Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
= slétt lykkja | |
= á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn | |
= 2 lykkjur slétt saman | |
= lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð | |
= lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman | |
= prjónstefna |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Celtic Knot |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Peysa prjónuð ofan frá og niður með gatamynstri, laskalínu og A-form úr DROPS Big Merino. Stærð S - XXXL.
DROPS 177-5 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. ÚTAUKNING-1: Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 78 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 8) = 9,75. í þessu dæmi þá er aukið út eftir ca 10. hverja lykkju. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að ekki myndist gat. LASKALÍNA: Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við fjögur prjónamerki í annarri hverri umferð – ATH: Misjafnt er aukið út á fram- og bakstykki og á ermum eins og skýrt er frá í uppskrift. AUKIÐ SVONA ÚT Á FRAM- OG BAKSTYKKI ÞEGAR AUKNAR ERU ÚT 4 LYKKJUR (þ.e.a.s. aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið): Á eftir prjónamerki: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Á undan prjónamerki: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir sem eru næstir prjónamerki prjónaðir slétt (= gat) og hinir prjónaðir snúnir slétt (= ekki gat). AUKIÐ SVONA ÚT Á FRAM- OG BAKSTYKKI ÞEGAR AUKNAR ERU ÚT 2 LYKKJUR (þ.e.a.s. aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið): Á eftir prjónamerki: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri). Á undan prjónamerki: Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt (= 1 lykkja fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt (= gat). AUKIÐ SVONA ÚT Á ERMUM (þ.e.a.s. aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið): Á eftir prjónamerki: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri). Á undan prjónamerki: Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt (= 1 lykkja fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt (= gat). ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stutta hringprjóna/sokkaprjóna. BERUSTYKKI: Fitjið upp 78-82-82-86-90-94 lykkjur á stutta hringprjóna 4,5 með Big Merino. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð þar sem auknar eru út 8 lykkjur jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING-1 = 86-90-90-94-98-102 lykkjur. Byrjið á umferð = laskalína í hægri hlið á bakstykki þegar flíkin er mátuð. Skiptið yfir á stutta hringprjóna 5,5 og prjónið 1 umferð slétt – JAFNFRAMT eru sett 4 prjónamerki í stykkið þannig: Fyrsta prjónamerki er sett í byrjun umferðar, annað prjónamerki er sett eftir næstu 16 lykkjur (= ermi), þriðja prjónamerki er sett eftir næstu 27-29-29-31-33-35 lykkjur (= framstykki) og fjórða prjónamerki er sett eftir næstu 16 lykkjur (= ermi). Nú eru 27-29-29-31-33-35 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki (= bakstykki). Prjónið garðaprjón út umferðina. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA OG LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Í næstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan! Aukið út hvoru megin við 4 prjónamerkin, en mismunandi lykkjufjöldi er á fram-/bakstykki og ermum þannig: ERMAR: Aukið út um 1 lykkju á eftir og 1 lykkju á undan prjónamerki í annarri hverri umferð alls 16-18-20-22-24-26 sinnum. FRAM- OG BAKSTYKKI: Aukið út um 2 lykkjur á eftir og 2 lykkjur á undan prjónamerki í annarri hverri umferð alls 1-1-2-3-3-4 sinnum, síðan er aukið út um 1 lykkju á eftir og 1 lykkju á undan prjónamerki í annarri hverri umferð alls 15-17-18-19-21-22 sinnum. MYNSTUR: JAFNFRAMT í fyrstu umferð með útaukningu fyrir laskalínu byrjar gatamynstur og A.1 er prjónað yfir miðju 25 lykkjur framan og aftan. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er haldið áfram í sléttprjón yfir allar lykkjur til loka. JAFNFRAMT eftir allar útaukningar eru 218-238-258-282-302-326 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 18-20-22-24-26-28 cm frá uppfitjunarkanti mælt við miðju að framan. Takið prjónamerkin úr laskalínu. Næsta umferð er prjónuð þannig: Setjið fyrstu 48-52-56-60-64-68 lykkjur á þráð (= hægri ermi), fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= hlið undir ermi – setjið 1 prjónamerki mitt á milli þessa nýju lykkja), prjónið næstu 61-67-73-81-87-95 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 48-52-56-60-64-68 lykkjur á þráð (= vinstri ermi), fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= hlið undir ermi – setjið 1 prjónamerki mitt á milli þessa nýju lykkja) og prjónið þær 61-67-73-81-87-95 lykkjur sem eftir eru (= bakstykki). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 134-146-162-178-194-214 lykkjur. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og A.1 að framan og að aftan eins og áður. Þegar stykkið mælist 9 cm í öllum stærðum frá skiptingu undir ermum er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 24 sinnum í hvorri hlið (eða þar til stykkið mælist 33 cm frá skiptingu) = ca 230-242-258-274-290-310 lykkjur í umferð. Skiptið yfir á hringprjóna 4,5. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Skiptið til baka yfir á hringprjóna 5,5 og fellið af með garðaprjóni (passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur). Peysan mælist nú ca 35 cm frá skiptingu undir ermum og 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið lykkjurnar af þræði í aðra hlið á stykki á stutta hringprjóna 5,5. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-8-8-10-12 lykkjunum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-58-64-68-74-80 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur = miðja undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – LESIÐ ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3-2½-2-1½-1-1 cm millibili alls 8-9-11-13-15-17 sinnum = 38-40-42-42-44-46 lykkjur. Þegar ermin mælist 28-27-26-24-22-21 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis), skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið 4 umferðir garðaprjón, skiptið til baka yfir á sokkaprjóna 5,5 og fellið af með sléttum lykkjum. Stykkið mælist ca 30-29-2826-24-23 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (17)
Sara wrote:
Cosa devo fare per allungare la manica fino al polso?
