DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9240.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Blossom Lane

Prjónuð peysa úr DROPS Karisma með köðlum og sjalkraga. Prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 165-48
DROPS Design: Mynstur nr u-759
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
750-800-900-950-1050-1150 gr litur nr 64, gráfjólublár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 3,5 – fyrir garðaprjón.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – 2 stk fyrir kaðla.
DROPS PERLUTALA: Bogalaga (hvít), NR 522: 5-5-5-6-6-6 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9240.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.3. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið um 1 l hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 ls l, steypið óprjónuðu l yfir, (prjónamerki), prjónið næstu 2 l slétt saman.
Síðasta úrtaka, fækkið lykkjum þannig: Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 l br saman, (prjónamerki), prjónið næstu 2 l br saman.

ÚTAUKNING (á við um ermi):
Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umf.

ÚRTAKA-2 (á við um A.2):
Fækkið um 2 l yfir A.2 þannig: Prjónið 1 l sl, 2 l snúnar slétt saman, 2 l sl, 2 l slétt saman, 1 l sl.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan, þ.e.a.s. vinstri hlið á stykki séð frá réttu (séð frá prjónstefnu). 1 hnappagat = prjónið 3. og 4. l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist (frá þar sem l voru fitjaðar upp fyrir öxl):
STÆRÐ S: 24, 32, 40, 48 og 56 cm.
STÆRÐ M: 25, 33, 41, 49 og 57 cm.
STÆRÐ L: 26, 34, 42, 50 og 58 cm.
STÆRÐ XL: 25, 33, 41, 49, 57 og 65 cm.
STÆRÐ XXL: 26, 34, 42, 50, 58 og 66 cm.
STÆRÐ XXXL: 26, 34, 42, 50, 58 og 67 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað ofan frá og niður, fram og til baka.

BAKSTYKKI:
VINSTRI ÖXL:
Fitjið upp 25-29-32-35-33-41 l á hringprjóna nr 4 með Karisma. Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýring að ofan. Prjónið síðan frá réttu þannig: 2 l br, * 6 l sl, 3-2-3-2-2-2 l br *, endurtakið frá *-* alls 2-3-3-4-3-4 sinnum, 5-3-3-1-6-6 l sl, 0-0-0-0-1-1 l br. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 2 cm er aukið út um 1 l í lok næstu umf frá réttu = 26-30-33-36-34-42 l. Geymið stykkið og prjónið hægri öxl.

HÆGRI ÖXL:
Fitjið upp 25-29-32-35-33-41 l á hringprjóna nr 4 með Karisma. Prjónið 2 umf garðaprjón. Prjónið frá réttu þannig: 0-0-0-0-1-1 l br, 5-3-3-1-6-6 l sl, * 3-2-3-2-2-2 l br, 6 l sl *, endurtakið frá *-* alls 2-3-3-4-3-4 sinnum, endið á 2 l br. Þegar stykkið mælist 2 cm er aukið út um 1 l í byrjun á næstu umf frá réttu = 26-30-33-36-34-42 l.

BAKSTYKKI:
Prjónið frá röngu (þ.e.a.s. prjónið yfir hægri öxl að vinstri öxl): 2 l sl, * 6 l br, 3-2-3-2-2-2 l sl *, endurtakið frá *-* alls 2-3-3-4-3-4 sinnum eins og áður, 6-4-4-2-6-6 l br, 0-0-0-0-2-2 l sl, fitjið upp 21-22-25-26-30-30 l fyrir hálsmáli, 0-0-0-0-2-2 l sl, 6-4-4-2-6-6 l br, * 3-2-3-2-2-2 l sl, 6 l br *, endurtakið frá *-* alls 2-3-3-4-3-4 sinnum, endið á 2 l sl = 73-82-91-98-98-114 l. Prjónið síðan frá réttu þannig: 2 l br, A.3, * 3-2-3-2-2-2 l br, A.3 *, endurtakið frá *-* alls 7-9-9-11-11-13 sinnum, endið á 2 l br. Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 89-102-111-122-122-142 l á prjóni. Prjónið síðan A.1 yfir A.3. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Endurtakið A.1 á hæðina. Þegar stykkið mælist 13-15-16-15-15-17 cm aukið út fyrir handveg í lok hverrar umf á hvorri hlið á stykki þannig: Aukið út 1 l 2-2-2-3-3-2 sinnum, fitjið síðan upp 2 l 3-2-2-3-3-3 sinnum og 3 l 1-1-1-1-3-3 sinnum = 111-120-129-146-158-176 l. Útauknu l eru prjónaðar með sléttprjóni. Þegar allar l hafa verið auknar út, geymið stykkið og prjónið framstykki (síðasta umf = ranga).

