DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12012.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sailor Aksel

Prjónuð jakkapeysa með laskalínu, lausum matrósarkraga með slaufu, sokkum og húfu með dúsk úr DROPS Merino Extra Fine. Stærð börn 2-10 ára

DROPS Children 26-7
DROPS Design: Mynstur nr me-020-bn
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------
PEYSA:
Stærð: 2 - 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 ára
Stærð í cm: 92 - 98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140
Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio
300-300-350-400-450 gr litur nr 20, dökkblár
100 gr í allar stærðir litur nr 01, natur
50 gr í allar stærðir litur nr 11, rauður

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 l og 45 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 cm) NR 3 – fyrir kant.
DROPS TALA, NR 525: 5-6-6-6-6 stk.
FYLGIHLUTIR: 2 smellur til að festa kraga við peysu.

HÚFA:
Stærð: 2 - 3/6 - 7/10 ára
Höfuðmál: ca 48/50 - 50/53 - 53/55 cm
Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio
50-50-100 gr litur nr 20, dökk blár
50 gr í allar stærðir litur nr 01, natur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 l og 30 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 3 – fyrir kant.

SOKKAR:
Stærð: 22/23 - 24/25 - 26/28 - 29/31 - 32/34 - 35/37
Lengd fótar: 13 - 15 - 17 - 18 - 20 - 22 cm
Lengd á stroffi: 15 - 18 - 21 - 24 - 27 - 29 cm
Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio
100-100-100-100-100-150 gr litur nr 20, dökk blár

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 l og 30 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5 – fyrir stroff.
----------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12012.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

PEYSA:

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
* 1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*.

RENDUR-1 (á við um fram- og bakstykki og ermar):
2 umf sl með natur, 2 umf sl með dökk blár, 2 umf sl með natur (= 6 umf).

RENDUR-2 (á við um kraga):
4 umf sl með natur, 4 umf sl með dökk blár, 4 umf sl með natur.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l með því að slá uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat.

ÚRTAKA:
Byrjið 2 l á undan l með prjónamerki og prjónið þannig: 2 l slétt saman, 1 l sl (= l með prjónamerki), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l fleiri).

LASKALÍNA:
Fækkið lykkjum hvoru megin við prjónamerki í hverri laskalínu.
FÆKKIÐ LYKKJUM FRÁ RÉTTU ÞANNIG:
Byrjið 3 l á undan prjónamerki og prjónið 2 l slétt saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri).
FÆKKIÐ LYKKJUM FRÁ RÖNGU ÞANNIG:
Byrjið 3 l á undan prjónamerki og prjónið 2 l snúnar br saman, 2 l br (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l) og 2 l br saman (= 2 l færri).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum á vinstri kant að framan. 1 hnappagat = sláið uppá prjóninn þegar 4 l eru eftir á prjóni, prjónið 2 næstu l slétt saman og endið á 2 l sl. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ 2 ÁRA: 2, 8, 14, 20 og 27 cm.
STÆRÐ 3/4 ÁRA: 2, 8, 13, 19, 24 og 30 cm.
STÆRÐ 5/6 ÁRA: 2, 8, 15, 21, 28 og 34 cm.
STÆRÐ 7/8 ÁRA: 2, 9, 16, 23, 30 og 37 cm.
STÆRÐ 9/10 ÁRA: 2, 10, 18, 26, 34 og 41 cm.
----------------------------------------------------------

PEYSA:

