DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4840.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS Children 26-2
DROPS Design: Mynstur nr z-037-bn
Garnflokkur A + A eða C
----------------------------------------------------------
Stærð: 2 - 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 ára
Stærð í cm: 92 - 98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140
Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
100-100-100-150-200 gr litur nr 100, natur
DROPS KID-SILK frá Garnstudio
50-50-50-50-100 gr litur nr 01, natur

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 cm) NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með perluprjóni verði 10 x 10 cm með 1 þræði af hvorri tegund saman.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4 – fyrir stroff
DROPS TALA: Bogalaga (hvít), NR 521: 3-3-3-3-4 stk
----------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4840.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

PERLUPRJÓN:
UMFERÐ 1: * 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 2: sl yfir br og br yfir sl. Endurtakið umf 2.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum á hægri kant að framan. Fellið af með því að prjónað þriðju og fjórðu l frá miðju að framan saman, sláið síðan uppá prjóninn.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ 2 ára: 5, 11 og 17 cm.
STÆRÐ 3/4 ára: 5, 11 og 18 cm.
STÆRÐ 5/6 ára: 5, 12 og 20 cm.
STÆRÐ 7/8 ára: 5, 13, og 21 cm.
STÆRÐ 9/10 ára: 5, 11, 17 og 23 cm.
---------------------------------------------------------

PEYSA:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna neðan frá og upp.
Fitjið upp 128-132-140-152-160 á hringprjóna nr 4 með 1 þræði af Alpaca og 1 þræði af Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið frá réttu – þannig: 5 l garðaprjón (= kantur að framan), 2 l sl, 2 l br, 2 l sl þar til 5 l eru eftir, prjónið 5 l garðaprjón (= kantur að framan). Haldið áfram með stroff þar til stykkið mælist 4 cm, prjónið eina umf br frá röngu (kantur að framan heldur áfram í garðaprjóni) þar sem fækkað er um 22-22-22-26-26 l jafnt yfir = 106-110-118-126-134 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5, síðan er prjónað PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan með 5 l garðaprjón í hvorri hlið til loka. Þegar stykkið mælist 5 cm er fellt af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan.
Þegar stykkið mælist 10-11-12-13-14 cm prjónið þannig: Prjónið 26-27-29-31-33 l (= hægra framstykki), fellið af næstu 6 l fyrir handveg, prjónið 42-44-48-52-56 l (= bakstykki), fellið af næstu 6 l fyrir handveg, prjónið síðustu 26-27-29-31-33 l (= vinstra framstykki). Prjónið síðan hvort stykki til loka fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 42-44-48-52-56 l. Haldið áfram að fella af fyrir handvegi í hvorri hlið í byrjun hverrar umf þannig: 2 l 1 sinni = 38-40-44-48-52 l. Þegar stykkið mælist 20-22-24-26-28 cm fellið af miðju 18-20-22-24-24 l fyrir hálsmáli og hvor hlið er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umf er felld að auki af 1 l við hálsmál = 9-9-10-11-13 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 22-24-26-28-30 cm.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
= 26-27-29-31-33 l. Fellið af fyrir handveg í hlið eins og á bakstykki = 24-25-27-29-31 l. Þegar stykkið mælist 18-19-21-22-24 cm setjið 11-12-13-14-14 l við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli. Fellið síðan af í hverri umf við háls: 2 l 1 sinni og 1 l 2 sinnum = 9-9-10-11-13 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 22-24-26-28-30 cm.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið eins og hægra framstykki, nema án hnappagata.

ERMI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 42-42-46-46-50 á hringprjóna nr 4 með einum þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir. Prjónið stroff með 2 l sl, 2 l br og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 4 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5 og prjónið 1 umf slétt frá réttu þar sem fækkað er um 8-6-8-6-8 l jafnt yfir = 34-36-38-40-42 l. Prjónið nú áfram í perluprjóni. Þegar stykkið mælist 6 cm er aukið út um 1 l innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið. Aukið síðan út með 5 ½-7-6-5-4½ cm millibili 2-2-3-4-5 sinnum til viðbótar = 40-42-46-50-54 l. Útauknu l eru prjónaðar í perluprjóni. Þegar stykkið mælist 20-23-26-29-32 cm fellið af 3 l hvoru megin á ermi. Fellið síðan af fyrir handveg í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 24-27-30-33-36 cm. Fellið af 3 l í hvorri hlið, síðan eru felldar af þær l sem eftir eru. Stykkið mælist ca 25-28-31-34-37 cm.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

HÁLSMÁL:
Prjónið upp l með hringprjón nr 4 í kringum háls frá réttu með einum þræði í hvorri tegund, ca 58 til 72 l (meðtaldar l af þræði). Prjónið 4 umf garðaprjón. Fellið laust af.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 26-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (16)

country flag Loes wrote:

Is 100 gram garen van ieder soort echt genoeg voor een vestje, 2 jaar ? Dat lijkt me zo weinig.

26.08.2023 - 20:32

DROPS Design answered:

Dag Loes,

Ja hoor, 100 gram zou genoeg moeten zijn. Voor KID-Silk heb je slechts 50 gram (2 bollen) nodig voor de kleinste maat.

