DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9196.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Petunia

Prjónuð peysa með hringlaga berustykki og norrænu mynstri, prjónuð ofan frá og niður úr 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði DROPS Melody. Stærð S - XXXL.

DROPS 164-45
DROPS Design: Mynstur nr as-047
Garnflokkur C + C eða D
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio
125-150-150-175-200-200 gr litur nr 03, grár
75-75-75-100-100-100 gr litur nr 01, natur
50-50-50-50-50-50 gr litur nr 07, rauður
25-25-50-50-50-50 gr litur nr 06, kórall

Eða notið:
DROPS MELODY frá Garnstudio
150-150-150-200-200-200 gr litur nr 04, grár
100-100-100-100-100-100 gr litur nr 01, natur
50-50-50-50-50-50 gr litur nr 12, kirsuber
50-50-50-50-50-50 gr litur nr 13, bleikur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 7 – eða þá stærð sem þarf til að 14 l með sléttprjóni með 2 þráðum Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði Melody verði 10 cm á breiddina.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 6 – fyrir kant með garðaprjóni.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9196.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2 (veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærði og byrjið á umf merktri með ör í réttri stærð). Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni með 2 þráðum Brushed Alpaca Silk (= BAS) eða 1 þræði Melody (= M).

LEIÐBEININGAR:
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf er mikilvægt að herða ekki á þræði á bakhlið á stykki þegar mynstrið er prjónað. Notið e.t.v. grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman.

ÚTAUKNING-1:
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2:
Til þess að reikna út hversu oft eigi að auka út í umf, teljið fjölda lykkja í umf, (t.d. 54 l) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12 l) = 4,5. Þ.e.a.s. í þessu dæmi þá er aukið út til skiptis í 4. og 5. hverri l.

ÚRTAKA:
Fækkið lykkjum hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 2 l á undan prjónamerki, prjónið 2 l slétt saman, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna og prjónað er ofan frá og niður.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 54-54-58-58-62-62 l á hringprjóna nr 6 með 2 þráðum í litnum natur Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði í litnum natur Melody. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útkýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 7 og prjónið 1 umf slétt þar sem auknar eru út 12-18-14-17-13-16 l jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING-1 og ÚTAUKNING-2 = 66-72-72-75-75-78 l. Prjónið síðan mynstur í hring eftir mynstri A.1 (veljið mynstur fyrir rétta stærð = 22-24-24-25-25-26 mynstureiningar 3 l). LESIÐ LEIÐBEININGAR og aukið út eins og útskýrt er í mynstri = 88-96-96-100-100-104 l í umf. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Aukið síðan út þannig:
Í umf merktri með ör-1 í mynstri er aukið út um 30-34-38-46-50-54 l jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING-2 = 118-130-134-146-150-158 l.
Í umf merktri með ör-2 í mynstri er aukið út um 30-30-34-34-38-38 l jafnt yfir = 148-160-168-180-188-196 l.
Í umf merktri með ör-3 í mynstri er aukið út um 20-20-24-24-28-32 l jafnt yfir = 168-180-192-204-216-228 l.
Í umf merktri með ör-4 í mynstri er aukið út um 12-12-16-20-24-24 l jafnt yfir = 180-192-208-224-240-252 l.
Í umf merktri með ör-5 í mynstri er aukið út um 10-10-14-10-14-14 l jafnt yfir = 190-202-222-234-254-266 l.
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 19-21-21-22-23-23 cm frá uppfitjunarkanti. Næsta umf er prjónuð frá réttu með 2 þráðum í litnum grár Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði í litnum grár Melody: Prjónið 54-58-66-72-80-84 l sl (= bakstykki), setjið næstu 41-43-45-45-47-49 l á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar l á prjóni (= undir ermi), prjónið 54-58-66-72-80-84 l sl (= framstykki), setjið næstu 41-43-45-45-47-49 l á þráð (= ermi) og fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar l á prjóni (= undir ermi).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 120-128-144-160-176-184 l. Setjið 1 prjónamerki í stykkið – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið 1 umf slétt með grár. Prjónið síðan mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.2 (= 15-16-18-20-22-23 mynstureiningar á 8 l). Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað sléttprjón með litnum grár til loka (með 2 þráðum Brushed Alpaca Silk/1 þræði Melody). Prjónið þar til stykkið mælist 35-35-37-38-39-41 cm. Nú eru eftir 2 cm að loka máli (mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). Skiptið yfir á hringprjóna nr 6. Prjónið 8 umf garðaprjón (1. umf = rétta) og fellið LAUST af. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Setjið l af þræði frá annarri hlið á stykki á sokkaprjóna nr 7. Prjónið 1 umf slétt með litnum grár og fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar l í lok umf = 47-49-51-53-55-57 l á prjóni. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-6-8-8-8 nýjar l (= miðja undir ermi) og setjið 1 prjónamerki í miðju l í umf (= miðja ofan á ermi) – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.2 (l með stjörnu í mynstri eiga að passa við l með prjónamerki í fyrir miðju ofan á ermi – teljið út frá þeim stað þar sem umf byrjar). Þegar stykkið mælist 2-2-3-3-4-4 cm fækkið lykkjum hvoru megin við prjónamerki mitt undir ermi – LESIÐ ÚRTAKA (= 2 l færri).
Endurtakið úrtöku með 5½-5-4-4-3½-3½ cm millibili alls 7-8-9-9-10-10 sinnum = 33-33-33-35-35-37 l. JAFNFRAMT eftir A.2 er prjónað með litnum grár til loka (með 2 þráðum Brushed Alpaca Silk/1 þræði Melody). Prjónið þar til stykkið mælist 43-42-42-42-42-42 cm (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Nú eru eftir 2 cm að loka máli (mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 6. Prjónið 8 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan og fellið LAUST af, ermin mælist ca 45-44-44-44-44-44 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 21.09.2015
Nýtt efnismagn í Melody
Yfirfarið á vefsvæði: 21.09.2015
Nýtt efnismagn í Melody

