Starry Night |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Settið samanstendur af: Prjónaðri peysu með hringlaga berustykki og norrænu mynstri, prjónuð ofan frá og niður og húfu með norrænu mynstri úr DROPS Karisma. Stærð S - XXXL.
DROPS 166-24 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- PEYSA: GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað i hring): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þá er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki þegar mynstrið er prjónað. Notið e.t.v. grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. ÚTAUKNING-1: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Aukið út hvoru megin við prjónamerki þannig: Öll útaukning er gerð frá réttu þannig: Byrjið 2 l á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 l), sláið uppá prjóninn (= 2 l fleiri). Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br til þess að sleppa við gat. LASKALÍNA: Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við prjónamerkin í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig. Öll útaukning er gerð frá réttu þannig: Byrjið 1 l á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 l fleiri). Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br til þess að sleppa við göt. ÚRTAKA (á við um hliðar á fram- og bakstykki og fyrir miðju undir ermi): Öll úrtaka er gerð frá réttu. Fækkið lykkjum hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 4 l á undan prjónamerki, prjónið 2 l slétt saman, 4 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri). HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið þar til 4 l eru eftir í umf (séð frá réttu), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 l slétt saman og endið á 2 l sl. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist (mælt frá uppfitjunarkanti): STÆRÐ S: 2, 10, 18, 27, 36, 45 og 54 cm STÆRÐ M: 2, 11, 20, 29, 38, 47 og 56 cm STÆRÐ L: 2, 11, 20, 29, 38, 48 og 58 cm STÆRÐ XL: 2, 10, 18, 26, 34, 42, 51 og 60 cm STÆRÐ XXL: 2, 10, 18, 26, 34, 42, 51 og 60 cm STÆRÐ XXXL: 2, 10, 18, 26, 35, 49, 53 og 62 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og er prjónað ofan frá og niður. BERUSTYKKI: Fitjið upp 110-116-116-118-122-124 l (meðtaldar 6 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna nr 3 með litnum koksgrár DROPS Karisma. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umf slétt frá réttu með litnum koksgrár þar sem aukið er út um 3-9-9-19-23-33 l jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING-1 (ekki er aukið út yfir kant að framan) = 113-125-125-137-145-157 l á prjóni. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið frá röngu: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 7 l eru eftir á prjóni, prjónið fyrstu l í A.1 og endið á 6 kantlykkjum að framan. Haldið áfram með mynstur og aukið út í 4. umf eins og útskýrt er í mynstri (einnig er aukið út á undan síðustu l á undan kanti að framan þannig að mynstrið byrji og endi eins innan við kant að framan í hvorri hlið) = 26-29-29-32-34-37 l fleiri og 139-154-154-169-179-194 l í umf – ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka (endið eftir umf merktri með ör fyrir rétta stærð), prjónið 1 umf slétt frá réttu með litnum koksgrár þar sem auknar eru út 2-3-3-4-2-3 l jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kant að framan) = 141-157-157-173-181-197 l í umf. Prjónið 1 umf br frá röngu með koksgrár (kantar að framan eru prjónaðir í garðaprjóni). Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.2 þar til 7 l eru eftir í umf (veljið mynstur fyrir rétta stærð = 16-18-18-20-21-23 mynstureiningar 8 l), prjónið fyrstu l í A.2 (þannig að mynstrið byrji og endi alveg eins innan við kant að framan í hvorri hlið) og endið á 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynstri. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka eru 269-301-301-333-349-381 l í umf og stykkið mælist ca 17-17-17-19-19-19 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið eina umf br frá röngu og síðan 1 umf slétt frá réttu þar sem aukið er út um 6-4-4-8-10-2 l jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kant að framan) = 275-305-305-341-359-383 l. Næsta umf er prjónuð frá röngu með litnum koksgrár þannig: Prjónið fyrstu 43-47-49-55-60-65 l (= hægra framstykki), setjið eitt prjónamerki, prjónið næstu 57-64-60-66-65-67 l (= ermi), setjið eitt prjónamerki, prjónið næstu 75-83-87-99-109-119 l (= bakstykki), setjið eitt prjónamerki, prjónið næstu 57-64-60-66-65-67 m (= ermi), setjið eitt prjónamerki og prjónið þær 43-47-49-55-60-65 l sem eftir eru (= vinstra framstykki). LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 6 kantlykkjur að framan, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.3 þar til 11 l eru eftir á prjóni, prjónið 5 fyrstu l í A.3 (þannig að mynstrið byrji og endi alveg eins innan við kant að framan í hvorri hlið) og endið á 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT í næstu umf frá réttu er aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Endurtakið útaukningu fyrir laskalínu í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í annarri hverri umf frá réttu) alls 3-3-4-3-4-5 sinnum – ATH: Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur, en 1 l hvoru megin við hvert prjónamerki er alltaf prjónuð með litnum koksgrár. Eftir útaukningu fyrir laskalínu eru 299-329-337-365-391-423 l í umf og stykkið mælist ca 22-22-23-24-25-27 cm frá öxl. Prjónið nú næstu umf frá röngu þannig (mynstrið heldur áfram eins og áður): Prjónið fyrstu 