27.08.2023 - 16:55

country flag Sal wrote:

Hello, j’essaie de tricoter ce joli cardigan taille 2ans mais arrivee au devant droit je n’ai pas compris l’explication. Après les 11 mailles que je tricote ensuite les laisse en attente. Après de quel cote je rabats les 2 mailles. Du cote de l’emmanchure ou du cote des boutonnières ? Merci pour votre reponse. Sally

22.02.2023 - 01:12

DROPS Design answered:

Bonjour Sal, vous devez ensuite rabattre les mailles en début de rang à partir de l'encolure, autrement dit, en début de rang sur l'endroit pour le devant droit (en début de rang sur l'envers quand vous ferez le devant gauche). Bon tricot!

22.02.2023 - 08:50

country flag Solange wrote:

Bonjour, Je désire faire ce gilet dans la taille 7/8 ans. il y a un calcul que je ne comprends pas. J’ai fait l’échantillon et pour 10 cm j’ai 20 m . Le gilet fait au total 68cm d’après le croquis 34x2 (dos+devt) soit 136m je ne comprends pas combien de maille dois-je faire? Est-ce que la largeur du gilet est bien 68cm? Merci d’avance

21.10.2021 - 15:18

DROPS Design answered:

Bonjour Solange, ce modèle se tricote sur la base de 17 m = 10 cm au point de riz avec les aiguilles 4,5, si le vôtre est de 20 mailles, vous n'aurez pas les bonnes mesures; il vous faudra tout recalculer en fonction de votre propre tension et des indications du schéma; le dos mesure effectivement 34 cm de large, soit 68 cm de circonférence au total. Retrouvez plus d'infos sur l'échantillon ici. Bon tricot!

21.10.2021 - 16:08

country flag Kathleen M Wallace wrote:

Your directions are sorely lacking direction! So much is left out. I've been knitting for 40 years and have never seen anything like this.

02.05.2021 - 21:01

country flag Kathleen wrote:

The instructions stink! On the second size, both the front and back end at 9 1/2 inches. Then it says add 2 rows for the neck. On the schematic it says the second size will end with 13 inches vertically. I'm at 9 1/2 - adding two rows is not going to get me to 13 inches. What do I do?

02.05.2021 - 20:59

DROPS Design answered:

Dear Kathleen, the total height from shoulder to bottom edge is 9 1/2 inch for the 2nd size. Neck edge is not included in that total length. Hope this helps!

03.05.2021 - 09:27

country flag Karin wrote:

Jeg har 240 gr Flora.\r\nVil gerne strikke denne bolero i str 3/4 år.\r\nMed 2 tråde på pind nr 4 ,....har jeg garn nok til det.?

09.03.2021 - 08:47

country flag Nathalie Barriol wrote:

Bonjour, pour le col, je ne trouve pas l'explication très claire ..."tricoter 2 côtes mousse" ???? combien de rangs / cm ? Des côtes mousse 2:2 ? Merci pour votre réponse.

10.12.2020 - 13:11

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Barriol, 1 côte mousse = 2 rangs endroit (cf POINT MOUSSE au tout début des explications, ainsi, pour avoir 2 côtes mousse, il vous faudra tricoter 4 rangs endroit. Bon tricot!

10.12.2020 - 14:01

country flag Anne Kristi Haugland wrote:

Kan denne jakken strikkes med dobbel Kid-Silk? I tilfelle - hvilken pinnenr. ?

08.01.2020 - 19:59

DROPS Design answered:

Hej Anne, ja den kan strikkes i 2 tråde DROPS Kid-Silk, prøv med pind 5 men sørg for at du får 17 masker på 10 cm i perlestrik :)

15.01.2020 - 15:44

country flag Rous wrote:

Je ne comprend pas les explications de ce modèle ne sont pas très claire (( y allé 2 ans les 11 mailles elle son sur le milieu du devant et quand vous dites il reste 9 mailles c'est côté emanchure qu'on où devant . Mercier de votre réponse

09.10.2019 - 16:29

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Rous, pour le devant droit, on tricote les 11 premières mailles sur l'endroit et on les met en attente pour l'encolure, on continue ensuite en rabattant tous les rangs à partir de l'encolure (= sur l'endroit pour le devant droit) 1 x 2 m et 2 x 1 m, il va rester 9 m pour l'épaule. Bon tricot!

09.10.2019 - 16:42

country flag Baldo wrote:

En fait je n'avais pas bien compris, j'ai mis mes mailles sur un arrêt de mailles et j'ai continué à tricoter le reste jusqu'à 26cm... Est-il possible que la partie qui parle de l'arrêt de mailles arrivent trop tôt dans l'explication? (style : à la fin du paragraphe?) Merci

10.11.2016 - 14:35

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Baldo, vous mettez les mailles de l'encolure devant sur un arrêt de mailles puis diminuez pour l'encolure et continuez sur les mailles restantes de l'épaule quand l'ouvrage mesure 26 cm (3ème taille), dans cette taille, il faut mettre les mailles en attente à 13 cm, rabattre 1 x 2 m et 2 x 1 m pour l'encolure et rabattre les 10 m restantes à 26 cm. Bon tricot!

10.11.2016 - 15:06