DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9240.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Seiland Jumper

Settið samanstendur af: Peysu fyrir börn með hringlaga berustykki og marglitu norrænu mynstri, prjónuð ofan frá og niður. Húfum með marglitu norrænu mynstri og dúsk. Stærð 2-12 ára. Settið er prjónað úr DROPS Merino Extra Fine.

DROPS Children 30-5
DROPS Design: Mynstur me-038-bn
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

PEYSA:
Stærð: 2 - 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 - 11/12 ára
Stærð í cm: 92 - 98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140 - 146/152
Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
250-250-300-350-350-400 g litur 31, skógargrænn
100-100-100-100-100-100 g litur 08, ljós beige
50-50-50-50-50-50 g litur 28, norðursjór
50-50-50-50-50-50 g litur 30, sinnepsgulur

Einnig er hægt að prjóna stykkið með garni frá: "Garnmöguleiki (Garnflokkur B)" – sjá tengil að neðan.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 60 eða 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkja og 28 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 60 cm) NR 3,5 – fyrir stroff.
----------------------------------------------------------

HÚFA:
Stærð: 2 - 3/4 - 5/8 - 9/12 ára
Höfuðmál: ca 48/50 - 50/52 - 52/54 - 54/56 cm
Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
50 g í allar stærðir í þessum litum:
litur 31, skógargrænn
litur 08, ljós beige

Einnig er hægt að prjóna stykkið með garni frá: "Garnmöguleiki (Garnflokkur B)" – sjá tengil að neðan.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 23 lykkjur og 32 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 2,5 – fyrir stroff.
----------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9240.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

MYNSTUR:
Peysa: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Veljið mynstur fyrir rétta stærð.
Húfa: Sjá mynsturteikningu A.7.
Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

ÚRTAKA/ÚTAUKNING:
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 84 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 6) = 14.
Í þessu dæmi er prjónuð 13. og 14. hver lykkja slétt saman ef fækka á lykkjum.
Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir 14. hverri lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn inn í mynstur svo að ekki myndist gat.

UPPHÆKKUN:
Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar = miðja að aftan. Byrjið frá réttu með norðursjó og prjónið sléttar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 7-7-8-8-9-9 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið 14-14-16-16-18-18 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 21-21-24-24-27-27 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 28-28-32-32-36-36 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 35-35-40-40-45-45 sléttar lykkjur, snúið, herðið á þræði og prjónið 42-42-48-48-54-54 brugðið lykkjur. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur að miðju að aftan.

LEIÐBEININGAR-1:
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum aftan á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það strekkist á því.

LEIÐBEININGAR-2 (á við um berustykki á peysu):
Ef prjónfestan passar ekki á hæðina og það verða fleiri umferðir á hæðina en 10 cm eins og gefið er upp í uppskrift, þá verður berustykkið allt of stutt og handvegur of lítill. Þetta er hægt að jafna til með því að prjóna 1 auka umferð í sléttprjóni með jöfnu millibili í einlitu einingunni á berustykki.

ÚRTAKA-1 (á við um miðju undir ermi):
Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

ÚRTAKA-2 (á við um húfu):
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).
----------------------------------------------------------

PEYSA:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. Byrjun umferðar = miðja að aftan.