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. Fitjið upp 138-146-154-162-170 l (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna nr 3 með dökk blár. Prjónið 8 umf GARÐAPRJÓN og munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið RENDUR-1 – sjá útskýringu að ofan, en síðustu 5 l halda áfram í garðaprjóni til loka (= kantur að framan). Þegar rendurnar hafa verið prjónaðar er haldið áfram með dökk blár og sléttprjóni með 5 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Setjið 1 prjónamerki 37-39-41-43-45 l inn frá hvorri hlið (= 64-68-72-76-80 l á milli prjónamerkja á bakstykki). Þegar stykkið mælist 6-7-8-9-10 cm aukið út um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 12-14-16-18-20 cm = 146-154-162-170-178 l á prjóni. Þegar stykkið mælist 18-21-24-27-30 cm fellið af 6 l í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. fellið af 3 l hvoru megin við bæði prjónamerkin) = 36-38-40-42-44 l eftir á hvoru framstykki og 62-66-70-74-78 l á bakstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 36-38-38-40-40 l á sokkaprjóna nr 3 með dökk blár og prjónið 8 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4 og prjónið RENDUR-1. Þegar rendurnar hafa verið prjónaðar er haldið áfram með dökk blár og sléttprjóni til loka. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 6-6-6-9-9 cm er aukið út um 2 l mitt undir ermi. Endurtakið útaukningu með 2½-2½-2½-2-2 cm millibili alls 8-9-11-13-15 sinnum = 52-56-60-66-70 l. Þegar stykkið mælist 25-30-33-37-41 cm fellið af miðju 6 l mitt undir ermi = 46-50-54-60-64 l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið aðra ermi alveg eins.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg (þetta er gert án þess að prjóna l) = 226-242-258-278-294 l á prjóni. Setjið 1 prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki). Haldið áfram fram og til baka á hringprjóna eins og áður með sléttprjóni og 5 kantlykkjum við miðju að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. JAFNFRAMT í fyrstu umf frá réttu er lykkjum fækkað fyrir LASKALÍNA hvoru megin við öll prjónamerki – sjá útskýringu að ofan (= 8 l færri). Endurtakið úrtöku fyrir laskalínu í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu) alls 16-16-16-17-18 sinnum og síðan í hverri umf (þ.e.a.s. bæði frá réttu og frá röngu) alls 0-2-4-6-7 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 28-31-35-38-42 cm (stillið af að prjónaðar séu 1-2 umf á eftir síðasta hnappagati) setjið síðustu 16-13-13-10-10 l í hvorri hlið við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli (l eru prjónaðar áður en þær eru settar á þráðinn). Fækkið síðan lykkjum fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umf í hvorri hlið þannig: Fækkið um 2 lykkjur 0-1-1-2-2 sinnum og 1 lykkju 1-2-2-2-2 sinnum. Eftir alla úrtöku fyrir laskalínu og hálsmáli eru 64-64-64-62-62 l eftir á prjóni.

HÁLSMÁL:
Prjónið upp frá réttu ca 96 til 116 l í kringum hálsmál (meðtaldar l á þræði) á hringprjóna nr 3 með dökk blár. Prjónið 1 umf slétt frá röngu JAFNFRAMT er lykkjum fækkað jafnt yfir til 70-70-76-82-82 l – ATH: Fækkið ekki lykkjum yfir kant að framan. Prjónið 4 umf slétt og fellið síðan laust af með sl frá réttu.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í.

MATRÓSARKRAGI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 164-176-190-204-216 l á hringprjóna nr 3,5 með dökk blár. Fyrsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 52-56-60-64-68 l sl, prjónið 1 l sl og setjið 1 prjónamerki í þessa l, prjónið 58-62-68-74-78 l sl, prjónið 1 l sl og setjið 1 prjónamerki í þessa l, prjónið næstu 52-56-60-64-68 l. Prjónið síðan garðaprjón fram og til baka JAFNFRAMT í næstu umf frá réttu er fækkað um 1 l hvoru megin við l með prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu) alls 22-24-26-28-30 sinnum.
JAFNFRAMT þegar prjónaðar hafa verið 6 umf garðaprjón með dökk blár eftir uppfitjunarkant eru prjónaðar RENDUR-2 – sjá útskýringu að ofan (rendurnar eru einnig prjónaðar í garðaprjóni). Þegar rendurnar hafa verið prjónaðar er haldið áfram með dökk blár, garðaprjóni og úrtöku eins og áður JAFNFRAMT er nú einnig lykkjum fækkað í byrjun hverrar umf í hvorri hlið þannig: Fækkið um 5 l 1 sinni, 4 l 1 sinni, 3 l 3 sinnum, 2 l 5 sinnum og 1 l 3-5-7-9-11 sinnum.
Eftir alla úrtöku/affellingu eru 14-14-16-18-18 l eftir á prjóni, fellið af.
Brjótið innri kant á kraganum ca 1 cm inn að röngu og saumið fallega niður. Saumið saman kraga við miðju að framan með nokkrum smáum sporum. Setjið kragann á peysuna og saumið smellu á milli peysu og kraga á hvorri öxl inn við hálsmál.

