DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4928.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS Children 27-9
DROPS Design: Mynstur nr u-069-bn
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 - 11/12 ára
Stærð í cm: 98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140 - 146/152

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
300-350-400-500-550 g nr 72, ljós perlugrár
50-50-100-100-100 g nr 01, natur
50-50-100-100-100 g nr 13, kirsuber

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40, 60 og 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 x 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 3,5 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 22 l x 30 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
HEKLUNÁL 3,5 – fyrir kant

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4928.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið *, endurtakið frá *-*.

ÚTAUKNING:
Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Sjá mynsturteikningu fyrir rétta stærð.

LEIÐBEININGAR:
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað þá er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Notið e.t.v. grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna ofan frá og niður.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 84-88-92-96-100 l á stutta hringprjóna nr 3,5 með litnum ljós perlugrár DROPS Karisma.
Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= miðja að aftan). Prjónið stroff = 2 l sl, 2 l br í 3-3-4-4-5 cm (= kantur í hálsmáli).
Skiptið yfir á stutta hringprjóna nr 4. Prjónið 1 umf slétt jafnframt er lykkjufjöldinn jafnaður út til 78-84-90-98-105 l.
Prjónið nú upphækkun að aftan í sléttprjóni þannig: Prjónið 8 lykkjur slétt framhjá prjónamerki, snúið við, herðið á þræði og prjónið 16 lykkjur brugðið til baka, snúið við, herðið á þræði og prjónið 24 lykkjur slétt, snúið við, haldið áfram að prjóna yfir 8 lykkjur fleiri í hvert skipti sem snúið er við og prjónað hefur verið yfir alls 48-48-64-64-80 lykkjur, snúið við og prjónið 1 umf slétt aftur fram að miðju að aftan. Prjónið síðan A.1 (= 13-14-15-14-15 mynstureiningar á breidd) – sjá mynstur fyrir rétta stærð! LESIÐ LEIÐBEININGAR! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Skiptið yfir á lengri hringprjóna þegar nægilega margar lykkjur eru komnar. Þegar A.1 er lokið eru 208-224-240-252-270 lykkjur á prjóni. Prjónið síðan 0-0-1-0-1 cm með litnum ljós perlugrár. Stykkið mælist nú ca 15-15-16-17-18 cm fyrir miðju að framan (mælt án stroffs í hálsmáli). Stykkið er prjónað til loka með litnum ljós perlugrár og sléttprjóni. Fyrst er prjónuð 1 umferð þar sem aukið er út 4-4-4-12-10 lykkjur jafnt yfir í umferð = 212-228-244-264-280 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 31-33-35-37-39 lykkjur, setjið næstu 44-48-52-58-62 lykkjur á þráð fyrir ermi (án þess að prjóna þær fyrst), fitjið upp 6 nýjar lykkjur, prjónið 62-66-70-74-78 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 44-48-52-58-62 lykkjur á þráð fyrir ermi (án þess að prjóna þær fyrst), fitjið upp 6 nýjar lykkjur, prjónið 31-33-35-37-39 l.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 136-144-152-160-168 l. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Setjið nú 6 prjónamerki í stykkið þannig: 1. prjónamerkið er sett í byrjun umferðar (= hlið), 2. prjónamerki er sett eftir 24-25-26-27-28 lykkjur, 3. prjónamerki er sett eftir 20-22-24-26-28 lykkjur, 4. prjónamerki er sett eftir 24-25-26-27-28 lykkjur (= hlið), 5. prjónamerki er sett eftir 24-25-26-27-28 lykkjur, 6. prjónamerki er sett eftir 20-22-24-26-28 lykkjur (nú eru 24-25-26-27-28 lykkjur eftir í umf, á eftir síðasta prjónamerki). Þegar stykkið mælist 3 cm er aukið út þannig: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 1. og 4. prjónamerki, aukið út um 1 lykkju á eftir 2. og 5. prjónamerki og 1 lykkju á undan 3. og 6. prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING (= 8 lykkjur fleiri). Aukið út með 2-2½-2½-3-3 cm millibili alls 13-13-14-14-15 sinnum = 240-248-264-272-288 lykkjur. Þegar stykkið mælist 29-34-38-42-46 cm fækkið um 0-2-0-2-0 lykkjur jafnt yfir í umf = 240-246-264-270-288 lykkjur, prjónið síðan eftir A.1. Þegar A.2 hefur verið prjónað einu sinni á hæð eru 280-287-308-315-336 lykkjur í umf. Prjónið 4 umferðir garðaprjón og fellið af.