HÁLSMÁL:
Fitjið upp 84-88-88-96-96-100 lykkjur á stuttan hringprjón 3,5 með norðursjór. Prjónið eina umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 6-4-4-6-6-4 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 78-84-84-90-90-96 lykkjur. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan. Þegar upphækkun hefur verið prjónuð til loka eru 0-0-2-3-0-2 sléttar umferðir með norðursjór. Lesið LEIÐBEININGAR-1 og LEIÐBEININGAR-2!
Prjónið síðan A.1 hringinn (= 13-14-14-15-15-16 mynstureiningar með 6 lykkjum). Haldið áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í umferð merktri með ör-1 í A.1 eru 117-126-126-135-135-144 lykkjur í umferð. Prjónið umferð eins og mynsturteikning sýnir og aukið JAFNFRAMT út 18 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum – munið eftir ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 135-144-144-153-153-162 lykkjur. Haldið áfram með A.1 (nú er pláss fyrir 15-16-16-17-17-18 mynstureiningar með 9 lykkjum). Í umferð merktri með ör-2 í A.1 er aukið út um 21-24-24-27-27-30 lykkjur jafnt yfir = 156-168-168-180-180-192 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er A.2 prjónað hringinn (= 13-14-14-15-15-16 mynstureiningar með 12 lykkjum). Haldið áfram með A.2 og aukið út eins og mynsturteikning sýnir. Í umferð merktri með ör-3 í A.2 eru 208-224-224-240-240-256 lykkjur. Prjónið umferð eins og mynsturteikning sýnir og aukið jafnframt út um 4-0-12-0-12-8 lykkjur jafnt yfir í þessari umferð = 212-224-236-240-252-264 lykkjur.
Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er A.3 prjónað hringinn (= 53-56-59-60-63-66 mynstureiningar með 4 lykkjum). Eftir A.3 mælist stykkið ca 17-17-18-19-20-21 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan. Næsta umferð er prjónuð með ljós beige þannig: Prjónið 31-33-35-36-38-40 lykkjur í sléttprjóni (= ½ bakstykki), setjið næstu 45-47-49-49-51-53 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 61-65-69-71-75-79 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 45-47-49-49-51-53 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið 30-32-34-35-37-39 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni (=½ bakstykki).
Klippið frá þráðinn sem prjónað er með. Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 134-142-150-158-166-174 lykkjur. Byrjið í annarri hlið á stykki, mitt í 6-6-6-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi. Prjónið A:4 hringinn og aukið jafnframt út um 2 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 136-144-152-160-168-176 lykkjur í umferð og 17-18-19-20-21-22 mynstureiningar með 8 lykkjum.
Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka er A.5 prjónað hringinn = 17-18-19-20-21-22 mynstureiningar með 8 lykkjum). Endurtakið A.5 þar til stykkið mælist ca 13-17-20-23-26-29 cm frá skiptingu – stillið af að prjónaðar séu 2-4 umferðir með skógargrænn eftir umferð með “doppum". Prjónið A.6 hringinn (= 34-36-38-40-42-44 mynstureiningar með 4 lykkjum). Þegar A.6 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 17-21-24-27-30-33 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt með skógargrænn þar sem aukið er út um 24-28-28-32-32-32 lykkjur jafnt yfir = 160-172-180-192-200-208 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju JAFNFRAMT því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Peysan mælist ca 38-42-46-50-54-58 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 45-47-49-49-51-53 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-6-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 51-53-55-57-59-61 lykkjur í umferð. Setjið eitt prjónamerki mitt í 6-6-6-8-8-8 lykkjur undir ermi og 1 prjónamerki í miðju lykkju í umferð (= mitt ofan á ermi). Lesið allan kaflann áður en prjónað er áfram!
Byrjið við prjónamerki mitt undir ermi og prjónið A.4 hringinn, en athugið að mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp í heilli mynstureiningu mitt undir ermi. Byrjið með 3.-2.-1.-8.-7.-6. lykkju í A.4 og endurtakið A.4 hringinn eins langt og það nær. Mynstrið verður samhverft mitt undir ermi og lykkjan með prjónamerki í mitt ofan á ermi á nú að passa við 4. lykkju í A.4.
Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka er A.5 prjónað hringinn, en stillið mynstrið af þannig að A.5 passi fallega yfir A.4 (lykkja með prjónamerki á að passa við staðsetningu með «doppu»). A.5 er síðan endurtekið.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 2 cm er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona með 3-3-5-5-7-6 cm millibili alls 5-6-5-6-5-6 sinnum = 41-41-45-45-49-49 lykkjur.
Þegar stykkið mælist ca 12-16-20-24-28-31 cm frá skiptingu – stillið af að prjónaðar verði 2-4 umferðir með skógargrænn eftir eina umferð með ”doppur”, prjónið A.6 hringinn – byrjið umferð þannig að mynstrið passi fallega yfir doppurnar í A.5. Þegar A.6 hefur verið prjónað til loka er skipt yfir á sokkaprjón 3,5. Prjónið 1 umferð slétt með skógargrænn þar sem fækkað er um 1 lykkju í öllum stærðum = 40-40-44-44-48-48 lykkjur. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að affellingarkanturinn verði ekki stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverri lykkju JAFNFRAMT því sem fellt er af. Ermin mælist ca 20-24-28-32-36-39 cm frá skiptingu undir ermi. Prjónið aðra ermi alveg eins.
----------------------------------------------------------

HÚFA:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf.
Fitjið upp 104-112-112-120 lykkjur á hringprjón 2,5 með skógargrænn. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 8 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 96-104-104-112 lykkjur. Prjónið A.7 hringinn (= 12-13-13-14 mynstureiningar með 8 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.7 hefur verið prjónað til loka er prjónað í sléttprjóni með ljós beige til loka. Þegar stykkið mælist 15-16-17-17 cm eru sett 8 prjónamerki í stykkið með 12-13-13-14 lykkjur á milli hverra prjónamerkja. Í næstu umferð er lykkjum fækkað á eftir hverju prjónamerki – lesið ÚRTAKA-2 (= 8 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 6-7-7-8 sinnum = 48 lykkjur eftir í umferð í öllum stærðum.
* Prjónið 1 umferð slétt, í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 * = 24 lykkjur. Prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 12 lykkjur eftir í umferð. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Húfan mælist ca 20-21-22-23 cm ofan frá og niður.

DÚSKUR:
Gerið einn dúsk með skógargrænn ca 4-5 cm að þvermáli og festið efst á húfu.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 05.06.2018
Leiðrétting í ermi:..Byrjið með 3.-2.-1.-8.-7.-6. lykkju í A.4 og endurtakið A.4 hringinn eins langt og það nær.