46-50-53-58-64-70 l (= hægra framstykki), setjið næstu 63-70-68-72-73-77 l á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar l á prjóninn (= á hlið á fram- og bakstykki), prjónið næstu 81-89-95-105-117-129 l (= bakstykki), fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar l á prjóninn (= hlið á fram- og bakstykki), setjið næstu 63-70-68-72-73-77 l á þráð (= ermi) og prjónið næstu 46-50-53-58-64-70 l eins og áður (= vinstra framstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 189-205-221-241-269-293 l. Setjið 1 prjónamerki – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Setjið 1 prjónamerki 50-54-58-63-70-76 l inn frá hvorri hlið (= 89-97-105-115-129-141 l á milli prjónamerkja á bakstykki). Haldið áfram fram og til baka eins og áður með mynstri eftir mynsturteikningu A.3 og 6 kantlykkjum við miðju að framan í garðaprjóni – ATH: Mynstur frá berustykki heldur síðan áfram – þær l sem ekki ganga jafnt upp í mynstri í hliðum á fram- og bakstykki eru prjónaðar með litnum koksgrár. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4-4-4-5-5-5 cm er lykkjum fækkað hvoru megin við prjónamerki í hliðum á fram- og bakstykki – LESIIÐ ÚRTAKA (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku í hvorri hlið með 3-3-3-5-6-6 cm millibili alls 4-4-4-3-3-3 sinnum = 173-189-205-229-257-281 l – ATH: Þær l sem ekki ganga jafnt upp í mynstri þegar lykkjum er fækkað eru prjónaðar með litnum koksgrár. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 8-9-10-11-12-13 cm endar A.3 og prjónað er með litnum koksgrár til loka. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 18-18-19-21-23-23 cm (stykkið mælist ca 40-40-42-45-48-50 cm frá öxl), aukið hvoru megin við prjónamerkin í hliðum á fram- og bakstykki – LESIÐ ÚTAUKNING-2 (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 4-4-4-5-5-5 cm millibili alls 4-4-4-3-3-3 sinnum = 189-205-221-241-269-293 l. Þegar stykkið mælist 34-36-37-38-39-39 cm (stykkið mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl), skiptið yfir á hringprjóna nr 3. Prjónið 8 umf garðaprjón og fellið LAUST af. Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Setjið l af þræði frá annarri hlið á stykki á sokkaprjóna nr 4. Haldið áfram með mynstur hringinn eins og áður og fitjið að auki upp 8-8-10-10-12-12 nýjar l í lok fyrstu umf = 71-78-78-82-85-89 l á prjóni. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-12 nýjar l (= mitt undir ermi) – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! ATH: Mynstrið frá berustykki heldur áfram – þær l sem ekki ganga upp í mynstri mitt undir ermi eru prjónaðar með litnum koksgrár. Þegar stykkið mælist 2-3-3-3-3-4 cm fækkið lykkjum hvoru megin við prjónamerki – munið eftir ÚRTAKA (= 2 l færri). Endurtakið úrtöku með 3-2-2-2-2-1½ cm millibili alls 11-14-14-15-16-17 sinnum = 49-50-50-52-53-55 l. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 4-4-4-6-6-6 cm endið á A.3 og prjónið síðan með litnum koksgrár til loka. Þegar stykkið mælist 39-39-39-39-39-37 cm (nú eru eftir 2 cm að loka máli – mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan og fellið LAUST af, ermin mælist ca 41-41-41-41-41-39 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan. ------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HÚFA: MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.4 til A.6. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR: Ef óskað er eftir styttra máli en í uppskrift þá er hægt að prjóna þar til 4 cm eru eftir að óskaðri lengd og síðan að fella af eins og útskýrt er í uppskrift. ÚRTAKA: Fækkið um 1 l hvoru megin við miðju 3 l í A.5 eins og útskýrt er í mynstri. Byrjið 1 l á undan A.5, prjónið 2 l slétt saman með litnum ljós perlugrár, 1 lykkja með litnum koksgrár, 1 lykkja með litnum ljós perlugrár, 1 lykkja með litnum koksgrár (= 3 miðjulykkjur í A.5), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 l sl með litnum ljós perlugrár, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. HÚFA: Fitjið upp 104 l á hringprjóna nr 3 með litnum koksgrár DROPS Karisma. Prjónið 1 umf slétt, prjónið síðan 6 umf stroff (= 1 l sl, 1 l br). Skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5 og prjónið mynstur hringinn eftir mynsturteikningu A.4. Þegar A.4 er lokið mælist stykkið ca 4½ cm. Prjónið nú mynstur hringinn þannig: * Prjónið A.5 (= 5 l), prjónið a.6 (= 21 l) *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og LESIÐ LEIÐBEININGAR! Þegar umf sem er merkt með ör í mynstri A.6 er prjónuð byrjar úrtaka efst á húfu. Fækkið um 1 l hvoru megin við miðju 3 l í A.5 – LESIÐ ÚRTAKA og sjá mynsturteikningu (= 8 l færri). Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 3 sinnum og síðan í hverri umf alls 7 sinnum = 24 l eftir á prjóni. Prjónið 1 umf með litnum koksgrár þar sem allar l eru prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 12 l. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Húfan mælist ca 24 cm. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (15)
Berit Skogmo wrote:
Sitter och letar mönster. Vill hitta en nordisk cardigan som stickas runt og klippas upp. Finns några sånna? Och en annan fråga. Går det inte att söka på instruktionsfilmena? (surfar på mobilen) På förhand tack 😊
02.12.2019 - 10:36DROPS Design answered:
Hei Berit! Ja, vi har flere slike koftemodeller, f.eks: DROPS 39-19 , DROPS 50-12 , DROPS 52-6 og DROPS 50-8 . Det er mulig å søke på instruksjonsvideoer, dette er dessverre ikke mulig fra mobil, men det går an å filtrere videoene for å få et mest mulig nøyaktig resultat. Lykke til!
