DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3828.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Serene Spring

Prjónaður toppur úr DROPS Belle með gatamynstri og laskalínu. Prjónað ofan frá og niður. Stærð S-XXXL.

DROPS Extra 0-1104
DROPS Design: Mynstur nr vs-003
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS BELLE frá Garnstudio
300-350-350-400-450-500 g litur nr 02, natur

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: Lengd 60 - 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: Lengd 60 - 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3828.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 – A.3.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 lykkju á undan merki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á unda merki, lyftið 1 lykkju af prjóni, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir.
Fækkið um 1 lykkju á eftir merki þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman.

LASKALÍNA:
Mismunandi er aukið út eftir stærðum þannig:
STÆRÐ S-M:
Aukið út 1 lykkju hvoru megin við hvert merki (= 8 lykkjur fleiri) þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja slétt (= lykkja með merki), 1 lykkja snúin slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn í næstu umferð, það á að myndast gat, endurtakið útaukningu í annarri hverri umferð 17-19 sinnum til viðbótar.
STÆRÐ L-XL-XXL-XXXL:
Aukið út 2 lykkjur hvoru megin við hvert merki (= alls 16 lykkjur fleiri) þannig: sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja slétt (= lykkja með merki), 1 lykkja snúin slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (fyrsti og síðasti uppslátturinn er prjónað snúið slétt í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt, en 2 miðju uppslættirnir eiga að mynda göt), endurtakið útaukningu í annarri hverri umferð 1-1-1-3 sinnum til viðbótar.
Síðan er aukið út þannig:
Aukið út 1 lykkju hvoru megin við hvert merki (= alls 8 lykkjur fleiri) þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja slétt (= lykkja með merki), 1 lykkja snúin slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga að myndast göt, endurtakið útaukningu í annarri hverri umferð alls 19-20-22-21 sinnum.

ÚTAUKNING:
Byrjið 1 lykkju á undan merki og aukið út þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt (merkið situr mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:

----------------------------------------------------------

TOPPUR:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður.

BERUSTYKKI.
Fitjið upp 134-134-140-144-144-148 lykkjur á hringprjón 3,5 með Belle.
Prjónið A.1 (= 2 lykkjur) yfir allar lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, skiptið yfir á hringprjón 4. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt og aukið út 16-20-14-22-42-46 lykkjur jafnt yfir = 150-154-154-166-186-194 lykkjur. Í næstu umferð eru sett 4 merki í stykkið, 1 merki í miðjulykkju á hverri laskalínu þannig: Setjið 1. merki í síðustu lykkju frá fyrri umferð, prjónið 45-47-49-55-65-71 lykkjur slétt (= framstykki), prjónið 1 lykkju og setjið 2. merki í þessa lykkju, prjónið 28-28-26-26-26-24 lykkjur slétt (= ermi), prjónið 1 lykkju og setjið 3. merki í þessa lykkju, prjónið 45-47-49-55-65-71 lykkja slétt (= bakstykki), prjónið 1 lykkju og setjið 4. merki í þessa lykkju, prjónið 28-28-26-26-26-24 lykkjur slétt (= ermi).
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Síðan er prjónað þannig – JAFNFRAMT sem aukið er út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan: Prjónið 14-15-16-19-24-27 lykkjur slétt, A.2 (= 17 lykkjur), prjónið sléttar lykkjur þar til 1-1-2-2-2-2 lykkjur eru eftir á undan 2. merki, prjónið LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, prjónið sléttar lykkjur þar til 1-1-2-2-2-2 lykkjur eru eftir á undan 3. merki, prjónið laskalínu, prjónið sléttar lykkjur þar til 1-1-2-2-2-2 lykkjur eru eftir á undan 4. merki, prjónið laskalínu, prjónið sléttar lykkjur þar til 1-1-2-2-2-2 lykkjur eru eftir á undan 1. merki, prjónið laskalínu. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.

Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað sléttprjón yfir þessar lykkjur. Eftir alla útaukningu eru 294-314-338-358-394-426 lykkjur á prjóni. Stykkið mælist ca 14-15-16-17-18-19 cm. Haldið áfram í sléttprjóni og prjónið þannig: Prjónið fyrstu 81-87-95-103-117-129 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 66-70-74-76-80-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 lykkjur undir ermi (setjið eitt merki mitt á milli nýrra lykkja), prjónið næstu 81-87-95-103-117-129 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 66-70-74-76-80-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 lykkjur undir ermi (setjið eitt merki mitt á milli nýrra lykkja) = 174-186-202-222-250-274 lykkjur eftir á prjóni. Setjið 1 merki í stykkið. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 3 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við hvert merki í hliðum (= 4 lykkjur færri) – lesið ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með 2½-4-4-4-4-4 cm millibili 5-3-3-3-3-3 sinnum til viðbótar = 150-170-186-206-234-258 lykkjur. Þegar stykkið mælist 20 cm í ölum stærðum er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert merki í hliðum (= 4 lykkjur fleiri) – LESIÐ ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu með 2-4-4-4-4-4 cm millibili 5-3-3-3-3-3 sinnum til viðbótar = 174-186-202-222-250-274 lykkjur. Þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið A.3 (= 2 lykkjur) yfir allar lykkjur. Fellið af.

