DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10670.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Irish Dove

Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk með gatamynstri, laskalínu, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 166-41
DROPS Design: Mynstur nr z-721
Garnflokkur A + A eða C
----------------------------------------------------------

Stærð: S/M – L/XL – XXL/XXXL

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
250-250-300 gr litur nr 7120, ljós grágrænn
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio
100-125-125 gr litur nr 06, ljós grágrænn

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með sléttprjóni með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir) verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10670.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.11.

LASKALÍNA:
Aukið er út fyrir laskalínu hvoru megin við A.2/A.4. Á fram- og bakstykki eru útaukningar teiknaðar inn í mynstur A.3 og A.5. Á ermum er aukið út þannig: Aukið út með því að slá uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður slétt í næstu umf – það eiga að myndast göt. Aukið út í annarri hverri umf 23-29-35 sinnum, en 0-3-7 sinnum (ca í 0.-10.– 5. hvert sinn sem aukið er út) prjónið 2 l slétt saman á eftir uppslætti í byrjun á ermi og á undan uppslætti í lok á ermi. Í þessari umf er engin útaukin l á ermi, en gataumferð heldur áfram eins og áður. Aukið er út um alls 23-26-28 l í hvorri hlið á hvorri ermi.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður.

BERUSTYKKI:
LESIÐ FYRSTA KAFLANN ÁÐUR EN BYRJAÐ ER AÐ PRJÓNA!
Fitjið upp 86-86-86 l á stutta hringprjóna nr 5 með einu þræði Kid-Silk og einum þræði Alpaca (= 2 þræðir). Prjónið A.1. Þegar A.1 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina er prjónað þannig – frá vinstri laskalínu á bakstykki: Prjónið A.2 (= 12 l), A.3 (= 5 l), A.4 (= 12 l), (= bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 14 l sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= ermi), A.2, A.3, A.4 (= framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 14 l sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= ermi). Haldið svona áfram með mynstur, JAFNFRAMT sem útaukning fyrir LASKALÍNA á ermi heldur áfram í annarri hverri umf – sjá útskýringu að ofan. Ermin er prjónuð í sléttprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað áfram þannig: Prjónið A.2, A.5 A (= 13 l), A.5 B (= 12 l) og A.5 C (= 14 l) A.4, (= bakstykki), prjónið ermi, A.2, A.5 A, A.5 B. A.5 C, A.4, (= framstykki), prjónið ermi. Prjónið A.5 alls 1-2-3 sinnum á hæðina. Fyrir hvert skipti sem A.5 er prjónað á hæðina er prjónuð 1 A.5 B fleiri á milli A.5 A og A.5 C. Prjónið þar til 1 umf í A.5 er eftir (= 75-87-99 l á fram/bakstykki og 60-66-70 l á hvorri ermi). Næsta umf er prjónuð þannig (þetta er síðasta umf í A.5): Prjónið 75-87-99 l (= bakstykki), setjið næstu 60-66-70 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10 nýjar l, setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja, prjónið 75-87-99 l (= framstykki), (= framstykki), setjið næstu 60-66-70 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10 nýjar l, setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja = 166-190-218 l. Berustykkið mælist ca 21-26-32 cm.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Prjónið þannig: A.2, A.6 A (= 13 l), A.6 B yfir næstu 24-36-48 l, A.6 C (= 14 l), A.4, prjónið A.7 yfir nýjar 8-8-10 l undir ermi, A.2, A.6 A, A.6 B yfir næstu 24-36-48 l, A.6 C, A.4, prjónið A.7 yfir nýjar 8-8-10 l undir ermi. Þegar A.6 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað áfram þannig: A.2, A.8 A (= 14 l), A.8 B yfir næstu 24-36-38 l, A.8 C (= 15 l), A.4, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.7 yfir næstu 8-8-10 l, sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.2, A.8 A, A.8 B yfir næstu 24-36-48 l, A.8 C (= 15 l), A.4, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.7 yfir næstu 8-8-10 l, sláið 1 sinni uppá prjóninn. ATH! Í fyrstu úrtöku í A.8 er byrjað 1 l á undan A.8, fellið af þannig: Takið síðustu l í A.2 óprjónaða, prjónið 2 fyrstu l í A.8 A slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir. Í lok A.8 er fellt af þannig: Prjónið 3 l slétt saman (2 síðustu l frá A.8 og fyrstu l frá A.4). Síðasta l í A.2 og fyrsta l í A.4 hefur nú fækkað, haldið áfram með 11 l eins og áður í A.2/ A.4 = 162-186-214 l. Í annarri hverri umf er aukið út um 1 l hvoru megin við A.7 með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, útauknu l eru prjónaðar jafnóðum inn í A.7 – þetta er gert JAFNFRAMT því að fækka lykkjum í A.7 (úrtaka er teiknuð inn í mynstur). Fjöldi l er sá sami allan tímann, nema fjöldi l í A.7 og fjöldi l í A.8 fækkar.