Mynstur

symbols = 2 þræðir natur BAS eða 1 þráður natur M
symbols = 2 þræðir grár BAS eða 1 þráður natur M
symbols = 2 þræðir rauður BAS eða 1 þráður kirsuber M
symbols = 2 þræðir kórall BAS eða 1 þráður rauður M
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l með 2 þráðum natur BAS eða 1 þræði natur M, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.
symbols = útaukningsumferð
symbols = miðjulykkja
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 164-45

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (23)

country flag Silv wrote:

Da ich bisher keine Antwort erhalten habe, möchte ich noch einmal nach der Reihenanzahl für die Maschenprobe fragen. Freue mich über eine kurze Rückmeldung!

20.11.2022 - 08:56

DROPS Design answered:

Liebe Silv, Entchuldigung, es sieht so aus, daß wir Ihre Frage verpasst haben; die Maschenprobe ist 14 Reihe und 16 Reihe. Viel Spaß beim stricken!

21.11.2022 - 09:09

country flag Silv wrote:

Wie soll die Maschenprobe aussehen? Es ist keine Anzahl der Reihen angegeben worden... Viele Grüße

13.10.2022 - 10:10

country flag Louison wrote:

Bonjour, je ne comprends pas le diagramme 1. Il commence par 3 cases /1blanc/3 cases/1blanc/3 cases. A quoi correspond le blanc entre les 3 cases? Merci

29.12.2020 - 19:54

DROPS Design answered:

Bonjour Louison, cet espace correspond aux mailles qui seront ajoutées ensuite (= au 4ème rang on fait 1 jeté), autrement dit, on tricote: *1 m naturel, 1 m gris, 1 m naturel*,et on répète de *-* tout le tour, et pendant 3 tours. Bon tricot!

04.01.2021 - 12:01

country flag Stephanie wrote:

I am working on understanding the sleeve instructions. I have 53 stitches (size XL), which is not perfectly divisible by 8 stitches (the number of stitches in A.2). After having 6 repeats of A.2, what do I do with the remaining 5 stitches? Should I make a miniature A.2, or spread out the 5 stitches between the A.2 repeats? If the latter, where is the recommended place where two adjacent A.2 motifs don’t have an extra stitch between them—the top or the underside of the sleeve?

