Andean Caravan Jacket |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||
Settið með: Peysu með hringlaga berustykki, lama / alpakka, marglitu mynstri og A-formi, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Húfa með marglitu mynstri. Settið er prjónað úr DROPS Puna.
DROPS 184-19 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Peysa: Sjá mynsturteikningu A.1. Veljið mynstur fyrir rétta stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni fyrir utan lit merkta með brugðið frá réttu, slétt frá röngu. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Húfa: Sjá mynsturteikningu A.2. ÚTAUKNING-1 (á við um útaukningu jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 112 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 37) = 2,8. Í þessu dæmi þá er aukið út til skiptis á eftir ca aðra hverja og 3. hverja lykkju (ekki er aukið út yfir kanta að framan). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR-1 (á við um prjónfestuna): Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist saman. LEIÐBEININGAR-2 (á við um kanta að framan): Þegar mynsturbekkur er prjónaður með tveimur litum, prjónið grunnlit í mynsturbekk einnig yfir 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu! Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir brugðið svo að ekki myndast göt. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Prjónið frá réttu þar til 3 lykkjur eru eftir í lok umferðar, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkjuna slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellt er af fyrir fyrsta hnappagati þegar stroffið í kraga mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir næstu 7-7-7-8-8-8 með ca 8-8-8-7½-7½-8 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Ermarnar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón ofan frá og niður. BERUSTYKKI: Fitjið upp 112-116-120-128-128-136 lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum grár Puna. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru efir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan 1 umferð brugðið frá röngu (kantlykkjur að framan eru prjónaðar í garðaprjóni) þegar aukið er út um 37-39-41-45-45-43 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING-1 = 149-155-161-173-173-179 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið eftir mynsturteikningu A.1a þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 23-24-25-27-27-28 mynstureiningar með 6 lykkjum), prjónið A.1b (= 1 lykkja) og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni – lesið MYNSTUR, LEIÐBEININGAR-1 og LEIÐBEININGAR-2. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið til og með umferð með stjörnu í mynsturteikningu fyrir þína stærð, stykkið á að mælast ca 20-20-21-23-25-27 cm (ef það er ekki svo, haldið áfram með dökk grár þar náð hefur þessari lengd). Nú eru 287-299-336-362-389-403 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð þar sem lykkjufjöldinn hefur verið jafnaður til 283-299-339-363-383-407 lykkjur. Prjónið síðan með litnum dökk grár til loka. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 43-44-50-54-58-63 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 60-66-74-78-80-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-12-12-12-14-16 nýjar lykkjur (= mitt undir ermi), prjónið 77-79-91-99-107-117 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 60-66-74-78-80-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-12-12-12-14-16 lykkjur (= mitt undir ermi) og prjónið 43-44-50-54-58-63 lykkjur slétt (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 183-191-215-231-251-275 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 48-50-56-60-65-71 inn frá hvorri hlið (= 87-91-103-111-121-133 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki). Látið prjónamerkin fylgja áfram með í stykkinu. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 5 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 4½ cm millibili alls 9 sinnum í öllum stærðum = 219-227-251-267-287-311 lykkjur. Þegar stykkið mælist 41-43-44-44-44-44 cm prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem aukið er út um 13-9-9-13-13-17 lykkjur jafnt yfir = 232-236-260-280-300-328 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. ERMI: Setjið 60-66-74-78-80-82 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna/stuttan hringprjón 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 10-12-12-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 70-78-86-90-94-98 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar (= mitt undir ermi). Prjónið sléttprjón hringinn með litnum dökk grár. Þegar stykkið mælist 2 cm er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA að ofan. Fækkið lykkjum svona með 3-2½-2-2-1½-1½ cm millibili alls 12-15-18-19-20-21 sinnum = 46-48-50-52-54-56 lykkjur. Ermin mælist 41-41-42-40-39-38 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis) prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 2-4-2-4-2-4 lykkjur jafnt yfir = 48-52-52-56-56-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón. Skiptið yfir á sokkaprjón eftir þörf. HÚFA: Fitjið upp 152-164 lykkjur á hringprjón 3 með litnum grár Puna. Prjónið 1 umferð brugðið. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til stykkið mælist 10 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 52-54 lykkjur jafnt yfir = 100-110 lykkjur. Prjónið nú mynsturteikningu A.2 yfir allar lykkjur (= 10-11 sinnum á breidd). Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er prjónað sléttprjón með grár til loka. Þegar stykkið mælist 24-25 cm er fækkað um 4-2 lykkjur jafnt yfir í næstu umferð = 96-108 lykkjur. Setjið nú 6 prjónamerki í stykkið með 16-18 lykkju millibili. Nú byrjar úrtaka. Fækkið um 1 lykkju á eftir hverju prjónamerki með því að prjóna 2 lykkjur á eftir prjónamerki slétt saman. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 10-10 sinnum = 36-48 lykkjur. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð alls 2-3 sinnum = 24-30 lykkjur. Í næstu umferð eru prjónaðar 2 og 2 lykkjur slétt saman = 12-15 lykkjur, endurtakið síðustu umferð = 6-8 lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru og festið vel. Húfan mælist alls 32-33 cm meðtalið stroff. Brjótið uppá stroffið að réttu þannig að uppábrotið mælist ca 6 cm. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (2)
Melanie wrote:
Hallo, ich habe eine Frage bezüglich Diagramm A.2 für die Mütze. Dort steht "1 Masche links in Hin-Reihen, 1 Masche rechts in Rück-Reihen mit grau (diese Runde/Reihe mit derselben Nadelstärke wie das Rippenmuster stricken)" und "1 Masche links in Hin-Reihen, 1 Masche rechts in Rück-Reihen mit natur" aber die Mütze wird ja lediglich rund gestrickt, nicht vor und zurück. Wie gehe ich da vor?
20.04.2018 - 13:34DROPS Design answered:
Liebe Melanie, dh diese Reihe stricken Sie für die Mütze links (= Hin-Reihen da Sie in der Runde stricken) mit derselben Nadelstärke wie das Rippenmuster. Viel Spaß beim stricken!
20.04.2018 - 14:57H Martin wrote:
Is there steeking in the yoke of this pattern?
20.10.2017 - 16:07DROPS Design answered:
Dear Mrs Martin, there are no steek stitches here, you will work the jacket from the top down, back and forth. Happy knitting!
20.10.2017 - 16:13