) skiptist stykkið við klauf í hvorri hlið. Haldið eftir fyrstu 84-90-96-108-120-126 lykkjur á prjóni og setjið þær 84-90-96-108-120-126 lykkjur sem eftir eru á þráð eða á hjálparprjón. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu – JAFNFRAMT er aukið út um 15-21-21-21-21-27 lykkjur jafnt yfir í þessari umferð (ekki er aukið út yfir ystu 3 lykkjur í hvorri hlið) = 99-111-117-129-141-153 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið stroff frá röngu þannig: 3 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 3 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 3 lykkjur brugðið og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttprjóni yfir sléttprjón og brugðnum lykkju yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Prjónið alveg eins yfir lykkjur af þræði/hjálparprjóni. Peysan mælist ca 64-66-68-70-72-74 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 42-46-52-55-60-60 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki yfir á stuttan hringprjón 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-8-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 48-52-60-63-68-72 lykkjur. Prjónið fyrstu umferð í A.2 og fækkið jafnframt um 1-1-1-0-1-1 lykkjur í þessari umferð = 47-51-59-63-67-71 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi) og 1 prjónamerki í miðju lykkju í umferð (= mitt ofan á ermi). Prjónið A.2 hringinn, en byrjið umferð eins og útskýrt er að neðan: Í stærð M, L og XXXL prjónið A.2 frá og með 2. lykkju í mynsturteikningu. Í stærð S er A.2 prjónað frá og með 3. lykkju í mynsturteikningu. Í stærð XXL er A.2 prjónað frá og með 4. lykkju í mynsturteikningu. Í stærð XL er A.2 prjónað frá og með 6. lykkju í mynsturteikningu. Þegar byrjað er þá kemur lykkjan með prjónamerki mitt ofan á ermi að passa við lykkju merkta með svartri stjörnu, en vegna mismunandi lykkjufjölda í A.2 í S og M verður að telja út byrjun á umferð uppá nýtt þegar lykkjufjöldi í mynstureiningu breytist í 12 lykkjur í þessum stærðum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 3-3-3-2-2-2 cm frá skiptingu er fækkað um2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 5½-5-3-3-2½-2 cm millibili alls 7-8-11-12-13-15 sinnum = 33-35-37-39-41-41 lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er prjónað með litnum dökk beige til loka. Þegar stykkið mælist 39-39-36-36-33-33 cm frá skiptingu er prjónuð 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 9-7-5-9-7-7 lykkjur jafnt yfir = 42-42-42-48-48-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5 og prjónið stroff hringinn (= 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 4 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Ermin mælist ca 43-43-40-40-37-37 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (71)
Helen wrote:
I made the small size and the body was too big but the sleeves were really, really tight from the armpit down with a baggy cuff. I had to rework the sleeves using another pattern and undoing all the Nordic pattern.
28.03.2024 - 14:32Jean Homer wrote:
I found this pattern easy to follow but the tension 16 stitches to 10cm on 5.5 mm needles doesnt tally with the ball band which is 17 sts to 10 cms on 5 mm needles. That 1 stitch difference makes a huge difference to the final garment if not addressed but using larger needles just makes the knitting loose and sloppy .
30.01.2024 - 17:37Diana wrote:
Beste mensen, Is het de bedoeling om het proeflapje voor de naalden 5,5 te breien met een meerkleurig inbreipatroon of gewoon unikleur tricotsteek? Vriendelijke groet, Diana
16.02.2023 - 15:33DROPS Design answered:
Dag Diana,
Je kunt het proeflapje gewoon in tricotsteek breien, tenzij je van jezelf wet dat je altijd strakker of juist losser breit wanner er zo'n patroon in zit. In dat geval is het beter om ook het proeflapje in tricotsteek te breien.