14.08.2020 - 08:06

DROPS Design answered:

Dear Stephanie, diagram A.2 should be centered on mid upper sleeve - this lesson explains how to center a diagram. Happy knitting!

14.08.2020 - 11:07

country flag Stephanie wrote:

Can you explain the meaning of the arrow+star symbol/"mid st" from the diagram better ? I only see the star symbol by itself, which I understand corresponds to the coral BAS/rose M yarns. Where is the arrow+star symbol used?

30.01.2020 - 20:28

DROPS Design answered:

Dear Stephanie, the arrow with star is used in A.2 to mark the middle stitch. Happy knitting!

31.01.2020 - 07:17

country flag Pia Wettergren wrote:

Ang. det grå: jeg fik 8 gram til overs ! Til gengæld er der 20 gram hvid, 16 gram rust og 35 gram stålblå til overs. Synes ikke ,at garn mængden er helt ok. Jeg kunne have undværet et nøgle blåt ! Til gengæld stor bekymring omkring det grå

02.01.2020 - 19:04

country flag Pia Wettergren wrote:

Jeg har lige bestilt garn til str M i Brushed Alpaca Silk og er da blevet lidt bekymret - har jeg købt nok grå? Flere skriver, at det er for lidt? Jeg handler på nettet, så det er ikke smart, hvis jeg har bestilt for lidt. Hvad er der med strikkefasthed/længde? kan jeg få et fif til at strikke den nedefra? På forhånd tak for svar:-)

22.10.2019 - 19:35

DROPS Design answered:

Hej Pia, der skal altså være nok garn, vi ved at mange har strikket den (vi har kun fået én kommentar om at der er for lidt) . Du skal få 14 masker på 10 cm i bredden. Det er mindst lige så let at strikke ovenfra og ned og fordelen er at man kan måle og tilpasse undervejs. God fornøjelse!

23.10.2019 - 13:55

country flag Astrid wrote:

Genseren er flott og den var morsom å strikke, passer perfekt i str. medium, som jeg vanligvis bruker. Men garnmengden som er angitt i Brushed Alpaca Silk passer ikke helt. Særlig irriterende var det å få for lite grått garn, 6 nøster (150 g) ble for lite, 175 hadde vært passe. Det står 50 g rødt (2 nøster), men det hadde fint klart seg med ett nøste (25 g) rød. Der fikk jeg halvannet nøste til overs.

21.04.2019 - 09:20

country flag Sonja wrote:

Hvorfor bruges der ikke dobbelt tråd med Drops Melody? Bliver trøjen ikke fastere ved dobbelttråd? Jeg synes at Drops Melody som enkelttråd kan blive meget slasket/løs i det. Mvh Sonja

27.03.2019 - 22:30

DROPS Design answered:

Hei Sonja. Om man strikker med 2 tråder vil plagget bli tykkere, og da sikkert virke fastere. Melody er jo et luftig garn. Det er strikkefastheten som avgjør om du kan strikke med 1 eller 2 tråder, og i denne oppskriften er strikkefastheten 14 masker glattstrikk i bredden = 10 cm. Du kan derfor ikke strikke med 2 tråder Melody, da du vil få altfor få masker på pinnen. Målene på plagget vil da bli mye større enn angitt. Om du ikke vil strikke med Melody kan du feks strikke med 2 tråder Brushed Alpaca Silk (som tilsvarer 1 tråd Melody). God fornøyelse

04.04.2019 - 14:48

Freddie wrote:

Sorry but this does not answer my question - I am not intending to use an alternative yarn but the DROPS alpaca/silk specified in the pattern so my question is how many balls of this yarn would I order of the main colour (gray) to knit a sweater in size small?

16.11.2016 - 22:05

DROPS Design answered:

Dear Freddie, in size S you will need: if you use Brushed Alpaca Silk: 125/25 g a ball = 5 balls gray no 03 and if you use Melody: 150/50 g a ball = 3 balls gray no 04. Happy knitting!

17.11.2016 - 09:02