SLAUFA:
Fitjið upp 12 l á prjóna nr 3 með rauður og prjónið GARÐAPRJÓN fram og til baka í 8 cm, fellið af.
Fitjið upp 10 l á prjóna nr 3 með rauður og prjónið 8 umf garðaprjón, fellið af. Saumið saman styttri endana þannig að það myndist hringur, klippið frá og festið enda.
Dragið sjálfa slaufuna í gegnum hringinn og saumið saman bæði stykkin á bakhlið. Saumið slaufuna niður við miðju að framan við kraga þannig að hann hylji sauminn.
----------------------------------------------------------

HÚFA:

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
* 1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*.

RENDUR:
2 umf sl með natur, 2 umf sl með dökk blár, 2 umf sl með natur (= 6 umf).

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 l á eftir hverju prjónamerki þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
----------------------------------------------------------

HÚFA:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, skiptið yfir á sokkaprjóna þegar þörf er á.
Fitjið upp 96-100-104 l á hringprjóna nr 3 með dökk blár. Prjónið 8 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5, prjónið 1 umf sl. Prjónið síðan RENDUR – sjá útskýringu að ofan. Þegar rendurnar hafa verið prjónaðar er haldið áfram með dökk blár og sléttprjóni til loka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 14-15-16 cm setjið 4 prjónamerki í stykkið með 24-25-26 l á milli prjónamerkja. Fækkið síðan um 1 l á eftir hverju prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 5-6-6 sinnum og síðan í hverri umf alls 6-6-7 sinnum = 52 l eftir í umf í öllum stærðum. Prjónið 1 umf sléttprjón þar sem allar l eru prjónaðar saman 2 og 2, endurtakið í næstu umf = 13 l eftir á prjóni.
Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Húfan mælist ca 20-21-23 cm á hæðina.

DÚSKUR:
Gerið lítinn dúsk með natur ca 3-4 cm að þvermáli og saumið niður efst á toppinn á húfunni.
---------------------------------------------------------

SOKKAR:

HÆLÚRTAKA:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 5-5-6-6-8-8 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið þar til 5-5-6-6-8-8 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið þar til 4-4-5-5-7-7 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið þar til 4-4-5-5-7- l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
Haldið áfram á sama hátt með því það fækki um 1 l áður en 1 l er steypt yfir þar til 10-10-12-12-12-12 l eru eftir á prjóni.

ÚRTAKA:
Fækkið lykkjum þannig: Byrjið 3 l á undan prjónamerki og prjónið 2 l slétt saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri).
----------------------------------------------------------