ERMI:
Setjið inn lykkjur af öðrum þræðinum á sokkaprjóna nr 4, fitjið að auki upp 6 lykkjur mitt undir erminni (setjið 1 prjónamerki mitt í þessar lykkjur) = 50-54-58-64-68 lykkjur. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið sléttprjón hringinn með litnum ljós perlugrár. Þegar ermin mælist 2 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkið. Endurtakið úrtöku með 4½-3½-4-3-3½ cm millibili alls 5-7-7-10-10 sinnum = 40-40-44-44-48 lykkjur. Þegar stykkið mælist 20-25-29-32-36 cm stillið lykkjufjöldann til 42-42-48-48-48 lykkjur. Prjónið A.3. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka einu sinni á hæð eru 49-49-56-56-56 lykkjur í umferð. Prjónið 4 umferðir garðaprjón, fellið af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

HEKLAÐUR KANTUR:
Heklið kant neðst hringinn á kjólnum með heklunál nr 3,5 með litnum ljós grár þannig: 1 fastalykkja í fyrstu lykkju, * 3 loftlykkjur, 1 stuðull í 1 loftlykkju sem var hekluð, hoppið yfir 2 eða 3 lykkjur, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun umferðar. Klippið og festið þráðinn.
Heklið kant á sama hátt neðst í kringum ermar.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 12.09.2016
Leiðrétting á mynsturtexta

Mynstur

symbols = slétt lykkja með litnum natur
symbols = slétt lykkja með litnum kirsuber
symbols = slétt lykkja með litnum ljós perlugrár
symbols = brugðin lykkja með litnum ljós perlugrár
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Forest dance kjole

Wollywella, Norway

Forest dance

Esther, Spain

Forest Dance

Toge, Netherlands

Forest Dance

yarny.tales, Romania

Vera's Forest Dance

Jasmijn, Netherlands

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 27-9

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (70)

country flag Cornelia Gheorghe wrote:

Buna ziua.Sunteti minunati.Toate modelele sunt frumoase si explicate pe inteles.Nu le pt traduce in romana dar,o parte le-am tradus in italiana pentru ca vorbesc si limba italiana.Din pacate,acum nu le mai pot traduce.Va rog,as dori sa poata fi traduse si in italiana.Multumesc frumos pentru tot ce faceti.Eu sunt o bunica care tricoteaza lucruri pentru nepoatele mele(6 si 8 ani) si pentru nora mea.Va doresc tot binele din lume.

19.03.2024 - 09:48

country flag Cornelia Gheorghe wrote:

Buna ziua.Sunteti minunati.Toate modelele sunt frumoase si explicate pe inteles.Nu le pt traduce in romana dar,o parte le-am tradus in italiana pentru ca vorbesc si limba italiana.Din pacate,acum nu le mai pot traduce.Va rog,as dori sa poata fi traduse si in italiana.Multumesc frumos pentru tot ce faceti.Eu sunt o bunica care tricoteaza lucruri pentru nepoatele mele(6 si 8 ani) si pentru nora mea.Va doresc tot binele din lume.

19.03.2024 - 09:48

country flag Mija wrote:

In A2, should YO be worked twisted in the next round ? Thank you.

05.12.2023 - 21:28

DROPS Design answered:

Dear Mija, yes you are right, in A.2 (and A.3) the yarn overs made on the first row should be worked twisted, the yarn overs on each side of the decrease are worked in the front loop of stitches, they should make holes. Happy knitting!

06.12.2023 - 08:17

country flag ELENA wrote:

Buongiorno, volevo sapere perché se le taglie sono 5 (3/4-5/6-7/8-9/10-11/12) quando si inizia lo sprone si danno n. 4 avvii di maglie? (84-88-92-96). A quali misure si riferiscono? sempre nella descrizione dello sprone, quando si passa ai ferri corti n. 4, dice di aggiustare il n. delle maglie a 78-84-90-98-105, quindi ci sono 5 misure. Quindi la domanda è: nelle maglie di avvio è saltata una misura ? Grazie

01.12.2023 - 11:27

DROPS Design answered:

Buonasera Elena, grazie per la segnalazione: abbiamo corretto il numero di maglie dell'avvio. Buon lavoro!