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fyrst er sjalkraginn prjónaður.
Fitjið upp 17-18-19-20-22-22 l á hringprjóna nr 4 með Karisma. Prjónið sléttprjón JAFNFRAMT eru prjónaðar stuttar umf með byrjun frá röngu þannig: Prjónið 2 umf yfir allar l, prjónið 2 umf yfir fyrstu 11-11-16-14-16-16 l. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 8-8-9-9-10-10 cm þar sem það er styst, stillið af að næsta umf sé frá röngu. Prjónið sl yfir 17-18-19-20-22-22 l, fitjið upp 25-29-32-35-33-41 l í lok umf fyrir öxl = 42-47-51-55-55-63 l. Prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l. Prjónið næstu umf frá réttu þannig: 2 l br * 6 l sl, 3-2-3-2-2-2 l br *, endurtakið frá *-* alls 3-4-4-5-5-6 sinnum, 6 l sl, 2 l br, endið á 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 2 cm frá þeim stað þar sem fitjað var upp fyrir öxl, prjónið næstu umf frá réttu þannig: 2 l br, * A.3, 3-2-3-2-2-2 l br *, endurtakið frá *-* alls 3-4-4-5-5-6 sinnum, A.3, 2 l br, endið á 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Kantlykkjur að framan eru prjónaðar í garðaprjóni til loka. Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 50-57-61-67-67-77 l í umf. Prjónið A.1 yfir A.3. Endurtakið A.1 á hæðina. Þegar stykkið mælist 13-15-16-15-15-17 cm (stillið af eftir bakstykki, mikilvægt er að enda í sömu umf svo að kaðlarnir verði réttir í framhaldinu) aukið út fyrir handveg í lok umf frá röngu þannig: Aukið út um 1 l 2-2-2-3-3-2 sinnum, síðan eru fitjaðar upp 2 l 3-2-2-3-3-3 sinnum og 3 l 1-1-1-1-3-3 sinnum = 61-66-70-79-85-94 l. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar allar l hafa verið auknar út, geymið stykkið og prjónið vinstra framstykki.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema gagnstætt. Þ.e.a.s. prjónið stuttar umf yfir sjalkragann með byrjun frá réttu. Fitjið upp nýjar l fyrir öxl í lok umf frá réttu. Fyrsta umf á eftir 2 umf garðaprjón á öxl, prjónið frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 2 l sl, 6 l br, * 3-2-3-2-2-2 l sl, 6 l br *, endurtakið frá *-* 3-4-4-5-5-6 sinnum, endið á 2 l sl. Aukið út fyrir handveg í lok umf frá réttu.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Mikilvægt er að öll stykkin endi í sömu umf.
Setjið allar l á sama hringprjón nr 4 = 233-252-269-304-328-364 l. Setjið 1 prjónamerki á milli stykkja (= 2 prjónamerki í hlið). Setjið 1 merkiþráð í stykkið, HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónamerkin fylgja með í stykkinu, á meðan merkiþráðurinn fær að vera. Í fyrstu umf (= rétta) haldið áfram með stykkin þannig: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, 2 l br, * A.1, 3-2-3-2-2-2 l br *, endurtakið frá *-* alls 3-4-4-5-5-6 sinnum, A.1, 2 l br, 22-18-18-24-36-34 l sléttprjón (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), 2 l br, A.1, * 3-2-3-2-2-2 l br, A.1 *, endurtakið frá *-* alls 7-9-9-11-11-13 sinnum, 2 l br, 22-18-18-24-36-34 l sléttprjón (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), 2 l br, * A.1, 3-2-3-2-2-2 l br *, endurtakið frá *-* alls 3-4-4-5-5-6 sinnum, A.1, 2 l br, endið á 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan, í hægri kant að framan.

Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 4-4-4-5-2-2 cm fækkið um 1 l hvoru megin við hvert prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA-1 (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku í 4.-6.-6.-4.-4.-4. hverri umf 10-8-8-11-17-16 sinnum til viðbótar. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 12 cm er aukið út um 1 l í hverri br mynstureiningu í næstu umf frá réttu þannig: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, 2 l br, * A.1, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3-2-3-2-2-2 l br *, endurtakið frá *-* alls 3-4-4-5-5-6 sinnum, A.1, 2 l br, sléttprjón yfir þær l sem eru eftir í sléttprjóni, 2 l br, A.1, * 3-2-3-2-2-2 l br, sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.1 *, endurtakið frá *-* alls 7-9-9-11-11-13 sinnum, 2 l br, sléttprjón yfir þær l sem eru eftir í sléttprjóni, 2 l br, * A.1, sláið uppá prjóninn, 3-2-3-2-2-2 l br *, endurtakið frá *-* alls 3-4-4-5-5-6 sinnum, A.1, 2 l br, endið á 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umf, þ.e.a.s. prjónað er br frá réttu.

STÆRÐ XXL + XXXL:
Þegar stykkið mælist 20 cm, endurtakið útaukningu í hverri br einingu í næstu umf frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 2 l br, * A.1, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3-3 l br *, endurtakið frá *-* alls 5-6 sinnum, A.1, 2 l br, sléttprjón yfir þær l sem eru eftir með sléttprjóni, 2 l br, A.1, * 3-3 l br, sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.1 *, endurtakið frá *-* alls 11-13 sinnum, 2 l br, sléttprjón yfir þær l sem eru eftir í sléttprjóni, 2 l br, * A.1, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3-3 l br *, endurtakið frá *-* alls 5-6 sinnum, A.1, 2 l br, endið á 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.

ALLAR STÆRÐIR:
Þegar búið er að fækka öllum l í sléttprjóni eru 202-233-250-277-298-346 l í umf.

STÆRÐ M + XL:
Þegar búið er að fækka öllum l í sléttprjóni er fellt af þannig: Í næstu umf frá réttu eru 4 l br fækkað í 3 l br í hvorri hlið þannig: Prjónið fyrstu 2 l br saman = 231-275 l.

ALLAR STÆRÐIR:
= 202-231-250-275-298-346 l. Nú eru 4-3-4-3-4-4 l br í hverri br einingu og 2 l br í kanti að framan í hvorri hlið á stykki. Þ.e.a.s. prjónið nú frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 2 l br, * A.1, 4-3-4-3-4-4 l br *, endurtakið frá *-* þar til 15 l eru eftir (= alls 15-19-19-23-23-27 sinnum), A.1, 2 l br, endið á 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 23-24-25-26-27-28 cm, passið uppá að prjónuð hafi verið heil mynstureining í A.1. Prjónið nú A.2 yfir A.1. Endurtakið A.2 til loka.

STÆRÐ M + XL:
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 25-27 cm er aukið út í næstu umf frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 2 l br, * A.2, 1 l br, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 15 l eru eftir, A.2, 2 l br, endið á 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni (= 19-23 l fleiri) = 250-298 l. Uppslátturinn er prjónaður snúinn sl í næstu umf, þ.e.a.s. prjónið br frá réttu. Nú eru 4-4 l br í hverri br einingu og 2 l br við kant að framan í hvorri hlið á stykki.