SOKKUR:
Fitjið upp 42-46-52-56-62-66 l á sokkaprjóna nr 2,5 með Merino Extra Fine. Prjónið stroff þannig:
STÆRÐ 22/23 + 24/25: 2 l br, 2 l sl, 4 l br, 2 l sl, 4 l br, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* alls 3-4 sinnum, ** 2 l sl, 4 l br **, endurtakið frá **-** alls 2-2 sinnum og endið á 2 l sl og 2 l br.
STÆRÐ 26/28 + 29/31: 1 l sl, 4 l br, 2 l sl, 4 l br, 2 l sl, 4 l br, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* alls 4-5 sinnum, ** 2 l sl, 4 l br **, endurtakið frá *’-** alls 3-3 sinnum og endið á 1 l sl.
STÆRÐ 32/34 + 35/37: 2 l br, 2 l sl, 4 l br, 2 l sl, 4 l br, 2 l sl, 4 l br, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* alls 5-6 sinnum, ** 2 l sl, 4 l br **, endurtakið frá **-** alls 3-3 sinnum og endið á 2 l sl og 2 l br.
Þegar stroffið mælist 3-3-3-4-4-4 cm er skipt yfir á sokkaprjóna nr 3,5. Prjónið síðan sléttprjón en stoffið heldur áfram yfir miðju 28-28-34-34-40-40 l að aftan (= 14-18-18-22-22-26 l sléttprjón framan á sokk). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 5-5-5-6-6-6 cm fækkið aðra hverja 4 lykkju brugðið til 3 lykkjur brugðið (fækkið um 1 l með því að prjóna 2 l br saman = 3-3-3-3-4-4 l færri). Eftir 2½-3-4-5-6-6 cm fækkið þær 4 lykkjur brugðið sem eftir eru til 3 lykkjur brugðið. Endurtakið úrtöku með 2½-3-4-5-6-6 cm millibili 2 sinnum til viðbótar = 32-36-40-44-48-52 l eftir á prjóni og 2 l br í hverri br mynstureiningu fyrir miðju að aftan. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 15-18-21-24-27-29 cm. Haldið nú eftir miðju 18-18-22-22-26-26 l fyrir miðju að aftan á prjóni fyrir hæl og hinar 14-18-18-22-22-26 l eru settar á þráð (= miðja ofan á fæti). Haldið áfram með stroff fram og til baka yfir hæl-l í 4½-5-5-5½-5½-6 cm. Setjið 1 prjónamerki í mitt á prjóninn. Prjónið síðan HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan. Eftir hælúrtöku eru prjónaðar upp 10-11-11-12-12-13 l hvoru megin við hæl og l af þræði ofan á fæti eru settar til baka á prjóninn = 44-50-52-58-58-64 l á prjóni. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað hvoru megin við l ofan á fæti þannig: Þær 2 síðustu l á undan 14-18-18-22-22-26 l ofan á fæti eru prjónaðar slétt saman og 2 fyrstu l á eftir 14-18-18-22-22-26 l eru prjónaðar áfram slétt saman. Fækkið lykkjum í annarri hverri umf alls 7-8-8-9-9-11 sinnum = 30-34-36-40-40-42 l.
Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist ca 10-12-13-14-16-18 cm frá prjónamerki á hæl (nú eru eftir ca 3-3-4-4-4-4 cm til loka). Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið þannig að það verða 15-17-18-20-20-21 l bæði ofan á fæti og undir fæti. Fækkið síðan lykkjum fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA. Fækkið lykkjum í annarri hverri umf alls 4-4-5-5-5-5 sinnum og síðan í hverri umf alls 2-2-2-3-3-3 sinnum = 6-10-8-8-8-10 l eftir á prjóni.
Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Sokkurinn mælist ca 13-15-17-18-20-22 cm frá prjónamerki á hæl.

Prjónið annan sokk á sama hátt.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 26-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (17)

country flag REINE MARIE wrote:

Bonjour ,là je suis arrivée à l'assemblage du col :alors faut-il coudre bord à bord (les 18mailles) de chaque côté ensembles ou les superposer? Sinon le long du col je fais 1cm de petits point ourlés tout le tour du col marin .J'aimerai pour être sure de moi de bien faire .Merci beaucoup de votre réponse attendue pour vite finir et l'offrir à mon Petit Fils .bonne journée à votre belle équipe et merci encore

04.08.2023 - 07:49

DROPS Design answered:

Bonjour Reine Marie, posez le col bien à plat sur le gilet pour qu'il soit bien placé et assemblez les devants ensemble au niveau où ils se rejoignent en veillant à ce qu'ils soient bien placés - assemblez sur la longueur nécessaire sans déformer le col/gilet. Cette couture sera ensuite cachée par le noeud papillon. Le long de l'intérieur du col (la partie contre le cou), repliez sur environ 1 cm et cousez tout le long. Bonne continuation!

