Blossom Lane |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Karisma með köðlum og sjalkraga. Prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 165-48 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1-A.3. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið um 1 l hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 ls l, steypið óprjónuðu l yfir, (prjónamerki), prjónið næstu 2 l slétt saman. Síðasta úrtaka, fækkið lykkjum þannig: Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 l br saman, (prjónamerki), prjónið næstu 2 l br saman. ÚTAUKNING (á við um ermi): Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umf. ÚRTAKA-2 (á við um A.2): Fækkið um 2 l yfir A.2 þannig: Prjónið 1 l sl, 2 l snúnar slétt saman, 2 l sl, 2 l slétt saman, 1 l sl. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan, þ.e.a.s. vinstri hlið á stykki séð frá réttu (séð frá prjónstefnu). 1 hnappagat = prjónið 3. og 4. l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist (frá þar sem l voru fitjaðar upp fyrir öxl): STÆRÐ S: 24, 32, 40, 48 og 56 cm. STÆRÐ M: 25, 33, 41, 49 og 57 cm. STÆRÐ L: 26, 34, 42, 50 og 58 cm. STÆRÐ XL: 25, 33, 41, 49, 57 og 65 cm. STÆRÐ XXL: 26, 34, 42, 50, 58 og 66 cm. STÆRÐ XXXL: 26, 34, 42, 50, 58 og 67 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað ofan frá og niður, fram og til baka. BAKSTYKKI: VINSTRI ÖXL: Fitjið upp 25-29-32-35-33-41 l á hringprjóna nr 4 með Karisma. Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýring að ofan. Prjónið síðan frá réttu þannig: 2 l br, * 6 l sl, 3-2-3-2-2-2 l br *, endurtakið frá *-* alls 2-3-3-4-3-4 sinnum, 5-3-3-1-6-6 l sl, 0-0-0-0-1-1 l br. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 2 cm er aukið út um 1 l í lok næstu umf frá réttu = 26-30-33-36-34-42 l. Geymið stykkið og prjónið hægri öxl. HÆGRI ÖXL: Fitjið upp 25-29-32-35-33-41 l á hringprjóna nr 4 með Karisma. Prjónið 2 umf garðaprjón. Prjónið frá réttu þannig: 0-0-0-0-1-1 l br, 5-3-3-1-6-6 l sl, * 3-2-3-2-2-2 l br, 6 l sl *, endurtakið frá *-* alls 2-3-3-4-3-4 sinnum, endið á 2 l br. Þegar stykkið mælist 2 cm er aukið út um 1 l í byrjun á næstu umf frá réttu = 26-30-33-36-34-42 l. BAKSTYKKI: Prjónið frá röngu (þ.e.a.s. prjónið yfir hægri öxl að vinstri öxl): 2 l sl, * 6 l br, 3-2-3-2-2-2 l sl *, endurtakið frá *-* alls 2-3-3-4-3-4 sinnum eins og áður, 6-4-4-2-6-6 l br, 0-0-0-0-2-2 l sl, fitjið upp 21-22-25-26-30-30 l fyrir hálsmáli, 0-0-0-0-2-2 l sl, 6-4-4-2-6-6 l br, * 3-2-3-2-2-2 l sl, 6 l br *, endurtakið frá *-* alls 2-3-3-4-3-4 sinnum, endið á 2 l sl = 73-82-91-98-98-114 l. Prjónið síðan frá réttu þannig: 2 l br, A.3, * 3-2-3-2-2-2 l br, A.3 *, endurtakið frá *-* alls 7-9-9-11-11-13 sinnum, endið á 2 l br. Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 89-102-111-122-122-142 l á prjóni. Prjónið síðan A.1 yfir A.3. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Endurtakið A.1 á hæðina. Þegar stykkið mælist 13-15-16-15-15-17 cm aukið út fyrir handveg í lok hverrar umf á hvorri hlið á stykki þannig: Aukið út 1 l 2-2-2-3-3-2 sinnum, fitjið síðan upp 2 l 3-2-2-3-3-3 sinnum og 3 l 1-1-1-1-3-3 sinnum = 111-120-129-146-158-176 l. Útauknu l eru prjónaðar með sléttprjóni. Þegar allar l hafa verið auknar út, geymið stykkið og prjónið framstykki (síðasta umf = ranga). HÆGRA FRAMSTYKKI: Fyrst er sjalkraginn prjónaður. Fitjið upp 17-18-19-20-22-22 l á hringprjóna nr 4 með Karisma. Prjónið sléttprjón JAFNFRAMT eru prjónaðar stuttar umf með byrjun frá röngu þannig: Prjónið 2 umf yfir allar l, prjónið 2 umf yfir fyrstu 11-11-16-14-16-16 l. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 8-8-9-9-10-10 cm þar sem það er styst, stillið af að næsta umf sé frá röngu. Prjónið sl yfir 17-18-19-20-22-22 l, fitjið upp 25-29-32-35-33-41 l í lok umf fyrir öxl = 42-47-51-55-55-63 l. Prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l. Prjónið næstu umf frá réttu þannig: 2 l br * 6 l sl, 3-2-3-2-2-2 l br *, endurtakið frá *-* alls 3-4-4-5-5-6 sinnum, 6 l sl, 2 l br, endið á 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 2 cm frá þeim stað þar sem fitjað var upp fyrir öxl, prjónið næstu umf frá réttu þannig: 2 l br, * A.3, 3-2-3-2-2-2 l br *, endurtakið frá *-* alls 3-4-4-5-5-6 sinnum, A.3, 2 l br, endið á 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Kantlykkjur að framan eru prjónaðar í garðaprjóni til loka. Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 50-57-61-67-67-77 l í umf. Prjónið A.1 yfir A.3. Endurtakið A.1 á hæðina. Þegar stykkið mælist 13-15-16-15-15-17 cm (stillið af eftir bakstykki, mikilvægt er að enda í sömu umf svo að kaðlarnir verði réttir í framhaldinu) aukið út fyrir handveg í lok umf frá röngu þannig: Aukið út um 1 l 2-2-2-3-3-2 sinnum, síðan eru fitjaðar upp 2 l 3-2-2-3-3-3 sinnum og 3 l 1-1-1-1-3-3 sinnum = 61-66-70-79-85-94 l. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar allar l hafa verið auknar út, geymið stykkið og prjónið vinstra framstykki. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema gagnstætt. Þ.e.a.s. prjónið stuttar umf yfir sjalkragann með byrjun frá réttu. Fitjið upp nýjar l fyrir öxl í lok umf frá réttu. Fyrsta umf á eftir 2 umf garðaprjón á öxl, prjónið frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 2 l sl, 6 l br, * 3-2-3-2-2-2 l sl, 6 l br *, endurtakið frá *-* 3-4-4-5-5-6 sinnum, endið á 2 l sl. Aukið út fyrir handveg í lok umf frá réttu. FRAM- OG BAKSTYKKI: Mikilvægt er að öll stykkin endi í sömu umf. Setjið allar l á sama hringprjón nr 4 = 233-252-269-304-328-364 l. Setjið 1 prjónamerki á milli stykkja (= 2 prjónamerki í hlið). Setjið 1 merkiþráð í stykkið, HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónamerkin fylgja með í stykkinu, á meðan merkiþráðurinn fær að vera. Í fyrstu umf (= rétta) haldið áfram með stykkin þannig: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, 2 l br, * A.1, 3-2-3-2-2-2 l br *, endurtakið frá *-* alls 3-4-4-5-5-6 sinnum, A.1, 2 l br, 22-18-18-24-36-34 l sléttprjón (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), 2 l br, A.1, * 3-2-3-2-2-2 l br, A.1 *, endurtakið frá *-* alls 7-9-9-11-11-13 sinnum, 2 l br, 22-18-18-24-36-34 l sléttprjón (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), 2 l br, * A.1, 3-2-3-2-2-2 l br *, endurtakið frá *-* alls 3-4-4-5-5-6 sinnum, A.1, 2 l br, endið á 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan, í hægri kant að framan. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 4-4-4-5-2-2 cm fækkið um 1 l hvoru megin við hvert prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA-1 (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku í 4.-6.-6.-4.-4.-4. hverri umf 10-8-8-11-17-16 sinnum til viðbótar. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 12 cm er aukið út um 1 l í hverri br mynstureiningu í næstu umf frá réttu þannig: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, 2 l br, * A.1, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3-2-3-2-2-2 l br *, endurtakið frá *-* alls 3-4-4-5-5-6 sinnum, A.1, 2 l br, sléttprjón yfir þær l sem eru eftir í sléttprjóni, 2 l br, A.1, * 3-2-3-2-2-2 l br, sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.1 *, endurtakið frá *-* alls 7-9-9-11-11-13 sinnum, 2 l br, sléttprjón yfir þær l sem eru eftir í sléttprjóni, 2 l br, * A.1, sláið uppá prjóninn, 3-2-3-2-2-2 l br *, endurtakið frá *-* alls 3-4-4-5-5-6 sinnum, A.1, 2 l br, endið á 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umf, þ.e.a.s. prjónað er br frá réttu. STÆRÐ XXL + XXXL: Þegar stykkið mælist 20 cm, endurtakið útaukningu í hverri br einingu í næstu umf frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 2 l br, * A.1, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3-3 l br *, endurtakið frá *-* alls 5-6 sinnum, A.1, 2 l br, sléttprjón yfir þær l sem eru eftir með sléttprjóni, 2 l br, A.1, * 3-3 l br, sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.1 *, endurtakið frá *-* alls 11-13 sinnum, 2 l br, sléttprjón yfir þær l sem eru eftir í sléttprjóni, 2 l br, * A.1, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3-3 l br *, endurtakið frá *-* alls 5-6 sinnum, A.1, 2 l br, endið á 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. ALLAR STÆRÐIR: Þegar búið er að fækka öllum l í sléttprjóni eru 202-233-250-277-298-346 l í umf. STÆRÐ M + XL: Þegar búið er að fækka öllum l í sléttprjóni er fellt af þannig: Í næstu umf frá réttu eru 4 l br fækkað í 3 l br í hvorri hlið þannig: Prjónið fyrstu 2 l br saman = 231-275 l. ALLAR STÆRÐIR: = 202-231-250-275-298-346 l. Nú eru 4-3-4-3-4-4 l br í hverri br einingu og 2 l br í kanti að framan í hvorri hlið á stykki. Þ.e.a.s. prjónið nú frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 2 l br, * A.1, 4-3-4-3-4-4 l br *, endurtakið frá *-* þar til 15 l eru eftir (= alls 15-19-19-23-23-27 sinnum), A.1, 2 l br, endið á 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 23-24-25-26-27-28 cm, passið uppá að prjónuð hafi verið heil mynstureining í A.1. Prjónið nú A.2 yfir A.1. Endurtakið A.2 til loka. STÆRÐ M + XL: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 25-27 cm er aukið út í næstu umf frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 2 l br, * A.2, 1 l br, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 15 l eru eftir, A.2, 2 l br, endið á 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni (= 19-23 l fleiri) = 250-298 l. Uppslátturinn er prjónaður snúinn sl í næstu umf, þ.e.a.s. prjónið br frá réttu. Nú eru 4-4 l br í hverri br einingu og 2 l br við kant að framan í hvorri hlið á stykki. ALLAR STÆRÐIR: = 202-250-250-298-298-346 l. Þegar stykkið mælist 24-26-26-28-28-29 cm prjónið nú næstu umf frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 2 l br, * A.2, 1 l br, síðan fléttast kaðlarnir í 2 næstu l þannig: Setjið 1 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 1 l sl, 1 l sl af hjálparprjóni, 1 l br *, endurtakið frá *-* þar til 15 l eru eftir (= alls 15-19-19-23-23-27 sinnum), A.2, 2 l br, endið á 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Þær 2 l sem eru í kaðli eru nú prjónaðar áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 25-27-27-29-29-30 cm aukið út í næstu umf frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 2 l br, * A.2, 1 l br, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-* þar til 15 l eru eftir, A.2, 2 l br, endið á 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni (= 15-19-19-23-23-27 l fleiri) = 217-269-269-321-321-373 l. Uppslátturinn er prjónaður snúinn br í næstu umf, þ.e.a.s. útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 27-28-29-30-31-32 cm í næstu umf frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 2 l br, * A.2, 1 l br, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-* þar til 15 l eru eftir, A.2, 2 l br, endið á 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni (= 15-19-19-23-23-27 l fleiri) = 232-288-288-344-344-400 l. Endurtakið útaukningu með því að slá 1 sinni uppá prjóninn með 3-4-3-5-4-7 cm millibili til skiptis hvoru megin við A.2 og br innan við 1 l sléttprjón (þ.e.a.s. næsta útaukning er prjónuð þannig: A.2, 1 l br, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 l sl, 1 l br) 6-4-5-3-4-2 sinnum til viðbótar = 12-10-11-9-10-8 l á milli hverra A.2 = 322-364-383-413-436-454 l. Þ.e.a.s. prjónið frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 2 l br, * A.2, 1 l br, 10-8-9-7-8-6 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-* þar til 15 l eru eftir, A.2, 2 l br, endið á 5 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 52-53-54-55-56-57 cm frá prjónamerki (= alls 70-72-74-76-78-80 cm). Endið þegar prjónaðar hafa verið 5 umf með kaðlaumferð í A.2. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5. Prjónið 4 umf garðaprjón yfir allar l JAFNFRAMT í fyrstu umf er fækkað um 2 l yfir hvert mynstur A.2 – LESIÐ ÚRTAKA-2 (= 32-40-40-48-48-56 l færri) = 290-324-343-365-388-398 l. Fellið af. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 46-48-50-52-52-54 l á sokkaprjóna nr 3,5 með Karisma. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4. Næsta umf er prjónuð þannig: 19-20-21-22-22-23 l sl, 1 l br, A.3, 1 l br, 19-20-21-22-22-23 l sl. Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 48-50-52-54-54-56 l á prjóni. Prjónið A.2 yfir A.3. Endurtakið A.2 til loka. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf. Þegar stykkið mælist 12-12-11-9-12-10 cm, aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu með 2½-2-2-2-1½-1½ cm millibili 13-15-16-17-19-20 sinnum til viðbótar = 76-82-86-90-94-98 l. Þegar stykkið mælist 48-47-45-44-44-42 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla), haldið áfram með mynstur JAFNFRAMT er prjónað fram og til baka og fellt af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umf í hvorri hlið á stykki þannig: Fellið af 4 l 1 sinni, 2 l 3 sinnum og 1 l 6-6-7-7-9-9 sinnum, síðan eru felldar af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 57-56-55-54-55-53 cm, fellið síðan af 3 l 1 sinni í hvorri hlið JAFNFRAMT eru felldar af 2 l yfir kaðal í A.2. Fellið af þær l sem eftir eru, stykkið mælist ca 58-57-56-55-56-54 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í. Saumið kraga saman mitt að aftan. Saumið kraga við hálsmál aftan í hnakka. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (24)
Lisbeth Tørvi wrote:
Veldig flott jakke, også liker jeg veldig godt at det er V-hals.
27.05.2015 - 19:22Lisbeth Tørvi wrote:
Veldig flott jakke, også liker jeg veldig godt at det er V-hals.
27.05.2015 - 19:21Elaine Diggle wrote:
Please could we have patterns that are not on circular needles. I find it so off putting to have so many stitches on a row at once plus I prefer to knit with my neee tucked under my arm, impossible with a circular needle.
27.05.2015 - 14:26Eva Pihlgren wrote:
En måstekofta
27.05.2015 - 14:06