Mynstur

symbols = norðursjór
symbols = ljós beige
symbols = sinnep
symbols = skógargrænn
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn með grunnlit í mynsturbekk, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat.
symbols = útaukningsumferð
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 30-5

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (38)

country flag Eelke Keessen-Storm wrote:

Ik brei maat 9/10 jaar. In A2 heb ik bij pijl 3 de gevraagde 240 steken. Dan moet ik verder breien in het telpatroon en 12 steken meerderen. Nu klopt het telpatroon niet meer! Ik wil de punt precies boven de ster houden en dan heb ik 12 x een tussenruimte van 8 st ipv de gevraagde 7 st.

07.12.2023 - 22:14

DROPS Design answered:

Dag Eelke,

Door het meerderen krijg je inderdaad de punt niet precies boven de ster. Het is niet zo dat het patroon dan niet klopt, maar dit hoort gewoon zo. Je zou dan een ander telpatroon moeten maken als je de punt boven de ster wilt hebben.

10.12.2023 - 16:32

country flag Marie wrote:

Ich habe eine Frage zum Ärmel - wenn ich erst 2cm stricke und dann alle 7 cm noch 5mal abnehme, komme ich auf 37cm ab der Teilung... Wenn ich insgesamt nur 5mal annehme komme ich auf 30 cm , aber nie auf 28cm ab der Teilung?! Stimmt da etwas in der Anleitung nicht oder was verstehe ich hier falsch?

29.10.2023 - 16:22

DROPS Design answered:

Liebe Marie, Sie sind ja richtig, die letzte Abnahmen stricken Sie nach 30 cm, aber wenn die Ärmel 28 cm misst stricken Sie A.6 dh die letzte Abnahme strickt man in A.6, nach A.6 stricken Sie dann 4 cm Bündchen, so misst die Ärmel 36 cm. Viel Spaß beim stricken!

30.10.2023 - 16:40

country flag Gudrun Winkler wrote:

Was bedeutet "Läusemuster"? Oder "nach einer Laus"?

10.02.2023 - 17:34

DROPS Design answered:

Liebe Frau Winkler, dies betrifft das Muster mit 1 Masche hellbeige und die anderen Maschen waldgrünn wie im A.5 oder bei den oberen Reihen in A.7 (1 Masche waldgrünn und die anderen 7 Maschen hellbeige). Viel Spaß beim stricken!

13.02.2023 - 08:48

country flag Allegra wrote:

Hi, the chart for the yoke pattern is no longer visible in this pattern. I’m halfway through the chart but can’t seem to find it here anymore! Help?! Thank you for such a beautiful pattern! Allegra

25.10.2022 - 01:08

DROPS Design answered:

Hi Allegra, All the charts are at the bottom of the pattern. Happy knitting!

25.10.2022 - 06:58

country flag Sabrina Schmidt wrote:

Hallo. Ich stricke gerade den ersten Ârmel, Grösse 3/4. Ich beginne bei A.4 in jeder Runde mit der 2. Masche. Das habe ich verstanden aber dann kommen ja die Abnahmen. Verschiebt sich durch die Abnahmen das Muster? Stricke ich nach den Abnahmen einfach ganz normal weiter, also weiterhin immer bei der 2. Masche starten? Vielen Dank

12.03.2022 - 22:30

DROPS Design answered:

Liebe Frau Schmidt, am Anfang und am Ende der Runde stricken Sie nicht ein komplett A.4, wenn Sie dann abnehmen werden das erste A.4 und das letzte A.4 auch abnehmen, dh das Muster stricken Sie wie zuvor in der Höhe, damit die Maschen nicht verschoben werden, aber es wird am Anfang/Ende der Runde immer weniger Maschen im Muster. Viel Spaß beim stricken!

14.03.2022 - 10:54

country flag Marit D Lyngstad wrote:

Skal man virkelig øke 32masker (str 9/10) når man begynner med vrangborden nede på genseren+

12.03.2022 - 18:35

DROPS Design answered:

Hei Marit, Dette er anbefalt for at vrangborden ikke blir stram. God fornøyelse!

14.03.2022 - 07:47

country flag Inga Jespersen wrote:

Jeg stikker størrelse 2 år. Efter A 1 skal jeg begynde at tage ud, men hvor mange masker skal jeg tage ud hver gang?

06.12.2021 - 09:10

country flag Pia Sällemark wrote:

Mönster A1 och A2 har försvunnit från mönstret. Jag är mitt i A2. Hur ska jag kunna sticka klart?

23.08.2021 - 20:10

DROPS Design answered:

Hej Pia. Jag ser de diagrammen här på min pc så de finns kvar. Kanske du kan prova en annan webläsare eller uppdatera sidan för att se de? Mvh DROPS Design

24.08.2021 - 09:38

country flag Icca wrote:

Står jag ska ha 40+60 c kabel eller 80.. Men fattar noll ska jag ha 100cm kabel eller 80 tanke på 40+60=100 eller en både 40 & 60cm eller 80

10.08.2021 - 17:25

country flag Anneke Ter Horst wrote:

Ik zou graag de wol willen bestellen maar wil graag de echte kleuren zien. Is het mogelijk kleur staaltjes toe te sturen? Alvast dank voor uw antwoord. Anneke

30.05.2021 - 17:19