17.11.2021 - 18:36DROPS Design answered:
Buonasera Sara, può semplicemente proseguire nella lavorazione, misurando sempre la larghezza mano a mano che prosegue il lavoro e nel caso lavorando delle diminuzioni per stringere il diametro. Buon lavoro!
17.11.2021 - 18:57Wendy Z Gr Egoty wrote:
This is a beautiful pattern. How can I translate it to \r\nEnglish?\r\nThank you,\r\nWendy
01.07.2020 - 19:46DROPS Design answered:
Dear Wendy. Here you have the link to the English pattern: https://www.garnstudio.com/pattern.php?id=7906&cid=19 Happy knitting!
01.07.2020 - 20:34Debora Ivaldi wrote:
Hullo..I would like to ask if there is a pattern for a sweater tht is wider at the bottom..unfortunately i dont know how to work in circle.I like to work the front and the bavk separately thankyou for your help
06.02.2019 - 21:27DROPS Design answered:
Dear Mrs Ivaldi, you will find here all our sweater patterns, just check the one worked bottom up - you'll find also more informations about adapting a pattern into straight needles here. Happy knitting!
07.02.2019 - 09:58Elaine Davies wrote:
I want to knit this garment to a UK size 12/14. Should I use the M or L sizing?
01.09.2017 - 13:01DROPS Design answered:
Dear Mrs Davies, you will find all measurements for each size in the chart at the very bottom of the pattern. Compare these measurements to a similar garment you have and like the shape to find out the matching size. Read more about sizing here. Happy knitting!
01.09.2017 - 15:24Espe wrote:
Can I use drops safran. I would like to have some help
12.07.2017 - 01:29DROPS Design answered:
Hi Espe, The problem with using another yarn is the knitting tension, which means you have to find out how many stitches and rows you get on 10 x 10 cm square and adjust the pattern accordingly. A bit of a job, but it can be done. Kind regards, Deirdre.
12.07.2017 - 06:21Doris wrote:
Ich habe den Pullover in Drops loves you 8 gestrickt. Ich hatte dabei die Befürchtung, daß die Trapezform des Schnittes für Baumwolle nicht taugt, da Baumwolle starrer ist als Wolle. Dies hat sich zum Glück nicht bewahrheitet. Der Pulli ist wunderschön geworden und sieht aus wie auf der Abbildung. Nur das Garn pillt ziemlich (ich hätte besser die Drops Paris genommen).
28.06.2017 - 10:06Dilianne wrote:
Bij dit patroon staat garengroep C vermeld maar ook A en A. Dus ik kan ook garengroep A gebruiken maar dan met dubbele draad breien? Alvast bedankt voor het antwoord.
25.03.2017 - 12:11DROPS Design answered:
Hallo Dilianne, Ja, dat klopt; je kunt garens uit groep C vervangen door 2 draden van garens uit groep A. Brei altijd wel even een proeflapje voor de juiste stekenverhouding.
27.03.2017 - 12:26Doris wrote:
Ich möchte den Pullover gerne mit dem Garn Paris stricken. Wirkt er dann nicht zu wuchtig und schwer? Fällt er genauso wie abgebildet oder trägt er durch die Weite und dem festeren Baumwollgarn eher auf? Würden Sie eher die Big Merino empfehlen? LG Doris
14.02.2017 - 08:08DROPS Design answered:
Liebe Doris, Paris können Sie hier anstatt Big Merino benutzen (gleiche Garngruppe), vergessen Sie aber nicht Garne mit unterschiedlichen Strukturen auch unterschiedlich aussehen. Mehr können Sie hier lesen, Ihr Laden wird Ihnen gerne dabei beraten. Viel Spaß beim stricken!
14.02.2017 - 09:36Julie wrote:
I would love to knit this in brushed alpaca silk. Will the pattern work in a softer yarn?
13.02.2017 - 21:25DROPS Design answered:
Dear Julie, Brushed Alpaca Silk belong to same yarn group Big Merino does (= yarn group C), so that you could use it, remember different yarn will give different results, read more here. Happy knitting!
14.02.2017 - 09:18Margit wrote:
Danke, aber wird es, auch wenn die Maschenprobe genau stimmt, nicht gehen, und warum nicht? LG Margit
13.02.2017 - 11:01