02.12.2019 - 12:13Hanne Gunnertoft wrote:
Tusind tak for svar. Jeg mente forkanter, kanter på forstykkerne, og ikke firkanter 😊
30.12.2016 - 19:34Hanne Gunnertoft wrote:
Hej. Jrgvhar opgivet at strikke mønster på vrangpinde. Er istedet startet på jumperen, og tænker att jeg kan sy på maskine og klippe den op foran, og så strikke firkanter på. Er der noget jeg skal være opmærksom på?
27.12.2016 - 17:33DROPS Design answered:
Hej Hanne. Ja, det forstaar jeg godt ;) Du kan sagtens klippe op (saet 3-5 m ekstra op til dette og strik rundt). Jeg ville saa tage maskerne til stolperne op bagefter og strikke dem naar der er klippet op og daekke kanten fra klippemaskerne med et paent baand paa indersiden. Jeg forstaar ikke hvad du mner med at strikke firkanter paa?
30.12.2016 - 12:33Rian wrote:
Ben net begonnen aan de pas: tel patroon A2. De 2e regel is parelgrijs, de 3e regel antraciet, de 4e gemengd parelgrijs en antraciet. Maar hoe doe je dat, want je wol parelgrijs zit aan de andere kant van het breiwerk. Moet je steeds dan een nieuwe bol wol aanspreken? Verderop in het A2 patroon kom je soortgelijk situaties tegen. Hopelijk kunnen jullie me helpen.
21.10.2016 - 19:28DROPS Design answered:
Hoi Rian. Je kan inderdaad met een nieuwe bol beginnen - of je kan de draad knippen en verder gaan met de bol.
24.10.2016 - 11:07Martina wrote:
Welches Alternativgarn können Sie empfehlen? Es müsste kratzfrei sein und aus derselben Garngruppe kommen...
22.04.2016 - 12:01DROPS Design answered:
Liebe Martina, unsere Empfehlungen finden Sie unter: Alternative Garne (Garngruppe B). Cotton Merino oder Merino extra fine (nicht zu locker stricken!) wären sicher eine gute kratzfreie Alternative.
22.04.2016 - 12:55Ellen wrote:
Would there be any reason this could not be knit in the round, adding a steek, then adding a button band?
28.02.2016 - 04:46DROPS Design answered:
Dear Ellen, you are welcome to adjust pattern to add steek sts and adding the button band on each front piece afterwards. Happy knitting!
29.02.2016 - 09:24Åse Halonen wrote:
Er det mulig å få brystvidde / overvidde på oppskriftene? Det er ikke bestandig at X og XL osv er lik fra oppskrift til oppskrift, eller fra leverandørene. Det er veldig lett å velge str når f.eks XL = f.eks 112 cm
15.01.2016 - 07:56DROPS Design answered:
Hej. Längst ner på alla våra oppskrifter hittar du en måleskiss. Lycka till!
19.01.2016 - 10:06Michela Sali wrote:
Non so usare i ferri circolari, come posso trasformare le spiegazioni per usare i ferri diritti? Grazie
13.11.2015 - 17:13DROPS Design answered:
Buonasera Michela, per il cardigan non è un problema perchè non viene lavorato in tondo, per cui può utilizzare i ferri dritti, per il cappello la lavorazione richiede l'uso dei ferri circolari e non è molto fattibile con i ferri dritti: potrebbe in alternativa utilizzare il gioco di ferri. Buon lavoro!
14.11.2015 - 22:13Stacey wrote:
The pattern says start A2 on a RS row and complete A2 which u get 301 sts and then start RS row increase but I counted and their are 35 rows so the next row would be an WS row. So I'm slightly confused ? X
05.11.2015 - 11:37Stacey wrote:
The pattern says start A2 on a RS row and complete A2 which u get 301 sts and then start RS row increase but I counted and their are 35 rows so the next row would be an WS row. So I'm slightly confused ? X
05.11.2015 - 09:23DROPS Design answered:
Dear Stacey your question has been forwarded to our Design team. Thank you in advance for your patience.
05.11.2015 - 14:14