04.12.2023 - 17:03

country flag Brita Johansson wrote:

I storlek 5-6 stämmer inte matskandaler alls när jag kommit till delning för ärmarna. Jag ser att mönstret har uppdaterats, men det går inte att öppna den nya uppdateringen. Hur får jag tillgång till den nya A1? Vänligen, Brita

23.11.2023 - 08:38

DROPS Design answered:

Hej Brita. Det är det uppdaterade diagrammet som syns på mönstret här, så det ska vara riktigt nu. Vad är det du inte får att stämma? Mvh DROPS Design

24.11.2023 - 09:21

country flag Johanna wrote:

Rad 1 i A2 slutar med en ökning. Hur startar jag varv 2 med en till ökning?

01.07.2022 - 23:23

DROPS Design answered:

Hei Johanna. I diagram A.2 og A.3 er det ikke økninger, men diagrammet viser hull/flettemønster. Det blir da 2 kast etter hverandre, men det 1. kastet som tilhører 1. rad strikkes vrang når 2. rad strikkes (slik diagrammet viser/ en strek), mens det 2. kastet (som tilhører 2.rad) strikkes rett når 3. rad strikkes, som diagrammet viser / liten sort prikk. Se gjerne hjelpevideoen "Hvordan strikke flettekanten og hekle avslutnigen til DROPS Childern 27-9" som er laget til diagram A.2 (se tidspunktet 01:45 - 04:10). mvh DROPS Design

04.07.2022 - 12:03

country flag Marjan Pellikaan wrote:

Kan ik dit ook breien met 4 naalden en dus geen rondbrei? Gr Marjan

20.02.2022 - 16:52

DROPS Design answered:

Dag Marjan,

Dit patroon is daar helaas niet geschikt voor omdat de pas met het patroon helemaal in de rondte wordt gebreid.

Voor patronen die daar wel geschikt voor zijn hebben we een instructie gemaakt. Deze vind je hier. Als je de instructie leest, dan ontdek je wel bij welke patronen je dit kunt gebruiken.

21.02.2022 - 11:29

country flag Erina wrote:

I have a question on the marker placement before starting the body. After the yoke and separating the sleeves, my BOR is in the middle back, but the pattern. However, the pattern states beg of round (=side). \r\n\r\nDo I need to continue working past the original BOR until the underarm cast on? \r\n\r\nIt would be great it I can have some clarification on this part of the pattern. Thank you!

16.01.2022 - 07:41

DROPS Design answered:

Dear Erina, you have finished the pattern before dividing the garment for the body and sleeves. Now the BOR is in the mid underarm and you work with only one color. You need to cut the yarn and start in the mid underarm. Happy knitting!

16.01.2022 - 21:15

country flag Thérèse Comte wrote:

Bonjour les tricoteuses;\r\nJe suis bloquée à la ligne 12 du diagramme . Je ne sais pas ou est la correction. je tricote 7/8 ans.

19.12.2021 - 15:05

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Comte, si vous avez imprimé les explications après la date de la correction, le diagramme est correct ainsi; si vous l'aviez déjà imprimé, il peut être plus sage de l'imprimer à nouveau. Bon tricot!

20.12.2021 - 07:52

country flag Karola Hansen wrote:

Liebes Drops Design Team, Im Moment arbeite ich an dem Kleid Forest Dance. Ich bin mit Muster A 1 fertig und habe meiner Enkelin das Strickstück probehalber übergezogen. Dabei ist mir aufgefallen, dass die Schulterpasse sehr spitz zuläuft, also viel zu schmal ist. Alle Zunahmen und die Maschenzahl in Größe 5/6 stimmen aber mit der Anleitung überein. Was mache ich falsch? Bisher hat jede Anleitung von euch, die ich gemacht habe geklappt und gepasst. Viele Grüße Karola Hansen

22.08.2021 - 17:00

DROPS Design answered:

Liebe Frau Hansen, stimmt auch Ihre Maschenprobe? Ferndiagnose ist etwas schwierig, am besten zeigen Sie Ihr Strickstück Ihre Arbeit (auch im Foto), dort kan man Ihnen am besten weiterhelfen. Gerne könnnen Sie auch mal im DROPS Workshop fragen; andere Strickerinnen können Ihnen auch mithelfen. Viel Spaß beim stricken!

23.08.2021 - 07:34