Þegar A.8 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað áfram þannig: A.2 (= 11 l), A.9 A (13 l), A.9 B yfir næstu 12-24-36 l, A.9 C (= 14 l), A.4 (= 11 l), sláið uppá prjóninn, prjónið A.7 yfir næstu 20-20-22 l, sláið uppá prjóninn, A.2, A.9 A, A.9 B yfir næstu 12-24-36 l, A.9 C, A.4, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.7 yfir næstu 20-20-22 l, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Prjónið A.9 1-2-3 sinnum á hæðina, prjónið síðan þannig: A.2 (= 11 l), A.10 (= 27 l), A.4 (= 11 l), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.7 yfir næstu 32-44-58 l, sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.2, A.10, A.4, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.7 yfir næstu 32-44-58 l, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Þegar A.10 hefur verið prjónað eru 5 l eftir í A.10 og 54-66-80 l í hverju mynstri A.7. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT er fækkað um 4 l yfir hvert mynstur A.2/A.4, og fækkið um 2-2-6 l jafnt yfir í umf = 144-168-192 l. Prjónið A.11 yfir allar l, 1 sinni á hæðina. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br. Stykkið mælist ca 58-68-80 cm frá öxl.

ERMI:
Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. Setjið 60-66-70 l inn af þræði á sokkaprjóna nr 5. Setjið 1 prjónamerki í stykkið, HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Fitjið upp 8-8-10 nýjar l undir ermi, setjið 1 prjónamerki mitt á milli þessa 8-8-10 l = 68-74-80 l. Prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki. Endurtakið úrtöku með 1-1½-1½ cm millibili 15-16-17 sinnum til viðbótar = 36-40-44 l. Haldið áfram þar til stykkið mælist 38-35-31 cm. Prjónið 4 umf garðaprjón, JAFNFRAMT í fyrstu umf er aukið út um 4-0-4 l jafnt yfir = 40-40-48 l. Prjónið A.11 yfir allar l, 1 sinni á hæðina. Fellið af. Þegar stykkið mælist ca 44-41-37 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Mynstur

symbols = sl
symbols = br
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = setjið 3 l á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, 3 l sl, 3 l sl af hjálparprjóni
symbols = setjið 3 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 3 l sl, 3 l sl af hjálparprjóni
symbols = 3 l slétt saman
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 166-41

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (18)

country flag Nadège wrote:

Bonjour je commence la section A8. Quand on diminue A2 avec A8 et A8 avec A4 doit-on le faire sur les deux sections du premier tour ou seulement sur le premier panneau ?

21.03.2020 - 10:59

DROPS Design answered:

Bonjour Nadège, la première diminution de A.8A et A.8C se fait sur le devant et sur le dos de la même façon. Vous diminuez ensuite comme indiqué dans les diagrammes (et augmentez comme indiqué dans le texte). Bon tricot!

23.03.2020 - 09:17

country flag Nadège wrote:

Bonsoir je viens de terminer a2-a3-a4 (premier paragraphe). Mais maintenant que A2 et A4 sont terminés, comment dois-je faire ? A3 n'est pas terminé pour que je passe au deuxième paragraphe. merci

12.03.2020 - 21:24

DROPS Design answered:

Bonjour Nadège, répétez A.2 et A.4 en hauteur tout en continuant A.3 jusqu'à ce que A.3 soit terminé. Veillez bien à avoir toujours le même nombre de tours entre chaque torsade de A.2 et A.4. Continuez également les augmentations des manches comme avant. Bon tricot!

13.03.2020 - 08:38

country flag Nadège wrote:

Je relis votre explication mais je ne comprends pas comment on peut avoir 16m au 3e rang. On a déjà 14m au 1er rang +2 jetés donc au 2e rang on arrive déjà à 16m +2 jetés. Donc au 3e rang je serai à 18m + 2 jetés.

11.03.2020 - 13:25

DROPS Design answered:

au 1er rang vous avez pour les manches: 1 jeté, 14 m end, 1 jeté - ces jetés sont les augmentations des manches (= au 2ème rang, vous tricotez 16 m end pour la manche (= on n'augmente que tous les 2 tours)); au 3ème rang (= 2ème rang d'augmentations vous avez donc: 1 jeté, 16 m end, 1 jeté soit 18 m au total). Bon tricot!

11.03.2020 - 14:03

country flag Nadege wrote:

Re moi, donc en fait les explication de l'empiècement on a déjà les 4 jetés d'augmentation des manches ? je suis désolée car je ne m'y retrouve pas...

11.03.2020 - 13:09

DROPS Design answered:

Bonjour Nadège, oui tout à fait, autrement dit: A.2 (= 12 m), A.3 (= 1 jeté = augmentation ; 5 m end, 1 jeté = augmentation), A.4 (= 12 m), (= dos), 1 jeté, tricoter 14 m jersey, 1 jeté (= 16 m pour la manche), A.2, A.3 (= 1 jeté = augmentation ; 5 m end, 1 jeté = augmentation, A.4 (= devant), 1 jeté, 14 m jersey, 1 jeté (= 16 m pour la manche). Les jetés au début et à la fin de A.3 vont augmenter le devant/dos et on augmente pour les manches au début/à la fin de la manche. Est-ce plus clair ainsi?