ERMI:
Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna. Setjið til baka lykkjur af þræði yfir á sokkaprjóna 4 og fitjið upp 6-6-6-8-8-8 lykkjur undir ermi = 72-76-80-84-88-92 lykkjur.
Prjónið sléttprjón í 2 cm, í næstu umferð er fækkað um 8 lykkjur jafnt yfir = 64-68-72-76-80-84 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið A.3 yfir allar lykkjur. Fellið af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 01.06.2015
Leiðrétting: Laskalína og berustykki hafa verið umorðuð.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Serene Spring

Lady-Orange

Serene Spring

Catherine, Ireland

Serene Spring

Kat Martinet, France

Serene Spring

Irene, Austria

Serene Spring

Edith, Germany

Serene Spring

Gabi, Germany

Serene Spring

Tiia N, Finland

Serene Spring

Green Bird, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1104

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (65)

country flag Daniela Grechová wrote:

Dobrý deň, velmi sa mi tento svetrik páči. Rada by som si ho uplietla. Ďakujem za možnosť si tento návod stiahnuť aby som vedela ako na neho.

23.04.2024 - 11:53

country flag Stella Lecis wrote:

Non capisco dal diagramma cosa rappresenta il pallino nero. Di fianco al simbolo c'è scritto "1 metro eq", cosa vuol dire? Grazie per l'attenzione e attendo risposta. Cordialmente

09.04.2024 - 18:04

DROPS Design answered:

Buonasera Stella, nella legenda del diagramma il pallino nero è indicato come 1 maglia rovescio. Buon lavoro!

09.04.2024 - 19:25

country flag Nat wrote:

Pour faire les jours du diagramme 3, il ne faut pas tricoter les jetés aux rangs pairs ou il faut les tricoter mais pas en torse?

30.07.2023 - 09:39

DROPS Design answered:

Bonjour Nat, les jetés de tous les diagrammes A.1, A.2 et A.3 vont se tricoter à l'endroit au tour suivant, ils doivent former des trous pour le point ajouré. Bon tricot!

31.07.2023 - 10:49

country flag Margit Roos wrote:

I opskriften Serene Spring sættes 4 mærker mhp raglanudtagning. 1. mærke sættes på sidste maske i forrige omg, og første udtagning starter efter denne midtermaske, dvs i 2. halvdel af instruksen til raglanudtagning. Hvis det er korrekt forstået, hvor i beskrivelsen til raglanudtagning startes så ved 2.- 3.- 4. og 1. mærke. Hvordan kan opskriften forstås, så alle 8 udtagninger/4 mærker ser ens ud?

11.07.2023 - 14:43

country flag Margit Roos wrote:

I opskriften Serene Spring sættes 4 mærker mhp raglanudtagning. 1. mærke sættes på sidste maske i forrige omg, og første udtagning starter efter denne midtermaske, dvs i 2. halvdel af instruksen til raglanudtagning. Hvis det er korrekt forstået, hvor i beskrivelsen til raglanudtagning startes så ved 2.- 3.- 4. og 1. mærke. Hvordan kan opskriften forstås, så alle 8 udtagninger/4 mærker ser ens ud?

10.07.2023 - 10:19

DROPS Design answered:

Hei Margit. Det økes ulikt til raglan i de forskjellige størrelsene, hvilken størrelse strikker du? Du strikker 1 omgang der du setter de 4 merkene, på neste omgang starter du raglanøkningene. mvh DROPS Design

24.07.2023 - 13:48

country flag Anne Gullie Falkenberg wrote:

Hei. Vil gjerne strikke Serene Spring topp men jeg liker ikke å strikke i bomull. Kan dere hjelpe meg med annet garn.

08.03.2023 - 20:51

DROPS Design answered:

Hei Anne, Alle våre garn hører til en gruppe. Du kan bruke alle de andre garn i samme gruppa til å strikke en oppskrift, uten å justere antall masker og rad (husk uansett å strikke en prøvelapp for å sjekke strikkefastheten). Klikk på Garn og Pinner på toppen av sida og velg Garngrupper i menyen. Håper dette hjelper og god fornøyelse!

09.03.2023 - 07:01

country flag Anna wrote:

Need clarification on the increases. The Raglan section says "Do not work YOs twisted on the next round, they should make holes, repeat inc every other round 17-19 times, however, under the INCREASE TIP it says, ....On next round K YOs twisted to avoid holes. Which is it? I love your patterns but they are not very well written and confusing to follow. It's not just me. I've talked to several experienced knitters and they all agree with me.

02.01.2023 - 15:23

DROPS Design answered:

Dear Anna, the INCREASE TIP doens't apply to raglan increases but only when working body when it refers to this tip. The raglan increases should be worked as explained under RAGLAN. Happy knitting!

02.01.2023 - 16:27

country flag Kristine wrote:

Where are the measurements for the sizes? There's S - M - L - XL - XXL - XXXL but no measurements for them.

06.03.2022 - 16:00

DROPS Design answered:

Hi Kristine, There is a measurement chart for all the sizes at the bottom of the page. Happy knitting!

07.03.2022 - 07:03

country flag Nataly L wrote:

Bonjour Je tricote ce modèle en taille L et à la fin du raglan quand toutes les augmentations ont été faites, je me retrouve avec un total de 348 mailles au lieu des 338 indiquées. Je ne comprends pas, d'autant plus que lorsque je fais le compte des augmentations dans les explications j'arrive à un total de 348 ...

12.12.2021 - 21:49

DROPS Design answered:

Bonjour Nataly L, vous commencez l'empiècement avec 154 mailles et augmentez 2 fois 16 m puis 19 fois 8 m vous aurez ainsi: 154 + 32 + 152= 338m. En espérant que ceci puisse vous aider. Bon tricot!

13.12.2021 - 10:14

country flag Margit Lønborg wrote:

Hvordan kan masketallet blive 154 når man begynder pind nr 4? Der er jo i mønster A1 taget ind i 5. pind til 67 masker. Hjælp!

25.07.2021 - 21:45

DROPS Design answered:

Hej Margit, nej du tager ikke ind i A.1, her laver du kun huller. På pind 5 strikker du 2 sammen, 1 omslag osv :)

05.08.2021 - 13:42