ALLAR STÆRÐIR:
= 202-250-250-298-298-346 l. Þegar stykkið mælist 24-26-26-28-28-29 cm prjónið nú næstu umf frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 2 l br, * A.2, 1 l br, síðan fléttast kaðlarnir í 2 næstu l þannig: Setjið 1 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 1 l sl, 1 l sl af hjálparprjóni, 1 l br *, endurtakið frá *-* þar til 15 l eru eftir (= alls 15-19-19-23-23-27 sinnum), A.2, 2 l br, endið á 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Þær 2 l sem eru í kaðli eru nú prjónaðar áfram í sléttprjóni.

Þegar stykkið mælist 25-27-27-29-29-30 cm aukið út í næstu umf frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 2 l br, * A.2, 1 l br, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-* þar til 15 l eru eftir, A.2, 2 l br, endið á 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni (= 15-19-19-23-23-27 l fleiri) = 217-269-269-321-321-373 l. Uppslátturinn er prjónaður snúinn br í næstu umf, þ.e.a.s. útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 27-28-29-30-31-32 cm í næstu umf frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 2 l br, * A.2, 1 l br, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-* þar til 15 l eru eftir, A.2, 2 l br, endið á 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni (= 15-19-19-23-23-27 l fleiri) = 232-288-288-344-344-400 l. Endurtakið útaukningu með því að slá 1 sinni uppá prjóninn með 3-4-3-5-4-7 cm millibili til skiptis hvoru megin við A.2 og br innan við 1 l sléttprjón (þ.e.a.s. næsta útaukning er prjónuð þannig: A.2, 1 l br, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 l sl, 1 l br) 6-4-5-3-4-2 sinnum til viðbótar = 12-10-11-9-10-8 l á milli hverra A.2 = 322-364-383-413-436-454 l. Þ.e.a.s. prjónið frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 2 l br, * A.2, 1 l br, 10-8-9-7-8-6 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-* þar til 15 l eru eftir, A.2, 2 l br, endið á 5 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 52-53-54-55-56-57 cm frá prjónamerki (= alls 70-72-74-76-78-80 cm). Endið þegar prjónaðar hafa verið 5 umf með kaðlaumferð í A.2. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5. Prjónið 4 umf garðaprjón yfir allar l JAFNFRAMT í fyrstu umf er fækkað um 2 l yfir hvert mynstur A.2 – LESIÐ ÚRTAKA-2 (= 32-40-40-48-48-56 l færri) = 290-324-343-365-388-398 l. Fellið af.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 46-48-50-52-52-54 l á sokkaprjóna nr 3,5 með Karisma. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4. Næsta umf er prjónuð þannig: 19-20-21-22-22-23 l sl, 1 l br, A.3, 1 l br, 19-20-21-22-22-23 l sl. Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 48-50-52-54-54-56 l á prjóni. Prjónið A.2 yfir A.3. Endurtakið A.2 til loka. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf. Þegar stykkið mælist 12-12-11-9-12-10 cm, aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu með 2½-2-2-2-1½-1½ cm millibili 13-15-16-17-19-20 sinnum til viðbótar = 76-82-86-90-94-98 l. Þegar stykkið mælist 48-47-45-44-44-42 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla), haldið áfram með mynstur JAFNFRAMT er prjónað fram og til baka og fellt af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umf í hvorri hlið á stykki þannig: Fellið af 4 l 1 sinni, 2 l 3 sinnum og 1 l 6-6-7-7-9-9 sinnum, síðan eru felldar af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 57-56-55-54-55-53 cm, fellið síðan af 3 l 1 sinni í hvorri hlið JAFNFRAMT eru felldar af 2 l yfir kaðal í A.2. Fellið af þær l sem eftir eru, stykkið mælist ca 58-57-56-55-56-54 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í. Saumið kraga saman mitt að aftan. Saumið kraga við hálsmál aftan í hnakka. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = setjið 2 l á kaðlaprjón nr 1 fyrir framan stykkið, setjið næstu 2 l á kaðlaprjón nr 2 fyrir framan stykkið, 2 l sl, prjónið 2 l sl af kaðlaprjóni nr 1, 2 l sl, prjónið 2 l sl af kaðlaprjóni nr 2
symbols = setjið 2 l á kaðlaprjón fyrir framan stykkið, prjónið 2 l sl, 2 l sl af kaðlaprjóni
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l, uppslátturinn er prjónaður snúinn br í næstu umf.
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 165-48