04.08.2023 - 08:07

country flag REINE MARIE wrote:

EXCUSEZ MOI ENCORE POUR LES BOUTONS PRESSIONS FAUT IL COUDRE SUR L ENDROIT DE L EPAULE OU DESSOUS MERCI CAR CELA M EST UN PEU DIFFICILE .MERCI DE VOTRE REPONSE POUR CES DEUX QUESTIONS SEPAREE

02.08.2023 - 16:34

DROPS Design answered:

Bonjour Reine Marie, placez les boutons pressions sur les épaules, près de l'encolure/du col et l'autre partie sur l'envers du col (celle qui se trouve posée contre le gilet). Bonnes finitions!

03.08.2023 - 07:52

country flag REINE MARIE wrote:

Bonjour ,on dit de coudre le col à petits points sur le devant es ce que c\'est au niveau de l\'encolure ou c\'est qu\'il faut coudre les pointes de 18mailles ensembles je ne sais pas ,.Merci de votre réponse

02.08.2023 - 15:15

DROPS Design answered:

Bonjour Reine Marie, vous allez coudre les pointes ensemble, pour que ce soit bien joli, posez le gilet à plat et mettez le col en place puis assemblez les 2 côtés du col pour le maintenir, vous coudrez ensuite le noeud dessous pour cacher la couture. Bon tricot!

02.08.2023 - 16:34

country flag REINE MARIE wrote:

Merci beaucoup de votre réponse .Bonne soirée

01.08.2023 - 20:52

country flag REINE MARIE wrote:

Bonjour ,je suis entrain de tricoter le col marin alors pour les diminutions faut il laisser la maille a l endroit jersey ou faut il la tricoter en point mousse a chaque rang aussi de chaque cote des diminutions .Merci de votre réponse

01.08.2023 - 14:51

DROPS Design answered:

Bonjour Reine Marie, les mailles avec les marqueurs se tricotent aussi au point mousse, comme les autres. Bon tricot!

01.08.2023 - 17:54

country flag REINE MARIE wrote:

Bonjour l'équipe ,merci c'est ce qui me semblait ,je vous remercie beaucoup .Bonne après midi ,le résultat va être super beau je l'espère .Merci encore

31.07.2023 - 15:20

country flag REINE MARIE wrote:

Bonjour pour le raglan de cette jolie veste marin faut t'il diminuer alternativement les mailles tous les deux rangs et tous les rangs ,ou faire d'abord : 17FOIS1MAILLES à la suite, et ensuite faire les diminutions tous les rangs pour finir ou alterner .Merci de votre réponse car là je doute .

29.07.2023 - 15:10

DROPS Design answered:

Bonjour Reine Marie, pour le raglan, vous allez diminuer 8 mailles à chaque fois (1 sur chaque devant, 1 au début + 1 à la fin de chacune des manches et du dos, et répéter ces diminutions 17 fois tous les rangs sur l'endroit (tous les 2 rangs) puis 6 fois tous les rangs (sur l'endroit et sur l'envers). Diminuez comme indiqué sous RAGLAN au début des explications. Bon tricot!

31.07.2023 - 10:16

country flag Reine Marie wrote:

Merci 🍀🌹🍀j\'ai compris ,bonne fin d\'après-midi.

24.07.2023 - 16:33

country flag REINE MARIE wrote:

Bonjour comment augmenter 2mailles sous la manche en tricotant en rond .merci de votre réponse

24.07.2023 - 14:02

DROPS Design answered:

Bonjour, mettre un fil marqueur au debut du tour (milieu sous la manche). Ensuite suivez les explications. Pour augmenter 2 mailles sous la manche vous procedez comme suit: en commençant 1 maille avant le fil marqueur, 1 jeté, tricoter 2 mailles endroit (le fil marqueur est entre ces 2 mailles), 1 jeté. Au tour suivant, tricoter les jetés torse à l'endroit pour éviter des trous (on augmente 2 mailles). Tricoter ensuite les augmentations en jersey. Bon tricot!

24.07.2023 - 14:27

country flag REINE MARIE wrote:

Merci de votre réponse ;alors j'avais bien compris mais je préféré vous demander .Bonne soirée.

15.07.2023 - 18:04