11.03.2020 - 14:01

country flag Nadège wrote:

Bonjour je commence le modèle et j'ai un problème pour le raglan. Premier tour avec motif ok mais le deuxième tour on doit augmenter une maille de chaque côté de l'ensemble a2-a4. Ça veut dire qu'on fait 4 jetés en plus des 4 déjà mentionnés dans l'explication ? Merci d'avance

11.03.2020 - 08:33

DROPS Design answered:

Bonjour Nadège, vous augmentez dans A.3 (puis A.5) et pour le dos et le devant, et, pour les manches, vous augmentez de part et d'autre des mailles des manches = après A.4 du dos + avant A.2 du devant pour la 1ère manche et après A.4 du devant + avant A.2 du dos pour la 2ème manche. Autrement dit, au 3ème tour vous avez 1 jeté, 16 m, 1 jeté, au 5ème tour 1 jeté, 18 m, 1 jeté et ainsi de suite. Bon tricot!

11.03.2020 - 08:51

country flag Sandrine wrote:

Bonjour, J'aurais souhaité avoir une précision sur ce modèle, lorsque vous dites "À chaque fois que l'on répète A.5 en hauteur, on tricote A.5 B encore 1 fois entre A.5 A et A.5 C". Je tricote la taille L/XL. Je dois répéter A.5 2 fois en hauteur. Est-ce que cela veut dire que je tricote A.5 A à A.5 C, une première fois comme indiqué sur le diagramme et une deuxième fois en tricotant A.5 A, A.5 B, A.5 B, A.5 C ? Merci pour votre réponse

23.01.2020 - 08:38

DROPS Design answered:

Bonjour Sandrine, quand on a tricoté 1 fois A.5 en hauteur, on a suffisamment de mailles entre A.5A et A.5C pour tricoter 1 motif de A.5B en plus entre le A et le C. Autrement dit, quand vous avez tricoté 1 fois les diagrammes en hauteur vous avez fait 1 x A.5B, vous les recommencez de la même façon, mais cette fois, vous aurez 2 x A.5B entre A.5A et A.5C. Bon tricot!

23.01.2020 - 10:06

country flag Carla M Zamperetti wrote:

Salve,vorrei una conferma se ho capito bene: dopo aver lavorato il diagramma 1 si iniziano gli aumenti per i raglan,vorrei sapere quante m si aumentano ogni due ferri:4 oppure 8? e il diagramma 1 è su 12 m,e dice di montare 86 m,ma non dovrebbero essere 84?

12.01.2017 - 09:30

DROPS Design answered:

Buongiorno Carla. Gli aumenti sulle maniche sono in tutto 4 ad ogni giro. Gli aumenti sul davanti/dietro sono compresi nella lavorazione del diagramma A3. Le chiediamo di leggere con attenzione il paragrafo RAGLAN: a seconda della taglia su alcuni giri si inseriscono i gettati, ma si lavorano due maglie insieme a diritto. Il numero delle maglie iniziale è corretto. Buon lavoro!

12.01.2017 - 09:49

country flag Carla M Zamperetti wrote:

La spiegazione dice di cominciare montando 86 m,poi di lavorare il diagramma 1 che è di 12 m,quindi le m dovrebbero essere 84...

12.01.2017 - 09:20

DROPS Design answered:

Buongiorno Carla. Il numero di maglie indicato è corretto. Il diagramma A1 di fatto si lavora su un numero di maglie multiplo di 2. Inoltre con 86 maglie, si imposta correttamente la successiva lavorazione dei diagrammi A.2, A.3 e A.4. Buon lavoro!

12.01.2017 - 09:29

country flag Dana Denney wrote:

Are the charts worked from the bottom up or top down? Thanks! Dana

04.01.2016 - 23:57

DROPS Design answered:

Dear Mrs Denney, start reading diagrams at the bottom corner on the right side towards the left from RS and from the left towards the right from WS. Read more about diagrams here. Happy knitting!

05.01.2016 - 09:15

country flag Evelyne wrote:

Bonjour, je voudrais utiliser la laine alpaga en double. Pouvez-vous me dire combien il me faudra de laine et avec quelles aiguilles. MErci

20.10.2015 - 19:10

DROPS Design answered:

Bonjour Evelyne, 2 fils groupe A = 1 fil groupe C, vous pouvez donc tricoter avec 2 fils Alpaca et les mêmes aiguilles pour obtenir le bon échantillon (ajustez si nécessaire). Vous trouverez ici les informations nécessaires sur les alternatives et les calculs. Bon tricot!

21.10.2015 - 09:20