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (24)

country flag Jane wrote:

What do you mean by ‘remember the gauge’ when knitting the shoulders?

19.05.2019 - 17:06

DROPS Design answered:

Dear Jane, it's just a small reminder that you should keep same tension as you had when checking your swatch first - to be sure that the finished project will have correct measurements. Happy knitting!

20.05.2019 - 13:48

country flag Crystel wrote:

Bonjour, Ce n'est pas clair pour moi pour le col en rangs raccourcis. Je fais la taille L, est-ce que ça veut dire que je tricote *2 rangs sur 19 mailles et 2 rangs sur 16 mailles * et ainsi de suite sur 9 cm ? D'avance merci pour votre réponse.

30.10.2016 - 10:11

DROPS Design answered:

Bonjour Chrystel, c'est exact, tricotez ainsi jusqu'à ce que le col mesure 9 cm du côté le plus court (pas côté des rangs raccourcis qui sera automatiquement plus long). Bon tricot!

31.10.2016 - 10:43

country flag Metzger Anneliese wrote:

Vos vestes sont tres belle ,la laine aussi .pourquoi commencer les vestes par le haut je trouve cela complique et le tricot devient tres lourd

22.01.2016 - 15:05

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Metzger, nos différents modèles se tricotent de façon différentes: de haut en bas (comme ici), de bas en haut, en 1 pièce jusqu'aux emmanchures ou chaque pièce séparément ... en fonction du choix de la styliste, du modèle etc. Bon tricot!

25.01.2016 - 09:30

country flag Jocelyne Brassard wrote:

Peut on faire ce modèle simplement en point Jersey . Si oui, la quantité de laine est-t-elle la même et le nombre de mailles est-t-il le même? Merci

18.09.2015 - 16:14

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Brassard, pour une veste en jersey, la quantité de fil sera différente mais le nombre de mailles également. Il est recommandé dans ce cas de faire une recherche pour un modèle jersey. Votre magasin DROPS saura vous aider si nécessaire. Bon tricot!

19.09.2015 - 09:45

country flag Eija Auvo wrote:

Ihana jakku! Etukappaleiden nappilistat tosin vetävät kuvassa ryppyyn. Vaihtoehtona on kutoa nappilistassa kerroksen viimeinen silmukka nurin ja nostaa seuraavan kerroksen ensimmäinen silmukka kutomatta. Näin siihen tulee ketjusilmukkareuna, joka ei vedä. // Underbar kofta! Sidorna på knapplistan ser ut att dra sig. Ett alternativ är att sticka den sista maskan på varvet avigt och lyfta den första maskan på följande varv utan att sticka den. Då blir sidan som en kedja som inte drar sig.

24.06.2015 - 16:07

country flag Karin wrote:

Wonderful, thats the pattern I was looking for.

23.06.2015 - 21:28

country flag José wrote:

Mooi getailleerd model met prachtige kabels. Helemaal mijn ding. Wat ik wat jammer vind is dat de voorpanden wat op trekken.

13.06.2015 - 16:23

country flag Ellis wrote:

Very nice jacket, think I make a picot edge that makes it less sloppy. I cannot see if there is a collar or not but I like it if the edges are double knitted. Nice cables.

08.06.2015 - 20:58

country flag Uschi wrote:

Perfekt, auch für grössere Damen :-)

04.06.2015 - 09:23

country flag Monica wrote:

Den känns som jag kan börja sticka nu

03.06.2015 - 21:36