18.02.2023 - 10:24Monika Siebe wrote:
Hallo, laut Beschreibung habe ich 325 Maschen (für größe L)auf der Nadel, wenn ich mit den Zunahmen der Passe in A1 fertig bin. danach kommt in der Beschreibung: "alle Größen: = 280 Maschen für Größe L. wann oder wo wurden denn die 45 Maschen abgenommen????
02.01.2023 - 16:06DROPS Design answered:
Liebe Frau Siebe, nach dem 6. Pfeil haben Sie 268 Maschen in L, dann nehmen Sie 12 Maschen zu = 268+12=280 Maschen (in diesem Teil ist L die 1. Größe). Viel Spaß beim stricken!
02.01.2023 - 16:34Kathy wrote:
Hi Guys. Love the jumper chosen for neckline. The first pattern I’ve tried of yours. I’m trying to knit the large just a fraction too big really but … Casting 96 sts to knit in the round. Knitted down past the petrol colour. Neck looks too tight. Tried it on and it’s a polar neck. Not at all like the neckline in the photo. I must be doing something wrong as can’t see anyone with this problem. Can you help me please? Thank you. 🧶
04.12.2021 - 16:09DROPS Design answered:
Dear Kathy, you need to check your gauge; if it is too tight you can use a larger needle to cast on and work at the beginning. Happy knitting!
05.12.2021 - 17:09GRASSET Edith wrote:
Je souhaiterai faire ce modèle en ALPAGA brushed alpaca silk de même groupe. Cette qualité est en pelote de 25 g. Il me semble que cela fait beaucoup de pelotes et donc très cher. N'y a t'il pas une erreur? Merci
15.09.2021 - 10:40DROPS Design answered:
Bonjour Mme Grasset, utilisez notre convertisseur pour calculer la quantité exacte requise en DROPS Brushed Alpaca Silk pour chaque couleur (ex pour 250 g Paris, il vous faut 75 g Brushed Alpaca Silk, soit 3 pelotes). Rappelez-vous juste bien que le résultat sera différent de celui de la photo si vous utilisez cette alternative. Votre magasin saura vous conseiller si besoin. Bon tricot!
15.09.2021 - 15:47Jolanda Bles wrote:
Hoi ik wil graag deze trui breien maar wil graag geen roze kleuren maar wil die blauwe kleuren zou dat ook kunnen. Groetjes Jolanda
26.04.2021 - 22:02DROPS Design answered:
Dag Jolanda,
Jazeker kan dat. Je bent natuurlijk vrij om te kiezen welke kleuren je gebruikt.
29.04.2021 - 14:54Jolanda Bles wrote:
Hoi ik wil graag deze trui breien maar wil graag geen roze kleuren maar die blauwe kleuren kan dat ook. Stuur maar door naar
26.04.2021 - 21:55Hannelore wrote:
Ich hatte mich auf einen hellen Norweger Pullover gefreut, gerade Recht fürs Frühjahr. Es wurden die originalen Farben bestellt lt ihrerseits Anleitung. Es wird ein dunkler Pullover und hat nichts mit ihrer Abbildung zu tun. Bei der Anleitung wäre die Reihe 9 apricot. Im Originalbild ist ihr Pullover hier grün rot. Die Grundfarbe ist ein dunkelbeige statt der schönen hellen Farbe auf dem Foto. Furchtbar. Umsonst Geld ausgeben.
11.04.2021 - 15:39Rosemarie wrote:
Ich komme mit dem Muster der Ärmel nicht klar. Bei Größe M habe ich zu Beginn 51 Maschen auf der Nadel. Wenn ich ab der 2. Masche mit dem Muster beginne bin ich am Ende der Reihe nicht mehr im Muster. Die letzte Musterfolge bleibt unvollständig
11.04.2021 - 12:38DROPS Design answered:
Liebe Rosemarie, beginnen Sie mit der leztzen 9 Maschen in A.1, dann wiederholen Sie A.1 4 Mal, dann strickens Sie die 2 ersten M in A.1 = 9+40+2=51Maschen. Viel Spaß beim stricken!
12.04.2021 - 09:43